Morgunblaðið - 09.11.1976, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1976
27
JAMES Hunt, gleðimaðurinn sem var> neimsmeistari í
kappakstri 1976. Þegar hann varð að því spurður hversu
mörgum hann ætlaði að bjóða f sigurveisluna svaraði
hann. — Ég ætla að bjóða sex og það er af því að það cru
ekki nema þrjú svefnherbergi í húsinu mfnu.
FUJI-brautin í Japan, þar sem úrslitin réðust. Glæsileg
braut í fallegu umverfi, en stórhættuleg ekki sízt í
rignineu.
Báðir verða með að ári
Bæði James Hunt og Niki
Lauda ætla sér að vera með í
næstu heimsmeistarakeppni.
Ymsar blikur eru þó á lofti, sér-
staklega hjá Niki Lauda. Sagt er
að Enzo Ferrari, framkvæmda-
stjóri Ferrari-verksmiðjanna,
hafi ekki verið sáttur við ákvörð-
un Lauda um að hætta keppninni
í Japan og að hann sé nú að líta í
kringum sig eftir nýjum kapp-
akstursstjörnum. Og víst er að
Ferrari hefur nú rekið Clay
Regazzoni sem búinn er að vera í
fremstu röð kappakstursmanna
um árabil og var lengi vel bezti
vinur Niki Lauda. Eftir brott-
reksturinn hjá Ferrari hefur þó
vinátta þeirra kólnað og
Regazzoni hefur látið hafa eftir
sér, að Lauda eigi þátt i því að
hann var látinn fara. — Lauda
skiptir sér af of mörgu, sagði
Regazzoni nýlega i viðtali við
svissneska blaðið Sport. — Þann-
ig ákvað hann t.d. að Ferrari-
bifreiðar skyldu ekki taka þátt í
„Grand Prix“ Austurrikis í ár, og
var eina ástæðan sú, að hann gat
sjálfur ekki ekið. Þetta þýddi það
að ég missti af stigum sem ég átti
nokkuð örugg. Hefði ég keppt
þarna hefði ég örugglega orðið i
fimmta sæti eða ofar I keppninni
í ár. Þá var það einnig Niki Lauda
sem ákvað að aðeins þrjár Ferr-
ari-bifreiðar skyldu taka þátt i
keppninni í Japan.
Clay Regazzoni er ekki á flæði-
skeri staddur þótt hann hætti hjá
Ferrari og hefur hann þegar feng-
ið tilboð frá m.a. Brabham,
March, Surtees og fl.
Meðal þeirra sem álitið er að
Enzo Ferrari muni leita eftir
samningum við er Brasilfumaður-
inn Emerson Fittipaldi, fyrrver-
andi heimsmeistari. Fittipaldi
hefur að undanförnu ekið
brasilískri bifreið af Copersucar
gerð og mun vera í hæsta máta
óánægður með hana, enda hafn-
aði hann í 17. sæti á keppninni í
ár, en slfkt telst honu^v og getu
hans ekki samboðið.
Real vill
og kaupa
selja Breitner
Kevín Keegan
Breitner — Jensen og Keegan. Breitner er maðurinn sem Real
Madrid hefur áhuga á að losa sig við, Jensen er nýkeyptur til fé-
lagsins og Keegan er sá er félagið hefur mikinn augastað á.
SPÁNSKA knattspyrnufélagið
Real Madrid hefur nú gert enska
knattspyrnufélaginu Liverpool
tilboð f hinn frábæra knatt-
spyrnumann Kevin Keegan. Hef-
ur Real Madrid boðið 800.000
dollara f Keegan, og þvkir ólfk-
legt annað en að Liverpool freist-
ist til þess að selja Keegan fyrir
það verð, svo fremi hann vilji
fara til Spánar.
Spánska Iþróttablaðið „La
Marca“ skýrði nýlega frá þvf að
ástæðan fyrir hinum mikla áhuga
Real Madrid á Keegan væri sú, að
liðið hygðist losa sig við Vestur-
Þjóðverjann Paul Breitner, en
samningur hans við Real Madrid
rennur út næsta sumar.
Sagt er að hinn júgóslavneski
þjálfari Real Madrid, Miljan
Miljanics, hafi óskað eftir því í
haust við forráðamenn félagsins
og að keyptur yrði leikmaður sem
gæti komið f stað Breitners. Var
Kevin Keegan efstur á óskalista
Miljanics, en á honum voru einnig
nöfn Danans Hennings Jensens
og Vestur-Þjóðverjans Uli
Höness. Varð af kaupum á Jensen
í upphafi keppnistímabilsins og
hefur hann gert það gott hjá hinu
nýja félagi sfnu. Þó telur
Miljanics hæfileika hans ekki
fullnýtta — það vanti mann til
þess að leika með honum og sá
maður sé Kevin Keegan.
Real Madrid er ekki eina félag-
ið sem sýnt hefur Kevin Keegan
mikinn áhuga að undanförnu. Vit-
að er að bæði italska liðið
Juventus og spánska félagið
Barcelona, sem mun missa Johan
Cruyff að loknu þessu keppnis-
tfmabili, hafa gert Liverpool til-
boð.
Þeir sem þekkja til mála hjá
Real Madrid segja það ekki koma
á óvart þótt félagið vilji losa sig
við Paul Breitner. Bæði hafi
Breitner ekki getað leikið með
vegna meiðsla f langan tfma f ár,
og eins séu forráðamenn félagsins
ekki hrifnir af pólitfsku brölti
hans. Breitner er maó-isti og hef-
ur í seinni tíð verið ófeiminn við
að láta í ljós skoðanir sfnar. Nú
fyrir stuttu gaf hann til að mynda
spænsku verkalýðssamtökunum
upphæð sem svarar til 3 milljóna
íslenzkra króna, og eins er talið að
hann hafi gefið peninga til ýmissa
félaga á Spáni sem teljast mjög
vinstri sinnuð.
HEF ALLTAF HAFT MINNIMÁTTARKENND
- segir Franz Beckenbauer í nýútkominni bók sinni
FRANZ BECKENBAUER —
bezti knattspvrnumaður heims
sfðan stjarna Pele tók að lækka —
þjáist af minnimáttarkennd!
Þeir sem lesið hafa nýútkomna
bók Beckenbauers „Knattspyrna
er Iff mitt“, segja að það komi
glögglega fram f henni, að
Beckenbauer telji sig ekki met-
inn að verðleikum og að hann sé
stöðugt f skugga annarra knatt-
spyrnumanna f Vestur-
Þýzkalandi.
— Það getur vel verið að ég hafi
aldrei notið hylli sem knatt-
spyrnumaður, segir Beckenbauer
í bók sinni. — Það, er þá örugg-
lega af þvf að ég< hef mína galla
sem annað fólk og á erfitt með að
fela þá. Ég hef aldrei talið mig
vera stjörnu og það hefur alltaf
farið afskaplega f taugarnar á
mér, þegar fólk umgengst mig
með einhverri uppgerðarvirð-
ingu. Ég hef fundið tii minni-
máttarkenndar allt frá þvf að ég
var barn og unglingur, og knatt-
spyrnan hefur ekkert gert annað
en að magna þessa tilfinningu
mfna.
Beckenbauer kemur vfða við í
bók sinni og drepur á margt sem
hann telur að geti orðið knatt-
Lh/erpool lið
ENSKA knattspyrnuliðið Lirpool
hlaut heiðurstitil franska knatt-
spyrnutfmaritsins „France foot-
ball" sem lið ársins 1975. Hlaut
Liverpool 35 stig í stigagjöf blaðs-
ins, en tvö lið urðu sfðan jöfn f
öðru sæti með 29 stig: Saint
Etienne frá Frakklandi og PSV
Eindhoven frá Hollandi.
spyrnuíþróttinni til framdráttar.
Eitt af því er að dómarar verði
atvinnumenn i fagi sfnu. Telur
Beckenbauer það lágmark að þeir
fái 50 þúsund krónur fyrir hvern
leik. Það geti tryggt að þeir leggi
sig fram, og eins að aðeins hæfi-
leikamestu dómararnir veljist til
starfans, en Beckenbauer segir að
starf dómaranna hafi til þessa
verið vanmetið. Það sé mun mikil-
vægara en flestir álfti. Ein mistök
hjá dómara, og þau jafnvel
smávægileg, geti haft úrslitaáhrif
á gang knattspyrnuleiks.
Sotiris Kaiafas — markakóngur
Evrópu 1975—1976.
ársins
Gullskó þann sem blaðið veitir
markakóngi Evrópuknattspyrn-
unnar hlaut leikmaður Kýpurliðs-
ins Omonia, sem var mótherji Ak-
urnesinga í Evrópubikarkeppni
meistaraliða f fyrra. Heitir sá
Kaiafas, og skoraði hann alls 39
mörk fyrir lið sitt.
Mörgum finnst vanta í bók
Beckenbauers að hann fjalli um
félaga sína bæði hjá Bayern
Múnchen og f vestur-þýzka lands-
liðinu. Þó kemur greinilega fram,
að Beckenbauer hefur mikið álit
og dálæti á þeim George
Schwarzenbeck, Gerd Múller og
Sepp Maier og að hann er ekki
hrifir.n af Paul Breitner.
Benckenbauer viðurkennir þó að
Bayern Múnchen eigi Breitner
mikið að þakka og að hann sé
góður knattspyrnumaður. Segir
Beckenbauer það beinum orðum í
bók sinni að það hafi verið Breitn-
er sem gekk fram fyrir skjöldu
fyrir sfðustu heimsmeistara-
keppni og kom á sáttum er þýzka
landsliðið var að klofna í margar
einingar vegna launadeilna. Um
aðra leikmenn fjallar Becken-
bauer naumast i bók sinni, en sem
kunnugt er þá hefur samstarf
hans við ýmsa leikmenn, bæði i
félagsliði hans og eins f þýzka
landsliðinu, oft verið nokkuð
brösótt.
Hins vegar skrifar Becken-
bauer nokkuð um fyrrverandi
þjálfara Bayern Múnchen, Udo
Lattek, sem nú þjálfar Borussia
Mönchengladbach. Segir hann
Lattek hafa miklu meiri áhuga á
að leika tennis en að standa sig
sem þjálfari og gefur honum
heldur siæma einkunn. Þá veitist
Beckenbauer einnig að forystu
þýzka knattspyrnusambandsins
og sérstaklega fyrir framkomu
hennar að lokinni sfðustu heims-
meistarakeppni, en leikmönnum
þýzka liðsins var ekki leyft að
hafa eiginkonur sínar með í hóf
sem efnt var til í tilefni heims-
meistaratiiilsins. — Slíkt var ekki
stórmannlegt og lýsir vel þeim
mönnum em þá réðu ferðinni hjá
okkur, segið Beckenbauer.