Morgunblaðið - 09.11.1976, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÖVEMBER 1976
35
veikindum hennar. Við systkinin
kveðjum hana og þðkkum fyrir
okkur, en til hennar var alltaf
hægt að leita. Hún var vinur í
gleði og raun.
Einari manni hennar, sonum og
fjölskyldum þeirra sendum við
samúðarkveðjur.
Svo farðu nú blessuð! — Vér knýtum þér
krans
úr krossblómum saknaðar bundinn,
og grátþrungin felum þig gæslunni hans,
sem er „guð vors lands“.. Þú varst dóttir vors
lands
og fá mun þér göfugri fundin.
G.G.
Ragnheiður Kr. Björnsdóttir
Hveragerði.
— Afmæli
Guðbjörg
Framhald af bls. 31
En gjafir hennar má ekki færa I
gjafabók, ekki augiýsa i blöðum,
ekki minnast á við neinn. Sú regla
hefur gilt um áratugi.
En komist kirkjan okkar í
Langholtssöfnuði nokkurn tíma
upp að óskum sem helzta félags-
leg miðstöð kristil. menningar í
hverfinu, fullyrði ég að enginn
einstaklingur á þar stærri hlut en
hún, ekki bara í veggjum og þaki
hússins, heldur í byggingu hinnar
æðri ósýnilegu kirkju, helgidómi
andans við brautu kærleikans.
Konur hafa allt frá upphafi
verið æðstu prestar Drottins við
vegu kynslóðanna. í»ær þurfa
minnsta kosti sumar þar á meðal
Guðbjörg enga biskupsvígslu til
þess. Þeirra biskup er lífskraftur
Guðs í þeirra höfn og hjarta.
Þið spyrjið hvort þessi kona sé
auðug eða hafi verið það.
Já, hún Guðbjörg Vilhjálmsd.
er rík. En fjármunir hennar
ávaxtast ekki í bönkum né fast-
eignum. Hún greiðir víst nær 100
þúsundum í skatt árlega einmitt
nú hin sfðustu ár.
Hún varð ung ekkja, einstæð
kona með mörg börn ung. En hún
kunni að taka til hendi. Fisk-
vinna, frammistaða í verbúð,
kaupakona á sumrum, handa-
vinna heima, en fyrst og fremst
móður- og húsmóðurstarf. Kvart-
anir, kröfur, nauð og suð, nöldur
og vfl fannst aldrei í hennar orða-
bók. Hún gerði kröfur á eigin
hönd en ekki annarra. Hún var
höfðinginn se þrátt fyrir allt var
veitandi en ekki þurfandi. En
samt til dauðans þakklát hverri
hjálparhönd. Hver greiði henni
margborgaður.
Hvort sem hún gekk um götuna
á Eyrarbakka eða var húsfreyja á
Suðurnesjum eða kaupakona á
Kirkjubæjarklaustri, var hún allt-
af stórmennið, sem bar sínar
byr^ar, sem voru gjafið til sam-
ferðafólkeins, léttilega. Stundum
brosti sólin eins og skúrum og
skuggum gegnum heit og höfug
tár. Hún var ekki síður stór í
heitum hörmum sínum, og ást
sinni.
Og nú er hún kannski stærst.
Hún á óviðjafnanlega ættingja ó-
teljandi vini, frábæra afkomend-
ur sem skipta mörgum tugum.
Það eru glæsilegir vextir jafnvel
talið í milljónum, sem æðri eru
íslenzkum krónum. Samt nær góð-
vild hennar, gjafir og, bænir til
allra afkomendanna
Hún gerir meira og fleira en að
prjóna og vinna. Hún elskar ljóð
og leik málsins. Talar frábæra
fslenzku lærða við móður- og
föðurkné: Kné ferjumannsins
yfir stórfljót SuðurlandsVil-
hjálms Gíslasonar f Öseyrarnesi
eins mesta kappa og þekktasta á
suðurströnd Islands á síðustu öld
Orðfæri hans kynngi og stíl
gleymist engum sem heyrði.
Hún les mikið af góðum bókum
og blöðin daglega, kannski öll og
er þá mikið sagt. F:tt fer fram hjá
henni og enn færrra kemur henni
á óvart. Hún á sjón út fyrir hring-
inn þrönga í anda, söng og bæn.
Kirkjan er henni helgidómur
hvern einasta helgan dag. En hún
kann sér einnig vel í söngsölum
og i leikhúsi með ljúfum vinum.
Hún elskar lifið f öllum þess
myndum. Trúðu frjáls á Guð hins
góða. Guð er innst í þinni sál eru
letruð sem einkunnarorð þess
kristindóms sem hún lifir.
Víðsýn, frjáls og góð gengur
hún enn yfir heiðalönd lífsins.
Byrðar hennar eru gjafir til
fórnar á altari hins góða Guðs f
sálum og samfélagi samferðafólk-
sins.
Engum bæ, engri byggð ann
hún heitar en Kirkjubæjar-
klaustri, þar sem hún kaupakona
í tuttugu ár.
Sólskin islenzkrar sveitar, sögu
Islands og kirkju Krists samein-
ast þvi listaverki sem líf hennar
er.
Attatfu ár skipta engu máli.
Guðbjörg Vilhjálmsdóttir er og
verður ung og auðug kona íslenzk
kristin kona. Bezta vinkonan
segja margir.
Lifðu heil og sæl. Hjartans
óskir og þakkir á þessum afmælis-
degi 9. nóv. frá Langholtssöfnuði.
Árelfus Níelsson
jcizzBaLLetcskóLi bópu,
Dömur
athugið
ö
sz.
co
jj líkom/í(«kl
0 Síðasta 5 vikna námskeið fyrir jól hefst
s
N
N
1 5. nóvember.
if Líkamsrækt og megrun fyrir dömur á öllum aldri.
it Morgun-dag-og kvöldtimar
if Tímar tvisvar til fjórum sinnum í viku
if Sturtur — sauna — tæki — Ijós
Uppl og innritun í sima 83730
N
r~
&
g
CD
ZV
P
S
V.
Síðasta tækifærið fyrir jól.
JazzBaLL©ttskóLi bópu
NOVALIN VEGGFÓÐUR
KinnasanDS novaun
Það hefur alveg sérstaka áferð sem
einkennir aðeins NOVALIN veggfóður
frá KINNASAND.
Þau eru til í mörgum gerðum og litum
Sænsk gæðavara.
Vandlátir velja NOVAUN
FRIÐRIK BERTELSEN,
LÁGMÚLA 7, SÍMI 86266
SÉRVERSLUN
MEÐ
SVINAKJÖT
Heildsala — Smásala lí
SÍLD & FISKUR
Bergstaóasfræti 37 sími 24447
Rúllukragabolir: kr. 980.00
Efni: 100%nylon.
Litur: Brúnn, drapp, hvítur, svart-
ur, blár, rauður.
Stærðir: S—M—L—EXL.
Vesti: kr. 2.525 00
Efni: 1 00% acrylic.
Litur: svört, brún.
Stærðir: 12—14—16.
Pils: kr. 3.400.00 (mynd)
Pils: kr. 3.600.00
Buxur: kr. 3.500.00 og 3.700.00
Smekkbuxur: kr. 4.980.00
Mussur: kr. 3.750.00
Efni: Rifflað flauel, 100%bómull.
Litur: Brúnn og svartur.
Stærðir: 36—44.
Leðurstigvél: kr. 10.500.00
Litur: Ijósbrúnn.
Stærðir: 36—41.
GERIÐ GÓÐ KAUP
(DÓMUS
Sendum í póstkröfu,
símar 22110 og 12723.
Denimvesti: verð: 2.950.00
Denimbuxur: verð: 3.950.00
Efni: 100% bómull
Stærðir: 36—44.
Skyrta: verð: 2.500.00
Efni: 100% bómull
Stærðir: S—M — L.
DOMUS Lou9°vegi91