Morgunblaðið - 09.11.1976, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÖVEMBER 1976
45
VELVAKAIMDI
Velvakandi svarar f sfma 10-
100 kl. 10—11 f.h. frá mánu-
deg
0 Góð sýning.
Hér fer á eftir bréf þar
sem getið er þess að bréfritari
hafi farið á sýningu sem honum
finnst góð og minnir í lok bréf-
sins á hugmynd, sem sennilega
hefur verið gert of lítið af að
framkvæma.
Heiðraði Velvakandi,
Ég er einn þeirra mörgu, sem
notið hafa þeirrar ánægju og
fræðslu að sjá myndlistarsýningu
Finns Jónssonar i Listasafni
rikisins. Öll er þessi sýning hin
veglegasta og sýnir viðamikið
yfirlit um feril, starf og þroska
þessa mikla listamanns og merka
íslendings. Þar er ekki aðeins að
sýningin sé vottur listfengi Finns,
heldur opnar hún einnig fólki
heim, þar sem skyggnast má inn í
þjóðlif íslendinga, atvinnuhætti,
náttúrufar og tíðaranda. Svipmót
Iands og lífs skín ú r hverri mynd
og bera þær í senn vott um sjálf-
stæði listamannsins og næmleika
hans, auk ástar á landinu og virð-
ingu fyrir starfi og stríði hins
almenna manns. Trúi ég því að
hver maður, sem sýninguna sér
verði af þvi bæði betri, glaðari og
fróðari manneskja.
• Listum
landið
En þá mætti minnast þess að
ekki eiga allir kost á því að fara
til Reykjavíkur til þess að sjá
verk Finns — allt frá fram-
úrstefnuverkum hans til hinnar
nýju sjávarmyndar „lífróðurs“.
Nú koma félagsheimilin mörgu
að góðum notum. Enda mál til
komið að þau flytji list um landið.
Hvernig væri að senda úrval
mynda Finns út á land? T.d. gefa
fólki austan Fjalls eða uppi
Borgarfirði og víðar um landið
færi á því að kynnast þessum stór-
brotnu verkum Finns Jónssonar.
Þess má minnast að úrval mynda
úr síðustu sýningu Asgríms var
sent út á land og vakti það ánægju
fólks, sem naut góðs af. Er þessu
beint til menntamálaraðherra.
„Gamall nemandi"
• Vandamál
æskunnar.
Sveinn Sveinsson hringdi.
„Ég hef gert tilraunir til að fá
almenning til að taka þátt í ein-
hverjum jákvæðum aðgerðum í
vandamálum æskunnar. Það er
vissulega margt sem hægt er að
gera og hef ég lagt eitt þúsund
krónur inn á sparisjóðsbók í
Alþýðubankanum undir nafninu
Æskulýðssjóður. Bókin liggur þar
frammi og geta þeir sem vilja
bæta þar einhverju við lagt inn á
ættuð að hugleiða máiið meðan
ttmi er til.
— Eg hef hugleitt málið.
— Og þér leynið mig engu?
— Það gæti ég ekki ímyndað
mér. Eins og þér eruð snjall!
— Jæja, við sjáum nú til.
— Það er ekkert að sjá!
— Hvað hafið þér hugsað yður
að gera, þegar fjölskylda hans
kemur að annast um útförina?
— Ég veit það ekki.
— Hafið þér hugsað yður að
vera hér kyrr?
— Kannski.
— Vonist þér til að erfa hann?
— Það er mjög sennilegt.
Maigret tekst ekki algerlega að
hafa vald á sér.
— Að minnsta kosti ætla ég að
minna yður á eitt, litla vina. Með-
an rannsóknin stendur yfir,
banna ég yður að fara úr bænum
nema láta lögregluna vita.
— Hef ég ekki leyfi til að fara
út úr húsinu?
— Nei.
— Og ef mig langar nú að fara
eltthvað?
— Þá verðið þér að spyrja mig
leyfis.
— Haldið þér að ég hafi drepið
hann?
hana sinn skerf og ef þeir komast
að því að ekkert hefur verið gert
jákvætt í þessum málum er þeim
frjálst að taka út af bókinni aftur
framlag sitt.
Annars finnast mér undirtektir
almennings afskaplega dræmar.
Það eru margir sem hafa þessi
vandamál aðeins í nösunum og
þeir sömu snýta því helzt frá sér
þegar gera á eitthvað jákvætt.
Þeir sem vinna að æskulýðs-
málum ættu að taka höndum
saman og reyna að vinna að ein-
hverju jákvæðu og megi þessi bók
verða til þess að þessir aðilar geti
komið saman og þingað um ráð-
stöfun þessa fjár.
Sveinn Sveinsson,
Leifsgötu 4 b“
0 Of lin
viðbrögð
Borgari hringdi og vildi nefna
nokkur atriði í sambandi við þá
skotfimi sem átti sér stað á götum
Reykjavíkur á laugardags-
morgun:
„Það eru margir sem eru að
velta því fyrir sér af hverju lög-
reglan hafi ekki sjálf beitt skot-
vopnum i viðureign sinni við
þessa menn sem skutu á hvað sem
fyrir var á laugardaginn. Við höf-
um séð myndir af skotsveitum
lö.greglunnar, sveit sem varð
sigursæl í einhverri skotkeppni
eða slíku ef ég man rétt en hvar
er öll skotfimin nú, þegar þarf
einmitt á henni að halda?
i framhaldi af þessu mætti
spyrja af hverju honum var
sleppt svo fljótt þeim sem ógnaði
fólki fyrir fáum árum í
Breiðholtinu og var ekki stöðvður
fyrr en maður einn sýndi það
hugrekki að fara á móti honum,
sem varð líka til þess að hann
missti annan fótinn.
Einnig má spyrja af hverju
skotvopn séu ekki geymd í betur
læstum hirzlum en það að hægt sé
að ná þeim á tiltölulega auðveld-
an hátt og fremja hvaða ódæðis-
verk sem er? Svona vopn þarf að
hafa tryggilega læst í verzlunum,
hafa þau í etnhverjum öryggis-
hólfum sem líkjast peninga-
skápum.
Eitt vil ég nefna að lokum.
Almenningur mun fylgjast vel
með því hversu lengi þessir menn
munu sitja inni. Þetta hlýtur að
vera hrein morðtilraun, skotið er
að lögreglu hvað eftir annað svo
og á aðra vegfarendur. Svona
menn hefðu sennilega hiklaust
verið skotnir niður erlendis.
Þetta er það sem sennilega er
mest talað um í bænum núna og
mun almenningur fylgjast vel
með öllu þessu máli.
Borgari."
HÖGNI HREKKVlSI
PLOTUJARN
Höfum fyrirliggjandi plötujárn
i þykktunum S.A.Bogemm.
Klippum nidur eftir máli ef óskad er.
Sendum um allt land
(P
&
STALVER HF
FUNH0FÐA17
REYKJAVÍK SÍMI 83444.
PHILIPS
30% meira ljós
á vinnuflötinn
sami
orkukostnaöur
PhilipsArgenta’
SuperLux
keiluperan með
övlóiafnanlega birtuglugganum
Skínandi pottar og pönnur
með Brillo stálull með sápu
DRATTHAGI BLYANTURINN