Morgunblaðið - 11.11.1976, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1976
5
Enn einn í gæzlu
ENN EINN ungur íslendingur var f
gær úrskurðaður f gæzluvarðhald
vegna rannsóknar ffkniefnamálsins
mikla. Er þetta liðlega tvftugur pilt-
ur, og fór hann f allt að 30 daga
gæzluvarðhald. Nú sitja 9 ungir
menn f gæzluvarðhaldi vegna rann-
sóknarinnar, 8 íslendingar og einn
bandarfskur hermaður af Keflavfkur-
flugvelli.
Fjórar sólar-
landaferðir í
bingói Fáks
1 KVÖLD, fimmtudagskvöld,
verður haldið bingó á vegum
hestamannafélagsins Fáks. Verð-
ur bingóið haldið í Sigtúni og
hefst klukkan 20.30, en húsið
verður opnað klukkutíma fyrr.
Fjöldi vinninga verður í boði,
m.a. fjórar sólarlandaferðir, hest-
ur og heimilistæki. Einnig verður
vandað til skemmtiatriða í hléum,
en það verða leikararnir Bessi
Bjarnason, Flosi Ólafsson, Gísli
Alfreðsson og Gunnar Eyjólfsson
auk Garðars Corters söngvara,
sem sjá um að skemmta gestum.
Bingóinu stjórnar Svavar Gests.
Öllum ágóða af bingóinu verður
varið til að bæta og byggja að-
stöðu Fáks að Víðivöllum.
Dagur iðnaðar
í Borgarnesi
Einar Helgason sýnir í
Iðnskólanum á Akureyri
Akureyri, 10. nðvember.
EINAR Helgson opnar mynd-
listarsýningu f samkomusal Iðn-
skólans á Akureyri á föstudags-
kvöld. Þar sýnir hann vatnslita-
myndir, krftar- og pastelmyndir,
teikningar og olfumálverk, sem
hann hefir gert á undanförnum
mánuðum. Alls eru á sýningunni
75 myndir, sem eru allar til sölu.
Sýningin verður 'opin kl. 20.30
— 24.00 á föstudag, en kl. 10.00 —
24.00 á laugardag, sunnudag og
mánudag. Einar er Akureyring-
um að góðu kunnur, m.a. sem
teiknari, myndlistarkennari og
myndlistarmaður, og er ekki að
efa, að marga mun fýsa að sjá
sýningu hans og njóta myndanna,
sem þar eru. Sv.P.
Fékk málningarkompu sem klefa
— segir annar Nígeríumannanna
YFIRHEYRSLUM í hinu svonefnda
Sögu-máli var haldið áfram fyrir Sjó-
og verzlunardómi Reykjavfkur f gær-
morgun og kom John A. Aiyja fyrir
réttinn.
Sagði hann við yfirheyrslur að hann
hefði verið ráðinn á Sögu hinn 18.
september sem messi og aðstoðarmað-
ur kokks. Sér hefði verið tjáð af skip-
stjóranum, að ef hann reyndist vel
fengi hann að vera á skipinu til íslands
og myndi þá taka laun samkvæmt
íslenzkum sjómannasamningum og
gengið yrði frá þessu máli er komið
yrði til Dakar, og jafnframt myndi hann
fá afhenta 200 dollara
Þá kom fram hjá honum, að hann
hefði ekki haft neinn klefa á leiðinni frá
Nígerlu til Dakar, hefði hann þvi sofið í
messanum í 1 1 daga og þegar mjög
heitt var I veðri úti á dekki
John A Aiyja sagði að Saga hefði
komið til Dakar 28. september og farið
þaðan 6 október. Þann tíma hefðu
samskiptin við skipverja verið mjög
góð Hins vegar hefði hann verið látinn
VÍSNAVAKAN
ER í KVÖLD
MEINLEG villa slæddist inn í
frétt blaðsins í gær um vísnavöku
í Norræna húsinu. Hið rétta er að
vakan er í kvöld, fimmtudags-
kvöld, og hefst hún kl. 20.30. Er
beðist afsökunar á rangherminu.
Eftir vísnavökuna i kvöld verð-
ur rætt um samstarf vísnaáhuga-
fólks á norrænum vettvangi.
vinna mjög mikið eða frá 7 á morgm
ana til kl 8 á kvöldin án nokkurrar
aukagreiðslu né kaffitima Aðeins
hefðu verið tveir matartimar yfir dag-
inn Ennfremur sagði hann, að i Dakar
hefði hann fengið 10 þús franka og
um leið rætt við skipstjóra um að 200
dollara kaup á mánuði væri mjög litið
og vildi hann þvl gjarnan komast á
islenzka sjómannasamninga Skipstjóri
hefði þá sagt, að gengið yrði frá þvi
máli við komuna til Rotterdam
Eftir að farið var frá Dakar sagðist
John A Aiyja hafa fengið málningar-
klefann til umráða og til þess að geta
búið i honum hefði hann þurft að rýma
hann og mála og slá sér siðan upp
koju Þá hefði kokkurinn lánað sér
teppi til að hafa yfir sér, er komið hefði
verið norður á bóginn, en enginn hurð
hefði verið á málningarklefanum.
-— Að öðru leyti leið mér vel á Sögu
þennan tima og samskipti við áhöfn
góð, nema hvað ég deildi við skipstjóra
um launin
Þá sagði Aiyja, að við komuna til
Rotterdam hefðu Nigeríumennirnir ver-
ið samtals 5 á Sögu, en er þrir hefðu
neitað að hefja störf við lestarhreinsun
þar sem þeir kröfðust aukagreiðslu
fyrir, hefðu málin farið að snúast. Eina
nóttina hafi skipstjórinn komið i
hurðarlausa gættina hjá sér með byssu
i hendinni, og sagt sér að reka þrjá af
landsmönnum sinum i land, þótt það
væri ólöglegt Ekki varð úr þvi að
mennirnir færu þá, en Aiyja sagði, að
þriðjudaginn 2 5 október hefðu Ní-
geríumennirnir farið í land i fylgd lög-
reglu
Þá sagði Aiyja, að ekkert hefði borið
til tíðinda fyrr en komið hefði verið til
Gufuness, þá hefði 1. stýrimaður ráðist
á félaga sinn, lamið hann utan undir
og kallað hann ..svartan apa ". Siðan
hefðu málin þróast þannig, að þeir
hefðu ekki séð sér annað fært en að
hafa samband við Sjómannasamband
íslands.
DAGUR iðnaðarins verður hátfð-
legur haldinn f þriðja sinn föstu-
daginn 12. nóv. f Borgarnesi. Að
sögn Péturs Sveinbjarnarsonar,
framkvæmdastjóra tslenzkrar
iðnkynningar, verður
daguriðnaðarins með svipuðu
sniði f Borgarnesi og samsvarandi
iðnkynningardagar á Akureyri og
Egilsstöðum. Um morguninn
mun iðnaðarráðherra, Gunnar
Thoroddsen, og frú, ásamt ýmsum
af forystumönnum fslenzks
iðnaðar, skoða 4 iðnfyrirtæki.
Verða það kjötiðnaðarstöð Kaup-
félags Borgfirðinga, Verksmiðjan
Vfrnet, bifreiða- og trésmfðaverk-
stæði KB og svo verða skoðaðar
framkvæmdir sem Þorsteinn
Theodorsson stendur að.
I hádeginu mun hreppsnefnd
Borgarneshrepps bjóða til hádeg-
isverðar, sem nefndur verður
Borgarnesborð. A borðum munu
eingöngu verða matvæli fram-
leidd af fyrirtækjum i Borgar-
nesi. Verður það matur frá kjöt-
iðnaðarstöð, brauðgerð og
mjólkurstöð KB, en hádegis-
verður þessi verður á Hótel
Borgarnes. Að loknum hádegis-
verði verður opnuð iðnsýning i
leikfimisal og á útisvæði Barna-
skólans, en þar munu 40 fyrirtæki
og aðilar í iðnaði í Borgarnesi
kynna framleiðslu sina og þjón-
ustu I iðnaði. Verður þessi sýning
opin fram á mánudagskvöld, að
sögn Péturs Sveinbjarnarsonar.
Sagði Pétur að þessi sýning
mundi sennilega koma til með að
vekja mikla athygli, en nú væri
búið að skipuleggja ferðir skóla-
fólks af Snæfellsnesi og
nágrannasveitum Borgarness á
sýninguna. Jafnframt verður
þessum hópum boðið að skoða
fyrirtæki í iðnaði i Borgarnesi.
Að lokinni opnun sýningar-
innar verður efnt til fundar um
iðnað og iðnþróun í Borgarnesi.
Þar munu 4 staðarmenn flytja
stutt framsöguerindi, og síðan
mun Sigurður Kristinsson, forseti
Landssambands Iðnaðarmanna,
flytja ræðu. Iðnaðarráðherra mun
ávarpa fund þennan í upphafi.
Dr. Gunnar Thoroddsen mun
síðan halda mönnum hóf seinni
part dags. Verða þar heiðraðir
ýmsir aðilar úr iðnaði staðarins.
í tilefni dagsins verða settar
upp skreytingar og vörur í glugga
I verzlunum i Borgarnesi, og
verður það til kynningar íslenzk-
um iðnaði. Jafnframt verður
gefið út rit um öll fyrirtæki og
alla einstaklinga sem starfa að
iðnaði i Borgarnesi.
Hausthappdrætti
Sjálfstæðisflokksins:
Dregið eft-
ir 2 daga
SALA miða f hausthappdrætti
Sjálfstæðisflokksins stendur
nú sem hæst. Sala á miðum
gengur vel, en þó er ennþá
nokkuð um ógerð skil frá þeim,
sem fengið hafa senda miða
heim til sfn.
Nú eru aðeins tveir dagar þar
til dregið verður, en það verður
gert hjá borgarfógeta á laugar-
dag. Vinningar eru átta talsins,
bifreið, ferðavinningur og
heimilistæki.
Skrifstofa happdrættisins er í
Valhöll, Sjálfstæðishúsinu við
Bolholt 7.
Pat Boone
til íslands?
FÆREYSKA blaðið Dimma-
lætting skýrði frá þvf nýlega,
að bandarfski söngvarinn Pat
Boone, sem á sjötta áratugnum
var einn vinsælasti dægurlaga-
söngvari heims, væri væntan-
legur til Færeyja f janúarmán-
uði næstkomandi og myndi
hann halda þar tónleika. t frétt
blaðsins segir að söngvarinn
verði þá á leið heim úr tón-
leikaferð og komi við á tslandi
og f Færeyjum.
Morgunblaðið hefur ekki get-
að fengið það staðfest, að Boone
muni halda tónleika á Islandi
eða hvort hann ætlar kannski
aðeins að verða viðstöðufarþegi
á ferðinni yfir Norðuratlants-
haf. I för með Boone verða
Samuelsons-bræðurnir, sem
munu vera sænskir söngvarar.
Eru þeir 6 að tölu, en föruneyti
Pat Boone
Boone telur 10 manns, svo að
með honum f þessari ferð verða
samtals 16 manns. Til Færeyja
kemur hópurinn vikuna 8. til 9.
janúar.
NECCHI LYDIA 3 er sérstak-
lega auðveld í notkun. Mynst-
urveljari er einungis einn. Um
leið og honum hefur verið snú-
ið, saumar vélin mynstur það
sem valið hefur verið, og get-
ur enginn ruglingur orðið í
því efni. Ekki þarf að fást við
neina kamba eða margbrotin
aukatæki til mynsturvalsins.
Beint teygjanlegt spor hi m in Hl lil m Hl Hl Hl Hl Hl lil III III III Hl lil III m Hl lil Hl Hl IU III III llt
Teygjanlegur oddasaumur (zig-zag) vVv\VvVvVvVvVv“^V VVvVv^^W.
Satínsaumur IIIIIIIÍIIIIIIVWWWVWWVWWV\A/WVWVWVWVWVWIIIIIIIIIII[
Skelialdur
arborða með blindspori
Teygjanlegur skeUaldur MAAAAMAa7W\2V2\2\2VWMAMAAAAAA/
ieygjanlegur saumur er hylur brún (overlock) L\L\LW\l\L\L\L\L\i\i\l\l\l\i\í\L\L\L\L\L\LÚ\L\L\L
Parísarsaumur II _II_.'LJI_II_!I_.'L_.II.J|_I!_||._;Lj!.jí_.ii_||._ii_|| _i|_;|_ I|_||_|j_||__||_„ „ „ „ „ „ „ „ „ „ „
Þrepspor
leyqiu) »;A?.•*..*.'!*:-.-j i.-j '.-jt-Ji-j
Blindfaldspor (þ. e. blindspor fyrir falda) VVWVA/uw/aa /v'^a/w\/w\/w\/w\/w\/w\/w\1
* p.
Rykkingarsaumur
Oddasaumur ■ IIIH'" llli lllli'" llllii" llllii'" ►" ►" ||IH»"|lli
T ungu saumur
Rúðuspor
NECCHI LYDIA 3 er kjörgripur áttunda áratugsins.
Auk þess sem nota má LYDIA 3 við að sauma,
þræða, falda, gera hnappagöt og skrautsaum, má
velja um 15 mismunandi teygjuspor, eða allt sem
nokkur þörf er á fyrir nýju teygjuefnin.
Einkaumboð:
FALKINN
Suðurlandsbraut 8 . Reykjcrvík . Simi 8 46 70
i