Morgunblaðið - 11.11.1976, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. NÖVEMBER 1976
13
v
skrifa um BÓKMENNTIR
Orð og
hreyfing
ALÞVÐULEIKHUSIÐ:
SKOLLALEIKUR.
Höfundur: Böðvar
Guðmundsson
Höfundur tðnlistar: Jðn
Hlöðver Áskelsson
Leikstjðri: Þðrhildur
Þorleifsdðttir.
Leikmynd, búningar og
grfmur. Messfana Tðmasdðttir.
SKOLLALEIKUR Böðvars
Guðmundssonar er f raun hefð-
bundið verk um galdraofsóknir
á 16. og 17. öld með skfrskot-
unum til samtímans. Eins og
stendur f leikskrá: „Er það
kannski svo, að við getum með
feginshrolli litið til baka yfir
þann tfma, þegar fólk var of-
sótt, fangelsað og drepið sökum
stjórnmálaskoðana, trúar-
bragða, litarháttar og þjóð-
ernis? Er það kannski einungis
rógburður illmenna, að enn séu
menn fangelsaðir og hundeltir,
sökum stjórnmála skoðana
sinna, í meira en hundrað þjóð-
löndum?" Svarið verður að
sjálfsögðu að enn sé þessi tími
nálægur okkur.
Böðvar Guðmundsson er
fyrst og fremst maður ljóðs og
sögu. Hann er ekki dæmigert
leikskáld, en nýtur í flutningi
verksins leikaranna sem vita að
á sviðinu þarf að vera líf og
hreyfing ekki bara orð. Skolla-
leikur er vel saminn, en það er
einkum flutningur leikaranna,
framlag þeirra sem ljær verk-
inu hold og blóð, blæs því lífs-
anda í brjóst. Það er greinilegt
að leikarar Alþýðuleikhússins
eru fólk sem með miklum aga
hefur náð eftirminnilegum
árangri. Tækni þess minnir á
Leiksmiðjuna gömlu, enda
komu sömu leikarar við sögu
hennar. Þórhildur Þorleifs-
dóttir leikstýrir Skollaleik af
hugkvæmni, fær hvern leikara
til að leggja sig fram, en sú
spurning verður aftur á móti
áleitin hvort verkið sé ekki of
langt. Það hefði mátt stytta það
án þess að það biði tjón af.
Þetta á helst við um lokaatriði
leiksins, en kannski er áhorf-
Bókmenntlr
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
andinn þá of viss um niðurstöð-
una og orðinn þreyttur á að
bíða eftir henni.
Böðvar Guðmundsson hefur
greinilega lært ýmislegt af
Brecht, enda fyrirmyndin ekki
lök. Söngtextarnir njóta sín til
dæmis vel í flutningi Kristfnar
Á Ölafsdóttur sem leikur al-
þýðustúlkuna Matthildi frá
Hamborg. Söngur og leikur
Kristínar var með því mark-
verðasta í sýningunni, en sé
minnst á það sem kom á óvart
má nefna geðfelldan leik ungs
leikara, Everts Ingólfssonar, 1
hlutverki kaupmannssonarins
Lars Mattheussonar. Þráinn
Karlsson sem lék mörg hlut-
verk er þróttmikill leikari sem
hvert leikhús getur verið stolt
af. Arnar Jónsson var senu-
þjófur í hlutverki Þorleifs
Kortssonar lögmanns, þess sem
á sínum tíma var einna dugleg-
astur að brenna fólk fyrir
galdra. Annar kunnur leikari,
Jón Júlíusson, naut sfn líka vel
f Skollaleik og brá sér í mörg
gervi.
Messiana Tómasdóttir, höf-
undur leikmyndar og búninga,
á ekki síst hrós skilið fyrir það
sem vel tókst til um sýninguna.
Flestir eru leikararnir með
grfmur og gerir það sýninguna
óvenjulega. Messfana leggur á-
herslu á óhugnaðinn i verkinu,
en hinar skoplegu hliðar
dregur hún líka fram eins og til
dæmis hina illkvittnu lýsingu
dómaranna.
Sýning Alþýðuleikhússins
var góð kynning á leikhúsi úti á
landi þar sem unnið er af al-
vöru. Það er ekki bundið við
sýningar á Akureyri, heldur er
tilgangurinn sá að sýna sem
víðast um landið.
Aðgát skal
höfð...
Bökmenntlr
Njörður P. Njarðvík:
Sigrún fer á sjúkrahús
Myndir: Sigrún Eidjárn
Utgefandi: Iðunn
Reykjavfk 1976
Höfundur bókarinnar Sigrún fer
á sjúkrahús er áður þekktur fyrir
ritverk sfn, en þetta er fyrsta
barnabók hans.
Sigrún er rúmlega fjörurra ára
eftir JENNU
JENSDÓTTUR
gömul og mjög skýr stúlka frá
höfundarins hendi.
Hún á fyrir höndum að fara á
sjúkrahús til þess að láta taka úr
sér hálskirtlana, sem þegar eru
farnir að valda henni vanlíðan og
hita.
Móðir hennar útskýrir fyrir
henni hvað í vændum er. Sigrún
hlustar, spyr - andmælir stundum
- en skilur hvað þarf að gera og
tekur því vel.
A sjúkrahúsinu fær Sigrún
jafnóðum fræðslu frá hjúkrunar-
konum og meinatækni. Hún
hlustar og skilur hvað um er að
vera og hagar sér samkvæmt því.
Ekki fær þessi f jögurra ára stúlka
alltaf milda fræðslu.
Meinatæknir: Ég þarf að fá að
skoða blóðið þitt til að vita hvort
Framhald á bls. 18
„Leyndarmálid er ad
syngja eins og fugl”
Dekktur hoHenzkur söngkennari
raddþjálfar félaga Pólífónkórsins
„ÉG VAR nemandi og góður
vinur ftalska tenórsins Tito
Schipa. Hann sagði alltaf: Það
eru aðeins til tveir söngskólar
— sá rétti og sá rangi. Um aðra
er ekki að ræða.“
Carlo Bino, sjálfur tenór-
söngvari og kennari, hefur und-
anfarna viku raddþjálfað fé-
laga Pólýfónkórsins ásamt eig-
inkonu sinni, Viktoriu Spans.
Viktoria Spans er hálf fslenzk
og kunn hér á landi fyrir söng
sinn bæði f útvarpi og sjón-
varpi.
Ingólfur Guðbrandsson
kynnti hjónin fyrir blaðamanni
Mbl. „Það þarf varla að taka
fram,“ sagði Ingólfur, „hversu
mikill fengur það er fyrir Pólý-
fónkórinn að fá að njóta
kennslu þessa manns. Hann
lærði hjá Tito Schipa, sem verð-
ur að teljast með þremur mestu
söngvurum sins tfma, ásamt
þeim Caruso og Benjamino
Gigli. Schipa var einhver glæsi-
legasti fulltrúi þess söngstíls,
sem nefndur er bel canto, þess-
arar ævagömlu sönghefðar,
sem nú er svo mjög að falla f
gleymsku. Þennan söngstíl
meðtók Carlo Bino af snillingn-
um.“
„Leyndarmálið er að syngja
eins og fugl,“ segir Bino, „að
breyta öndun í hljóm. Þetta
gerir næturgalinn, þessi örlitli
fugl, sem getur látið rödd sfna
hljóma óralanga leið. Og hljóm-
urinn á að mynda boga.“
Viktoria Spans og Carlo Bino
kynntust, þegar hún fór f söng-
tfma til hans. „Þá hafði ég verið
í Tónlistarháskóla í fimm ár,“
sagði Viktoria, „en ég lærði
meira fyrsta klukkutímann hjá
Carlo en ég hafði gert öll þau
fimm ár. Hjá honum lærði ég
ekki aðeins tækni, heldur sál-
fræðing, sem verður að standa
að baki röddinni, sjálfstraustið,
og þá vissu, að maður sé raun-
verulegur listamaður. Það er
afar mikilvægt að hafa þátrú.“
Sjálf fór Viktoria til Hollands
á sunnudaginn, hún þurfti að
mæta í upptöku hjá hollenzka
útvarpinu á mánudag. En Carlo
verður hér áfram næstu þrjár
vikurnar. „Það eru frábærar
raddir f Pólýfónkórnum, ég
Viktoria Spans og Carlo Bino.
hefi heyrt bæði bassa og tenóra
og sumir þeirra eru betri en
þeir, sem við höfum i óperunni
í Hollandi," sagði Carlo.
Ingólfur Guðbrandsson sagð-
ist hafa kynnzt Carlo Bino i
gegnum Astu Thorsteinsson,
sem stundaði hjá honum nám i
1V4 ár. Carlo Bino rekur einka-
Framhald á bls. 22
5 mínútup
Taflan sýnir árlegt tjön fynirtaekis ef
FIMM MÍNÚTUR TAPAST
daglega af tlma hvers stanfsmanns
VIKUKAUP FJÖLD 5 I STARFS 10 FÖLKS 30
Kr. 20.000 53.950 107.900 323.700
Kr. 25.000 6 7.600 135.200 405.600
Kr. 30.000 81.250 162.500 487.500
TllMHNN mm RiNINGAR
STIMPILKLUKKA
hvetur starfsfólk til stundvísi
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
Hverfisgötu 33 Sími 20560