Morgunblaðið - 11.11.1976, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1976
17
Undirbúningur haf-
inn að bólusetningu
gegn heilahimnubólgu
BORGARLÆKNIR hefur f sam-
ráði við landlækni ákveðið að
hefja undirbúning að bólusetn-
ingu f Reykjavfk gegn heila-
himnubólgu, en tilfellum heila-
himnubólgu hefiir farið f jölgandi
á nokkrum stöðum á iandinu, þó
ekki f Reykjavfk, þar sem ekki er
meiri fjöldi tilfella en á undan-
förnum árum. Morgunblaðinu
barst f gær fréttatilkynning um
þessa bólusetningu, en þar segir:
„Vegna þess að spurzt hefur út
meðal fólks, að heilahimnubólgu-
tilfellum fari fjölgandi i borginni,
skal tekið fram, að ennþá hefur
ekki orðið vart meiri fjölda til-
fella í Reykjavík en á undanförn-
um árum.
Fjölgun hefur orðið á þessum
tilfellum á nokkrum svæðum á
landinu og hefur verið bólusett
þar við tveim stofnum sýkla, pr
valda heilahimnubólgu, sem bólu-
efni er til gegn.
í samráði við landlækni hefur
verið ákveðið að undirbúa bólu-
Héraðsbingó
í Skagafirði
HÉRAÐSBINGÖI hefur verið
hieypt af stokkunum á vegum
ungmennafélaganna í Skagafirði.
Verða dregnar út tölur tvisvar i
viku og eru fyrstu tölurnar 26 og
45. Vinningurinn er vöruúttekt í
Kaupfélagi Skagfirðinga að upp-
hæð 150 þúsund krónur. Ung-
mennafélagar selja sjálfir spjöld í
héraðinu og ganga m.a. í hús í því
skyni.
setningu i Reykjavík og mun hún
fara fram, þegar þeim undirbún-
ingi er lokið og bóluefni er fengið
til landsins. Unnið er að þvf :ð fá
nægilegt bóluefni og mun það fást
um leið og framleiðendur geta
annað pöntunum.
A næstunni verður tilkynnt um
nánari tiihögun bólusetningar-
innar hér f Reykjavík.
Það skal tekið skýrt fram, að
hvergi hefur tfðni tilfella verið
slík, að sjúkdómurinn hafi komizt
á faraldursstig og mjög lítil hætta
er á beinni smitun frá einu tilfelli
til annars.
Heilahimnubólga getur stafað
bæði af sýklum og veirum. Marg-
ar mismunandi tegundir og stofn-
ar sýkla geta valdið heilahimnu-
bólgu. Arlega koma fyrir tilfelli
meðal barna í Reykjavík og hefur
mestur fjöldi þeirra verið vegna
sýkla, sem ekki hefur tekizt að
framleiða bóluefni gegn.
Fjölgun tilfella á landinu hefur
stafað af tveim stofnum meningo-
eocca, þ.e. A og B, en bóluefnið
sem fæst er aðeins virkt gegn A
ogC.
Tekið skal fram, að til eru virk
lyf gegn heilahimnubólgu af
sýklauppruna. Sjúklingar þurfa
hins vegar að komast sem fyrst
undir læknishendur."
Landssamband blandaðra kóra:
Óskað eftir þáttöku
fleiri blandaðra kóra
ÁRSÞING Landssambands bland-
aðra kóra verður haldið laugar-
dag 13. nóv. ( Bláa salnum á Hótel
Sögu, og hefst kl. 13.30.
I frétt frá L.B.K. segir að ein-
ungis fjórir til fimm kórar starfi
innan vébanda þess. Mikil gróska
er ríkjandi í sönglífi blandaðra
kóra um land allt, en margir hafa
verið stofnaðir á undanförnum
árum. Hefur stjórn L.B.K. skrifað
þessum kórum og kynnt þeim
markmið sambandsins og óskað
eftir að þeir gangi f sambandið,
þvf að forsenda fyrir viðgangi
sambandsins og það geti orðið
sönglífi í landinu að verulegu liði,
er að sem flestir kórar séu innan
vébanda þess.
Merk kona af íslenzkum ætt-
um látin í Bandaríkjunum
Þann 8. september sfðast liðinn
lézt f Utah f Bandarfkjunum frú
Kate B. Carter, en hún var fslenzk
f aðra ættina. Hún var fædd 30.
júlf 1892 og var dóttir Finnboga
Björnssonar og danskrar konu
hans, Mary C. Jensen.
Finnbogi, sem var sonur Björns
Björnssonar frá Hjallanesi f
Landmannahreppi, fluttist til
Utah milli 1880 og 90. Þau hjónin
Finnbogi og Mary eignuðust sex
Kate B. Carter
börn og hafa tvö þeirra komið til
Islands, Harriet og John Y.
Bearnson. Margir Islendingar
hafa heimsótt John og konu hans
Birdellu og átt þar góðu að mæta.
Kate átti-þrjú hálfsystkini hér
heima, Jórunni, gift kona í Garði,
Finnboga, sem var skipstjóri á
Skaftfellingi, og Þorstein, sem
lengi bjó í Fossvogi. Var hann
mikill bókamaður eins og reyndar
öll systkinin og gaf hann bóka-
safn sitt tii Héraðsskólans í Skóg-
um.
Kate B. Carter var þekktur
borgari f Utah, bæði vegna af-
skipta af félagsmálum og kirkju-
málum mormóna en ekki sízt fyrir
sagnfræðirannsóknir sínar. Skrif-
aði hún fjölda bóka um sögu
Utah-fylkis og frumbyggja þess.
Þekktust ritverka hennar eru
„Heart Throbs of the West“, sem
er í 12 bindum, „Our Pioneer
Heritage“, sem er f 19 bindum, og
sex binda verkið „Treasures of
Pioneer History". Alls voru 35
bækur gefnar út eftir hana auk
400 smærri rita.
Kate B. Carter fæddist í
Spanish Fork og þar var hún jarð-
sett 11. september. Eiginmaður
hennar var Austin Carter, sem er
látinn. Þau áttu einaáóttur og tvo
syni auk fjölda barnabarna og
barnabarnabarna.
sýslur og nú sfðast Stéttarsam-
band bænda, hefðu styrkt þessi
samtök og vekti einkum
myndarlegur stuðningur
Stéttarsambandsins vonir um
aukið starf. Sjóðir hafa verið
starfandi innan sambandsins,
sem styrkt hafa sjúkraskýli á
svæði þess, sem nær frá Vopna-
firði til Djúpavogs. Fyrst var
úthlutað úr þessum sjóði til
sjúkrahússins í Neskaupstað.
Fyrir nokkrum árum var
ákveðið að veita úr sjóðnum til
hinnar nýju Heilsugæzlustöðv-
ar á Egilsstöðum og I samráði
við lækna stöðvarinnar var
ákveðið að verja fénu að þessu
sinni f hlut sem yrði til prýði í
stöðinni og gerði hana vistlegri.
Samið var við unga listakonu,
Stefanáu 'Steanþórsdóttur, sem
ættuð er héðan frá Egilsstöð-
um, um að taka að sér að vefa
veggteppi í þessu skyni. Þetta
veggteppi var svo afhent á
Frá afhendingu veggteppisins.
Ljösm. Jón Kristj&nsson.
laugardaginn eins og áður er
getið, og var listakonan við-
stödd afhendinguna.
Guðmundur Magnússon, for-
maður stjórnar Heilsugæzlu-
stöðvarinnar, veitti gjöfinni
móttöku og einnig voru við-
staddir læknar stöðvarinnar,
Guðmundur Sigurðsson og Þor-
steinn Sigurðsson, og þökkuðu
þeir gjöfina. Einnig ávarpaði
Guðiaug Þórhallsdóttir lista-
konuna sérstaklega og kvað það
mikia ánægju að fengizt hefði
kona ættuð héðan að heiman til
að vinna þetta verk og þekkja
mætti iandslag héðan af Héraði
f veggteppinu. — Steinþór.
Egilsstöðum 8. nóvember.
A LAUGARDAGINN boðaða
formaður Kvenfélagasambands
Austurlands, Ásdfs Sveinsdótt-
ir, fréttamenn á sinn fund. Til-
efnið var að Kvenfélagasam-
bandið hefur látið vinna fagurt
veggteppi til þess að færa
Heilsugæzlustöðinni á Egils-
stöðum að gjöf, og var gjöfin
afhent forráðamönnum Heilsu-
gæzlustöðvarinnar við kaffi-
drykkju á heimili Asdfsar. Þar
var einnig mætt af hálfu sam-
bandsins varaformaður þess,
Guðlaug Þórhallsdóttir.
Asdfs rakti í nokkrum orðum
starfsemi samandsins, kvað
hana hafa minnkað á sfðari ár-
um, m.a. vegna fjárskorts, en
Heilsugæzlustöð
Egilsstaða af-
hent veggteppi
10%
*AFSLA 1 I UR
-
Ifabuxur
Mittisiakkar
wKr’tY’W*
. Kft. ■■
Koflóttar
skyrtublússur
■■ ■■ i ■
Gallapils m
Peysur
BANKASTRÆTI