Morgunblaðið - 18.11.1976, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 18.11.1976, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1976 15 Sfðustu dægrin hafa brezkir bankastarfsmenn naumast haft undan að breyta skráningu sterlingspunds- ins. Myndin er tekin f gjaldeyrisdeild Barclays-banka f London. smiðjur til að bæta framleiðsluna, svo að hún standist betur sam- keppni á heimsmarkaði. Iðnaður- inn í Bretlandi varð hins vegar ekki fyrir miklum skakkaföllum af völdum stríðsins, og því var lítið skeytt um að endurnýja verk- smiðjur og tæknibúnað og bæta framleiðsluna. Ein afleiðingin af þessu var minnkandi framleiðni, þ.e. framleiðsla fyrirtækis á ári miðað við hvern starfsmann. Rfk- isreknu bílaverksmiðjurnar, British Leyland, höfðu á síðast- liðnu ári tvöfaR minni framleiðni en Volkswagen og Volvo sam- kvæmt könnun er The Financial Times lét gera. Að sama skapi hefur útflutning- ur Breta dregizt saman. önnur könnun hefur leitt í ljós, að fyrir tveimur áratugum lögðu Bretar fram 30% af þeim varningi, sem seldur var á heimsmarkaðnum, en hlutur þeirra hefur dregizt veru- lega saman og er aðeins tæp 8% um þessar mundir. Hlutur Vestur-Þjóðverja hefur hins veg- ar vaxið frá 19% upp f 22% á sama tímabili. Gjaldeyristekjur Breta hafa minnkað og þeir, sem einu sinni gátu veitt fé á báðar hendur, eru orðnir skuldugri en flestar aðrar þjóðir. Svo virðist sem ein ástæðan til þess að Bretar hafa farið aðrar götur en flestar grannþjóðir þeirra sé hið forna brezka fyrir- bæri, stéttaskiptingin, sem þeim hefur ekki enn tekizt að varpa fyrir róða. „I Bretlandi hefur aldrei verið gerð bylting, og ég tel, að þess sjáist glögg merki,“ sagði William Pfaff, en hann var f starfshóp á vegum Hudson Institude, sem fyr- ir tveimur árum lagði fram niður- stöður af víðtækri könnun á hag Breta. „Hér úir allt og grúir af gömlum hugmyndum um forrétt- indi, stéttir og sæmd,“ bætti Pfaff við. „Alls konar venjur, sem til- heyrðu landbunaðarþjóðfélagi miðalda, lifa hér góðu lffi og koma fram jafnt í hugsunarhætti sem og á ytra borði.“ Hagfræðingur, sem starfar á vegum brezku stjórnarinnar, tel- ur, að sósíaliskt stjórnarfar á undanförnum þremur áratugum hafi máð brott misrétti og stétta- skiptingu fyrri tfma. En útlend- ingar sjá málið hins vegar í öðru ljósi og telja, að efnahagslegt jafnrétti og þjóðfélagslegt jafn- rétti sé ekki sami hluturinn. Segja þeir, að Bretar séu flæktir inn i alls konar reglur, siði og venjur, og verði það afdrifaríkt fyrir einstaklinginn, ef hann geti ekki fótað sig eftir hinu flókna mynztri. „Hér skiptast menn i hreina stétt og óhreina stétt,“ segir Ralf Dahrendorf prófessor, en hann er yfirmaður the London School of Economics. „Þessi stéttaskipting er sú elzta, sem þekkist í heimin- um,“ bætti hann við. Dahrendorf er af þýzku bergi brotinn. Hann er merkur þjóð- félagsfræðingur og starfaði áður á vegum Efnahagsbandalags Evrópu. Hann sagði ennfremur: „Stétta- skiptingin tengist öðru atriði, sem stuðlar heldur ekki að auknum hagvexti. Bretar eru yfirleitt ánægðir með hlutskipti sitt, og gera sér 11« far um að brjótast út af þeim bás, sem þeim hefur verið markaður. Þegar menn eru þann- ig skapi farnir, þarf mikið átak til að fá þá til að söðla um. „Sums staðar er sú skoðún rlkj- andi, að einstaklingsframtakið fái flestu áorkað. Hér telja menn hins vegar, að öruggasta leiðin til að koma málum áleiðis sé, að þeir taki höndum saman. Bretar vilja gjarnan starfa I hópum, og sam- keppni milli einstaklinga er þeim ekki mjög að skapi. I Bandarfkj- unum er þessu á annan veg farið. Þar vill einstaklingurinn fá að njóta sfn og taka þátt f kapphlaup- inu. Það er því ekki úr vegi að segja, að tveir herir, sem hafa á að skipa ánægðum hermönnum, takist á í Bretlandi. Strfðið, sem þeir heyja, má kalla „ við á móti þeim “. Þessar væringar koma í veg fyrir skynsamlegar viðræður milli at- vinnurekenda og launþega, milli Breta og innflytjenda frá Asíu og milli Englendinga og Skota. Og sakir þessa elda ríkisstjórn Verkamannaflokksins og Ihalds- flokkurinn grátt silfur saman og jafnvel hinn róttæki armur Verkamannaflokksins og hægri armurinn, sem fer með stjórn. En það furðulega er að þrátt fyrir hið bága ástand efnahags- mála, erjur hagsmunahópa, dug- lausar ríkisstjórnir og stéttaskipt- ingu, kann fólk yfirleitt vel við sig f Bretlandi. „Ég hef það á tilfinningunni, að þessi eyja sé óbyggileg, og þess vegna hafi fólk reynt að gera vist- ina her þofanlega með því að sýna samborgurunum sanngirni og lip- urð,“ segir Dahrendorf. Hann kveðst hafa sagt upp stöðu sinni hjá Efnahagsbandalaginu og ráð- ið sig til London, enda þótt því hafi fylgt 80% kjararýrnun, og sé hann hæstánægður með skiptin. „Flestir þjóðverjar vilja helzt búa á Italiu eða í Bretlandi, því að þar líður þeim bezt,“ segir hann að lokum. Slje Jfelir Jlxxrk Eftir Peter Kilborn ar að tefla f mótinu af ýmsum ástæðum, flestum stjórnmálalegs eðlis. (Island ætlaði ekki að taka þátt fyrst, af fjárhagsástæðum). Fari svo, að næsta mót verði í tran, skulum við vona að þjóðirn- ar sameinist aftur f einu móti og ágreiningur verði lagður á híll- una. Talið er að um 5 milljónir skákmanna séu félagar í þessum 90 löndum og þeir hafa efalaust allir meiri áhuga á skák en stjórn- málum og vilja taka sér í munn og virða máltækið: „Gens una sum- us“. tslenzkt skáksafn Arið 1950, á 50 ára afmæli Tafl- félags Reykjavfkur var gefin út ein merkilegasta skákbók, sem við eigum um fslenzka skáksögu, en hún spannar þó fyrst og fremst starfsemi T.R. frá árinu 1900 til 1950. I bókinni eru greinar eftir þá Pétur Zóphóniasson, sem var einn af stofnendum T.R. og helzti brautryðjandi skáklistarinnar á Islandi, Boga Th. Melsted, sem ritar um Daniel Willard Fiske, sem vakti svo mikinn áhuga á skák um aldamótin 1900, Guð- mund Arnlaugsson, sem ritar um upphaf skákiðkunar á tslandi. Síðan eru greinar eftir þá Þorlák Ófeigsson, Elís Ó. Guðmundsson, Baldur Möller og sfðast, en ekki sfzt grMnar eftir ritstjóra bókar- innar, Aka Pétursson. Að lokum er f bókinni svokallaður bókar- auki, sem er 60 skákir, sem fs- lenzkir skákmenn hafa teflt á al- þjóðamótum, eða frá fyrsta Olympíumótinu sem tslendingar tóku þátt í, Hamborg 1930, og til ársins 1939. Valdar eru beztu skákir Islendinga frá þessu tíma- bili. I þessari bók nefnir Áki Péturs- son tvennt, sem hann taldi að betur mætti fara. Honum finnst vanta íslenzkt skákasafn frá fyrstu tfð til dagsins í dag. Urval beztu skáka á hverjum tfma ásamt skýringum. Hitt atriðið, sem hon- Pétur Zophóniasson um fannst vanta, var skákmanna- tal, eða stutt æviágrip þeirra manna, er komið hafa við sögu skáklistarinnar á tslandi. Undir þetta má taka enn i dag, en þó hefur örlitíð rætzt úr þessu. A hverjum þeim alþjóðlegum mót- um, sem haldin hafa verið hér- lendis hefur stuttlega verið getið skákferils viðkomandi, en vissu- lega væri fróðlegt að hafa eina slfka heildarskrá. Fróðlegt væri að hafa á einni hendi skákir ts- lendinga, sem þeir hafa teflt er- lendis, á alþjóðlegum mótum hér- lendis og úrvalsskákir á tslands- þingum. Þá er greinilega kominn tími til að halda áfram ritun skák- sögu bæði stærsta taflfélagsins í landinu og þróun skákarinnar frá 1950 á tslandi til dagsins f dag. Ein gömul skák Eftirfarandi skák var tefld i Munchen 1936. Sá, sem stýrir svörtu mönnun- um, Erik Lundin, er enn lifandi og teflir af krafti. Hann var Norð- urlandameistari á árunum frá 1937 til 1945. Ásmundur Asgeirs- son var Islandsmeistari árin 1931, 33, 34, 44, 45, 46. Ásmundur kem- ur andstæðingi sinum á óvart þeg- ar í 1. leik, en að öðru leyti verður hún að birtast án skýringa, nema hrópmerktir eru góðir leikir, en spurningarmerki sett við hina lakari. Hvftt: E. Lundin (Svfþjóð) Svart: Ásmundur Asgeirsson Pólsk vörn. 1. d4 — b5!, 2. e4 — Bb7, 3. d5 — Rf6, 4. Df3? — c6! 5. c4 — bxc4, 6. Rc3 — cxd5, 7. exd5 — Dc7!, 8. Bf4 — d6, 9. 0-0-0 — Ba6, 10. Rge2 — g6, 11. Rd4 — Bg7, 12. Be2 — Rf6-d7, 13. De3 — Re5, 14. Kbl — 0-0 15. h4 — Rb8-d7, 16. h5 — Db6, 17. Dh3 — Rf6(?), 18. Bxe5 — dxe5, 19. Rc6 — Hf-e8, 20. hxg6 — hxg6, 21. g4 — e4!, 22. f3? — Rxd5!!, 23. Hxd5 — Bxc3, 24. Hd2 — Bg7!, 25. Bdl — Dxc6, 26. Hh2 — Df6, 27. fxe4 — Ha-b8, 28. e5 — Dxe5 og hvftur gafst upp. Spenn- andi og flókin skák, sem vakti mikla athygli á sfnum tfma. Lausn á skákþraut: Við óskum þeim lesanda til hamingju, sem tókst að leysa þrautina á skemmri tima en hálf- tíma, því flestir eru lengur en það. Fyrsti leikurinn er 1. Bc6! (fórn- ar drottningunni) Hbl (Ef 1. Hb2, 2. Bg2 — HxBg2, 3. Rf4 og síðan DxHg2 er vonlaust fyrir svartan). 2. Ke2 — HxDhl, 3. Bg2!! — KxBg2, 4. Rf4 — Kgl, 5. Kel — g2, 6. Re2 — mát. Sannarlega æsandi og ævintýra- legt. Frá Skákþingi Norðurlanda Kaupmannahöfn 1946. — Talið frá vinstri: Áki Pétursson, Guðmundur S. Guðmundsson, Ásmundur Ásgeirsson, Baldur Möller, Guðmundur Ágústsson og Vfglundur Möller.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.