Morgunblaðið - 18.11.1976, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1976
37
10100
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10 — 11
FRÁ MÁNUDEGI
PEUCEOT
verða menn að láta sér nægja
kalda fjallakofa.
Það kemur engan veginn fram
hversu þýðingarmikið hlutverk
fjallkóngsins er í venjulegri fjall-
ferð, hvað þá ef eitthvað ber útaf
með veður og annað.
0 Margt gott
Það komu þarna fram
margir ágætir þættir, svo sem
björgun kinda úr sjáifheldu og
eins hverrar aðgæzlu er þörf þeg-
ar reka skal fé yfir vatnsmiklar
ár, en þær geta orðið blómlegar f
vætutið.
Ekki síst jökulsprænurnar. En
heldur þótti mér forustusauður-
inn tregur við vatnsföllin, ef það
hefir verið raunverulegt. Þegar
slíkar myndir sem þessar eru
teknar þarf að ná fram því raun-
verulega, en það hefur ekki tek-
ist, en það er ekki sök fjallmanna
í þessu tilviki heldur þeirra sem
tóku myndina, höfðu þeir þó við
höndina gamalreynda fjallmenn
og kunnuga. Ég held að þeir sem
stóðu að töku þessarar myndar
hafi ætlað sér að ná fram þessari
margumtöluðu fjallarómantík, en
hafi misskilið hana og ekki gert
sér grein fyrir hvaða efni þeir
voru að fjalla um.
Ég endurtek það, vegna þeirrar
hættu að þessi mynd verði siðar
notuð sem heimildarmynd, hve
illa hefir til tekist að sýna rétta
mynd af þýðingarmiklum þætti í
þjóðlífi okkar um langan aldur,
og sem mun verða veigamikill
meðan það þykir ómaksins vert að
beina búfé bænda til fjalla yfir
sumartimann til aö sækja auð í þá
gullkistu sem afréttirnir eru.
Menn verða að kappkosta að
reyna hverju sinni að skapa sem
raunhæfasta mynd af því sem
efni sem þeir eru að meðhöndla.
Steindór Guðmundsson.
Þessir hringdu . . .
0 Hallabúskapur
S.V.R.
Maður einn, sem tekur sér
oft far með strætisvögnum
Reykjavíkur hafði samband við
Velvakanda og vildi koma á fram-
færi spurningum varðandi rekst-
ur þeirra:
—Mer finnst að fleiri ráðamenn
borgarinnar ættu að taka sér far
með S.V.R. og kynna sér gaum-
gæfilega rekstur þeirra og tíma-
áætlun. Nýlega var kannað ýmis-
legt 1 sambandi við ferðir fólks
sem ýmist ferðast reglulega eða
öðru hvoru með vögnunum og
verður fróðlegt að sjá hvað kemur
fram i þeirri könnun, þegar nið-
urstöður hennar sjá dagsins ljós.
En ég skil ekki þetta tal um
vagnaskort þegar allt að 20 vagn-
ar standa i porti S.V.R. við
Kirkjusand. Eru þeir allir bilaðir
eða er verið að „spara“ þá eitt-
hvað? Á sama tima anna vagnarn-
ir sem eru i akstri varla því sem
þeim ber. Er ekki hægt að reka
þetta fyrirtæki á annan hátt svo
að við borgarbúar þurfum ekki að
greiða milljónir til reksturs
þeirra á hverju ári?
Ekki er það ætlun Velvakanda
að taka upp hanskann fyrir S.V.R.
en hann minnir að í fréttum hafi
nýlega komið fram að nokkrir
erfiðleikar hafi verið með suma
vagnana, þeir hafi bilað óeðlilega
oft og því hafa þeir kannski staðið
inni á Kirkjusandi og ekki verið í
akstri vegna bilana.
% Spurning
dagsins.
En við skulum grípa
spurningu strætisvagnafarþegans
og beina henni til allra sem áhuga
hafa:
Er hægt að reka S.V.R. þannig
að ekki þurfi að greiða 200-300
milljónir króna á ári með rekstr-
inum? Hafa borgarbúar tillögur
um breyttan rekstur án þess að
þjónustan minnki?
o Junitas
Náttúrunnar hörundsnæring
Nú hefur tekist að meðhöndla leirinn,
sem kraumað hefur í iðrum jarðar í
þúsundir ára. Þannig getum við með
JUNITAS leirmaskanum notið hinna
fjölmörgu náttúruefna, sem lengi hefur
verið vitað, að væru í leirnum.
VIÐ LEIÐBEINUM YÐUR GJARNAN
UM NOTKUN ÞESSA
NÝJA LEIRMASKA.
Snyrtistofan
ÚTLIT
Garðastræti 3
HOGNI HREKKVISI
óhugsandi að hún sé ekki að
leyna einhverju. Og hann bfður
þess að hún gefist upp.
Og þó var gamli maðurinn
myrtur.
Allan tfmann hvarflar hugur-
inn tii þessa, hann langar mest til
að taka hana og hrista úr henni
það leyndarmál sem hann er
sannfærður um að hún býr yflr.
Hann hefttr verið f garðinum
nokkrum sinnum. Nokkrum sinn-
um hefur hann brugðið sér niður
f vfnkjallarann og gætt sér á rósa-
vfninu. Hann hefur gert þá upp-
götvun. Þegar hann var að róta
með heyfork við gerðið fann
konfaksglas nákvæmlega eins og
glasið sem var á borðinu f garð-
hýsinu.
Hann sýndi Felicie glasið.
— Þá skuluð þér athuga hvort
þið finnið ekki fingraför á þvf,
sagði hún hæðnislega og virtist
ekki hið minnsta brugðið.
Þegar hann fór upp fylgdist
hún ekki með honum. Hann skoð-
ar herberga Lapies á alla enda og
kanta. Þvf næst gekk hann yfir
ganginn og inn f herbergi Felicie
og opnaði allar henar hirslur og
skúffur. Hún hlaut að heyra fóta-
tak hans yfir höfði sér. Var hún
hrædd?
Enn þetta dásemdarinnar veð-
ur, milt loftið, blómaangan og
Ég er reyndar ekki klár á þessu stjörnumerki!
DRÁTTHAGI BLÝANTURINN
Enginn veit hvað átt hefur
fyrr en misst hefur"
□
Chubb Fire
Chubb slökkvitækin veita
yður tryggingu gegn eignamissi
Hafið Chubb slökkvitæki
ávallt við hendina
Chubb slökkvitækin eru
með (slenzkum leiðarvísi.
Eigum
fyrirliggjandi:
VATNSSLÖKKVITÆKI
KOLSÝRUSLÖKKVITÆKI
DUFTSLÖKKVITÆKI
BRUNASLÖNGUHJÓL
ELDVARNARTEPPI
Munið:
A morgun getur verið
of seint að fá að fá sér
slökkvitæki
0LAFUR GISLAS0N & C0. H.F.
Sundaborg, sími 84800