Morgunblaðið - 25.11.1976, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NOVEMBER 1976
Lj6sm. Friðþjófur.
Björgunarmennirnir á Faxagarði á þeim stað þar sem atburðurinn
gerðist. Talið frá vanstri: Ilans, Gfsli, Garðar og Ronald.
Björgunarafrekið við Faxagarð:
„Blástursaðferðin
sannaði gildi sitt á
eftirminnilegan hátt”
BJÖRGUN mannsins, sem féll I
Reykjavíkurhöfn f fyrrakvöld
og sagt var frá f Morgunblaðinu
f gær, var mikið afrek. Tveir
leigubflstjórar hjá Steindóri,
þeir Ronald Kristjánsson og
Garðar Ölafsson náðu mannin-
um upp úr sjónum f þann
mund er tvo lögreglumenn bar
að. Lögreglumennirnir Gfsli
Þorsteinsson og Hans Haf-
steinsson, hófu þegar f stað
lffgunartilraunir með blásturs-
aðferðinni, en maðurinn var
orðinn helblár og hættur að
anda. Skiptust þeir félagar á
um að blása lofti f lungu
mannsins og brátt kom að þvf
að þeir fundu Iffsmark með
manninum og hann byrjaði að
anda veikt. Lffgunartilraunun-
um var haldið áfram f sjúkrabfl
og sfðan á slysadeild Borgar-
spftalans. Komst maðurinn til
meðvitundar f fyrrinótt og er
nú á batavegi. „Blástursaðferð-
in sannaði gildi sitt eftirminni-
lega f þessu tilfelli," sagði Gfsli
Þorsteinsson lögreglumaður,
þegar Mbl. ræddi við hann f
gær.
Málavextir voru þeir, að
Ronald ók umræddum manni
niður á Faxagarð að togaranum
Hjörleifi, en maðurinn var þar
skipverji. Ronald sagði í sam-
tali við Morgunblaðið, að hann
hefði fylgst með því úr bifreið
sinni hvar maðurinn fetaði sig
upp landgang togarans. I þann
mund sem hann ætlaði að aka
bifreiðinni á brott heyrði hann
dynk og siðan skvamp í sjónum
og þegar hann leit til baka sá
hann manninn hvergi. Hefur
maðurinn líklega fallið úr land-
ganginum á bryggjuna og svo í
sjóinn.
„Ég kallaði þegar á aðstoð í
gegnum talstöðina," sagði
Ronaid, „og stökk síðan út úr
bílnum, kallaði í mann sem
þarna var nálægt og bað hann
að sækja kaðal eða bjarghring.
Síðan klifraði ég niður bíldekk-
in utan á bryggjunni og gat náð
taki á manninum og haldið hon-
um upp úr sjónum. Eg þurfti að
halda mér með annarri hend-
inni í fríholtin á bryggjunni og
varð því fljótlega þreyttur. Var
ég orðinn örmagna bæði af
þreytu og kulda og var alveg að
gefast upp þegar Garðar félagi
minn kom að og klifraði niður
til min. Gátum við í sameiningu
komið manninum upp á bryggj-
una, og í þann mund kom lög-
reglan að.“
Garðar Ólafsson var staddur í
bil sínum uppi í Bankastræti
þegar hann heyrði Ronald kalla
á aðstoð. Hann sagðist hafa far-
ið strax niður á Faxagarð á
fullri ferð og flýtt sér niður
dekkin Ronaldi til aðstoðar,
þegar hann kom niður á bryggj-
una.
Strax og lögreglumennirnir
Gísli og Hans komu á staðinn
hófu þeir björgunartilraunir
með blástursaðferðinni. Skipt-
ust þeir á um að blása lofti i
lungu mannsins. Ennfremur
veltu þeir honum til á bryggj-
unni öðru hverju og ýttu á bak
hans þannig að sjór kom upp úr
manninum. Þegar sjúkrabíll
kom á vettvang kvaðst GIsli
hafa merkt það að maðurinn
byrjaði að anda en mjög veikt. I
sjúkrabílnum var lífgunartil-
raunum haldið áfram og nú
með tækjum og sömuleiðis þeg-
ar komið var með manninn á
slysadeild Borgarspitalans.
Þeir Gísli og Hans tjáðu blm.
Mbl., að blástursaðferðin og
einnig hjartahnoð væri kennt i
Lögregluskólanum. „Við sem
vinnum hér á miðborgarstöð
lögreglunnar erum alltaf við-
búnir þvi að þurfa að nota
þessa kunnáttu okkar vegna ná-
lægðarinnar við höfnina. Við
höfum ekki áður þurft að nota
blástursaðferðina og við erum
mjög ánægðir yfir þvi hversu
vel tókst til í þetta sinn, og við
höfum meira sjálfstraust ef við
þurfum að beita lífgunarað-
ferðunum einhvern tima aft-
ur,“ sögðu þeir félagar að lok-
um.
Búið að draga allar tennumar úr
NA-Atlantshafsfiskveiðinefndinni
— segir Þórður Ásgeirsson
— ÞAÐ ER búið að draga allar
tennurnar úr Norðaustur-
Atlantshafsfiskveiðinefndinni og
er það afstaða Efnahagsbanda-
lagsrfkjaanna, sem veldur þvf.
Þau hafa frá upphafi fundarins
hér í London, ekki ljeð máls á að
nefndin tæki neina ákvörðun um
kvótafyrirkomulag, og þvf tel ég
vfst að fundi nefndarinnar Ijúki f
dag, enda er ekkert um að ræða
lengur, sagði Þórður Ásgeirsson
skrifstofustjóri sjávarútvegsráðu-
neytisins, en hann er formaður
fslenzku sendinefndarinnar á
fundinum f London.
Morgunblaðið spurði Þórð,
hvort dagar nefndarinnar væru
þar með taldir. Hann kvað svo
ekki vera. Fyrir fundinum í Lon-
don hefði legið skýrsla vinnu-
KJARADÓMUR úrskurðaði í
sumar, nánar tiltekið hinn 16.
júlf, að laun ráðherra og hæsta-
réttardómara skyldu hækka um
sem næst 10% frá 1. október s.l.
Bankastjórar rfkisbankanna
Kvöldvaka rit-
höfunda í kvöki
FÉLAG íslenzkra rithöfunda
gengst fyrir kvöldvöku að Hótel
Esju, 9. hæð, klukkan 20.30 i
kvöld. Poul P.M. Pedersen,
heiðursfélagi FlR, ræðir um
skáldskap, les úr þýðingum sinum
og eigin ljóðum. Matthias
Johannessen skáld les úr ljóðum
sínum og Jóhann Hjálmarsson
skáld les úr nýútkominni ljóða-
bók sinni.
I morgunblaðinu í gær var sagt
að þessi kvöldvaka hefði átt að
vera í gærkvöldi, en kvöldvakan
verður ekki fyrr en i kvöld eins og
áður sagði.
hóps, sem fjallaði um framtið
nefndarinnar. I áframhaldi af
þvi, hefði verið samþykkt að fela
BÓKMENNTAVERÐLAUNUM
Norðurlandaráðs verður úthlutað
í Helsingfors I janúar á næsta ári
og nema þau 50 þúsund dönskum
krónum. Frá Islandi hafa verið
tilnefndar bækurnar „Fuglaskott-
munu fá samsvarandi laun og
hæstaréttardómarar.
Samkvæmt upplýsingum Guð-
mundar Skaptasonar, formanns
Kjaradóms, hækkuðu laun forseta
Hæstaréttar úr 300 þúsund krón-
um I 330 þúsund krónur hinn 1.
október en laun annarra hæsta-
réttardómara úr 280 i 310 þúsund.
Laun forsætisráðherra hækkuðu
á sama tíma úr 215 þúsund i 237
þúsund en laun annarra ráðherra
úr 195 þúsund krónum i 215 þús-
und krónur. Við þessi laun bætast
sfðan 3,11% vegna rauóu strik-
anna frá og með 1. nóvember.
Guðmundur Skaptason var að
því spurður hvers vegna þessar
tilteknu sfettir hefðu fengið 10%
hækkun hinn 1. október á sama
tíma og flestar aðrar sfettir hefðu
fengið 6% hækkun. Sagði Guð-
mundur að þetta væri vegna
samninga, sem gerðir voru milli
rikisins og BHM seint á árinu
1975 um teygingu launastigans.
Ahrifa þessa samnings gætti til
viðbótar öðrum launahækkunum.
vinnuhópnum að starfa áfram og
gera uppkast að nýrri stofnskrá
fyrir nefndina. Eitt væri þó vist
að vinnusvið nefndarinnar yrði
mjög breytt í framtiðinni.
is“ eftir Thor Vilhjálmsson og
„Eftirþankar Jóhönnu“ eftir
Véstein Lúðviksson. Sem kunn-
ugt er þá er Óiafur Jóhann Sig-
urðsson núverandi handhafi þess-
ara verðlauna.
Frá hinum Norðurlöndunum
eiga eftirtaldir höfundar verk
sem lögð hafa verið fram: Frá
Danmörku Svend Áge Madsen og
Jörgen Gustav Brandt, frá Noregi
Sigurd Evensmo og Knut Fald-
bakken, frá Finnlandi Bo Carpe-
land og Ulla Lena Lundberg og-
frá Svíþjóð P.C. Jersild og Göran
Sonevi.
Nú liggur fyrir Norðurlanda-
ráði tillaga um að hækka verð-
launin í 75 þúsund danskar
krónur.
Stúdenta-
kosningarnar;
Óbreytt
ástand
KOSNINGAR fóru fram meðal
nemenda í Háskóla Islands til
! háskólaráðs. Fékk b-Iistinn,
Verðandi 736 atkvæði og einn
mann, Gylfa Árnason, kjörinn
til tveggja ára. A-listinn fékk
618 atkvæði og einn man’.i,
Berglindi Ásgeirsdóttur, kosna
til eins árs. Kjörsókn var
dræm, eða aðeins 53%, en sfð-
ast er kosið var til háskólaráðs.
10% kauphækkun til
ráðherra, bankastjóra
og hæstaréttardómara
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs
afhent í janúar:
Bækur eftir Véstein og
Thor af íslands hálfu
Nýtt áningarskýli
SVR á Hlemmi
STJÓRN Strætisvagna Reykja-
vfkur hefur tekið ðkvörðun um,
að reisa nýtt áningarskýli fyrir
farþega SVR á Hlemmi á næsta
ári. Verður skýlið stálgrindarhús,
um 500 fermetrar að stærð og er
áætlað að byggingu þess ljúki
næsta haust. Kostnaður við bygg-
inguna er talinn nema um 48
milljðnum króna. t nýja skýlinu
verður mjög góð aðstaða fyrir far-
þega og vagnstjóra, þá verður þar
góð snyrtiaðstaða, smáverzlanir
og kaffistofa.
Sveinn Björnsson, formaður
stjórnar Strætisvagna Reykjavík-
ur, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að áætlun um bygg-
ingu áningarskýlis á Hlemmi
hefði verið lögð fram á fundi
stjórnar SVR á miðvikudag í s.l.
viku. A fundi stjórnarinnar og
eins í borgarráði hefði komið
fram eindreginn áhugi á því að
framkvæma þessa hugmund, en
hún ætti rætur að rekja til sam-
þykktar í borgarstjórn 21. febrúar
1975, þar sem segði m.a. að borg-
arstjórn teldi nauðsynlegt að
bæta biðskýlisaðstöðu á Hlemmi
og fæli stjórn SVR að gera áætlun
þar að lútandi.
Áður hafa nokkrum sinnum
komið fram hugmyndir um bygg-
ingu á Hlemmi. T.d. var rætt um
það árið 1969, að byggja þar risa-
hús. — Það hús átti að vera mjög
stórt í sniðum og tafði það fyrir
framgangi mála, en sfðan var far-
ið að skoða betur hvað hægt væri
að gera, sagði Sveinn.
Sextán þýsund farþegar Stræt-
isvagna Reykjavfkur fara um
Hlemmtorg á hverjum degi og
Framhald á bls. 28
Þannig mun nýja áningarskýlið á Hlemmi Ifta út.