Morgunblaðið - 25.11.1976, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÖVEMBER 1976
3
Aðalskipulag Reykjavíkur:
Hugmyndir og tillögur
lagðar á borð fyrir borg-
arbúa á Kjarvalsstöðum
Hér skoðar Ólafur B. Thors, ásamt fleirum, hugmyndir að skipulagi
hafnarmannvirkja höfuðborgarinnar (Ijósm. Friðþjófur.).
ruÍÍtWÍwíÍM ■:iiHLIIIU» ■Jfl'HtHH* HÍmMSÍÍMf3?
Þessi sýningargestur hefur hér sökkt sér niður f tillögur að fram-
tfðarskipan Breiðholts III, en Ifkan af því svæði má sjá f forgrunni.
1 GÆR var opnuð að Kjarvals-
stöðum sýning á hugmyndum
og tillögum skipulagsnefndar
borgarinnar að framtfðarskipu-
lagi höfuðborgarinnar. Er það
viðamikil sýning á hugmynd-
um að skipulagi framtfðar-
byggðar höfuðborgarinnar, til-
lögum um endurnýjun eldra
hverfa, tillögum að miðbæjar-
svæði, hafnarsvæðum, iðnaðar-
svæðum, vörugeymslnasvæð-
um, fbúðarsvæðum, svæðum
opinberra stofnana. útivistar-
svæðum o.s.frv.
Það kom fram i ávarpi Ölafs
B. Thors, formanns skipulags-
nefndar Reykjavíkurborgar, að
hugmyndir þær og tillögur að
aðalskipulagi höfuðborgar-
innar, sem þarna væru til sýnis,
hefðu ekki verið unnar af
einum hópi manna, heldur
hefðu verið kallaðir til sérfræð-
ingar á ýmsum sviðum og
skipulagshópar til að vinna að
einstökum þáttum aðalskipu-
lagsins. Hefði það verið gert til
að fá fram fjölbreyttari hug-
myndir að endanlegu skipulagi.
jsttk11 Sh 19 m'mm
Birgir tsleifur Gunnarsson
borgarstjóri flutti ávarp við
opnun sýningarinnar. Sagði
hann að aðalskipulag borgar-
innar hefði verið samþykkt árið
1965, þá fyrir næstu 20 ár.
Vegna ýmissa breyttra for-
sendna hefði siðan verið ráð
fyrir gert, að skipulagið yrði
endurskoðað á 5 ára fresti.
Hefði Þróunarstofnun Reykja-
víkurborgar þvi i mörg ár
unnið að endurskoðun aðal-
skipulagsins frá 1965, og þá
undir yfirstjórn skipulags-
nefndar borgarinnar. Sagði
borgarstjóri, að þótt talað væri
um endurskoðun aðalskipulags,
þá væri I raun réttara að segja
að hér væri um að ræða nýtt
aðalskipulag.
Það kom fram i máli borgar-
stjóra að skipulagsnefndin
hefði nú afgreitt hið nýja aðal
skipulag að sínu leyti, og væri
það nú borgarráðs og borgar-
stjórnar að samþykkja það
endanlega. Aður en það yrði
gert, sagði borgarstjóri, vildu
borgaryfirvöld kynna borgar-
búum tillögurnar og hugmynd-
irnar svo borgarbúar gætu
siðan komið fram með ýmsar
ábendingar og athugasemdir,
sem gætu orðið borgarráði og
borgarstjórn til leiðbeiningar
við endanlega afgreiðslu máls-
ins.
Á sýningunni, sem mun
verða opin næstu vikurnar,
mun fólki gefast kostur á að
hlýða á útskýringar sérfræð-
inga og þess fólks sem hefur
unnið að þessum tillögum.
Verður tímasetning þessara út-
skýringa auglýst I fjölmiðlum.
Þá gefst fólki einnig kostur á að
heimsækja Þróunarstofnun
Reykjavíkurborgar og kynna
sér þar ýmis atriði, og fá svör
við spurningum er lúta að
einstökum atriðum skapulags-
ins, sem ef til vill liggja ekki
skýrt fyrir á Kjarvalsstöðum.
Þar mun fólk einnig hafa
aðgang að ýmsum greinar-
gerðum sem til eru og fjalla um
einstaka þætti skipulagsins.
Sýningin verður opin á venju-
legum sýningartíma Kjarvals-
staða, eða frá 16—22 virka
daga, og 14—22 helga daga.
Hér virða nokkrir borgarfulltrúar fyrir sér lfkan af Breiðholti I.
Næst Ijósmyndaranum má á Ifkaninu sjá þyrpingu bygginga sem
framkvæmdir hafa ekki verið hafnar við. Tvöfalda Ifnan lengst til
vinstri er fyrirhugað framhald hraðbrautar um Fossvogsdal.
Sérfræðinganefnd undir-
býr varnir við hugsan-
legum Suðurlandsskjálfta
Gerir tillögur bæði um fyrirbyggjandi
ráðstafanir og hvernig skuli brugðist
við hamförunum í smæstu atriðum
Á VEGUM Almannavarna
rfkisins er nú tekin til starfa
sérfræðinganefnd eða vinnu-
hópur, sem ætlað er að gera
tillögur um jarðskjálftavarnir
á Suðurlandi. I Ijósi skjálfta-
sögu þessa landsvæðis er gert
ráð fyrir að senn megi vænta
mikils skjálfta á þessu svæði.
Nefndin er skipuð þeim
Guðjóni Petersen, fulltrúa Al-
mannavarna, sem er formaður
nefndarinnar, en aðrir
nefndarmenn eru Guðmundur
Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Sambands sveitarfélaga á
Suðurlandi, Óttar P. Halldórs-
son, prófessor f verkfræði,
Sveinbjörn Björnsson, jarð-
eðlisfræðingur við Raunvfs-
indastofnun, og Sigurður
Thoroddsen, arkitekt hjá
Skipulagsst jóra rfkisins.
Víðtækar
ráðstafanir
Nefnd þessi kemur saman til
fundar í dag, en fyrirhuguð
verkefni nefndarinnar eru m.a.
að sjá um að kortleggja og
flokka þau svæði á Suðurlandi,
þar sem jarðskjálftahætta er
mest, að kanna styrkleika bygg-
inga á svæðinu og gera tillögur
til úrbóta á hættulegum bygg-
ingum, að athuga hvaða kröfur
beri að gera um styrkleika ný-
bygginga á svæðinu, að gera
tillögur um rannsóknir, sem
hugsanlega gætu gefið vísbend-
ingar um það hvar næsta
skjálfta mætti vænta, að semja
leiðbeiningar til almennings
um öryggisráðstafanir vegna
jarðskjálftahættu, að fjalla um
það hvernig bregðast skuli við
til björgunar- og öryggisráðstaf-
ana, ef jarðskjálfti verður og að
fjalla um framtíðarskipulag
byggðar með hliðsjón af hættu-
svæðum. Áformað er að þessi
hópur starfi fram á vetur, en
tillögur hans verða lagðar fyrir
almannavarnanefndir í héraði,
sem annast eiga framkvæmd
þeirra.
Einn sérfræðinganna i hópn-
um, Sveinbjörn Björnsson jarð-
eðlisfræðingur, hefur undan-
farið ár kynnt sér heimildir um
mikla landskjáifta á Suður-
landi og gert yfirlitskort yfir
tjón á húsum af þeirra völdum.
Sæmilegar heimildir hafa
reynzt vera til I blöðum um
skjálftann sem varð 1912 og
ágætar um skjáiftann 1896 í
bók Þorvalds Thoroddsens —
Landskjálftar á Islandi og einn-
ig hafa fundizt ágætar
óprentaðar heimildir um land-
skjálfta, sem urðu á þessu
svæði 1706,1732 og 1734.
Eftir þvi sem Sveinbjörn seg-
ir í fréttabréfi Raunvísinda-
stofnunar hefur Suðurlands-
undirlendi oft verið hart leikið
af skjálftum, og hafa sveitirnar
Land, Rangárvellir, Grimsnes,
Flói og ölfus oftast orðið fyrir
tjóni. Kortin sem nú hafa verið
teiknuð sýna ljósar en áður
hvar skjálftarnir hafa komið
harðast niður hverju sinni.
Upptök skjálftanna virðist
þræða fremur mjótt belti frá
Þurá og Hjalla í ölfusi um Sel-
foss, Skeið neðanvert, efri
hluta Holta austur um Land að
Næfurholti og Selsundi.
34 stórir skjálftar
á 8 öldum
Sveinbjörn segir, að sprungu-
svæði hvers skjálfta eigi sér
miðju á þessu belti, en sprung-
urnar liggi yfirleitt i norðlæga
eða norðaustlæga stefnu og geti
í stærstu skjálftum náð alit að
20 km norður eða suður frá
upptökunum. Eftirtekt veki, að
skjálftarnir komi sjaldnast I
sama farið heldur frekar til
hliðar við þann sem siðast kom
og leggist sprungusvæðin þann-
ig hlið við hlið.
Sveinbjörn segir ennfremur,
að nú séu um 80 ár liðin siðan
mikill skjálfti hefur orðið á
vestanverðu sprungusvæðinu
en 64 ár frá siðasta störum
skjálfta i Landi. Vitað sé um 38
skjálfta á síðustu 8 öldum á
þessu svæði, og því verði að
teljast liklegt að senn sé mikill
skjálfti i vændum.
Þá hafði Morgunblaðið sam-
band við Guðjón Petersen, full-
trúa Almannavarna í sérfræð-
inganefndinni, og ítrekaði
hann að nefndinni væri fyrst og
fremst ætlað að vera aðstoðar-
og leiðbeiningaraðili, en allar
varnir ættu að vera hjá al-
mannavarnanefndunum i
héraði og stjórn allra mála, ef
eitthvað kæmi upp á. Guðjón
sagði, að einmitt um þessar
mundir væri verið að ljúka við
svonefnda neyðaráætlun hæði
fyrir Árnessýslu og Rangár-
vallasýslu, og hefði geysileg
áherzla verið lögð á að hraða
því verki vegna jarðskjálfta-
hættunnar á þessu svæði. Sér-
fræðinganefndinni væri á hinn
bóginn ætlað að gaumgæfa
nánar jarðskjálftamálin á þessu
landsvæði, gera tillögur , og
Framhald á bls. 31
Myndin sýnir rústir bæjarins að Selfossi, en hann hrundi í jarðskjálftanum 1896. (Þorvaldur
Thoroddsen).