Morgunblaðið - 25.11.1976, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1976
(c*
BÍLALEIGAN
51EYSIR
LAUGAVEGI 66
CAR RENTAL
ctm 24460
• 28810
1 'i
FERÐABÍLAR hf.
Bilaleiga, sími 81260.
Fólksbílar, sfationbílar, sendibil-
ar, hóp*eróabilar og jeppar
Loðfóðraðir
kuldaskór með
hrágúmísólum.
No 35 —41.
Póstsendum.
Bama-ogkven-
kúrekastígvél,
loðfóðruð með
trébotnum komin
aftur.
Stærðir 24 — 41.
útvarp Reykiavfk
HMttTUDHGUR
25. nóvember
MORGUNNINN
7.00 MorRunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00 og 8.15
og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05
Frðftir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.50
Morgunstund barnanna kl.
8.00: Guðrún Guðlaugsdóttir
les framhald „Halastjörn-
unnar“ eftir Tove Jansson
(4).
Tilkynningar ki. 9.30. Þing-
fréttir kl. 9.45. Létt lög á
milli atriða.
Við sjóinn kl. 10.25: Ingólfur
Stefánsson segir frá tilraun-
um með gúmbjörgunarbáta;
sfðari hluti.
Morguntónleikar kl. 11.00:
L’Oiseau Lyre hljómsveitin
leikur Concerto Grosso I d-
moll op. 8 nr. ,7 eftir Torelli;
Louis Kaufmann stj. / Andre
Lardrot og hljómsveit Ríkis-
óperunnar í Vín leika
Óbókonsert I G-dúr (K314)
eftir Mozart; Feliz Prohaska
stj. / Shmuel Ashkenasí og
Sinfónfuhljómsveitin í Vfn
lcika Fiðlukonsert nr. 2 í h-
moll op. 7 „La Gampanella”
eftir Paganini; Ileribert Ess-
er stj.
10.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar.
SÍÐDEGIÐ
Á frfvaktinni
Margrét Guðmundsdóttir
kynnir óskalög sjómanna.
14.30 Brautin rudd. Björg
Einarsdóttir tekur saman
þátt um málefni kvenna.
15.00 Miðdegistónleikar. Ffl-
harmonfusveil Berlfnar leik-
ur tvo forleiki eflir Beethov-
en; Herbert von Karajan
stjórnar. Maria Littauer og
Sinfónfuhljómsveitin í Ham-
borg leika Lftinn konsert f
f-moll fyrir pfanó og hljóm-
sveit op. 79 eftir Weber;
Siegfried Köhler stj. NBC-
sinfónfuhljómsveitin leikur
Sinfónfu nr. 5 f d-moll „Sið-
bótarsinfónfuna" op. 107 eft-
ir Mendelssohn; Arturo
Toscanini stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Lestur úr nýjum barna-
bókum. Umsjón: Gunnvör
Braga. Kynnir: Sigrún Sig-
urðardóttir.
Tónleikar
17.30 Lagið mitt. Anne-Marie
Markan kynnir óskalög
barna innan tólf ára aldurs.
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
KVÓLDIÐ
19.35 Daglegt mál
Helgi J. Halldórsson flytur
þáttinn.
19.40 Gestur f útvarpssal: Hel-
ena Nennander frá Finn-
landi og Agnes Löve leika
Sónötu nr. 3 fvrir fiðlu og
pfanó eftir Edvard Grieg.
20.15 Leikrit: „Djúpt liggja
rætur“ eftir Arnaud d’Usse-
au og James Gow. Áður útv.
1960.
Þýðandi: Tómas Guðmunds-
son. Leikstjóri: Þorsteinn ö.
Stephensen.
Persónur og leikendur:
Langdon/Brynjólfur
Jóhannesson, Genevra/Krist-
ín Anna Þórarinsdóttir,
Alice/IIelga Valtýsdóttir,
Howard/Rúrik Ilaraldsson,
Brett/Helgi Skúlason, Roy/-
Róbert Arnfinnsson, Bella/
Arndfs Björnsdóttir, Honey/-
Steinunn Bjarnadóttir, Serk-
in/Jón Aðils, Bob/Jónas
Jónasson.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Kvöldsagan: „Minningabók
Þorvalds Thoroddsens“
Sveinn Skorri Höskuldsson
les (15).
22.40 Hljómplöturabb
Þorsteins Hannessonar.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
mm
FÖSTUDAGUR
26. nóvcmber 1976
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Kastljós.
Þáttur um innlend málefni.
Umsjoðnarmaður Ömar
Ragnarsson
21.40 Prúðu-leikararnir
(The Muppet Show)
Nýr flokkur skemmtiþátta,
þar sem leikbrúðuflokkur
Jim Hensons heldur uppi
fjörinu. Gestur f fyrsta þætti
er söngvarinn og leikarinn
Joel Grey.
Þýðandi Þrándur Thorodd-
sen.
22.05 Ormagryfjan
(The Snake Pit)
Bandarfsk bfómynd frá ár-
inu 1949, byggð á skáldsögu
eftir Mary Jane Ward.
Leikstjóri Anatole Litvak.
Aðalhlutverk Olivia de
Havilland, Mark Stevens og
I.eo Genn.
M.vndin gerist að mestu á
geðsjúkrahúsi þar sem
Virginia Gunningham
dvelst, en hún man ekkert
frá fyrri tíð og þekkir ekki
lengur eiginmann sinn.
Þýðandi Heba Júlfusdóttir.
23.50 Dagskrárlok
ERff rqI
Leikrit vikunnar:
Djúpt
Mggja
rætur
Leikritið sem flutt verður í
kvöld kl. 20:15 er Djúpt
liggja rætur eftir Arnaud
d'Usseau og James Gow.
Það var áður flutt árið 1 960.
Þýðinguna gerði Tómas Guð-
mundsson og Þorsteinn Ö.
Stephensen er leikstjóri. Með
helztu hlutverkin fara
Brynjólfur Jóhannesson,
Kristín Anna Þórarinsdóttir,
Helga Valtýsdóttir, Rúrik
Haraldsson og Helgi Skúla-
son.
Leikritið gerist í Suðurríkj-
um Bandarikjanna á heimili
öldungadeildarþingmanns
og fjallar að miklu leyti um
kynþáttavandamálið Fólk
sem áður hefur látið eins og
allt slíkt gerist í fjarlægð
verður skyndilega að taka af-
stöðu og það getur stundum
reynzt erfitt. Ekki sízt þegar
vandamálið teygir anga sina
inn í eigin fjölskyldu.
Höfundarnir, James Gow,
f. 1907, og Arnaud d'Usse-
au, f. 1916, rituðu saman
nokkur leikrit, þar á meðal
þetta, sem nú er flutt i út-
varpi en Leikfélag Reykjavík-
ur flutti það árið 1 952.
Ymislegt
fyrir börnin
KLUKKAN 16:40 f dag verður
lesið úr nýjum barnabókum.
Umsjón með þeim þætti hefur
Gunnvör Braga og kynnir er
Sigrún Sigurðardóttir. 1 dag
verður lesið úr þremur bókum.
Nancy og rauðu ballettskórnir,
eftir Carolyne Keene, sem
Gunnar Sigurbjörnsson hefur
þýtt. Leiftur gefur út bókina og
mun Helga Stephensen lesa.
Þá les Baldvin Halldórsson
úr bókinni Robinson Krúsó,
sem Jane Carruth endursegir
eftir sögu Daniels Defoes. örn
og örlygur gefa hana út.
I þriðja lagi verður lesið úr
bókinni GT-kappaksturinn eftir
Eric Speed, sem Arngrímur
Thorlacius hefur þýtt. Ragn-
heiður Drífa Steinþórsdóttir
les, útgefandi er Leiftur.
Gunnvör Braga sagði að einn-
Gunnvör Braga er umsjónar-
maður þáttarins þar sem kynnt-
ar verða nýjar barnabækur.
ig yrði kynnt hljómplata í þætt-
inum og yrði sá háttur á hafður
i þessum þáttum. I dag er það
plata Björgvins Halldórssonar,
Vísur úr Vfsnabókinni, sem
verður kynnt.
Samtíningur
Af tveimur föstum lið-
um I útvarpsdagskrá
fimmtudags er rétt að
vekja athygli á þætti
Ingólfs Stefánssonar, Við
sjóinn, sem hefst kl.
10:25. Þar mun hann
segja frá tilraunum með
gúmbjörgunarbáta og er
það siðari hluti þeirrar
frásagnar.
Annar fastur liður er
Hljómplöturabb Þor-
steins Hannessonar, tón-
listarstjóra. Það hefst kl.
22:40 í kvöld.
Klukkan 14:30 er á
dagskrá þáttur um mál-
efni kvenna. Björg
Einarsdóttir tekur saman
þátt um málefni kvenna
og nefnist hann Brautin
rudd.