Morgunblaðið - 25.11.1976, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 25.11.1976, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1976 5 V erk sex ís- lenzkra skálda kynnt í Svíþ jóð t KUNNU sænsku bókmennta- tfmariti, Rallarros 12.—13. tbl. þessa árgangs, eru birt ljóð eft- ir sex fslenzk skáld í þýðingu eftir Lasse Söderberg. Skáldin eru Stefán Hörður Grfmsson, Einar Bragi, Jón Óskar, Matt- hfas Johannessen, Hannes Pét- ursson og Jóhann Hjálmarsson. Lasse Söderberg hefur áður birt eftir sig þýðingar á Ijóðum íslenzkra skálda f dagblaðinu Dagens Nyheter f Stokkhólmi og sfðdegisblaðinu Expressen. Hann er þekkt skáld og ljóða- þýðandi og kynnti hér skáld- skap sinn ásamt skáldbróður sfnum Jacques Werup og tón- listarmanninum Rolf Sersam f Ritstjóri Rallarros er ungt skáld, Per Helge, og er heimilis- fang ritsins: P1 2620 Sunnemo, 68300 Hagfors. Lasse Söderberg hefur nú hafið útgáfu nýs tímarits um Ijóðlist ásamt Lars-Hákan Svensson. Það nefnist TSrn- ingskastet og má gerast áskrif- andi þess með því að skrifa honum sjálfum: TSrningholms- gatan 4 B, 217 51 Malmö. í fyrsta tölublaði TSrningskastet eru ný ljóð eftir sænsk og erlend skáld og greinar um skáldskap. Kynning íslenzkra bók- mennta fer nú vaxandi í Svi- þjóð, ekki sízt íslenzkra ljóða. Norræna húsinu f byrjun árs 1974. í Rallarros segir Lasse Söder- berg deili á skáldunum sex. Auk þess birtir hann ljóð eftir sig sem nefnist Utanför Reykja- vík og lýsir gönguferð i ná- grenni borgarinnar. Jacques Werup birtir kafla úr skáld- sögu, sem hann er að vinna að: Ur Casanovas senare resor. Skáldsaga hans Swiss made vakti mikla athygli f Svíþjóð í fyrra og er ekki að efa að mörg- um muni þykja forvitnilegt að lesa um ferð nútíma Casanove til Islands. í kaflanum í Rallar- ros er sagt frá því hvernig Ís- lendingar skemmta sér, hann gerist á skemmtistað í Reykja- vík. EBE og Norðmenn taka upp þráðinn að nýju írar hóta einhliða bráðabirgðaráðstöfunum Gaimardleiðangurinn Á þessu ári eru 140 ár liðin frá heimsókn Gaimardleiðangursins til Islands. Myndin er tekin í bókasafni því er Xavier Marmier, franski bók- menntamaðurinn og ferðalangur- inn, gaf fæðingarbæ sínum, Pontarlier. Þar er margt fágætra Islenskra bóka er Marmier eign- aðist á ferð sinni um Island sumarið 1836. Safnið er varðveitt í ráðhúsi Pontarlier. Bókaverðir safnsins standa hvor til sinnar handar. Á miðri myndinni er málverk af Marmier. Eins og kunnugt er kemur hann við sögu i gamanbréfi Jónasar Hallgrímssonar og einnig i Heljarslóðarorustu Benedikts Gröndal. Á fundi Ferðafélagsins i kvöld mun Pétur Pétursson þulur segja frá leiðangri Gaimards og sýna myndir frá heimabæ Marmi- ers og leiðangrinum. VIÐRÆÐUM milli Efnahags- bandaiagsins og Noregs um fisk- veiðimál vegna útfærslu fisk- veiðilögsögu þessara aðila i 200 milur verður fram haldið í dag. Samninganefnd EBE verður und- ir forustu De Kergorlay aðstoðar- framkvæmdastjóra, en Jens Evensen verður eftir sem áður formaður norsku samninga- nefndarinnar. Á þessu stigi viðræðnanna verður ekki farið út I nánari skil- greiningar fiskveiðiréttinda held- ur lögð áherzla á að gera drög að rammasamkomulagi, sem geti lagt lagalegan grundvöll að ná- kvæmari skilgreiningu aflamagns og reglugerða varðandi verndun auðlinda. Þegar hefur verið gert uppkast að þessum drögum, sem þó eru ekki fullmótuð og verður farið nánar út i þau atriði i við,- ræðunum í þessari viku sam- kvæmt heimildum Morgunblaðs- ins I BrUssel. Meðan þessu fer fram hefur Efnahagsbandalagið og ríkin níu sem að því standa lagt fram stefnumörkun sina i þessum efn- um á fundi NA- Atlantshafsnefndarinnar á Lond- on, eins og skýrt hefur verið frá í Morgunblaðinu. Þar var tilkynnt að EBE-rikin myndu færa land- helgi slna út I 200 sjómilur 1. janúar nk. og upp frá þeim degi geti einungis fiskimenn frá ríkj- um þeim er þegar hafi gengið frá samningum við EBE fengið að stunda veiðar innan lögsögu EBE. Af hálfu EBE er þvi haldið fram, að þar sem viðræður séu þegar hafnar mlii bandalagsins annars vegar og tslands og Nor- egs hins vegar sé þessari afstöðu bandalagsins fyrst og fremst beint gegn Sovétrikjunum og A- Evrópuríkjunum og að eindregn- ar yfirlýsingar Gundelach innan framkvæmdaráðsins fyrir skömmu i þessa veru hafi þar með hlotið staðfestingu. Stefna EBE er þvi sú að hyggist A-Evrópulöndin stunda veiðar innan fiskveiðilögsögu EBE- rikjanna, verði þau að ganga til samninga við EBE sem heild með því að samþykkja viðræður við framkvæmdaráð bandalagsins. Þetta er þannig grundvallaraf- staða af hálfu bandalagsins, en engu að síður er EBE reiðubúið að leita bráðabirgðalausnar innan NA-Atlantshafsnefndarinnar, sem getur haft í för með sér að koma á reglum um veiðarnar og veiðimagn þar til niðurstaða EBE- samninganna liggur fyrir. I fram- tiðinni hyggst Efnahagsbanda- lagið verða þátttakandi í störfum NA-Atlantshafsnefndarinnar I stað þeirra bandalagsrikja sem nú eiga aðild að nefndinni hvert fyrir sig. Rikin níu halda nú áfram að undirbúa frekari ákvarðanir varðandi skipan veiða þeirra inn- byrðis innan fiskveaðilögsögunn- ar. Málamiðlunin I Haag um stefnu bandalagsins í landhelgis- málinu náðist gegn þvi að banda- lagið ábyrgðist að taka tillit til veiða í landhelgi Irlands og Bret- lands að vissu marki, en nú er að því komið að taka ákvörðun um, með hvaða hætti þetta verður. Utanrikismálanefnd bandalags- ins fór ekki að ráði út í þetta atriði á fundi sínum i siðustu viku heldur ákvað að helga fund sinn 13. og 14. desember nk. þessu vandamáli. Á fundinum í siðustu viku tók irski ráðherrann Fitzger- ald það skýrt fram, að fiskveiðar væru landi hans svo mikilvægar, að ef bandalagið hefði ekki komið sér saman um ráðstafanir i þessu efni hinn 1. janúar, sæju írar sig tilneydda að gripa til einhliða bráðabirgðaráðstafana til vernd- unar fiskstofnum þar við land og til að tryggja fiskimönnum sinum nægilegt svigrúm bæði gagnvart fiskveiðiflotum annarra banda- lagsríkja (innan 50 milna) og rikja sem utan bandalagsins standa (innan 200 mílnanna). KE-2500K Góð sala Ásvers í Grimsby: Plötuspilari - útvarp - magnari Lítið um siglingar eftir 1. desember? ÁSVER frá Vestmannaeyjum seldi 44 lestir af isfiski I Grims- by í gær fyrir 20.500 sterlings- pund eða 6.4 millj. króna. Meðalverð á kíló var kr. 145, sem þykir mjög gott verð og þó sérstaklega, þar sem söluskeyt- ið sagði, að gæði fisksins hefðu verið léleg og 17 kit (rösklega 1,5 tonn) verið dæmd óhæf söluvara. I dag selja þrjú skip i Grims- by. Eru það Fróði, sem er með Hnufisk, Langanes, sem er með frysta rækju og þorsk, og Dag- ný, sem er með fsfisk og heil- frystan fisk. Að sögn Jónasar Haraldsson- ar skrifstofustjóra L.Í.U. eru margir skipstjórar og útgerðar- menn smeykir við að láta skip sin sigla til Bretlands á næstu dögum af ótta við að til ein- hverra láta komi, eftir 1. desember, er samningur Bret- lands og ísiands um veiðar brezkra togara innan 200 mílna fiskveiðilögsögu tslands gengur úr gildi. 25W+25W HMS Hohms 20Hz 20,000Hz Nýr Kenwood! Hi Fi samstæðan KE 2500 frá Kenwood, sú bezta sem völ-er á. Þú hvorki heyrir né sérð aðra betri. Raunverulega er hún samstæða 3ja' úrvals Kenwood tækja sem sameinuð eru í fallegum hnotukassa undir einu og sama þaki, fágað og fyrirferðarlítið.en ódýrt. Komið og kynnist KENWOOD, þið verðið ekki fyrir vonbrigðum. Allt fvrsta flokks frá fKENWOOD FALKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84^70

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.