Morgunblaðið - 25.11.1976, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1976
Endur-
nýjun
eldri
hverfa
t tillögunni að endurnýjun eldri hverfa eru
merkt framkvæmdasvæði (ljósgráu fletirnir),
þar sem verði opinberar byggingar og fleira
slíkt, T.d. frá Skúlagötu og upp að Lindargötu,
en endurnýjunarsvæði er m.a. þaðan að Lauga-
vegi. Verndunarsvæði (dökkgráu fletirnir) eru
þarna merkt I hluta Þingholtanna, við Lokastfg,
við Arnarhól, við AusturvöII. Kortið sýnir svæð-
ið frá Aðalstræti inn að Hlemmi og upp á
Skólavörðuhoit.
UMRÆÐUULLAGA 2
ENDURNÝJUN ELDRI HVERFA
M T2CX)0
N
TIKNBKXAN GAROASTRÆB 17
SVmQASKFUNG
0012Ó7
8Hsun« wh«» ocmmw «**<
SKIPULAGSNEFND
Reykjavíkur hefur af-
greitt tillögur að aðal-
skipulagi fyrir borgina til
ársins 1995, en Þróun-
arstofnun Reykjavíkur
hefur á undanförnum ár-
um unnið að endurskoð-
un á aðalskipulaginu,
sem gert var 1962 og
skipulagsnefnd fjallað
um það lið fyrir lið. Nú
verður sá háttur á hafð-
ur, að tillögur skipulags-
nefndar verða kynntar
almenningi með sýningu
á Kjarvalsstöðum, áður
en þær verða teknar til
meðferðar og samþykkt-
ar í borgarstjórn. Og þar
geta borgarbúar nú séð
þær.
Endurnýjun eldri
hverfa er stór liður f
þessari skipulagsvinnu.
í nýju tillögunum er gert
ráð fyrir að miðborginni
sé skipti f 3 megin-
svæði, þ.e. svokölluð
framkvæmdasvæði,
endurnýjunarsvæði og
verndunarsvæði. En á
þeim hluta miðborgar-
innar, sem fellur utan
þessara svæða er ætlazt
til að uppbygging fari
fram á venjulegan hátt,
þ.e. samkvæmt reglum
um landnotkun, nýtingu
og hámarkshæðir bygg-
inga. Um Grjótaþorp,
sem fellur undir skil-
greininguna um endur-
nýjunarsvæði, hefur
skipulagsnefnd gert sér-
staka bókun. Þar er gert
ráð fyrir að verulegar
umbætur verði á núver-
andi mannvirkjum og
umhverfi, en jafnframt
að einstök hús í hverfinu
falli undir hugtakið
verndun mannvirkja og
stefnt að því að varð-
veita hinar skemmtilegu
og óvenjulegu götur.
Rétt er að taka fram að
aðalskipulag er ramma-
skipulag þar sem lagðar
eru meginstefnur, en
sfðan er unnið nánar að
ýmsum þáttum f deili-
skipulagi.
Svæði það, sem hér um ræðir, af-
markast í stórum dráttum af Skúla-
götu, Snorrabraut, Hringbraut, Tjarn-
argötu. Túngötu Hefur teiknistofan
Garðarsstræti 1 7 unnið þar að tillög-
um á svæðinu frá Aðalstræti austur að
Hlemmi og frá sjó upp á Skólavörðu-
holt, og má á sýningunni sjá tillögurn-
ar frá teiknistofunni
GAMLI
AUSTURBÆRINN
Svæðið við og upp af Skúlagötu er í
skipulagstillögunum merkt fram-
kvæmdasvæði. í aðalskipulaginu frá
1962 var gert ráð fyrir því að þetta
svæði yrði sem mest nýtt fyrir iðnað og
þær opinberu stofnanir, sem þar voru
fyrir. Nú er ætlunin að blanda þar
saman miðbæjarstarfsemi og íbúða-
byggð og að þeirri opinberu starfsemi,
sem þar er, verði séð fyrir stækkunar-
möguleikum. í Arnarhvoli er nú þegar
vísir að miðstöð fyrir æðstu stjórnsýslu
og talið eðlilegt að væntanlegri aukn-
ingu á þessari stofnun og nýbygging-
um ráðuneyta og skyldra stofnana
verði beint að þeim stað, I stað þess að
dreifast um alla Reykjavlk, enda á
ríkissjóður mikið af lóðum milli Skúla-
götu og Lindargötu Er þvl gert ráð
fyrir talsverðu rými fyrir opinberar
stofnanir upp af Skúlagötu vestan-
verðri. Við Skúlagötu gætu komið
fleiri, svo sem hótel o.fl.
Milli Lindargötu og Hverfisgötu er
aftur á móti endurnýjunarsvæði svo-
kallað og gert ráðfyrir verulegu íbúðar-
húsnæði I nokkuð þéttri byggð. En I
tillögum er líka lögð áherzla á að
mynduð verði sem bezt tengsli fyrir
gangandi fólk milli framkvæmdasvæð-
isins niðri undir Skúlagötunni og mið-
bæjarsvæðisins og aðliggjandi hverfa
með sérstökum gönguleiðum, aðskild
um frá bifreiðaumferð Á kortum- á
sýningunni má sjá hvernig markaðir
hafa verið stlgar milli húsanna upp
brekkuna, sem með lýsingu og lítilli
lagfæringu geta orðið hlýlegir. Ofan
við Laugaveginn er svo að mestu kom-
ið hverfi þar sem ætlazt er til hægrar
uppbyggingar með líku svipmóti og nú
er. En stór hluti Þingholtanna er merkt-
ur á kortum verndunarsvæði, svo og
svæðið kring um Austurvöll I gamla
Miðbænum, Arnarhóll og upp fyrir
Þjóðleikhús og Þjóðminjasafn, húsa-
þyrping við Lokastíg og Grjótaþorp, en
um það er sérstök bókun, sem fyrr er
sagt, enda verið að vinna á vegum
minjavarðar Reykjavíkurborgar að út-
tekt á húsunum I Grjótaþorpi sem
undirstaða fyrir verndun. Um verndun-
arsvæði er m.a. byggt á skýrslu Harðar
Ágústssonar og Þorsteins Gunnarsson-
ar.
SPORNAÐ GEGN
FÓLKSFLÓTTA
ÚR MIÐBORGINNi
í samþykkt skipulagsnefndar frá 16.
nóvember 1976 um endurnýjun eldri
hverfa segir m.a.: ,.í núgildandi aðal-
skipulagi var það meginsjónarmið um
endurbyggingu ákveðið, bæði I Mið-
bænum og Austurbænum, að endur-
byggingin fari fram smám saman, svo
sem verið hefði. Ákveðið var og að
halda niðri nýtingarhlutfallinu. þannig
að unnt yrði að fullnægja sem mestum
hluta af þörfinni á bifreiðastæðum, án
þess þó að spilla borgarsvip þessara
hverfa, er mótast nú af sambyggðum
húsum.
Slðan núgildandi aðalskipulag
Reykjavíkur var staðfest hefur ekki ver-
ið um neina samræmda uppbyggingu
stærri svæða að ræða I gömlum hverf-
um borgarinnar, þrátt fyrir ýmsar til-
raunir Við svo búið má ekki standa. ef
Ekki hefur verið um samræmda uppbyggingu að ræða f gamla bænum að undanförnu. A þessum myndum má sjá
hver breyting hefur orðið á tveimur stöðum frá 1967 til 1976.
1967 ^ 1976