Morgunblaðið - 25.11.1976, Side 17

Morgunblaðið - 25.11.1976, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1976 17 ÞÚ AUGLÝSIR UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUGLÝSIR í MORGUNBLAÐINU 70 börn á biðlista á Isa- firði — 200 á Akureyri Á seinni árum hefur orðið auðveld- ara að fá menntaðar fóstrur til starfa á Akureyri og með því hefur gengið betur að koma á meira sambandi milli foreldra og heimila. Það hefur líka orðið til skilningsauka hinum almenna borgara, en það sjónarmið hefur vissu- lega verið meðal ýmissa á Akureyri, að dagvistunarstofnanir væru bara geymlustaðir fyrir börnin. Sem betur fer sýnist þessi afstaða vera að breyt- ast. Akranes: Sennilega skárra ástand hér en vfða annarsstaðar Herdfs Ólafsdóttir. formaður kvenna- deildar Verklýðsfélags Akraness, sagð- ist telja að ástandið þar! bæ væri sennilega mun skárra en I Reykjavlk, þótt það væri engan veginn full- nægjandi og fólk yrði að leysa þessi REYKVÍKINGUM hættir til að einblína um of á sjálfa sig og vandamál sín, hvort sem um er að ræða dagvistunarmál ellegar annað það sem að kallar. En hvernig er ástandið i dagvistunarmálum úti á landi. Varla miklu burðugra en i Reykjavík ef marka má fréttir frá ýmsum stöðum. Björn Þórleifsson hefur verið félagsmálastjóri Akur- eyrar um skeið og hefur ný- verið látið að þvi starfi. Mbl. spurði hann hvernig ástandið væri f höfuðstað Norðurlands hvað snerti dagvistunarmál. — Á Akureyri var á áætlun dag- heimili fyrir 67 börn sem stöðugt óx í kostnaði og var hann kominn í 1 50 milljónir. Ég þóttist sjá fram á að bið yrði á þvi að þetta heimili kæmist af teikniborðinu hvað þá lengra. Því gerði ég ákveðnar tillögur og i þeim fólst að keypt yrðu tvö væn einbýlishús af gömlu gerðinni og í þeim komið upp leikskólum, og að breyting yrði gerðá dagheimilinu Pálmholti og það tekið undir leikskóla Ég taldi þetta leið til að leysa brýnasta vandann. Hvort hús um sig hefði ekki þurft að kosta nema um 20 milljónir og enda þótt tfu milljónum væri siðan varið til að gera nauðsyn- legar endurbætur, myndu þessi hús bæði ekki ná sem svaraði helmingi af áætlunarverði nýja dagheimilisins. Síð- an var eitt hús keypt en það þótti ekki hentugt sem leikskóli og var gert að skóladagheimili, enda var mikil þörf á sliku heimili. Nú er verið vinna að viðgerðum og breytingum á þessú húsi og að þvi er ég bezt veit verður það tekið í notkun eftir áramótin. Með þeim tillögum sem ég lagði til að yrði hrint i framkvæmd hefðu verið leyst vandamál um 50—60 barna á skömmum tfma. Hins vegar er mér ekki kunnugt um hvort ákveðið er að kaupa annað hús f þessu skyni, en skóladagheimilið rúmar væntanlega rösklega tuttugu börn. — Hefur verið athugað hversu mikil þörfin á dagvistunarplássum er á Akur- eyri? — Starfshópur kvenna gerði könn- un á því og samkvæmt henni kom f Ijós að á Akureyri lætur nærri að þar væru á biðlista 200 börn eða jafnmörg og þau pláss sem fyrir eru. Þetta er ekki þó alls kostar nákvæm tala þar sem ég álit að ýmsir treysti sér ekki til að standa í því að skrifa sig á lista og biðja um pláss meðan ástandið er svona. — Hvað um almennan skilning bæjaryfirvalda og borgara á dag- vistunarmálum? —, Bæjaryfirvöld voru mér vissu- lega ekki alltaf sammála og drógu til dæmis í efa að lausn sú sem ég kom með, eða drög að lausn væri ódýrari, enda þótt ég þættist benda á rök fyrir því Þá er auðfundið að bæjaryfirvöld- um finnst þetta dýrt Þá er ekki hugsað út í það að 52 aöilar standa til dæmis að þeim 52 börnum, sem eru í Pálm- holti og þó svo við reiknum með því að þetta fólk hafi lágt kaup, eða 60—70 þúsund, fær sveitarfélagið engu að siður í útsvar frá þeim 2—3 milljón krónum meira en sem nemur kostnaði við rekstur heimilisins. Björn Þórleifsson mál oft og iðulega með hjálp ættingja og vina. — Hér er eitt dagheimili sem tekur um fimmtiu börn og er opið allan daginn Svo er einn leikskóli sem starf- ar sömuleiðis allan daginn, en lokar í hádeginu Auk þess er svo gæzluvöll- ur. Enn þykir mér þó langt að aðstaðan hér sé fullnægjandi og á það ekki hvað sizt við um börnin sem eru orðin sex ára og verða þá að hætta á dagheimili eða leikskóla, Þá kemur ekkert annað til en góð aðstoð aðstandenda. Sumar konur hér sem vinna úti hálfan daginn taka siðan börn hinn helming dagsins, ömmur hlaupa undir bagga og svo mætt áfram telja En það er mesta furða hversu mikill friður hefur verið um þetta hér. En þegar þessi mál og önnur eru skoðuð þykir mér það stang- ast á að kallað er hástöf um á konur út I atvinnulífið en hins vegar er með hang- andi hendi gert átak til að gera þeim kleift að stunda vinnu sem í mörgum tilvikum eins og i bæjum úti á landi er stórkostleg verðmætasköpun fyrir þjóðfélagið. ísafjörður: Alvarlegt ástand hér, og tugi barna vantar pláss Rut Tryggvason, formaður Barna- verndarfélags ísafjarðar. sagði að þar I bæ væri ástandið sérstaklega erfitt og bæði kvenfélögin. Barnaverndarfélagið og Félag einstæðra foreldra á ísafirði ynnu af kappi að þvl að þrýsta á bæjarfélagið með byggingu dagheimil- is og vöggustofu — Hér er eitt dagheimili en það er i mjög gömlu húsi og er nánast alger- lega ófullnægjandi. Þar rúmast 45 börn Öllum er Ijóst að úr þarf að bæta og málið er nú I athugun hjá bæjaryfir- völdum og erum við að gera okkur vonir um að hafizt verði handa við Frá Ísafirði þessar framkvæmdir næsta vor. Hér vantar vöggustofu og barnaheimili fyrir amk. 70—80 börn og er það mikið á ekki stærri stað. Hér er mikið af ein- stæðum foreldrum. einkum ekkjum og má geta nærri hversu erfitt þetta er fyrir fólk sem verður að vinna og getur ekki i nándar nærri öllum tilvikum komið börnunum í gæzlu — Finnast þér bæjaryfirvöld sýna málinu skilning? — Já, en auðvitað ekki nógan, þar sem vandamálið er svo brýnt að við lítum svo á að það þoli hreinlega ekki bið — Ætla þau félög sem þarna eiga mestra hagsmuna að gæta að leggja fram fé bæjarfélaginu til aðstoðar? — Barnaverndarfélagið starfar nú — eftir að bæjarfélagið tók dagvistun ina upp á sína arma — að fjáröflun til barnastofu á nýja sjúkrahúsinu En einstæðir foreldrar munu til að byrja með leggja 400 þús í nýja dagheimil- ið — Er vandamálið þá leyst með einkafóstri nú? — Já, það er töluvert af konum, sem eru með smábörn og komast þar af leiðandi ekki útaf vinna, sem hafa tekið eitthvað af þessum börnum í gæzlu á daginn. Eða leitað er til ætt- ingja En við erum að vona af öllu hjarta að ráðizt verði i bygginguna á vori komanda. Þetta er meira vandamál hér á ísafirði en svo að hægt sé að loka augunum fyrir þvi og láta eins og ekkert sé h.k. ------trúlofunarhringar——\ Allir sem trúlofa sig og gifta, vilja vanda val á hringum. Viö bjóóum ykkur velkomin í verslanir okkar, þar sem vió munum sýna ykkur hió ótrúlega fjölbreytta úrval af hringumog snúrum. Ennfremur póstsendum viö hvert á land sem er, ef þess er óskaó. Hér gefur aó líta nokkur sýnishorn, sem þó aóeins er hluti þess úrvals, sem þió eigió kost á. 7 KROSSHAMRAÐIR, SLÉTTIR HRINGAR Krosshamra má ólikar breiddir. 4 EGGHAMRAÐIR HRINGAR Rákir, hamraðar beint, þversum eða á ská. 5 SLÉTTIR HRINGAR Breidd 4. 5. 6 og 7 mm. Hafa rutt sér til rúms á seinni árum. ár <>(> skartgpipíp <IÖN oö ’OSKAR Laugavegi 70 - s. 24910 og IhölliinI VERZlANA LAUGAVEGS0 Laugavegi 26 - s. 17742 KÚPTIR, BREIÐIR HRINGAR Breidd 8, 9, 10 og12mm. Vinsæl gerð undanfarin ár. FLATHAMRAÐIR HRINGAR Fleti má hamra á ólika vegu á hvers konar hringa. Algengast á kúptum hringum. 10 STEINASNÚRA Mikið notuð með gifting- arhringum. Vinsælustu steinarnir í ..snúrunum" eru rúbin (rauður) og safir (hvitur og blár). 12 KLASSISKA GULLSNÚRAN Laus eða áföst kven- hringnum. Breidd 1.5 mm. KANTSORFNIR, SLÉTTIR HRINGAR Kant má sverfa á slétta hringa I öllum breiddum. HRINGAR MEÐ HÖFÐALETRI Bæði nöfnin grafin með höfðaletri á hvorn hring. Breiddir: 6, 7, 8, 9 og 10 mm. Höfðaletur var notað I útskurði fyrr á öldum. Kynning á dagvistunarmálum:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.