Morgunblaðið - 25.11.1976, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1976
19
MAÐUR nokkur i San
Francisco í Kaliforníu aug-
lýsti í fyrra eftir „Til-
raunaglass-móður“ til þess
að ala honum barn með
með gervifrjðvgun og er
nú orðinn farðir að
myndarlegu stúlkubarni.
„Barnlaus eiginmaöur ófrjórrar
konu óskar eftir „tilraunaglas-
barni“ stóð í auglýsingunni, sem
birtist i San Francisco Chronicle
15. apríl í fyrra. „Ætterni enskt
eða frá Norð—vestur
Evrópu.Greinið frá verði og aldri.
Farið verðu með öll svör sem
trúnaðarmál."
Auglýsandinn féllst á að segja
blaðamanni við Chronicle söguna
um auglýsinguna og áhrif hennar
gegn þvi að nafni hans og nafni
móðurinnar yrði haldið leyndum.
Hann kvaðst vera einn eftir af ætt
sinni, en langað til að eignast
barn — sitt eigið barn — til að
viðhalda ættinni. Hann kvaðst
hafa kosið gervifrjóvgun vegna
þess að hann teldi ósiðsamlegt að
eiga kynmök utan hjónabandsins
til að geta barn.
Vandræði mannsins spurðust viða
og leiddu til þess að hann fékk
svör frá 181 konu viða að, allt
austan frá Bangladesh, segir
hann. Voru svörin send á auglýs-
inganúmer hjá Chronicle, og fékk
maðurinn lögfræðing og lækni til
að velja úr konunum. Sjálfur hef-
ur hann aldrei hitt móður barns
síns.
Konan, sem fyrir valinu varð, er
sögð lagleg, ljóshærð skrifstofu-
stúlka, sem býr á San Francisco
svæðinu og er ógift. Hún hefur
aldrei fyrr eignast barn.
I desember í fyrra fór maður-
inn til læknis þar sem tekið var
sýnishorn af sæði hans. Eftir að
hann var farinn, sprautaði lækn-
irinn sæðinu i móðurina. „Þetta
tókst i fyrstu tilraun", sagði mað-
urinn.
Þegar móðirin tilkynnti vinnu-
veitanda sinum og samstarfs-
mönnum hvað um væri að vera lá
við að hún missti vinnuna, að
sögn lögfræðings mannsins, en
allt fór þó vel að lokum.
Stúlkubarnið fæddist svo 6.
september siðastliðinn. Hún er
rauðhærð og bláeyg, og vó 12
merkur við fæðingu. Segir faðir-
inn að í fyrstu hafi dóttirin verið
eitthvað lasin, en nú er hún
Framhald á bls. 31
% Að sögn Associated Press fréttastofunnar hefur höfuðborg
Bandarfkjanna öðlazt þann vafasama heiður að verða fyrst allra
borga þar I landi þar sem fóstureyðingar urðu fleiri en fæðingar.
Þetta var niðurstaðan í Washington á árinu 1975 samkvæmt
opinberum skýrslum, en þar urðu fóstureyðingarnar á siðasta ári
alls 9.819, en fæðingar 9. 746. Af öllum þessum fóstureyðingum
greiddu opinberar sjúkratryggingar, Medicaid, kostnaðinn við
7.417, en 1.082 voru gerðar án kostnaðar við borgarsjúkrahúsið f
höfuðborginni.
Yfirvöld i Washington skýrðu einnig frá þvf f þessu sambandi að
fieiri börn hefðu fæðzt þar í fyrra utan hjónabands en f hjónabandi,
og bentu á að þetta hlutfall yrði enn óhagstæðara ef greiðslur þess
opinbera fyrir fóstureyðingar yrðu felldar niður.
Til samanburðar má geta þess að Medicaid greiddi alls fyrir um
250 þúsund fóstureyðingar f Bandarfkjunum á sfðasta ári, en alls
eru fóstureyðingarnar á árinu áætlaðar hafa verið um ein malljón.
Fæðingar f landinu voru hins vegar 3,15 milljónir árið 1975.
Helgi Skúlason
ir mínar sem tilfærðar eru orð-
réttar. En endursagnir Einars og
ályktanir dregnar af þeim er
höfundskapur mér óviðkomandi;
snið endursagna ákvarðast af
sómatilfinningu þess sem á held-
ur og kemur ekki mál við mig. Ég
verð að hrella Einar með því að
við Matthías Johannessen höfum
ekki rætt táknmál það sem fengið
er með láns og leigukjörum frá
Danmörku. Við erum tæpast tveir
um þá skoðun sem fer í pirrurnar
á klipparanum. Skoðanabræður
okkar og systur nema trúlega þús-
undum. Sigurður Nordal varaði
íslendinga við að leggjast vembil-
fláka fyrir hverjum goluþyt bók-
menntatísku sem um nágranna-
löndin færi. Þau varnaðarorð
hafa sýnilega ekki enn náð eyrum
sanntrúaðra marxiskra höfunda
— sem éta manna mest hver úr
annars lófa, þannig að þekki mað-
ur einn þekkir maður þá alla,
gildir einu uppá hverju er brotið.
Ur þeim öllum kemur lap úr sömu
skál. Því miður. Stöðlunin á
öðrum sviðum er ærin fyrir.
Ég fæ ekki betur séð en Einar
Karl stefni með beggja skauta byr
beint í faðm þess safnaðar sem
svo er lýst í eftirmála greinasafns
sem sá er þetta ritar er höfundur
að og fer að sjá dagsins ljós;
„Þeir (Einar Bragi og hirð
hans) ánetjuðust ungir trúar-
brögðum sem ekki eru alveg án
verðleika, en eru þeirrar náttúru
að þau rækta með uppnæmúm
mönnum einsýni sem sýrir allan
gerning þeirra uppfrá því og rýrir
þá sem manneskjur. Kynslóðin
má dragnast með þennan fjanda-
flokk vegferðina á enda.“
Það má ekki gleymast að merki,
hversu mikilli gyllingu sem mak-
að er á þau, eru aldrei hótinu
betri en mennirnir sem ganga
með þau um torg.
Fransk-
ar kvik-
myndir
1 kvöld, fimmtudag 25. nóv., kl.
20.30, mun Gerard Lemarquis
halda fyrirlestur um franska
kvikmyndalist frá upphafi og
fram að „Nýju bylgju“ í Franska
bókasafninu, Laufásveg 12. Ger-
ard mun sýna kafla úr mörgum
kvikmyndum til skýringar. Þess
er skylt að geta að hann mun tala
á íslenzku til þess að allir þeir,
sem áhuga hafa á kvikmyndum
geti haft gagn og gaman af. Fyrir-
lestur þessi er á vegum Alliance
Francaise og er liður í vetrardag-
skrá félagsins. Veróa framvegis
kvikmyndasýningar, fyrirlestrar
eða bókmennta-, lista- og
skemmtidagskrár í Franska bóka-
safninu a.m.k. þrjá þriðjudaga í
hverjum mánuði. Meðal efnis
þessara kvölda má nefna kvik-
mynd gerð eftir Don Juan
Molieres, kynningu á goðsögninni
Don Juan og upplestur úr leikrit-
inu í þýðingu Jökuls Jakobssonar,
en þetta kvöld sem tileinkað er
Don Juan verður þ. 7. desember
n.k. Þ. 28. desember verður jóla-
skemmtun fyrir börn og foreldra
með fjölbreyttu frönsku skemmti-
efni og hefst hún kl. 17.
Allar frekari upplýsingar varð-
andi starfsemi Alliance Francaise
eru veittar i Franska bókasafn-
inu.
Af a/hug þakka ég
öllum • skyldmennum og vinum mínum, fjær og nær,
dýrmætar gjafir, vinsemd og heiður, á áttræðisafmæli
mínu 9. þ.m.
Megi kærleikssól Guðs
lýsa ykkurog launa æfinlega.
Guðbjörg Vilhjálmsdóttir.
Jólin nálgast
Nú er rétti tíminn til að sauma fyrir jólin.
Höfum fengið:
Slétt flauel
margir litir. 2 tegundir.
Rifflað flauel
fín og grófrifflað.
Denimefni
einlitt og röndótt.
Bómullarefni
köflótt — einlitt.
Popplínefni
Sængurvera
damask
Hvítt og mislitt.
Frottéefni
3 tegundir.
Óbleijað léreft
Lakaléreft
Br. 140 — 180 — 225.
Hvít blúnduefni
Ullarkjólaefni
Köflótt — einlitt.
20 litir.
Verzlið þar sem úrvalið er mest
Athugið verð og gæði hjá okkur, áður en þér
kaupið annars staðar
Egill 3acobsen
Austurstræti 9
SUZUKI
RV 125 snjótröll
HÖFUM TIL AFGREIÐSLU:
SUZUKI RV 125 SNJÓTRÖLL
SUZUKI TS 125 TORFÆRUHJÓL
SUZUKI TS 400 TORFÆRUHJÓL
SUZUKI GT 250 GÖTUHJÓL
SUZUKI TG 550 GÖTUHJÓL
SUZUKI GT 750 GÖTUHJÓL
KYNNIÐ YÐUR VERÐ OG GREIÐSLUSKIL
MÁLA
Ólafur Kr. Sigurðsson & Co.,
Tranavogi 1, sími 83499.