Morgunblaðið - 25.11.1976, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1976
33
KAUPMENN
INNKA UPASTJÓRAR
UM LAND
ALLT
Eigum nú fyrirliggjandi
gjafavörur fyrir jólin
FREYÐIBÖÐ
SNYRTIVÖRUR í GJAFAKÖSSUM fyrir dömur og herra
Tunguhálsi 11, Arbæ, sími 82700.
Stigahliö 45-47 simi 35645
Fiskbúðingur
Venjulegt verð
kr. 450 kg.
Tilboðsverð
Kr 300 kg.
Fundur Lands-
sambands iðnaðar-
manna á Akureyri
carafes carafes carafes
iceberg* auteuil •longchamp ninive
Gunnar S. Björnsson, formaður
Meistarasambands byggingar-
manna, hafði framsögu um lána-
mál iðnaðarins. Rakti hann ýtar-
lega þróun þeirra mála og gerði
samanburð á lánamálum iðnaðar-
ins og annarra atvinnugreina,
framlögum á fjárlögum til lána-
sjóða atvinnuveganna og lántök-
um sjóðanna í Framkvæmdasjóði.
Þá gerði Gunnar grein fyrir fjár-
hagsstöðu lánasjóðanna sjálfra,
en staða þeirra sumra er þannig,
að fyrirsjáanlegt er að stórauka
verður framlög til þeirra, þar sem
skuldir sjóðanna eru állka eða
meiri en heildarútlán, en yfirleitt
eru útlánin með lægri vöxtum en
þau lán, sem sjóðirnir hafa tekið.
Fram kom, að Iðnlánasjóður,
sem er helsti lánasjóður aðila inn-
an Landssambandsins, hefur til
ráðstöfunar um 705 millj. kr. á
árinu 1976, en áætlað er að
heildarfjárhæð lánsumsókna til
sjóðsins muni nema um 2800
millj. kr. A næsta ári má búast við
að umsóknir nemi um 3200—3500
millj. kr., en til ráðstöfunar verði
um 800 millj. kr. fyrir utan lán-
tökur sjóðsins.
Sigurður Kristinsson hafði
framsögu um iðnfræðslumál, en
Landssamband iðnaðarmanna
hefur frá fyrstu tíð haft mikil
afskipti af þeim málum. Höfðu
Sigurður og starfsmenn Lands-
sambandsins kynnt sér sérstak-
lega fyrir þennan fund starfsemi
fjölbrautaskóla I Reykjavík,
Hafnarfirði og Keflavík.
Kom greinilega fram hversu
mikill munur er á starfsemi þess-
ara skóla, en allt virðist enn
óákveðið um starfsvið þeirra og
tengsl við atvinnullfið, svo og um
réttindi nemenda að námi loknu.
(Ur fréttatilkynningu Lands-
sambands iðnaðarmanna)
SAMBANDSSTJÓRN
Landssambands iðnaðar-
manna kom nýlega saman
til fundar á Akureyri, en
sú venja hefur verið tekin
upp að halda annan hvern
fund sambandsstjórnar-
innar utan Reykjavíkur. Á
þessum fundi á Akureyri
kom fram að starfsemi
Landssambandsins hefur
að undanförnu stóraukist,
bæði á sviði almennra upp-
lýsingasöfnunar og miðl-
unar um iðnaðinn i heild
og einstakar iðngreinar
með sérstökum iðngreina-
athugunum. Þá hefur verið
lögð áherzla á að kanna og
stuðla að úrbótum í ýmsum
aðstöðumálum iðnaðarins
og jafnframt tekin upp ný
starfsemi, sem er fólgin í
því að halda fræðslufundi
fyrir aðildarfélögin.
Forseti Landssambands
iðnaðarmanna, Sigurður Kristins-
son, gerði grein fyrir þeim mál-
efnum, sem nú eru efst á baugi i
iðnaðinum og greindi frá afstöðu
framkvæmdastjórnar Lands-
sambandsins til þeirra. Þórleifur
Jónsson, frainkvæmdastjóri
Landssambandsins, skýrði frá
þeim verkefnum, sem nú er unnið
að á vegum sambandsins, ýmist I
samvinnu við aðra eða á eigin
vegum. Þrjú aðalumræðuefni
fundarins voru iðnlöggjöfin, lána-
mál iðnaðarins og iðnfræðslumál-
in.
Framsögu um iðnlöggjöfina
hafði Sigurður Kristinsson en i
umræðum kom eindregið fram að
þörf væri á endurskoðun þessara
laga vegna breyttra aðstæðna
bæði á sviði atvinnu- og fræðslu-
mála. Talið var eðlilegt að rýmk-
uð yrðu ákvæði um heimild meist-
ara til að ráða til starfa ófaglært
verkafólk enda beri meistari einn
ábyrgð á þeirri vinnu, sem unnin
er undir hans stjórn.
AKÍI.VSINOASÍMINN ER:
22480
ItlorBttnblnbtt)
Frá fundi Landssambands iðnaðarmanna á Akureyri.
Tri áramóta verða eftirtaldar
verzlanir opnar á laugardögum:
kH
naio
SKEIFUNN115
Vorumarkaðurinn hf.
I Ármúla
w
©
Austurveri
G/æsibæ
HAGKAUPSHÚSINU Sími 82898