Morgunblaðið - 25.11.1976, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 25.11.1976, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÖVEMBER 1976 12 landsleikir framundan Leikið verður við Austur-Þjóðverja, Dani, Vestur-Þjóðverja, Pólverja og Tékka ÆFINGAR íslenzka landsliðsins fyrir B-heimsmeistarakeppnina I handknattleik í Austurfki munu verða alls 123, auk 10 opinberra æfingaleikja og 19 landsleikja, ef áætlun sú sem stjórn Handknatt- leikssambandsins og landsliðs- nefndin hafa gert fær staðist. Reyndar er tveimur af þremur æfingaáföngum þegar lokið, en á þeim tfmabilum voru samtals 64 æfingar, einn opinber æfingaleik- ur og sex landsleikir. Framundan er nú þriðja og strangasta æfinga- tfmabilið sem standa á til 1. marz n.k. og er áformað að hafa á þvf 59 æfingar, 9 opinbera æfingaleiki og 13 landsleiki. Má þvf segja að landsliðsmenn verði að á degi hverjum fram að B-keppninni, meira að segja á Þorláksmessu og á annan dag jðla eru boðaðar æf- ingar, þannig að betra er fyrir leikmennina að fara varlega í jólasteikurnar. Það kom fram á fundi sem stjórn HSI hélt nýlega með frétta- mönnum að landsliðsnefnd hefur orðið að leita mikið til félaganna eftir æfingaaðstöðu. Sagði Sigurð- ur Jónsson, formaður HSI, á nefndum fundi, að félögin hefðu brugðist mjög vel og gefið eftir æfingatíma sína, enda hefðu þau verið höfð algjörlega með í ráð- um, þegar landsliðsæfingarnar voru skipulagðar s.I. sumar, og leikjafyrirkomulag t.d. í íslands- móti var ákveðið. Fyrsta stórverkefni íslenzka landsliðsins á þriðja æfingatíma- bilinu verður pressuleikur sá er fram fer i Laugardalshöllinni á laugardaginn. Siðan er áformað að haannan pressuleik áður en landsliðið heldur utan i keppnis- ferð til Austur-þýzkalands og Danmerkur í desember. Verður lagt í þá ferð 8. desember og leiknir verða tveir leikir við Þjóð- verja. Fer fyrri leikurinn fram 9. desember og seinni leikurinn 10. desember. 12. desember verður Landsliðið valið Landsliðsnefnd birti i gær val sitt á íslenzka landsliðinu sem leika mun gegn pressuliðinu f Laugardalshöllinni á laugardag- inn. Er val landsliðsnefndarinnar og landsliðsþjálfarans í fyllsta samræmi við það sem búizt var við, og vfst er að lið þetta Iftur næsta vel út á pappfrunum. Svo er eftir að vita hvernig það kemst í gegnum fyrstu eldraun sfna, en ólfklegt er að pressuliðsmenn láti hlut sinn baráttulaust f leiknum á laugard aginn. Landsliðið verður þannig skip- að: Markverðir: Ólafur Benediktsson, Val Gunnar Einarsson, Haukum Aðrir leikmenn: Jón Karlsson, Val Bjarni Guðmundsson, Val Þorbjörn Guðmundsson, Val Geir Hallsteinsson, FH Viðar Sfmonarson, FH Þórarinn Ragnarsson, FH Viggó Sigurðsson, Vfkingi Þorbergur Aðalsteinsson, Vfkingi Ólafur Einarsson, Vfkingi Ágúst Svavarsson, IR. svo leikið við Dani og daginn eftir mun íslenzka landsliðið svo leika við Sjálandsúrval. 14. desember mun svo landsliðshópurinn tvistr- ast í allar áttir. Nokkrir landsliðs- mannanna halda heim til Islands, Valsmenn fara með liði sínu til Moskvu og FH-ingar til Varsjá. áttu við félaga sinn Ágúst Ásgeirsson. Hlaupararnir 8 sem þátt tóku í hlaupinu fóru sér nokkuð hægt framan af, en eftir um 2 km tók Ágúst rykk, og hon- um fylgdi aðeins Gunnar eftir. Tvær tilraunir hjá Ágústi upp úr miðju hlaupinu til að slíta Gunnar af sér tókust ekki, og eftir 7 km hnífjafna baráttu lyktaði hlaup- inu með því að Gunnar „sigldi“ í burtu er um 150 metrar voru í mark. Félagi þeirra úr ÍR Hafsteinn Oskarsson hljóp vel og tryggði sér 3. sætið, en Ágúst Þor- steinsson hætti hlaupinu því hann mun hafa villst af leið. Það má af tíma hlauparanna ráða að hann er mjög góður, því vegalengdin er um 10 km eins og áður segir, og svo bætast við lang- ar brekkur sem draga úr mönn- um. Það er því greinilegt að allir hlaupararnir eru í góðu formi, en að sögn munu þeir allir æfa stíft, enda hefur veðrátta verið serlega hagstæð þeim sem æfa utandyra. Sennilega kemur það mörgum á óvart að Gunnar Páll skuli sigra Ágúst í svo löngu hlaupi, því hann er betur þekktur sem 800 metra hlaupari, en Ágúst hefur öllu meiri reynslu í lengri hlaupum. En „ég hljóp mjög vel,“ sagði Ágúst, „Gunnar hljóp bara ein- faldlega betur,“ bætti hann svo við. Ég þekki Gunnar ekki öðru vísi en fyrir mikið harðfylgi í keppni, en þó kom harka hans í svo Iöngu hlaupi mér nokkuð á óvart; og hann verðskuldaði þennan sigur fyllilega," sagði Ágúst ennfremur. Annars urðu úrslit hlaupsins þessi: l. Gunnar P. Jóakimsson, ÍR, 31:48,0 m. 2. Ágúst Ásgeirsson, ÍR, 31:53,4 m. 3. Hafsteinn Oskarsson, ír, 32:59,9 m. 4. Ágúst Gunnarsson, UBK, 33:32,6 m. 5. Valur Valdimarsson, Á, 35:15,0 m. 6. Árni Kristjánsson, Á, 35:15,0 m. 7. Sigurður Lárusson, Á, 35:15,0 m. 17., 18., og 19. desember verða svo þrír landsleikir við Dani hér- lendis, sennilega allir i Laugar- dalshöllinni. Ætlunin var að einn þessara leikja færi fram i Vest- mannaeyjum, en að sögn tals- manna HSl, eru likur á að af því geti ekki orðið. Næstu landsleikir verða svo 25. og 26. janúar, báðir i Laugardals- höllinni og verða Pólverjar þar andstæðingar Islendinga. Síðan verður leikið við Tékka I Laugar- dalshöllinni 29. og 30. janúar og loks við Vestu-Þjóðverja, einnig i Laugardalshöllinni 5. og 6. febrú- ar. Af þessari upptalningu má sjá að Islandsliðið mun leika 12 landsleiki fram að B-keppninni sem hefst i Austurríki 26. febrúar og verða mótherjarnir ekki af lak- ara taginu, þ.e. Austur- Þjóðverjar, Vestur-Þjóðverjar, Danir, Pólverjar og Tékkar. MEÐ nr. 1, 2 og 3 á maganum urðu þeir (f.v.) Gunnar Páll, Ágúst og Hafsteinn númer 1, 2 og 3 f Kópavogshlaupinu. Með á þessari mynd er einnig Sigfús Jónsson sem nú æfir vel f Englandi. Þessi mynd er tekin f sumar er þeir fjórmenningarnir úr tR höfðu nýlega bætt verulega Islandsmetin f 4x800, og 4x1500 metra boðhlaupum á Gat'eshead- vellinum, velli Brendans Foster, f Englandi. KÓPAVOGSHLAUP UMSK fór fram nú um helgina, en það er nokkuð óvenjulegt að frjáls- íþróttafólk okkar sé að keppa utanhúss á þessum tíma árs. Hlaupið fór fram á götum Kópavogskaupstaðar og var vega- lengdin mæld um 9,7 km. Sigur- vegari í hlaupinu varð Gunnar Páll Jóakimsson, eftir harða bar- KR-INGAR unnu stórsigur yfir Keflvfkingum f 2. deild Islands- mótsins f handknattleik, en liðin leiddu saman hesta sfna f fþrótta- húsinu f Njarðvfkum sfðdegis á sunnudaginn. Lokatölur leiksins urðu 31:18 KR f hag, eftir að staðan hafði verið 13:5 f hálfleik. Keflvfkingarnir hafa tapað öllum leikjum sfnum til þessa og flest- um stórt. Virðist fátt annað bfða þeirra en fall niður f 3. deild, ef ekki verði stórbreyting á liðinu til hins betra. KR-ingar höfðu yfirburði allt frá byrjun. Þeir komust í 3:0, 4:1 og 8:2 og staðan i hálfleik var sem fyrr segir 13:15. Léku KR-ingar góðan varnarleik I fyrri hálfleik, en i þeim seinni slökuðu þeir á í vörninni og var sá hálfleikur jafn- ari, KR skoraði þá 16 mörk en Keflvíkingar 13. KR-ingar léku vel framan af en seinni hálfleikurinn var slakur af þeirra hálfu. Bezti maður liðsins I þessum leik var Haukur Ottesen. Keflavíkurliðið er mjög slakt um þessar mundir og ekki er hægt að hæla nema einum liðsmanna I þessum leik, Guðmundi Jó- hannessyni. Mörk iBK: Guðmundur Jóhannesson 4, Sigurbjörn Gústafsson 4, Magnus Garðarsson 3, Einar Leifsson 2, Sigurður Björgvinsson 2, Grétar Grétars- son 2, og Þórir Sigfússon 1 mark. Mörk KR: Haukur Ottesen 9, Ólafur Lárusson 4 (4 v), Símon Unndórsson 3, Ævar Sigurðsson 4, Ingi Steinn Björgvinsson 3, Þorvarður Björnsson 3, Kristinn Ingason 2, Jóhann Sævarsson 1, Friðrik Þorbjörnsson 1 og Þor- varður Höskuldsson 1 mark. —G.Hj./SS. Haukur Ottesen — skoraði 9 mörk f Keflavfk. Árni Indriðason — harður varnarmaður sem landsliðið má illa vera án. ÁRNI EKKI MEÐ ÁRNI Indriðason hefur nú til- kynnt landsliðsnefnd HSl að hann sjái sér ekki fært að taka þátt í undirbúningi islenzka landsliðsins fyrir B- heimsmeistarakeppnina, né þeim landsleikjum sem fyrirhugaðir eru. Mun það vera af persónuleg- um ástæðum sem Árni getur ekki verið með, og er þar skarð fyrir skildi, þar sem Árni er tvímæla- laust einn af allra beztu varnar- leikmönnum landsins um þessar mundir. Þá mun einnig vera óvíst hvort Jón Karlsson, Val, getur leikið með islenzka landsliðinu í Austur- Þýzkalandi nú I desember vegna vinnu sinnar. Hann mun hins veg- ar vera tilbúinn að leika í Dan- mörku, ef þess verður óskað. GUNNAR PÁLL SIGRAÐI í KÓPAVOGSHLAUPIUMSK KR-ingar unnu IBK stórt í 2. deiidinni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.