Morgunblaðið - 25.11.1976, Page 48

Morgunblaðið - 25.11.1976, Page 48
AUíiLVSINíí A- SÍMINN KR: 22480 FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1976 Atlantica& lceland Review Látiö gjafaáskrift 1977 fylgja jóla- og nýárskveöjum til vina og viðskipta- manna erlendis. Gjöf, sem endist i heilt ár og allir kunna vel aö meta. Simi 815 90, Pósthólf 93, Reykjavík. Ylræktarver: t FRAMHALDI af þeim umræð- um og viðræðum sem átt hafa sér stað út af væntanlegu ylræktar- veri hér á landi. f sameign með Hollendingum, þá hafa hinir hol- enzku eignaraðilar nú ákveðið að þeirra tilboð muni standa óbreytt til 15. desember n.k. Kom þetta fram hjá sendifulltrúa Hollands f Lundúnum, D. Vrises, en hann kom hingað til lands f gær til viðræðna um þessi mál. Forráðamenn Ylræktar hf. í Hveragerði gengu í gær á fund landbúnaðarráðherra og skýrðu sín sjónarmið um ylræktarver í Hveragerði. Sögðu þeir Hans Gústafsson, Bjarni Eyvindsson og Jónas Björnsson að ráðherra hefði yfirleitt tekið jákvætt undir mál þeirra. Þeir félagar sögðu i viðtali við Mbl. að stjórn Ylræktar hf. í Hveragerði teldi, að ef niðurstaða rannsókna sýndi að hugsanlegur grundvöllur væri fyrir ylræktar- veri á Islandi á borð við það sem nú væri í deiglunni, og væri það reyndar samdóma álit sérfróðra manna, þá væri slíku ylræktar- veri bezt valinn staður í Hvera- gerði. Hvers vegna Hveragerði, Heildar- síldarafl- inn um 16 þús. lestir HEILDARSÍLDVEIÐIN i haust mun hafa numið um 16 þús. tonn- um í gær, en sem kunnugt er lýkur veiðinni á miðnætti í nótt. Hringnótabátar voru búnir að fá 9900 tonn í gær, en þá áttu tveir bátar eftir nokkur tonn af sínum kvóta. Talið var að reknetabátar væru búnir að veiða um 6 þúsund lestir, en sem kunnugt er hefur veiði þeirra verið mjög góð að undanförnu. Hringur GK fékk t.d. 900—1000 tunnur í fyrrinótt og er það mesti afli, sem reknetabátur hefur komið með að landi. spyrja menn eðlilega? — Nægi- legt varmamagn, landrými, nægi- legur heppilegur jarðvegur, góðar samgöngur við flugvelli, nærliggj- andi vatn til vökvunar á svæðinu, sögðu þeir félagar. — Ymislegt fleira jákvætt mætti nefna, svo sem nálægð Garðyrkjuskóla ríkis- ins, og einnig að Hveragerði er samnefnari fyrir alla gróðurhúsa- framleiðslu i landinu þvi hvergi er framleiðsla eins fjölbreytt og þekking á almennri ræktun því mikil. Ennfremur má benda á það, að flest það fólk sem er á hinum almenna vinnumarkaði i Hveragerði hefur nokkra þekk- ingu á gróðurhúsavinnu. — Sérfróðir menn telja Hvera- gerði álitlegasta staðinn til bygg- Framhald á bls. 28 Ætluðu að brjótast inn til eina kvenfangans STARFSMENN Hegningar- hússins við Skólavörðustfg urðu f fyrrinótt varir við grun- samlegar mannaferðir f garði hússins. Voru þarna tveir pilt- ar á ferð. Voru þeir handsam- aðir og fluttir á brott af lög- reglunni. Eins og að likum lætur voru piltarnir spurðir nákvæmlega um ferðr sínar í fangelsisgarð- inum. Kom í ljós að þeir ætl- uðu að brjótast inn i Hegningarhúsið og heimsækja eina kvenfangann sem þar er geymdur. Er það ung stúlka, sem situr í gæzluvarðhaldi i sambandi við rannsókn Geir- finnsmálsins. Piltarnir vildu lítið segja um það hvaða erindi þeir áttu á fund stúlkunnar, en væntan- lega hefur það verið mikilvægt fyrst þeir lögðu það á sig að brjótast inn í fangelsi í miðri Reykjavík til að ná fundi henn- ar. Piltarnir voru báðir ölvaðir. Þeir hafa áður komið við sögu hjá lögreglunni. Finn Olav Gundelach stígur út úr einkaþotu sinni á Reykjavfkurflugvelli f gærdag. Flugmaðurinn horfir á. — Ljósm.: ÓI.K.M. „Engar nýjar tillögur en málin hafa skýrzt” - segir Gundelach og telur að mikilvægi Norð- austuratlantshafsfiskveiðinefndarinnar sé lokið „EG KEM ekki með neinar nýjar tillögur á fundinn á morgun," sagði Finn Olva Gundelach í sam- tali við Morgunblaðið við komuna f gær, „en hins vegar getum við nú gefið nánari skilgreiningu á ýmsu um stöðu okkar. Þá hefur það og gerzt f NA- atlantshafsfiskveiðinefndinni, að þar höfum við lýst þvf, :ð við viljum ekki semja innan hennar um kvóta f 200 mflna fiskveiðilög- sögu okkar. Við semjum aðeins á grundvelli tvfhliðasamninga." Finn Olav Gundelach sagði að þetta væri í raun það sem nýjast væri í málunum frá því er hann Stofnar heilahimnu- bólgu a.m.k. þrír Bóluefni virkar ekki á stofn B SANNAÐ er að stofnar heila- himnubólgu eru fleiri en einn og fleiri en tveir, en veikin hefur verið útbreidd á Norður- löndum sfðasta ár. Kom þetta fram á fundi sem norræn heil- brigðisyfirvöld héldu f Osló s.l. föstudag og laugardag. Þar kom Ifka fram, að bólusetningarefni það, sem á boðstólum er, veitir aðeins vörn gegn heilahimnu- bólgu af stofni A og stofni C, en ekki stofni B, sem vfða hefur skotið upp kollinum og hefur m.a. fundist á Islandi. Búið er að einangra þann stofn, en bóluefnis er fyrst að vænta á markaðinn eftir tvö ár. Þessar upplýsingar fékk Morgunblað- ið hjá Magnúsi Stefánssyni lækni á Akureyri, en hann sótti fundinn af Islands hálfu. Magnús sagði, að fundar- menn hefðu verið sammála um að stofnar heilahimnubólgu væru nokkrir. Á Norðurlöndum hefði veikin byrjað í Finnlandi, sennilega árið 1973. Talið væri að veikin væri nú mikið i rén- um þar, en væri að líkindum enn að breiðast úf i Noregi. Hins vegar væri erfitt að meta ástandið í Svíþjóð og Dan- mörku. Þá sagði Magnús, að ef ástæða gæfi tílefni til, ráðlegðu sérfræðingar að bólusetja börn og gefa stærri skammta af fúkkalyfjum en áður hefði tíðk- ast, ef sjúklingur væri nærri börnum. Fúkkalyfin heftu út- breiðslu kringum sjúkling. — Það eru 16—20 sinnum meiri möguleikar á að systkini veiks barns sýkist en barn i næsta húsi, sagði Magnús. Sagði hann, að heilahimnubólgustofnarnir virtust geta breytt sér. Þegar veikin hefði fyrst komið i ljós, á Norðurlandi hefði reynst vera um A-stofn að ræða, en á Suður- landi virtist B-stofninn algeng- ari, og því miður væri ekki enn til bóluefni gegn B-stofni, og yrði vart fyrr en eftir tvö ár. Það kom fram á fundinum í Framhald á bls. 28 hefðu verið hér fyrir viku. Þá var þetta enn ekki ljóst. „Því er allt mikilvægi Norðausturatlantshafs- fiskveiðinefndarinnar úr sög- unni,“ sagði Gundelach, „og hún því óþörf nú, en hvort hún verður, það i framtiðinni, veit ég ekki.“ Gundelach var þá spurður að því, hvernig fundurinn með full- trúum brezka fiskiðnaðarins, sem haldinn var f Brussel i fyrradag, hefði verið. Hann sagði að brezku fulltrúarnir hefðu aðeins komið til þess að rkýra sér frá vandamál- um sinum og það hefðu þeir að sjálfsögðu fullan rétt á — sagði hann. „Þetta var upplýsingafund- ur, þar sem þeir sögðu mér frá vandamálum sínum, en ekki var um samningafund að ræða. I við- ræðunum hér verð ég að taka tillit til þeirra sem annarra ibúa Efnahagsbandalagsins. Ég verð að taka tillit til heildarinnar, en ég verð einnig að taka tillit til hinna einstöku hópa innan henn- ar.“ Þá sagði Gundelach að fund- urinn hefði farið fram í fullkom- inni vinsemd og hann tók fram að þessir aðilar vildu vera vinsam- Iegir gagnvart Islendingum. Þeir litu svo á málin að Islendingar og Bretar hefðu átt vinsamleg sam- skipti um langan aldur og vonuðu að slikt gæti orðið áfram. Að öðru leyti sagði Gundelach, að fundurinn með Islenzku við- ræðunefndinni á morgun (þ.e.a.s. í dag) yrði framhald þeirra könn- unarviðræðna, sem fram hafi far- ið í fyrri viku. Hann gæti ekkert um þá sagt fyrr en eftir viðræð- urnar og kvaðst hann búast við að ræða við fjölmiðla að þeim lokn- um. „Við sjáumst þvf á morgun eða föstudagskvöldið," sagði þessi aðalsamningamaður Efnahags- bandalagsins um leið og hann sté inn I bifreið utanrikisráðuneytis- ins, sem komin var til þess að taka á móti honum, en hingað kom hann með einkaþotu frá BrUssel. Einar Ágústsson sagði að engin vitneskja hefði borizt frá BrUssel um það, hvað Gundelach hefði fram að færa að þessu sinni. Einar sagðist ekki búast við því að Efnahagsbandalagið færi fram á að samningaviðræður færu fram í stað könnunarviðræðnanna, sem ráðgerðar eru. Sama viðræðunefndin er fyrir Efnahagsbandalagið og var hér I fyrri viku. Formaður nefndarinn- ar er Daninn Finn Olav Gunde- lach, en aðrir í nefndinni eru Ir- inn Emon Gallagher, sem er aðstoðarframkvæmdastjóri í utanríkismáladeild bandalagsins og David Hannay, sem er skrif- Framhald á bls. 28 Féll 4metra fram af brú og hafnaði á þakinu Reyðarfirði, 24. nóvember. UMFERÐARÖHAPP varð í Reyðarfirði í gærdag um kl. 17. Bíll, sem var að koma frá Egilsstöðum, fór út af og lenti ofan I Geithúsaá. Er talið að bílstjórinn hafi misst stjórn á bilnum vegna hálku og við það lent á brúarstólpa. Datt billinn um 4 metra ofan í ána og hafn- aði á þakinu. Þrennt var i bílnum, bilstjór- inn, sem var karlmaður, kona hans og dóttir. Maðurinn slasaðist nokkuð tognaði m.a. á hálsi og skaddaðist eitthvað á höfði. Mæðgurnar mörðustu eitthvað. Billinn er mikið skemmdur. Þegar óhappið átti áer stað, var lítið vatn í ánni og komst fólk- ið hjálparlaust út úr bílnum. Gréta Hollendingar veita frest til 15. des.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.