Morgunblaðið - 22.12.1976, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR
282. tbl. 63. árg.
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Reg Prentice
segir af sér
London 21. desember — Reuter.
REG Prentice, ráðherra brezku
stjórnarinnar, sem fer mað mál,-
efni vanþróaðra erlendra rfkja,
og sem hefur verið mikill gagn-
rýnandi hins áhrifamikla vinstri-
arms Verkamannaflokksins,
sagði f dag af sér ráðherradómi.
Lýsti hann þvf jafnframt yfir að
Bretland væri rekald án leiðtoga.
Hann hvatti til þess að dregið
yrði úr áhrifum tveggja stóru
flokkanna í brezkum stjórnmál-
um og gaf hann i skyn að hann
kynni að reyna að stofna stjórn-
málaflokk hófsamra.
1 afsagnarbréfi sínu til Callag-
hans, forsætisráðherra, sagði
Prentice að til væri margt fólk,
sem væri vinstrisinnað en gæti
ekki sætt sig við hráan sósíalisma
og að þetta fólk væri orðið frá-
hverft báðum stóru flokkunum.
,,Fyrr eða sfðar verður stjórnkerf-
ið að leyfa því að láta til sín
heyra.“
Prentice mótmælti vaxandi
áhrifum vinstri sinna innan
Verkamannaflokksins og einnig
niðurskurði á fjárveitingum til
aðstoðar við erlend ríki og til
varna landsins. Hann mótmælti
einnig frumvarpi um aukna sjálf-
stjórn Skotlands og Wales, sem
hann sagði ógna einingu Bret-
lands.
Sunnudaginn annan í var, var kveikt á jólatrénu á Austurvelli, sem eins og kunnugt er gjöf frá
Norðmönnum. Þetta er í 25 skipti, sem Óslóarborg gpfur Reykvfkingum jólatré og höfðu aldrei verið
jafn margir viðstaddir og þegar Ijósin voru tendruð á sunnudaginn. Ljðsm. Mbl. oi.k. Mag.
Viljabanna
landanir
íslendinga
Hull 21. desember — frá Nigel Robson,
fréttaritara Morgunbladsins.
TOGARASKIPSTJÓRAR og
stýrimenn f Grimsby hafa hvatt
fiskiskipaeigendur til að meina
fslenzkum fiskiskipum að
landa f brezkum höfnum. ÖU
löndun er f höndum fiskiskipa-
eigenda. Alfta yfirmennirnir
að þetta sé ein leið til að þrýsta
á fslenzku rfkisstjórnina til að
gefa eftir f samningunum við
Efnahagsbandalagið og leyfa
áframhaldandi veiðar Breta við
Island.
Leiðtogi héraðsstjórnar
Humberside, Harry Lewis, en
Húll og Grimsby heyra undir
hana, er þó mótfallinn tak-
mörkunum á löndunum fs-
lenzkra skipa þar sem það get-
ur valdið atvinnuleysi meðal
starfsfólks fiskvinnslustöðva. t
dag sendi hann skeyti til James
Callaghans, forsætisráðherra,
þar sem hann fór fram á að
tafarlaust verðigert eitthvað til
að auka atvinnu f Humberside.
Nýir rádherrar Carters:
Þeldökk kona hús-
næöisráðherra
JIMMY Carter, kjörinn
forseti Bandaríkjanna, út-
EBE-fundur leystistupp
vegna deilu um kvóta
Brtlssel 21. desember — NTB.
TILRAUNIR Efnahagsbandalags-
ins til að koma á bráðabirgðaregl-
um um fiskveiðar fyrir aðildar-
rfkin nfu áður en fært verður út f
200 mflur 1. janúar fóru út um
þúfur f nótt. Ltanrfkisráðherrar
aðildarlandanna höfnuðu tillög-
um framkvæmdanefndarinnar og
báðu hana um nýjar tillögur, sem
þeir munu fjalla um f næsta
mánuði, og sem stefnt verður að
að geti tekið gildi 1. febrúar.
Þar til reglur hafa verið settar
um fyrirkomulag fiskveiða í fisk-
veiðilögsögu EBE, munu veiðar
halda áfram. Samþykktu ráð-
herrarnir að veiðikvótar í Norður-
sjó skuli vera þeir sömu í janúar
1977 og í janúar 1976. Tilkynnt
skal um allar veiðar til yfirvalda
einstakra aðildarríkja og skal
janúaraflinn dreginn frá endan-
legum kvóta einstakra landa fyrir
árið 1977. Eru þetta aðalatriðin í
samþykkt ráðherranna, sem birt
var að fundi þeirra loknum, en
þetta er f annað sinn, sem þeim
mistekst að ná samkomulagi um
sameiginlegar veiðireglur.
Harold Brown varnarrádherra
Plalns 21. desember Reuter. tlcflldÍ í dag fyiTVerandÍ
flughersráðherra. Harold
Brown, varnarmálaráð-
herra f rfkisstjðrn sinni.
Tilkynnti hann útnefningu
Browns, sem er 49 ára, á
sjötta blaðamannafundin-
um, sem hann heldur sfðan
3. desember til að tilkynna
val sitt á mönnum f æðstu
störf stjðrnar sinnar.
Carter tilkynnti einnig um val
sitt í tvö önnur embætti innan
stjórnar sinnar. Ray Marshall, 48
ára gamall hagfræðingur við Tex-
as-háskóla og áhugamaður um at-
vinnumál minnihlutahópa, var
skipaður verkalýðsmálaráðherra.
Patricia Roberts Harris, 52 ára,
þeldökkur lögfræðingur frá
Washington og fyrrverandi sendi-
herra í Luxemborg, var skipaður
húsnæðis- og þéttbýlisþróunar-
málaráðherra.
Carter á nú eftir að skipa aðeins
I fyrra skiptið, sem var I
nóvember, strandaði samkomulag
á kröfum Breta og íra um 50
sjómilna einkalögsögu. Fram-
kvæmdanefndinni var þá falið
það verkefni að semja tillögur um
bráðabirgðareglur, en i samninga-
viðræðunum i kvöld og nótt kom í
Ijós að næstum öll aðildarríkin
voru af mismunandi ástæðum
mótfallin tillögunum og ómögu-
legt reyndist að ná samkomulagi.
Forseti ráðherrafundarins, van
der Stoel, utanríkisráðherra Hol-
Framhald á bls. 18
einn af ellefu ráðherrum rikis-
stjórnarinnar. Er það heilbrigðis-,
mennta- og velferðarmálaráðherr-
ann. Líklegastur i það embætti er
talinn vera Joseph Califano, sem
er lögfræðingur í Washington og
var ráðgjafi Johnsons i innan-
rikismálum.
Þá hugleiðir Carter þann mögu-
leika að gera yfirmann orkumála-
ráðuneytisins að ráðherra í rikis-
stjórn. Til þess þarf lagabreyt-
ingu en líklegastur til að hreppa
það ráðherrasæti er James Schles-
inger, fyrrverandi varnarmála-
ráðherra. y.,
Carter skipaði einnig Charles
Duncan, fimmtugan efnaverk-
fræðing og fyrrverandi stjórnar-
formann Coca Cola, I embætti að-
stoðarvarnarmálaráðherra.
Hinn nýi varnarmálaráðherra
lýsti þvi yfir í dag, að hann ætlaði
að vinna að þvi að viðhalda striðs-
getu og viðbragðsgetu og banda-
rísku herjanna. Kvað hann varnir
landsins og öryggi þjóðarinnar
mikilvægasta verkefni hverrar
ríkisstjórnar.
Framhald á bls. 18
Lögreglan
eydileggur rád-
stefnu Gyðinga
Moskvu 21. desember — Reuter. NTB.
MENNINGARRAÐSTEFNA Gyðinga var sett f Moskvu í dag að öllum
þeim 13 mönnum, sem unnu að undirbúningi hennar, fjarstöddum.
Aðeins tveir af 40 ræðumönnum ráðstefnunnar voru viðstaddir setn-
inguna. IJPI-fréttastofan skýrir frá þvf, að samtals 45 baráttumenn
fyrir réttindum Gyðinga í Sovétríkjunum hafi verið hindraðir af
lögreglunni f að taka þátt f ráðstefnunni.
Fimm meðlimir undirbúnings-
nefndarinnar voru handteknir á
leið sinni til ráðstefnunnar.
Einum var haldið í stofufangelsi,
en tveimur var skipað að halda
sig heima á meðan húsrannsókn
færi fram á heimilum þeirra. Aðr-
ir meðlimir hafa trúlega fengið
svipaða meðferð, ,en á þriðjudags-
kvöld var ekki vitað um afdrif
þeirra.
Samvkæmt dagskrá átti ráð-
stefnan að standa f þrjá daga, en
ákveðið var á þriðjudagsmorgun
að henni skyldi slitið siðar um
daginn.
Um það bil 50 baráttumenn úr
röðum Gyðinga komu saman í
Ibúð Grigorys Rozenhein, sem
hafði verið handtekinn fyrr um
daginn. Aðeins sjö af þeim skýrsl-
um um menningarmál Gyðinga,
sem lesa átti upp á fundinum,
Framhald á bls. 18