Morgunblaðið - 22.12.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1976
3
Annað bindi
Siglfirðinga-
bókar komið
SÖGUFÉLAG Siglufjarðar hefur
sent frá sér Siglfirðingabók 76, en
þetta er annað bindið af safnriti,
sem ætlað er að stuðla að varð-
veislu siglfirsks fróðleiks, gamals
og nýs. Bókin er á þriðja hundrað
síður, prentuð á vandaðan pappfr
og bundin f litprentaða kápu, en á
henni er mynd af málverki eftir
Ragnar Pál listmálara.
Efni Siglfirðingabókar 76 er hið
fjölbreyttasta. Birtar eru skop-
teikningar af nokkrum kunnum
bæjarbúum, sagt frá Þorvaldi
rfka og nefndir afkomendur hans
á fjóra ættliði, rakan saga Siglu-
ness og getið búenda þar frá 1703
til þessa dags. Rifjað er upp ýmis-
legt um fjallveginn yfir Siglu-
fjarðarskarð, gerð grein fyrir
snjóflóðum við Siglufjörð og
hugsanlegum vörnum gegn þeim,
minnst þeirra bæjarbúa sem lét-
ust í fyrra og raktir merkustu
viðburðir áranna 1973 og 1974. Þá
eru í bókinni margar aðrar styttri
greinar. Á fjórða tug mynda
prýða Siglfirðingabók að þessu
sinni, en hún er unnin i Siglu-
fjarðarprentsmiðju hf.
Siglfirðingabók ’76 er gefin út f
takmörkuðu upplagi en þess má
geta að enn eru örfá eintök til af
fyrsta bindinu, sem kom út i
fyrra.
Ritstjóri bókarinnar er Gunnar
Rafn Sigurbjörnsson, skólastjóri
á Siglufirði.
Stal, brauzt
inn aftur
og skildi
þýfið eftir
RANNSÓKNARLÖGREGLAN
var f gærmorgun kölluð f eina af
verzlunum Sláturfélags Suður-
lands, en þar hafði verið brotizt
inn og stolið töluverðum verð-
mætum. Nokkru sfðar var til-
kynnt um innbrot á barnaheimili
þarna skammt frá. Þar hafði engu
verið stolið, en aftur á móti hafði
þjófurinn skilið þar eftir stóran
hluta af þýfinu úr SS-búðinni. Er
slfkt atferli harla fátítt meðal
þjófa f höfuðborginni.
Ur verzlun Sláturfélagsins var
stolið 85 þúsund krónum í pening-
um, 15 lengjum af sígarettum, að
söluverðmæti 33 þúsund krónur,
og nokkru af sælgæti. 1 barna-
heimilinu skildi þjófurinn eftir 9
lengjur af sigarettum, 10 þúsund
krónum f peningum og sælgæti.
Þessi sérstæði þjófur var ófund-
inn í gær.
Skemmdarvarg-
arnir fundnir
Rannsóknarlögreglan hefur
haft hendur i hári þeirra, sem
eyðilögðu stóra jólatréð í Garða-
bæ aðfararnótt s.l. laugardags.
Reyndust þarna hafa verið að
verki þrjú ungmenni, 16 ára pilt-
ur og stúlka úr Garðabæ og 18 ára
piltur úr Hafnarfirði. öll voru
ungmennin ölvuð þegar þau
frömdu verkið. Tréð er gjörónýtt,
en kaupverð þess var 175 þúsund
krónur.