Morgunblaðið - 22.12.1976, Qupperneq 5
MORGl’NBLAÐIÐ. MIÐVIKt'DAGL’R 22. DESEMBER 1976
5
Ljód Jóns úr
Vör á sænsku
NYLEGA kom út á sænsku hjá
Schildts-bókaforlaginu f
Helsingfors safn ljóða eftir Jón
úr Vör, Bláa natten över havet,
f þýðingu Maj-Lis Holmberg.
Er þetta í þriðja sinn sem Ijóða-
bók eftir Jón er gefin út á
Norðuriöndum. Sú fyrsta kom
út I Svfþjóð fyrir u.þ.b. 20 árum
og önnur f Noregi fyrir þremur
árum. Að auki hafa svo ljóð
eftir Jón úr Vör birzt í Ijóða-
söfnum eftir fslenzka höfunda,
sem gefan hafa verið út á
Norðurlöndum.
Bláa natten över hvaet er
safn 65 ljóða eftir Jón, þau
elztu frá 1942. Eins og áður
sagði, gerði Maj-Lis Holmberg
þýðinguna, en hún hlaut
menntun sína við Háskóla ís-
lands og starfar nú sem lektor
við háskólann í Helsingfors.
Maj-Lis hefur sent frá sér
tvær frumsamdar ljóðabækur
og eina bók með þýðingum á
verkum íslenzkra skálda, þ.á.m.
Steins Steinars, Hannesar
Péturssonar, Snorra Hjartar-
sonar ofl. ofl. Á næsta ári mun
koma út á finnsku þýðing henn-
ar á tæplega 30 ljóðum eftir
Jón úr Vör
íslendinga. Þá hefur Maj-Lis
einnig þýtt Þorpið eftir Jón úr
Vör á finnsku en óvíst um út-
gáfu þess enn sem komið er.
Þorpið (1946) var fyrsta Ijóða-
bókin, sem út kom hér á landi,
er eingöngu innihélt óbundin
ljóð.
Elzta menningartímarit á Norðurlöndum:
Skírnir eða
„Finsk tidskrift”
ISLENZKIR fræðimenn hafa til
skamms táma álitið að tfmarit
Hins fslenzka bókmenntafélags,
Skfrnir, væri elzta núlifandi
menningartfmarit á NorðurlöntJ-
um. Fer það ekki á milli mála að
Skfrnir er elzta tfmaritið, 150 ára
á þessu ári, en nú er upp vakin sú
spurning hvort við getum með
réttu eignað Skfrni titilinn „elzta
menningartfmarit á Norðurlönd-
um.“ 1 Finnlandi hefur f 100 ár
verið gefið út tfmaritið „Finsk
tidskrift" og aðstandendur þess
telja það elzta menningartfmarit-
ið.
1 finnskum blöðum var i haust
fjallað um aldarafmæli „Finsk
tidskrift" og þess getið sem elzta
menningartímarits á Norðurlönd-
um. í auglýsingu í sænska bók-
menntaritinu „Horisont" fyrir
nokkru er vakin athygli á „Finsk
tidskrift“. Segir þar að CG Est-
lander hafi stofnað til þessa rits
árið 1876. Þetta „einstæða“
finnsk-sænska timarit, sé elzta
menningartfmarit á Norðurlönd-
um.
Sigurður Líndal, forseti Hins
íslenzka bókmenntafélags, sagði f
viðtali við Morgunblaðið í gær að
upphaflega hefði Skírnir verið
fréttarit og hafi fyrst árið 1905
einvörðungu orðið menntarit.
Hins vegar hafi menningunni ver-
ið sinnt jafnhliða fréttaskrifun-
um fram að þeim tíma. Skírnir er
150 ára á þessu ári og þvi án
nokkurra efasemda elzta núlif-
andi tímarit á Norðurlöndum.
Sagði Sigurður Lindal að um leið
og Skírnir væri elzta tfmaritið
vildi hann halda því fram að
Skírnir væri einnig elzta menn-
ingartímaritið.
— Ég æt.la mér að skrifa
Huvudstadsblaðinu i Finnlandi
og vekja athygli á Skírni, rekja
sögu ritsins og þróun þess i 150
ár/ sagði Sigurður. — Það kann að
vera að útgefendum Fansk Tid-
skrift sé stætt á því að kalla rit
sitt elzta menningarrit á Norðu-
löndum, þó svo að við séum þeim
ekki sammála. Hins vegar ætti að
vera óhætt að vekja athygli þeirra
á Skírni, sem er heilum 50 árum
eldri, en þeirra timarit, sagði Sig-
urður að lokum.
Fundarboðendur bændafundar á Hlönduósi:
Athugasemd
við athugasemd
BúvörudeildarSÍS
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist eftirfarandi athugasemd frá
fundarboðendum bænda-
fundarins á Blönduósi 13.
desember sl. , en þar segir að
vegna samþykktar fundarins og
athugasemdar við hana frá Bú-
vörudeild SÍS, sem birtist i
Mbl. 17. desember, óski fundar-
boðendur eftir að þetta komi
fram:
„1. Ársreikningar Búvöru-
deildar SlS eru ekki sendir
sláturleyfishöfum innan SlS og
hafa ekki fengist staðfestir
þrátt fyrir ítrekuð tilmæli þar
um.
2. Búvörudeild hefur lækkað
verð á afurðum frá sláturleyfis-
höfum niður fyrir ákveðið verð
án samþykkis sláturleyfishafa.
3. Á bændafundinum á Blöndu-
ósi komu ekki fram nein svör
við veigamiklum spurningum
fundarmanna og fulltrúar Bú-
vörudeildar höfðu engin tölu-
leg rök gegn þeim upplýsing-
um, sem fundarmenn lögðu
fram.
4. Framantöld atriði, ásamt
öðrum, sem ekki eru talin hér,
sýna að ályktun fundarins
vegna Búvörudeildar SlS er
ekki órökstudd fullyrðing.“
,JÖ
e^°
CESAR
EPLINU
EPLINU
EYJABÆ
j. a ■
Akureyri
Akranesi
ísafirði
Vestmannaeyjum
TlZKUVERZLUN UNGA FÖLKSINS
KARNABÆR
LAUGAVEGI 66
Simi frá skipbbofdi 2Ö1S5