Morgunblaðið - 22.12.1976, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1976
Iðnkynning í Borgarnesi — Iónkynning í Borgarnesi — Iðnkynning í
0 BLIKKSMIÐJA Magnúsar Thorvaldssonar heitir
fyrirtæki sem er til húsa í gömlu verzlunarhúsi við
Brákarbraut í Borgarnesi. Áður fyrr var í húsi því rekin
myndarverzlun, m.a. af Thor Jensen. Nú er þar rekin
blikksmiðja og að sögn hefur þar verið skapaður margur
nytsamur hluturinn, því eigandinn og framkvæmda-
stjórinn Magnús Thorvaldsson er sagður vera upp-
finningamaður mikill. Af þeim sökum iögðum við leið
okkar niður á Brákarbraut og tókum Magnús tali. Fyrst
báðum við hann að segja okkur af fyrirtækinu, tildrög-
um þess og starfsemi.
Hér er stunduð öll almenn
blikksmíði, sagði Magnús. — Er
þar um að ræða ýmiss konar ný-
smíði t.d. loftræstikerfi, svona
eftir beiðni hvers og eins, en einn-
ig framleiði ég nokkuð mikið af
sorpskápum sem ég hannaði sjálf-
ur fyrir fjórum árum. Auk sorp-
skápanna er ég með ýmsar gerðir
sorpíláta. Einnig byrjaði ég með
nýjar gerðir af hliðargrindum á
sl. ári, og hafa þær notið vin-
sælda. Um þessar mundir er ég
svo að fara af stað með stálgrinda-
hús, sem nota má t.d. sem bíl-
skúra, geymslur, sem minni gróð-
urhús, eða jafnvel sem sumarhús.
Ég kynnti þessa hugmynd mína
fyrst á landbúnaðarsýningunni
1968, en hef verið með þau í mag-
anum meira og minna síðan. 1
sumar gerði svo Viðar Ólafsson
hjá verkfræðistofu Sigurðar
að það er margt sem fengist er við
í blikksmiðju Magnúsar, en hjá
honum vinna þó aðeins 3—4
menn. Sagði Magnús fyrirtækið
hafa hafið rekstur í júlí 1957.
Áður hafði hann verið í fyrirtæki
með öðrum í Reykjavík, en það
fór í hundana, eins og Magnús
segir, og slitnaði upp úr því sam-
starfinu.
N Núverandi húsnæði of
þröngt — stækkun
framundan
—Það komast hreinlega ekki
fleiri fyrir í þessu húsnæði, sagði
Magnús, og þess vegna er bygging
nýs húsnæðis nú það sem er eigin-
lega efst á baugi í fyrirtækinu.
Það er búið að teikna og hanna
hús fyrir mig, og er það um 800
í kring, heldur fer út um allt land
og allt í kringum það. Það er eitt
sem veldur okkur nokkrum erfið-
leikum í sambandi við það, og
gerir hlutinn dýrari, en það er að
flestir þurfa þessar hlutir að fara
fyrst til Reykjavíkur. Er þetta af-
leiðing þess að hér stanza flutn-
ingabilar yfirleitt alls ekki, og
einnig eru þeir flestir fullir hvort
eð er. Gildir hér einu hvort maður
þarf að senda hlut út á Snæfells-
nes eða norður í land. En þetta
breytist vafalaust með tilkomu
brúarinnar sem nú er verið að
byggja hérna við bæjardyrnar,
eins og þjóð veit. Það mun margt
breytast hér með tilkomu hennar,
sagði Magnús. Ég held að við
hérna séum ekki búnir að gera
okkur grein fyrir hvað brúin
muni færa okkur í hendur, sagði
hann ennfremur. Hér mun vafa-
laust margt breytast í sambandi
við verzlun og iðnað, og samband
okkar við höfuðborgarsvæðið
verður breytt og miklu betra.
Aðbúnaðurinn ágætur í
Borgarnesi
Við spurðum Magnús næst að
því hvernig væri að vera með
Magnús Thorvaldsson blikksmiður:
yj'f....
„Er einn þessara páfagauka sem rissa ýmsa
hluti ef setzt er niður með blýant og blað”
Thoroddsen á þeim styrkleika-
mælingar, og nú er að komast líf í
þessi hús, þar sem þegar er búið
að panta fjögur fyrir næsta sum-
ar, og svo vona ég að útisýningin
verði til að hjálpa manni eitthvað.
Þessi hús eru smíðuð að mestu
með sama prófílnum. Nú ofan á
þetta má svo bæta að við erum
með nýja gerð skjólgarða fyrir
trjágarða og blóm, sem maður
vonar að eigi eftir að ná vinsæld-
um. Síðast, en ekki sízt, er ég svo
að fikra mig áfram með grinda-
samstæður úr áli, sem auðveld-
lega má smella saman á marga
vegu og þannig fá út smáar og
stórar réttir, og einstaka dilka,
sagði Magnús.
Af þessari upptalningu má sjá,
fermetrar að stærð, en núverandi
hús er ekki nema 270 fermetrar.
Maður er búinn að fá lóð, og til
stendur að fara að byggja sem
fyrst.
—Verkefnin eru ágæt, en til að
útvíkka starfsemina þarf maður
að stækka við sig húsnæðið. Ég
hef trú að því að hér séu fram-
leiðslumöguleikar í þessari iðn
fyrar fyrirtæki með a.m.k. tíu
manna starfsliði.
Smíð fyrir landsbyggð-
ina þarf fyrst að fara
til Reykjavíkur
Nei, okkar framleiðsla er ekki
aðeins fyrir Borgarnes og héruðin
fyrirtæki sem blikksmiðju svona
úti á landi. —Það er ágætt að vera
hér að mörgu leyti. Til að byrja
með er nú ekki þessi spenna og
hraði sem er á Reykjavíkursvæð-
inu, og hér slær hjartað því eðli-
lega. En hér er þó alltaf nóg að
gera. Hvað hráefnið snertir, þá er
mjög gott lag á þvf og aldrei
stendur neitt á því. Þeir eru lið-
legir heildsalarnir I bænum, og
panti maður efni að morgni þá er
það komið til manns að kvöldi.
Það er þó nokkuð bagalegt að
vera hér að einu leyti, og gildir
það reyndar um landsbyggðina í
heild. Hér á ég við ýmsar tækni-
nýjungar, sem með því að vera
utan Reykjavíkur þá fer maður á
mis við mikið af slíku. Að þessu
leyti finnst mér ég hafa staðnað
að vissu leyti.
—Ég tel að iðnaðarsamtökin I
heild, og einnig iðngreinafélögin
þurfi að vera betur vakandi fyrar
þeim, og senda kunnáttumenn
einnig út á land með fyrirlestra
og sýningar. Það er lítið gert af
þessu, en ég tel þörfina vera
mikla, og erum við anzi aftarlega
á merinni hvað snertir alla svona
„umskólun", sagði Magnús.
—Eitt atriði sem snertir að-
búnaðinn, og ekki má gleymast,
er fyrirgreiðsla peningastofnana.
Þetta er afar mikilvægur hlekkur
í öllu atvinnulífi, og allt sem ég
get sagt um þennan þátt er að við
höfum ekki undan honum að
kvarta, og er peningafyrirgreiðsla
viðkomandi stofnana hér vel við
unandi.
Nýjungamöguleikar vart
meiri í annarri iðn
Okkur er tjáð að þú sért mikill
uppfinningamaður, og látir þér
fátt fyrir brjósti brenna I þeim
efnum, teljir þú viðfangsefnið
hafa eitthvert gildi? —Ég hef allt-
af haft gaman af að gæla við alls
konar hugmyndir og hef alltaf
reynt að útfæra þær á einn eða
annan hátt I blikkið eða í aðra
málma. Hluturinn er nú lfka sá að
ég tel að varla sé til sú iðn sem
bjóði upp á jafn mikla möguleika
I nýjungum og blikksmíðin, séu
Úr vinnusal blikksmiðju Magnúsar. Sjá má grind af húsi sem einhvers staðar á eftir
að koma í góðar þarfir. Starfsmennirnir tveir huga að einum sorpskápanna sem
Magnús fann sjálfur upp og framleiðir við miklar vinsældir.
Tveir starfsmanna Magnúsar leggja sfðustu hönd á eitt
smáhýsið sem Magnús hefur sjálfur hannað. (Ljósm.
ágás). _