Morgunblaðið - 22.12.1976, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1976
29
BYRGJUM BRUNNINN
o
r h
2. grein
Leikföng - F\rir
hvern! Til hvers?
EINS og flestir vita, er langt
siöan fariö var að framleiða
leikföng í uppeldislegum
tilgangi. Leikföngin eru eink-
um gerð með það fyrir augum
að þroska athyglisgáfur barns-
ins, örva ímyndunarafl og auka
handlagni þess. Til þessara
leikfanga teljast ýmiss konar
röðunar- og samsetningarleik-
föng úr tré og plasti eða málmi,
svo sem alls konar kubbar,
hringkeilur, slagtré, mynda-
þrautir, mekkanó o.s.frv. Auk
þess leir og annar efniviður
sem örvar hugmyndaflug og
sköpunarþörf barnsins.
Gott leikfang á réttu augna-
bliki hefur sömu þýðingu fyrir
andlegan þroska barns og rétt
viðurværi hefur fyrir
heilbrigði þess. Leikfang, sem
búið hefur verið til af
umhugsun, keypt af umhugsun
— miðað við þroska barnsins,
stuðlar að heilbrigðum og eðli-
legum þroska.
Helstu skilyrði, sem gott
leikfang þarf að uppfylla eru:
1. Leikfangið þarf að hæfa
þroska barnsins.
2. Leikfangið bjóði upp á
einhverja möguleika.
3. Nauðsynlegt er, að leik-
fangið sé hættulaust.
4. Leikfangið þarf að þola
hörkulega meðferð.
5. Auðvelt sé að þrífa
leikfangið.
Litum dálftið nánar á hvern
lið fyrir sig:
Hæfir leikfangið þroska barns-
sins?
Hver á að nota leikfangið, til
hvers á að nota það og hvaða
möguleika býður þau upp á? Ef
tveggja ára barni er gefið gler-
bollastell, mun það fljótt
brotna, vera barninu ónýtt
leikfang þar sem barnið hefur
'ekki þroska til að umgangast
það á réttan hátt. Sé þetta sama
gler-bollastell gefið sex ára
barni, mun það veita því mikla
gleði, einmitt vegna þess að það
getur brotnað, barnið þarf að
gæta þess betur og það líkist
mjög kaffibollunum í eldhús-
skápnum hjá mömmu.
Hvaða möguleika gefur
leikfangið?
Leikfangið þarf að höfða til
ímyndunarafls barnsins, það á
sjálft að finna út möguleika
þess og takmarkanir. Má þar
nefna kubba og mekkanó, sem
gefa hugmyndaflugi barnsins
lausan tauminn. I dag býr
barnið til skip og brú, á morgun
bíla og hús.
Er leikfangið hættulaust?
Oft eru á fallega leikfanginu
leyndar hættur. Má þar nefna
prjón á bíldekkjum og augu,
sem fest eru með löngum oddi i
mörgum gæludýrum. örsmáar
plastkúlur, sem stundum eru
notaðar til að stoppa með gælu-
dýr, eru mjög hættulegar. Bílar
og önnur leikföng úr málmi
geta verið stórvarasöm, t.d. ef
barn dettur á þau, og sama er
að segja um leikföng með
hvössum brúnum eða lausum
nöglum. Ef leikfangið er úr
plasti þarf að gæta þess, að ekki
flísist úr því, ef það brotnar.
Ekki skal gefa börnum undir
skólaaldri dálka eða hnífa.
Varast ber að hafa I leikfanga-
kassa litla óvitans smáa hluti,
sem hann getur sett upp I sig.
Þolir leikfangið
hörkulega meðferð?
Miklu skiptir, að leikföng
yngstu barnanna þoli óblíða
meðferð, t.d. bit og högg ýmiss
konar. Við kaup leikfangs þarf
að hugsa um, hvernig meðferð
það getur fengið I höndum
barnsins, og því ber að ganga úr
skugga um, hvort leikfangið
þolir högg áfallalaust.
Er auðvelt að þrlfa leikfangið?
Tréleikföng þarf að vera
unnt að þvo án þess að
málningin flagni af, auðvelt
þarf að vera að þvo gæludýrin
og inni I þeim á að vera svamp-
ur eða annað efni, sem þolir
þvott. Mestu skiptir þetta fyrir
yngstu börnin, þar sem þau
setja leikfangið mikið að
munninum til að kynnast því.
— In memoriam
Framhald af bls. 25
hennar llf og leyndarmál, ekki
síður seinna en þá.
Það var kvæðið um hana önnu.
Vikivaki eftir konu, sem síðar
varð vinkona mín og hét Jóhanna
Friðriksdóttir, ljósmóðir.
Þar er eitt erindið á þessa leió:
„Svona liðu árin út
Anna söng og hló.
Yfir huldum ástum
hún Anna litla bjó.
Brosir brúðurin ung
blikar rós á kinn.
Enginn veit, hvar Anna litla
á unnustann sinn.“
Marga áratugi hafa leiðir okkar
aldrei legið saman. Og nú sögðu
blöðin allt I einu, að llfsgöngu
hennar Stínu úr Skáleyjum væri
lokað. Allt orðið minning. —
„Bliknar rós á kinn.“ Einn geisli
frá morgunsól I Breiðafjarðar-
eyjum horfinn I djúp eilifðarhafs-
ins — hafinn I hærra veldi?
I rödd hennar var skær, og þó
sérkennilega mildur hljómur,
sem engum gæti gleymzt.
Hún var gull úr bergi hins bezta
við Breiðafjörð minninganna.
Hrein og sönn, skyggn á hið bezta
I hverri sál, nemendum og vinum
ástúðleg og trygg. Hún elskaöi
snilli orðs og ljóðs. Hún var
sólskinsbarn og bar með sér frið
og öryggi. Ævisögu hennar og
starfsstöðvar, sem voru víst lengst
á Isafirði, veit ég ekki að rek>a.
Veit ekki hvenær hún fæddist. En
I huga mér verður hún alltaf ung,
með blá og stór augu, þykkt hár
yfir háu enni, hár með gullslit
morgungeisla. I einu orði sagt,
myndarstúlka með breiðan barm
og móðurlegan svip, fastmótað
fas, hörundsbjört og hrein.
Rödd hennar var snar þáttur I
hugþekkum persónuleika, sem
líktist fögru ljóði, fæddu við báru-
nið við kletta og fjörusand æsku-
stöðva hennar I eyjunum.
Hún gekk ein um ströndina.
Nemendurnir voru börn hennar.
„Tigin lyftist aldan
með tregaljóð (fangi
sem texta við hið bjarta sólskinslag, ævi
hennar.“
Arelíus Níelsson.
— íþróttir
Framhald af bls. 27
Ég man vel eftir því, að ég var
einnig yfirheyrður út af máli Nurmis.
Á þeim tíma var ég formaður
íþróttasambands Finnlands. Ég var
spurður, hvort Nurmi væri sekur eða
ekki. Ég var nokkurn veginn viss
um, að hann hefði tekið við greiðsl-
um frá þeim, sem að íþróttamótum
hefðu staðið, en sannanir hafði ég
engar Þess vegna svaraði ég því, að
Nurmi hefði ekki fengið neinar
greiðslur. Ég vissi vel, að atferli mitt
mátti skoða sem óærlegt í stjórn-
málum, sem ég siðar hóf afskipti af,
verður maður aftur á móti alltaf að
segja sannleikann og aldrei að gefa
loforð, sem maður síðan getur ekki
staðið við, ekki satt?
AUGLÝSIN(iASÍM[NN ER:
22480
JR*r0vwbIabib
CASIO FX — 102
heimsins fyrsta tölva með
almennum brotum, brotabrotum
og skekkjureikningi
casio fx-m sí«fffl(ne
LZ3HSS1B-33
M b mm í
u tn 1 i ! í 11 -fr- LJ u I
|Cj ii ""líi" LU LÚ tiX' lj LJ 1
!lj LJ ...... MÍ l—l i Ljj -~u~ *• LJ ■Qjl
mumu u|
uu
Verð kr 11.995.-
STÁLTÆKI
Vesturveri, simi 27510
í Hallarmúla og allar hinar Pennabúðirnar dul
opnar til kl. 6 í dag
HAFNARSTRÆTI 8, HALLARMULA 2, LAUGAVEGI 84.
markadurinn