Morgunblaðið - 22.12.1976, Side 32
munið trúlofunarhringa
litmvndalistann fffl)
<guU Sc ^tlfur
Laugavegi 35
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1976
Drekkið
17 ára stúlka flutt á
slysadeild illa hald-
in af neyzlu lyfja
t FYRRINOTT var 17 ára gömul
stúlka flutt ( ofboði í morffnvímu
heiman frá sér á slysadeild
Borgarspftalans. Var hún mjög
illa haldin af neyzlu einhverra
ókennilegra lyfja, Ifklega þó mor-
ffns. Var stúlkan lögð á gjör-
gæzludeild spítalans en þaðan var
hún flutt f gær á lyflækninga-
deild. Er hún nú á hatavegi.
Að sögn fíkniefnadeildar lög-
reglunnar er ekki ljóst hvað
þarna átti sér stað. Stúlkan var
með fleira fólki og neytti hún
efnisins áður en hUn kom heim til
sín. Ekki hefur verið hægt að
yfirheyra stUlkuna og lítið hefur
verið að græða á framburði sam-
ferðafólks hennar, þar sem það
var ölvað þegar atburðurinn gerð-
Tilkynnt um
eld í báti
Reyndist vera
reykur frá olíuofni
UM KL. 23 í gærkvöldi var
slökkviliðið kallað vestur í Slipp,
en tilkynnt hafði verið um eld í
vélbátnum Ársæli Sigurðssyni 2.
frá Hafnarfirði. Er til kom reynd-
ist ekki vera um neinn eld að
ræða.
Skipverjar voru að þurrka
lestar bátsins og notuðu til þess
olíuofna. Einn þeirra hafði stífl-
azt og myndaðist svo mikill reyk-
ur við það, að menn héldu að
eldur væri laus. Allt slökkviliðið
fór á vettvang.
Guðbjarts-
málið:
ist. Sem fyrr segir er talið líklegt,
að stUlkan hafi tekið morfín, því
nálarstunga sást á handlegg. Vit-
að er, að hUn og samferðafólk
hennar hafði lagt leið sína um
borð í skip, og þar hefur stUlkan
líklega tekið efnið.
Ekkert hefur komið fram, sem
bendir til þess að stUlkan hafi
verið neydd til að taka efnið, en
rannsókn málsins verður haldið
áfram.
Alvarlegt
umferðar-
slys í gær
ALVARLEGT umferðarslys
varð á Miklubraut, móts við
Reykjahlíð, um 10-leytið f gær-
morgun. Kona, sem var á leið
yfir götuna, lenti fyrir fólks-
bifreið, sem ók austur Miklu-
brautina. Konan meiddist
bæði á höndum og fótum, rif-
beinsbrotnaði og hlaut auk
þess mikið höfuðhögg.
Þá varð einnig umferðarslys
á Nesvegi við Kaplaskjólsveg
klukkan 13.30 í gærdag. Speg-
ill á bifreið rakst f vinstri oln-
boga ungrar stUlku og var lík-
legt talið að olnboginn hafi
brotnað.
Töluvert mikið var um
árekstra í Reykjavík í gær, og
klukkan 17 í gær voru þeir
orðnir 18 að tölu.
í gær var gert hlé á störfum Alþingis fram til 24. janúar n.k. Myndin er tekin í
alþingishúsinu þegar Geir Hallgrímsson forsætisráöherra kvaddi yngri og eldri
starfsmenn þingsins og óskaói þeim gleöilegra jóla. Ljósm. Mbl.: RAX.
r
Urskurður setufógeta:
Sýslumannsembættið
í Borgarfirði borið út
ÞORSTEINN Thorarensen borg-
arfógeti kvað f gær upp úrskurð f
útburðarmáli gegn fjármála- og
dómsmálaráðuneytinu og sýslu-
Oðrum aðferðum
beitt við yfirheyrslur
— segir setudómarinn í handtökumálinu
YFIRHEYRSLUM í Guðbjarts-
málinu svonefnda heldur áfram.
Að sögn Steingríms Gauts
Kristjánssonar setudómara i
handtöku-málinu hafa bæði
Haukur Guðmundsson og
Kristján Pétursson verið yfir-
heyrðir. Aðalyfirheyslum væri að
mestu lokið í málinu, og hafa
bæði vitni og þeir sem hafðir eru
fyrir sök verið yfirheyrðir. Stein-
grímur Gautur sagði í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi, að
hann teldi ekki tímabært að segja
neitt um málið á þessu stigi máls-
ins, en þó sagðist hann geta sagt
það eitt, að öðrum aðferðum hefði
verið beitt við yfirheyrslu en ver-
ið hefði og yrði svo á meðan rann-
sókn stæði yfir. Þá hafði Morgun-
blaðið samband við Erlu Jónsdótt-
ur fulltrúa í Sakadómi, en hún
annast rannsókn Guðbjartsmáls-
ins af hálfu Sakadóms. Erla sagði,
að Kristján Pétursson hefði verið
kallaður til yfirheyrslu í gær, en
hún viidi ekkert segja hvað komið
hefði fram í framburði hans eða
hvort hann hefði fært einhverjar
viðbótarupplýsingar. Þá sagði
hún að Haukur Guðmundsson
yrði kallaður til yfirheyrslu mjög
fljótlega. Þá sagði Erla að hún
vildi taka sérstaklega fram að
gögnin sem fyrir lægju væru
mjög umfangsmikil, og þau hefðu
aðeins verið könnuð mjög laus-
lega. En af þeim gögnum, sem
hún hefði séð, tengdust engir
Úrskurðinum áfrýjað til Hæstaréttar
mannsembættinu í Borgarnesi,
en Þorsteinn var settur setufógeti
f málinu. Féll úrskurðurinn á
þann veg, að útburðurinn skyldi
fara fram. Mál þetta höfðaði Birg-
ir Jóhannesson, eigandi eignar-
innar Skúlagata 13 1 Borgarnesi,
en þar hafa sýsluskrifstofurnar
verið f leiguhúsnæði um alllang-
an tfma. Varnaraðilar f málanu,
þ.e, fjármálaráðuneytið, dóms-
málaráðuneytið og sýslumanns-
embættið, ákváðu f gær að áfrýja
úrskurðinum til Hæstaréttar.
Birgir gerði þá kröfu, að sýslu-
mannsembættið yrði borðið út úr
húsnæðinu. Var krafan um út-
burð byggð á meintum vangreidd-
um vfsitölubótum g meintum van-
skilum varnaraðila við eiganda
leiguhúsnæðisins. Óvist er hvort
og þá hvenær útburðurinn fer
fram.
þjóðkunnir menn í viðskiptamál
Guðbjarts Pálssonar.
Þá reyndi Morgunblaðið að ná
tali af Kristjáni Péturssyni í gær-
kvöldi en tókst ékki, en Kristján
var á förum til Bandaríkjanna í
morgun.
Dýrmætt litmynda-
safn tekið í misgripum
„Obætanlegt t jón fyrir m ig, ef ekki rætist úr ”
— segir Sigurgeir ljósmyndari í Eyjum
PAKKI f plastpoka með á 2.
þús. litmyndum Sigurgeirs
Jónassonar Ijósmyndara f
Vestamannaeyjum hefur verið
tekinn f misgripum á farþega-
afgreiðslu Flugfélags tslands á
Reykjavíkurflugvelli f fyrra-
kvöld, mánudag, milli kl. 16.30
og 22, en á þeim tfma komu
tvær '’-ugvélar frá Akureyri.
Allai •nyndirnar eru litfilmur í
stærðinni 35 mm og 6x6.
Hér er um að ræða allar lit-
myndir sem Sigurgeir hefur
tekið f sambandi við sjósókn við
Eyjar í 20 ár og ef filmurnar
komast ekki til skila er um að
ræða óbætanlegt tjón fyrir
hann og hið yfirgripsmikla
myndasafn hans frá Eyjum al-
mennt og sjávarútveginum i
heild. Plastpokinn er hvítur
með svartri áletrun nafninu
Sigölduvirkjun. Lítill merki-
miðifrá Flugfélaginu varlímdur
á pokann og á miðanum stend-
ur Arni Johnsen c/o Morgun-
blaðið, en myndir úr þessu
safni átti að velja f jólablað
Morgunblaðsins.
1 samtali við Mbl. f gær sagði
Sigurgeir að ef þessar myndir
væru týndar væri um óbætan-
legt tjón að ræða fyrir sig,
árangur af tfmafrekri vinnu í
20 ár. „Hér er um að ræða fyrri
tíma myndir af svip Eyjanna”,
sagði Sigurgeir,” og eldri
Framhald á bls. 18
Sýslumaður Borgfirðinga, Ás-
geir Pétursson, vék úr sæti í mál-
inu og var Þorsteinn Thorarensen
borgarfógeti í Reykjavík skipaður
setufógeti.
Ásgeir Pétursson sýslumaður
sagði f samtali við Morgunblaðið f
gærkvöldi, að það eina sem hann
gæti sagt um málið væri að varn-
araðilarnir þrír hefðu ákveðið að
áfrýja úrskurðinum til Hæstarétt-
ar, en málið snerti meira ráðu-
neytin tvö heldur en sjálft sýslu-
mannsembættið.
Á nýafgreiddum fjárlögum er
gert ráð fyrir 20 millj. kr. f járveit-
ingu til byggingu dómshúss og
Framhald á bls. 18
Alþýðubankamálið:
Rannsókn lýkur
væntanlega
fyrir áramót
Framhaldsrannsókn Alþýðu-
bankamálsins er komin á lokastig.
Sagði Sverrir Einarsson sakadóm-
ari við sakadóm Reykjavíkur Mbl.
f gær, að verulegar líkur væru á
því að rannsókninni lyki fyrir ára-
mót. Að henní lokinni, verður
málið sent saksóknara ríkisans til
ákvörðunartöku.