Morgunblaðið - 04.01.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JANUAR 1977
5
Y f irlýsing f rá
vamarmálanefnd
Fyrir nokkru voru flugmála-
stjórn afhentar 3 notaðar slökkvi-
bifreiðar frá varnarliðinu. Blaða-
skrif hafa orðið um mál þetta.
Þannig birtist 17. des. s.l. viðtal
við slökkviliðsstjórann á Reykja-
víkurflugvelli á Þjóðviljanum þar
sem segir: „Við skoðun hefur
komið í ljós að hægt er að gera
einn af þessum þremur bflum upp
með miklum tilkostnaði, en hinir
tveir eru algert rusl, sem engum
dettur f hug að reyna að gera við,
sundurryðgaðir auk alls annars".
Sfðar segir: „Enda væri það svo
að kaninn væri að losa sig við
bflana vegna þess að þeir væru
ónýtir. Fleiri eru ummælin og öll
í sama dúr. Þetta er svo endurtek-
ið í Vísi sama dag þar sem m.a. er
fullyrt: „Gjafabílarnir ónýtt
rusl“.
I Þjóðviljanum 22. des. s.l. fer
svo flugmálastjóri sjálfur af stað
og segir m.a. „Þetta væru tæki,
sem herinn væri hættur að nota,
en það hefðu aftur á móti verið
mistök hjá varnarmálanefnd að
þiggja þá, eins og þeir væru á sig
komnir og láta lfta út sem um
einhverja „þjóðargjöf“ til íslend-
inga væri að ræða. Þar sem í
viðtölum þessum er mjög hallað
réttu máli telur varnarmálanefnd
nauðsynlegt að eftirfarandi komi
fram:
Upphaf máls þessa er bréf,
dags. 2. mars 1976 stflað til utan-
ríkisráðuneytisins, og undirritað
af Agnari Kofoed Hansen, en
bréfið er svohljóðandi: „A 878.
fundi flugráðs, sem haldinn var
26. f.m. var m.a. rætt um nauðsyn-
legar úrbætur á slökkviþjónustu
á fslenskum flugvöllum og kom
þar fram að slökkvilið Kefla-
vfkurflugvallar er að losa sig við
ýmsan eldri búnað. Af þessu til-
efni var gerð eftirfarandi sam-
þykkt:
„Flugráð beinir þeim ein-
dregnu tilmælum til utanríkis-
ráðuneytisins, að það hlutist til
um, að allur sérhæfður slökkvi-
búnaður fyrir flugvallaslökkvilið,
þ.á m. bifreiðar og tæki, sem
slökkvilið Keflavíkurflugvallar
hefur ekki lengur not fyrir, verði
fenginn flugmálastjórn til að
sinna brýnustu úrbótum f slökkvi-
þjónustu á öðrum flugvöllum á
íslandi."
Utanrfkisráðherra taldi strax að
óhjákvæmilegt væri að Sala
varnarliðseigna afgreiddi málið á
venjulegan hátt þ.e. með sölu
þessa varnings til hæstbjóðanda.
Hins vegar vildi flugráð fá bif-
reiðarnar beint til ráðstöfunar, og
var þessi ósk margendurtekin í
samtölum ýmissa flugráðsmanna
og starfsmanna flugmálastjórnar
við ráðherra og starfsmenn
varnarmáladeildar.
Lauk þessu máli svo að sam-
þykkt var að afhenda bifreiðarn-
ar flugmálastjórn til ráðstöfunar,
en beiðnir um þær höfðu líka
borist utan af landi. Jafnframt
var Sölu varnarliðseigna falið að
tollafgreiða þær.
Meðan mál þessi voru til um-
ræðu kom fram að varnarliðið var
fúst til þess að gefa bifreiðar
þessar, og tvær til viðbótar á
næsta ári, gegn þvf að þær færu
til flugvalla á tslandi þar sem
þeirra væri mest þörf, en væru
ekki seldar í pörtum, eins og fram
að þessu hefur tfðkast hjá Sölu
varnarliðseigna.
1 fyrrgreindum blaðaskrifum er
látið að þvf liggja að ástand bif-
reiðanna hafi komið viðtakendum
algjörlega á óvart. Staðreynd
málsins er hins vegar sú að
trúnaðarmenn flugmálastjórnar
höfðu kynnt sér ástand bifreið-
anna með endurteknum skoð-
unarferðum til Keflavíkurflug-
vallar. Þetta staðfestir flugmála-
stjóri raunar með þessum orðum í
Vísi 23. þ.m. „Guðmundur Guð-
mundsson, slökkviliðsstjórinn
okkar og Gunnar Sigurðsson,
flugvallarstjóri, voru löngu búnir
að skoða þessa bíla, suðurfrá, og
vissu vel um ástand þeirra." Sjálf-
ur skoðaði flugmálastjóri bif-
reiðarnar á s.l. vori.
Þegar kunnugt var að bifreið-
arnar yrðu afhentar til notkunar
á fslenskum flugvöllum lögðu
slökkviliðsmenn á Keflavíkur-
flugvelli sig fram um að afla til
þeirra tækja og búnaðar, þannig
að þær gætu komið að sem best-
um notum.
Af framansögðu er ljóst að um-
ræddar 3 slökkvibifreiðar voru af-
hentar flugmálastjórn samkvæmt
eindregnum tilmælum hennar, að
undangenginni nákvæmri skoðun
bifreiðanna af tilkvöddum
trúnaðarmönnum flugmálastjóra
svo og honum sjálfum. Ummæli
flugmálastjóra og starfsmanna
hans um hið gagnstæða eru þvi
bæði röng og villandi.
Páll Ásg. Tryggvason
Hallgrfmur Dalberg
Höskuldur Ólafsson
Hannes Guðmundsson
Valtýr Guðjónsson.
Þetta er verkið eftir Nlls Hafstein sem Revkjavfkurborg hefur fest
kaup á og var á útisýningu f Austurstræti f sumar. Lágmvndin, sem
er 130 x 120 sm að stærð, kostaði 500 þúsund krónur og hefur ekki
verið ákveðið hvar hún verður sett upp.
og fáið það bezta
VIÐ BJOÐUM:
1. Ný litfilma innifalin í
framköllunarverðinu
2. Og nú allar myndir á
Pro-matt pappír, sem gefur
enn betri og skarpari litmyndir
3. Litmyndir unnar á 3 dögum í fullkomnustu
Ijósmyndavinnustofu landsins og úr beztu fáanlegum
hráefnum
4. Agfa Fuji Kodak Intercolor framköllun
5. Ef þér eruð ekki 100% ánægðir, endurvinnum við
myndirnar eða endurgreiðum að fullu
6. Og að sjálfsögðu greiðið þér ekki fyrir myndir
sem ekki kóperast, vegna mistaka í myndatöku
INTER
COLOR
Æ myndiðjan Æ
ASTÞOR
H
F
Hafnarstræti 17 — Suðurlandsbraut 20
^rnaitt
Landsins beztu kjör á framköllun
pappírinn sem atvinnuljósmyndarar nota.