Morgunblaðið - 04.01.1977, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JANUAR 1977
19
Sprenging vid
stöð f alangista
Beirút, 3. Janúar. Reuter.
BIFREIÐ hlaðin 50 kflóum af
sprengiefni sprakk f loft upp f
kvöld fyrir utan aðalstöðvar
öryggissveita falangistaflokksins
á fjölfarinni götu f hverfi krist-
inna manna f Austur-Beirút og að
minnsta kosti 20 biðu bana og um
60 slösuðust.
Sprengingin, sú alvarlegasta
sfðan vopnahlé komst á, olli elds-
voða f þremur nálægum bygging-
um og rúður sprungu f 200 metra
fjarlægð. Utvarpsstöð falangista
skoraði á fólk að gefa blóð og
sagði að flokkurinn hefði sjálfur
hafið rannsókn á sprengingunni.
Fyrr í dag hörfuðu sýrlenzkir
hermenn arabíska friðargæzlu-
liðsins frá skrifstofum sex dag-
blaða og eins vikurits sem var
lokað fyrir hálfum mánuði þar
sem þau voru sökuð um að dreifa
fjandsamlegum áróðri.
Blöð i Líbanon og öll önnur rit
hafa verið sett undir ritskoðun.
Þar með koma frjáls blöð ekki
lengur út í nokkru arabalandi.
Brot á ritskoðunarreglum varða
allt að þriggja ára fangelsi og um
5.000 punda sekt samkvæmt til-
skipun frá stjórninni. Þingið hef-
ur veitt stjórninni umboð til að
stjórna með tilskipunum þannig
að henni megi takast að koma á
lögum og reglu og reisa landið við
eftir 19 mánaða borgarastrið.
Blaðamenn óháða blaðsins An
Nahar sögðu þegar sýrlenzku her-
mennirnir voru farnir úr skrif-
stofum blaðsins að saknað væri
ritvéla, gagna úr skjalasafni og
hluta frá skrifstofum tveggja rit-
stjóra blaðsins.
Innanrfkisráðuneytið segir að
opnaðar verði tvær ritskoðunar-
skrifstofur, önnur í hverfi vinstri-
sinna, hin í hverfi hægri manna.
Ráðuneytið sagði að allir fréttarit-
arar erlendra fjölmiðla yrðu að
afhenda tvö afrit af skeytum sfn-
um áður en þau yrðu send. Svip-
aðar reglur ná til lfbanskra fjöl-
miðla. Allt efni ætlað til birtingar
verður ritskoðað á skrifstofunum.
Þegar borgarastríðið stóð sem
hæst komu út rúmlega tuttugu
blöð og tímarit í Líbanon, fleiri en
i nokkru öðru Arabalandi, og þau
túlkuðu allar stjórnmálaskoðanir.
Nú koma út aðeins þrjú dagblöð,
öll hægrisinnuð.
Blaðið Al-Anwar segir að rit-
skoðaðar muni einkum hafa auga
með efni sem varðar öryggi,
trúarbrögð, efnahagsmál og sam-
skipti Líbanons við erlend rfki.
Fulltrúi brezka landbúnaðar-og sjávar útvegsins, titlaður fiskveiðieftirlitsmaður, f stjórnklefa Nimrod-
þotu brezka flughersins f fyrstu eftirlitsferðinni eftir útfærslu brezku fiskveiðilögsögunnar f 200 mílur.
200 mílna lögsaga
EBE ekki gengin í gildi
Bretar einir geta haldið
uppi landhelgisgæzlu -
Fundur í Brussel á morgun
Briissel og London. 3. janúar. Reut-
er—AP—NTB.
FASTAFULLTRÚAR
EBE-landanna 9 f aðal-
stöðvum bandalagsins f
Briissel koma saman til
fundar á morgun, miðviku-
dag, til að reyna að ganga
endanlega frá reglugerð
bandalagsins um 200
mflna fiskveaðilögsögu,
Baskaóeirðir
Bilbao og Madrid, 2. jan. — Reuter.
TIL nokkurra átaka kom f Baska-
héruðum Spánar upp úr ára-
mótunum f framhaldi af kröfum
Baska um aukið sjálfsforræði og
náðun pólitfskra fanga. Mest urðu
átökin f bænum Algorta, skammt
norðan við Bilbao, þar sem
lögreglusveitir beittu táragasi og
skutu gúmmfkúlum til að tvfstra
kröfugöngu um 3.000 þjóðernis-
sinnaðra bæjarbúa. Rúmur tugur
manna særðist, en enginn alvar-
lega.
Hundruð Baska
saman f miðbænum
söfnuðust
í Algorta,
veifandi „Ikurrina", Baska-
fánanum græna, rauða og hvíta,
sem bannaður er, hlóðu götuvigi
úr bflum, grjóti og sorptunnum,
og lokuðu járnbrautinni, sem ligg-
ur gegnum bæinn. Eftir að hópur-
inn tvístraðist undan skothrfð
lögreglusveitanna voru götuvfgin
rifin og öflugur lögregluvörður á
ferli.
Talið er að um 200 pólitískir
fangar gisti nú fangelsi á Spáni,
og er meirihluti þeirra Baskar.
Hafa kröfur Baska um náðanir
pólitískra fanga vfða fengið
stuðning, nú síðast hjá erki-
biskupi Barcelona.
sem taka átti gildi á mið-
nætti 31. desember, en sem
kunnugt er frestaðist
gildistakan, þar sem brezki
fulltrúinn neitaði að
undirrita hana þar til nán-
ar hefði verið kveðið á um
réttindi A-Evrðpuríkja
innan lögsögunnar. Af
þessum sökum geta aðeins
Bretar varið 200 mflna lög-
sögu þvf að þeir höfðu ein-
ir þjóða samþykkt lög f
þingi sfnu um 200 mflna
útfærslu. Rfkir reiði meðal
hinna EBE-rfkjanna yfir
afstöðu Breta, þar sem þau
geta ekki haldið uppi land-
helgisgæzlu innan 200
mflna markanna fyrr en
reglugerðin hefur verið
samþykkt af öllum aðildar-
ríkjum.
Ástæðan fyrir afstöðu Breta er
að fulltrúi þeirra vildi fá nánari
skilgreiningu á þeim svæðum inn-
an 200 mílna EBE-lögsögu, þar
sem Rússar og aðrar þjóðir utan
EBE eiga að fá að veiða, en EBE
hefur gert samning við Sovétrík-
in, A-Þýzkaland, Pólland o.fl. riki
til 3 mánaða um veiðiheimildir
innan 200 mílnanna þar til gengið
hefur verið frá endanlegu sam-
komulagi. Mega skip þessara
þjóða á meðan veiða 60% af þvi
magni, sem þau veiddu á sl. ári.
Bretar hafa áhyggjur af því að
þessi ríki muni veiða allan sinn
afla undan Bretlandsströndum og
vilja að EBE ákveði nákvæmlega
þau svæði, þar sem skipunum
verður leyft að veiða. Þá mega
Norðmenn og Færeyingar veiða
sama magn og á sl. ári fyrst um
sinn.
5. brezkar freigátur eru nú við
gæzlustörf undan Bretlands-
ströndum ásamt Nimrodþotum og
er áætlað að gæzlustörfin muni
kosta um 5 milljónir sterlings-
punda. Jafnframt hafa sektir við
landhelgisbrotum verið stór-
hækkaðar, allt upp f 50 þúsund
pund og engin takmörk sett á
sektir, sem kviðdómar geta ákveð-
ið.
Er 200 mflurnar tóku gildi á
nýársdag voru um 200 erlend
veiðiskip undan Bretlandsströnd-
um, þar af 137 frá EBE-rikjunum,
og rúm 60 frá öðrum ríkjum, sem
heimildir hafa tal veiða. Skipum
frá tslandi, Rúmeníu, Búlgaríu,
Japan og Kúbu hefur verið skipað
að halda sig utan 200 mflnanna,
þar sem ekki er um gagnkvæm
veiðiréttindi að ræða milli rikis-
stjórnar þessara landa og EBE.
Ekki kom til neinna afskipta
brezku herskipanna af erlendum
veiðiskipum þessa fyrstu daga,
enda gaf brezka stjórnin fyrir-
mæli um að farið skyldi að öllu
með gát þar til tryggt væri að
stjórnvöld allra viðkomandi landa
hefðu fengið formlegar orðsend-
ingar um útfærsluna og reglu-
gerðir. í dag voru 6 búlgarskir
togarar og 1 rúmenskur enn að
veiðum við suðurströnd Bret-
lands.
Brezka blaðið Guardian sagði í
leiðara um áramótin, að Bretar
ættu enga möguleika á að halda
Framhald á bls. 23
Ford óttast víg
búnað Rússa
Megum ekki hrifsa til okk-
ar eins mikið og við getum”
sagði Nordli forsætisráðherraNoregs
í tilefni 200 mílna útfærslunnar
Ósló, 1. janúar. Reuter—NTB.
NORÐMENN færðu fiskveiðilög-
sögu sfna f 200 mflur á miðnætti
sl. föstudag ásamt Kanada og
EBE-rfkjunum og sagði Odvar
Nordli, forsætisráðherra Noregs,
af þvf tilefni f áramótaræðu sinni,
að lffsnauðsyn bæri nú til að
tryggja skynsamlega nýtingu og
verndun fiskstofnanna til hags-
bóta fyrir allar þjóðir heims nú
og f framtfðinni. Hann varaði
strandrfki við að sýna eigingirni f
sambandi við nýtingu fiskstofn-
anna innan 200 mílna marka
sinná. „Við verðum að standast þá
freistingu að hrifsa til okkar eins
mikið og við getum.“ Hann sagði
að Norðmenn yrðu að ganga á
undan með gott fordæmi f vernd-
un og nýtingu fiskstofnanna og
þá gætu þeir gert kröfu til annara
þjóða um að þær gengju f lið með
þeim f þvf mikilvæga starfi.
Nordli sagðist velta þvf fyrir sér
hvort hin nýja stefna í hafréttar-
málum þýddi að þjóðir heims
horfðust í augu við nýlendustefnu
á höfunum eða hvort skráð yrði í
sögunni, að árið 1977 hefðu
strandríkin skilið að nýjar og af-
kastamiklar veiðiaðferðir ógnuðu
öllum fisktofnum og þvf hefði
verið gripið til skynsamlegra að-
gerða með heill þjóðanna nú og i
framtíðinni fyrir augum.
Odvar Nordli
New York, 2. jan. — Reuter.
1 VIÐTALI, sem birtist f nýjasta
hefti vikuritsins Time segist Ger-
ald Ford Bandarfkjaforseti óttast
að stöðugur vfgbúnaður Sovét-
rfkjanna eigi eftir að ógna öryggi
Bandarfkjanna. Ford kveðst
hræddur um að framlög til varn-
armála lækki f framtfðinni niður
f það, sem þau voru fyrir árið
1974, en þá voru þau tiltölulega
lægra hlutfall heildarframleiðsl-
unnar en nú er. Forsetinn sagði
að með vfgbúnaði sfnum hefðu
Sovétrfkin minnkað forustu
Bandarfkjanna, og ef sú yrði þró-
unin áfram, gætu Bandarfkin lent
f slæmri varnaraðstöðu innan tfð-
ar.
„Ef við sláum úr og í, en Sovét-
rfkin halda stefnunni og komast
Wigforss
látinn
Stokkhólmi, 3. jan. — NTB.
ERNST Wigforss, sem hvað eftir
annaó gegndi embætti fjármála-
ráðherra Sviþjóðar á árunum
1925—1949, andaðist í Stokk-
hólmi á sunnudag tæplega 96 ára
að aldri. Hafði hann legið rúm-
fastur í rúmt ár eftir slys.
Wigforss var talinn einn
fremsti stjórnmálamaður
sænskra jafnaðarmanna.
fram fyrir okkur — sem þau ekki
hafa náð enn — gætum við átt viö
alvarlega erfiðleika að stríða, og
svo gæti farið að einhver sovézk-
Framhald á bls. 23
Nýjar við-
ræður um
Barentshaf
Osló, 3. janúar. NTB.
SAMNINGAVIÐRÆÐUR So-
vétmanna og Norðmanna um
fiskveiðar á Barentshafi hefj-
ast á ný f Moskvu f dag, þriðju-
dag og eiga að standa f 5 daga
að þvf er norska utanrfkisráðu-
neytið tilkynnti f dag. Fór
Jens Evensen, hafréttarmála-
ráðherra Noregs, ásamt fiski-
fræðingum og embættismönn-
um til Moskvu f gær til við-
ræðna við Alexander Ishkov,
sjávarútvegsráðherra Sovét-
rfkjanna.
Knut Frydenlund, utanrfkis-
ráðherra Noregs, sagði f viðtali
f dag, að hann væri þess full-
viss að lausn næðist f þessu
máli væntanlega með þvf að
draga Ifnu milli norska og so-
vézka landgrunnsins á
Barentshafi, en samninga-
viðræður myndu taka nokkurn
tfma. Á meðan yrðu Norðmenn
að sætta sig við óleyst vanda-
mál á þessum slóðum.