Morgunblaðið - 04.01.1977, Page 23
23
---------------.-----------------------
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JANUAR 1977
— Batt enda . . .
Framhald af bls. 1.
Ég vann og stritaði og skapaði. Llf
mitt var ekki algjörlega unnið
fyrir gíg.“
Ofer var fæddur I Póllandi og
fluttist til ísraels 11 ára gamall.
Aður en hann var kjörinn á þing
fyrir Verkamannaflokkinn 1969
var hann forstöðumaður eins
stærsta byggingarfyrirtækis
landsins, Shikun Ovdim, sem var i
eigu Israelska verkalýssambands-
ins.
Nafn Ofers hefur að undan-
förnu verið nefnt á þingi og I
blöðum i sambandi við Asher
Yadlin, fyrrverandi forstöðu-
manns sjúkrasamlags verkalýðs-
sambandsins. ísraelsstjórn til-
nefndi hann í fyrra bankastjóra
Israelsbanka, en hann var ákærð-
ur i siðasta mánuði fyrir mútur,
skattsvik og lóðabrask. Tilnefn-
ingin var dregin til baka.
Blöð hafa kallað rannsókn lög-
reglunnar „Watergate lsrels“. En
Ofer neitar öllum ásökunum I
sjálfsmorðsorðsendingunni:
„Ég hef kvalizt i vikur og mán-
uði. Ég hef verið ranglega ásakað-
ur. Ég er viss um að sannleikur-
inn mun koma fram, að ég hefi
ekki svikið, að ég hafi ekki stolið
og að þetta er allt rógur og falskar
ásakanir. En ég hef ekki þrek til
að þola meira.“
Israelskur blaðamaður, Yigal
Laviv, kærði nýlega Ofer fyrir
lögreglunni og hélt þvi fram að
hann hefði hylmt yfir með lóða-
braski og selt ibúðir á lágu verði
mönnum sem gátu hjálpað honum
I stjórnmálum. Lögreglan sagði
aðeins nokkrum klukkustundum
áður en Ofer lézt að hún væri að
rannsaka kæru blaðamannsins, og
neitaði að staðfesta eða neita
hvort Ofe'r lægi undir grun.
Laviv starfar við vikuritið
Haolam Hazeh og ritstjóri þess,
Uri Avnery, sagði að hann harm-
aði sjálfsmorðið en blaðið hefði
aðeins gert skyldu sina og upplýs-
ingar þess hefðu verið nákvæmar.
Hann kvaðst hafa talað við Ofer
fyrir hálfum mánuði og boðið
honum að birta svar við ásökun-
um en ekki heyrt frá honum sið-
an.
Blaðið Maariv sagði að Ofer
hefði krafist þess að rannsókn
lögreglunnar yrði hraðað og neit-
að að hafa verið viðriðinn ólögleg-
ar sölur. Rabin forsætisráðherra
neitaði að staðfesta eða bera til
baka hvort Ofer lægi undir grun
og sagði að I tsrael væru menn
saklausir unz sekt væri sönnuð.
Málað kom upp á yfirborðið eftir
leynifund Rabins og aðstoð-
armanna hans um það á laugar-
dag.
Fyrr I dag bað Efrain Katzir
forseti Rabin að mynda bráða-
birgðastjórn til að stjórna landinu
fram yfir nýjar kosningar í vor.
— Fanga leitað
Framhald af bls. 1.
Napoli, var einnig I hópi þeirra
sem flúðu. Hann var fluttur til
fangelsisins í Treviso fyrir tveim-
ur vikum, þar sem hann var
talinn hafa stjórnað fangaupp-
reisn í Flórenz.
Einn þingmanna Frjálslynda
flokksins, Giuseppe Costa, krafð-
ist þess í dag að allir starfsmenn
italska dómsmálaráðuneytisins,
sem ábyrgð bæru á öruggi I átöls-
kum fangelsum, segðu af sér.
Fangelsisstjórinn, Giancarlo
Severini, kveðst hafa varað dóms-
málaráðuneytið við þvi fyrir jól
að hann gæti ekki ábyrgzt öryggi í
fangelsinu þar sem það væri yfir-
fullt. 220 fangar voru i fangelsinu
áður en fangarnir flúðu, 40 fleiri
en þar mega vera, og aðeins 50
fangaverðir í stað 75—80 sem
þarf að sögn Sverinis.
— Ford óttast
Framhald af bls. 19
ur leiðtogi léti I framtiðinni leið-
ast út f ævintýri," sagði forsetinn.
Ford forseti hefur undanfarinn
hálfan mánuð dvalizt I Colorado
og stundað skíðaferðir, en sneri
heim til Washington á sunnudag.
Áður en hann lætur af embætti
20. þessa mánaðar flytur hann
árlegt ávarp sitt til þingsins, og
einnig leggur hann fram fjárlaga-
frumvarp sitt fyrar fjárhagsárið
1978. Þá hefur Ford lýst þvl yfir
að hann muni leggja til við þingið
að Puerto Rico verði 51. ríki
Bandarlkjanna, og að verðlagseft-
irlit á benslni verði afnumið. Tal-
ið er að þingið felli báðar þessar
tillögur forsetans.
— Útfærsla EBE
Framhald af bls. 19
uppi nægilegri löggæzlu innan
200 milnanna. Þessi 5 skip, sem
um væri að ræða, væru eins og
dropi I hafið á þvl 270 þúsund
fermflna svæði, sem fiskveiðilög-
sagan næði yfir. Ef gæzlan ætti að
vera nægileg þyrfti þrefalt fleiri
skip til gæzlustarfa en brezki flot-
inn réði nú yfir. Því væru litlar
líkur á þvl að veiðiþjófar sigldu I
bráð út fyrir 200 mílurnar.
— Strangar kröfur
Framhald af bls.21
þessari framkvæmd I höfn. Hann
þakkaði vinsamlega afgreiðslu
Fjárfestingabanka Norðurlanda á
beiðninni um lánsfé og kvaðst
vona að fyrirtækið yrði happa-
drjúgt íslenzku efnahagslífi.
Það kom fram við athöfnina I
gær að lánið til járnblendifélags-
ins er jafnhátt fyrst hluta stofn-
fjárframlags Norðurlandanna til
Fjárfesingabankans, en að öðru
leyti aflar bankinn lánsfjár með
þvf að taka lán á alþjóðalána-
mörkuðum. Þessi fyrsti hluti
stofnfjárframlagsins var greiddur
I ágúst slðastliðnum og næsta
greiðsla verður I águst 1977.
Blaðamenn spurðu fram-
kvæmdastjóra Elkem um væntan-
legar ráðstafanir gegn mengun á
Grundartanga. Gunnar Sem kvað
sett upp beztu hreinsitæki, sem
völ væri á, og farið yrði að sömu
kröfum og norsk heilbrigðisyfir-
völd settu, en þar eru nýjar og
mjög strangar reglur I gildi um
varnir við klsiljárnverksmiðjur.
Hann kvað ryk koma frá verk-
smiðju þeirri, sem reisa ætti á
Grundartanga. Þetta ryk kvað
hann ekki eitrað, en ylli óþægind-
um. Rykið kvað hann hreinsað frá
með sérstökum hreinsum og
möguleikar væru t.d. á því að nota
það sem efni I sement frá Sem-
entsverksmiðjunni á Akranesi.
Kvað hann mjög áhugaverðar til-
raunir með slíkt fara fram I
Noregi. Ur verksmiðju, sem fram-
leiddi 50 þúsund tonn af kisil-
járni, kvað hann myndu koma 25
þúsund tonn af úrgangsefni.
Þann hluta sem ekki væri nýtan-
legur yrðu menn að losa sig við.
Um markaðsverð á kfsiljárni
kvað hann þð hafa verið á árinu
1975 um 2.900 norskar krónur á
tonnið, en á sfðasta ársfjórðungi
1976 var verðið komið niður I
2.600 krónur. Markaðurinn væri
sveiflukenndur og hann kvað
þessa verksmiðju verða reista á
heppilegum tíma, þ.e. þegar
markaðurinn væri I lágmarki, en
sfðan myndi framleiðslan komast
á hækkandi markað. I iðnaðar-
þjóðfélögum kvað hann ársneyzlu
kfsiljárns verða um 1,5 kg á
mann. Um það hvers vegna svo
mikill munur væri á skoðunum
Union Carbide og Elkem á arð-
semi Grundartangaverksmiðjunn-
ar, sagðist hann ekki geta sagt
neitt. Raunar ætti kannski heldur
að bera upp spurninguna við
bandarfska fyrirtækið, en mikill
munur væri á Elkem og Union
Carbide — Elkem hefði selt á
Evrópumarkaði um 200 þúsund
tonn á ári, en bandariska fyrir-
tækið aðeins um 5 þúsund tonn.
A fundinum kom ennfremur
fram að útflutningur kisiljárns sé
talinn auka útflutningstekjur ís-
lendinga um 6 til 8%. I verk-
smiðjunni verða 2 bræðsluofnar
af nýjustu gerð frá Elkem og er
gert ráð fyrir að unnt verði að
hefja bræðslu I öðrum þeirra um
áramót 1978 til 1979, en hinn
verði síðan tekinn I notkun hálfu
öðru ári síðar. Um 150 manns
munu starfa við verksmiðjuna.
Auk láns Norræna fjárfestinga-
bankans fæst fé til verksmiðju-
byggingarinnar með útflutnings-
og vörukaupalánum og öðru láns-
fé að fjárhæð 150 milljónir
norskra króna eða 5,5 milljarða
íslenzkra króna á núverandi
gengi og með hlutafjárframlögum
og lánum eigenda, samtals að fjár-
hæð 175 milljónir norskra króna
eða 6,4 milljarðar fslenzkra króna
á núverandi gengi.
— Embætti
fjármálaráðherra
Framhald af bls. 21
annars hafa aðalbreytingarnar
verið I þvi fólgnar að skilja
ákveðna málaflokka frá ráðuneyt-
inu sjálfu og fela þá sérstökum
stjórnarskrifstofum, sem ýmast
eru I nánum tengslum við ráðu-
neytið, svo sem rikisendurskoðun-
in og Hagstofa Islands, eða starfa
sem deildir eða undirstofnanir
þess, svo sem rfkisbókhald og
ríkisféhirðir.
Samkvæmt lögum um
fasteignamat og fasteignaskrán-
ingu, er Fasteignamat rlkisins
sérstök deild I fjármálaráðuneyt-
inu og fjallar hún um fasteigna-
matsmálefni. Varðveitir hún öll
gögn, er varða fasteignamat, og
gefur upplýsingar um það þeim,
er þess óska. Um nokkurt árabil
hafði sérstök skrifstofa starfað á
vegum fjármálaráðuneytisins,
varðveitt matsgögn og veitt upp-
lýsingar um mat fasteigna og haft
eftirlit m.a. með aukamati og
millimati. Þótti þvf rétt, að lög-
festa þessa skipan og kveða þá svo
á, að skrifstofan skyldi vera sér-
stök deild I fjármálaráðuneytinu.
Fjármálaráðuneytið var I
Stjórnarráðshúsinu þar til það
var flutt sumarið 1939 i Arnar-
hvol, þar sem það hefur verið
síðan.“
Frábær gæði
EPC 121
EPC 122
EPC123
Strimill, grand total, sjálf- Strimill, grand total, geymslu- Bæöi strimill og Ijósatölur, grand
virkur prósentureikningur, verk sjálfvirkur prósentureikn- total, geymsluverk, sjálfvirkur
tólf stafa vinnsla ingur, tólf stafa vinnsla prósentureikningur, tólf stafa
VERÐ: Kr. 34.100“ VERÐ: Kr. 39B00“ vinnsla
^ -
Skrifstofuvélar h/f geta nú boðið yður þrjár gerðir af
hinum nýju og fullkomnu EPC reiknivélum á sérstaklega
góðu verði.
%
Komið, skoðið, kaupið.
Þér fáið ekki sambærilega vél á betra verði. rSKRiFSTOFUVELAR H.Rl
Hverfisgötu 33
Sími 20560 - Pósthólf 377