Morgunblaðið - 04.01.1977, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JANUAR 1977
Uverpool bætir enn í sarpinn
- sigraði Sunderlnd 2-0 og hefur 4 stiga forystu
ÓHAGSTÆTT verður setti strik f
reikning ensku knattspyrnunnar um
áramótin þar sem fresta varð fjöl-
mörgum leikjum I öllum deildum.
Hefur viðrað mjög illa til knatt-
spyrnuiðkunar I Englandi að undan-
förnu, en þó hafa skilyrði verið
nokkuð mismunandi. einstök félög
hafa sloppið bærilega við frestanir,
og eru meistarar Liverpool þar
fremstir í flokki, en þeir hafa nú
leikið allt að fimm leikjum meira en
sum önnur lið í 1. deildinni. Vegna
hins mikla mismunar á leikjafjölda
liða, er staðan I deildinni ákaflega
óljós. Liverpool hefur nú forystu með
32 stig, en hefur leikið fjórum leikj-
um meira en liðið sem er I öðru sæti,
Ipswich Town, en það lið er með 28
stig. í þriðja sæti er svo Manchester
City með 28 stig eftir 21 leik, og á
þvi möguleika á að ná Liverpool að
stigum, vinnist leikirnir sem liðið á
inni.
Hið sama er að segja með baráttuna
á botninum Tottenham sem vann leik
sinn um áramótin við West Ham, hefur
leikið tveimur leikjum meira en Queens
Park Rangers og Bristol City, en lið
þessi berjast á botninum ásamt West
Ham og Sunderland, sem raunar eru
langneðst
Á nýjársdag lék Liverpool á heima-
velli gegn Sunderlnad og sigraði 2—0
i leik þar sem nánast var um einstefnu
að ræða Virðist Sunderlandliðið
algjörlega heillum horfið, og hefur að-
eins unnið 2 leiki í fyrstu deildar
keppninni til þessa Ray Kennedy skor-
aði fyrra mark Liverpool með skalla
snemma í leiknum, en Phil Thompson
bætti svo um betur þegar 20 mínútur
voru til loka leiksins Aðalstjarna Liver-
pool-liðsins, Kevin Keegan, gat ekki
leikið með vegna meiðsla
Stórleikurinn á nýjársdag var tví-
mælalaust viðureign Manchester
United og Aston Villa á Old Trafford í
Manchester, og létu áhangendur
Manchester United það ekki á sig fá
þótt kalt væri í veðri, þar sem 56
þúsund manns fylgdust með leiknum
Fengu þeir líka nokkuð fyrir aurana
sína, þar sem heimaliðið, Manchester
United, sýndi ágætan leik og vann
sigur Virðist United nú heldur betur
vera að ná sér á strik, eftir mjög slakan
kafla að undanförnu Stuart Pearson
skoraði bæði mörk M: nchester United
í leik þessum, fyrst á 16. mínútu og
síðan á 22 mínútu í seinni hálfleik
tókst leikmönnum Villa hins vegar að
snúa leiknum sér í vil og áttu þeir mörg
góð marktækifæri, sérstaklega í upp-
hafi hálfleiksins. En „gamli maðurinn"
Alex Stepney var ekkert á því að byrja
nýja árið með því að hirða knöttinn úr
markinu hjá sér. Hann sýndi stórkost-
leg tilþrif og var sá þröskuldur sem
sóknarmönnum Villa tókst aldrei að
yfirstíga. Undir lok leiksins fékk
Þrátt fyrir góða tilburði Kevins Charltons, markvarðar Hereford
hafnar skot Ray VVilkins f markinu og staðan er 3—0 fyrir Chelsea.
Lundúnaliðið vann þennan leik 5—1 og er nú f forystu í 2. deildar
keppninni. Þykir líklegt að þetta gamalkunna lið takist að vinna sér
sæti í 1. deild að nýju.
ENGLAND l.DEILD:
Liverpool—Sunderland
Manchester Utd.—Aston Villa
M iddlesbrough—Stoke
Norwich—Leicester
Tottenham—West Ham
öórum leikjum f 1. deild varð að fresta
ENGLAND 2. DEILD:
Blackburn—Notthingham
Blackpool—Hull
Bristol Rovers—Luton
Cardiff—Fulham
Chelsea—Hereford
Mallwall—Wolves
Plymouth—Charlton 1—0
ENGLAND 3. DEILD:
Northampton—Preston
Portsmouth—Oxford
Reading—Crystal Palace
Swindon—Brighton
ENGLAND 4. DEILD:
Bou memouth—Brentford
Cambridge—Bradford
Colchester—Newport
Exeter—Swansea
Hartlepool—Doncaster
Southend—Aldershot
Watford—Torquay
Workington—Huddersfield
SKOTLAND — ÍJRVALSDEILD:
Ayr—Kilmarnock
Rangers—Partick
öðrum leikjum varð að fresta
SKOTLAND 1. DEILD:
Arbroath—Montrose
2—0
2—0
0—0
3—2
2—1
1—3
0—0
1—0
3—0
5—1
1—1
0—1
1—1
3— 1
2—1
5—0
2—0
0—0
5—0
4— 0
3—2
3—1
2—1
J
Dumbarton—Clydebank 1—1
East Fife—Raith Rovers 2—1
Morton—St. Mirren 3—6
SKOTLAND 2. DEILD:
öyde—Queens Park 3—3
Stranraer—Albion Rovers 0—1
SPANN 1. DEILD:
Atletico Madrid—Real Madrid 4—0
Malaga—Racing 1—2
Salamanca—Las Paimas 0—0
Athletic Bilbao—Real Betis 1—0
Barcelona—Elche 4—1
Hercules—Espanol 2—0
Sevilla—Real Sociedad 0—3
Burgos—Celta 1—0
Real Zaragoza—Valencia 2—2
BELGlA 1. DEILD:
FC Antwerpen—FC Liegeois 5—0
FC Malinois—Molenbeek 0—1
Cou rtrai—Ostend 4—2
Charleroi—Waregem 0—1
Standard Liege—Beerschot 1—1
Lokeren—FC Brtigge 2—2
CS Briigge—Beringen 4—0
Winterslag—Beveren 0—0
ITALIA 1. DEILD:
Cesena—Catanzaro 1—0
Fiorentina—Bologna 3—0
Foggia—Genoa 2—3
Inter-Milan—Roma 3—0
Juventus—Perugia 1—0
Lazio—AC Milan 1—2
Sampdoria—Napoli 2—2
Verona—Torina 0—0
Manchester United dæmda vitaspyrnu
á Aston Villa, en spyrna Sammy
Mcllroy misheppnaðist og Burridge
markvörður Villa varði örugglega
Tottenham hefði verðskuldað stærri
sigur en 2—1 í leik sínum við West
Ham, þar sem liðið réð lengst af lögum
og lofum á vellinum West Ham
skoraði á 2. minútu eftir skyndisókn og
var þar Trevor Brooking að verki En
eftir mark þetta tók Tottenham leikinn í
sínar hendur Hvorki gekk né rak að
skora fyrr en í seinni hálfleik að Keith
Osgood skoraði úr vítaspyrnu og
skömmu siðar skoraði svo John
Duncan sigurmark Tottenham Voru
stigin tvö sem Tottenham fékk út úr
þessum leik mjög mikilvæg fyrir liðið í
fallbaráttu þess
Norwich sigraði svo Leicester 3—2
og var það sami leikmaðurinn, Viv
Busby, sem skoraði öll mörk Norwich,
en John Sammels og Steve Earle
skoruðu mörk Leicester
í 2 deild vann toppliðið Chelsea
auðveldan stórsigur yfir botnliðinu
Hereford, 5—1. Hefur Chelsea nú 4
stiga forystu í deildinni, en auðséð er
að baráttan um sætin í 1 deild verður
mjög hörð f ár. Eru þar margir kallaðir,
en Ifklegustu liðin til að fylgja Chelsea
upp eru talin vera Bolton Wanderes og
Wolves
Einar Magnússon — greinilega f góðu formi um þessar mundir.
Reykjavíkurliðið vann
Berlínarúrvalið 12—10
- en tapaði fyrír MAI og Steauea
— MIÐAÐ við aðstæður tel ég
árangur Islenzka liðsins hafa ver-
ið með ágætum, sagði Ólafur
Steingrfmsson, formaður Hand-
knattleiksráðs Reykjavfkur, í við-
tali við Morgunblaðið I gær, en
Islenzka liðið sem tók þátt I hrað-
keppni I handknattleik I Berlfn á
nýársdag lenti þar f þriðja sæti —
vann einn leik og tapaði tveimur.
— Það var tæpast við miklu að
búast af liðinu, vegna þess hve
það var ákveðið með skömmum
fyrirvara að senda það utan, sagði
Ólafur, — en ungu mennirnir
sem fóru stóðu vel fyrir sfnu og
gáfu andstæðingunum lítið eftir,
þótt frægir væru.
Fjögur lið tóku þátt i keppninni
í Berlín: Berlínarúrval, liðið frá
Reykjavlk, MAI frá Moskvu og
Steauea frá Búkarest. Var fyrsti
leikur mótsins milli Steauea og
Berlínarúrvalsins og lauk þeim
leik með sigri Steauea 12—6.
Þessu næst kepptu MAI og
Reykjavfkurliðið og lauk þeim
leik með sigri MAI, 11—10. Var
mikil og skemmtileg barátta I
þessum leik, og jafnt á öllum töl-
um upp í 9—9. Þá náðu Sovét-
mennirnir forystu, og þegar leik-
tíminn rann út var staðan 11—10
þeim f vil, en búið að dæma vfta-
kast á þá. Einar Magnússon tók
vftakastið, og skaut í gólfið. Það-
an hrökk knötturinn upp f þver-
slána og sfðan f bakið á markverð-
inum. Hann var hins vegar fljótur
að átta sig og gat bjargað.
Næsti leikur var milli Reykja-
vfkurliðsins og Berlínarúrvalsins.
Hafði Reykjavfkurliðið jafnan
forystu f þeim leik og sigraði
12—10. Var sá sigur minni en efni
stóðu til, þar sem Reykjavfkurlið-
ið sýndi til muna betri leik og
hefði verðskuldað stærri sigur.
1 næsta leik keppninnar mætt-
ust svo M AI og Steauea og var þar
um að ræða mikinn hörkuleik
með áflogum og útafrekstri. Lauk
vaðureigninni svo að MAI sigraði
11—6. Strax að þeim leik loknum
mætti Steauea liði Reykjavíkur
og var þá baráttumóðurinn ekki
funninn af Steaueamönnum.
Leikurinn var mjög harður og
lauk með sigri Steauea 14—9.
Sfðasti leikur mótsins var svo
milli MAI og Berlínarúrvalsins og
lauk þeim leik með sigri MAI
10—6. Urðu Sovétmenn þar með
sigurvegarar í mótinu, Steauea
varð í öðru sæti, Reykjavíkurliðið
í þriðja sæti og Berlínarúrvalið í
fjórða sæti.
Beztu menn Reykjavíkurúrvals-
ins f leikjum þessum voru þeir
Einar Magnússon, sem átti ágæt-
an leik bæði f sókn og vörn, og er
greinilega f hörkugóðu formi um
þessar mundir og Bjarni Jónsson,
sem dreif aðra leikmenn liðsins
áfram með baráttu sinni og
áhuga.
Mörkin sem Reykjavíkurliðið
skoraði f mótinu skiptust þannig
milli leikmanna: Einar Magnús-
son 9, Bjarni Jónsson 5, Ólafur
Jónsson 4, Þorbergur Aðalsteins-
son 3, Jón Sigurðsson 2, Magnús
Guðmundsson 2, Konráð Jónsson
2, Sigurður Sveinsson 2, Símon
Unndórsson 2 og Sigurður Gisla-
son 1.
Gamlárshlaup IR:
ÁGÚST
ALLS lögðu 10 hlauparar upp f
Gamlárshlaup tR sem fram fór f
fyrsta skipti á gamlársdag. Var
þar um að ræða 8 karlmenn og
tvær konur, en alls luku 9 kepp-
endur hlaupinu, þar sem einn
þeirra villtist af leið. Telja verð-
ur mætinguna góða, miðað við
önnur hlaup vetrarins sem verið
hafa fámennari, en hlaupið fór
fram f um 12 stiga gaddi, en að-
stæður voru annars ágætar.
Sigurvegari í þessu 10 kfló-
metra götuhlaupi sem fram fór
um vesturbæinn og Seltjarnarnes
varð Ágúst Ásgeirsson ÍR. Eftir
mjög rólega byrjun, vegna hins
mikla kulda, þar sem allir kepp-
endur hlupu í hóp, tók Ágúst for-
ystuna og jók hraðann jafnt og
þétt. Aðeins Gunnar Páll Jóa-
kimsson, IR, fylgdi honum eftir,
en þeir félagar hafa háð harða og
skemmtilega keppni í hlaupum
vetrarins. Þegar út á nesið kom
tók Gunnar forystuna, en upp úr
miðju hlaupinu tók Agúst aftur
forystu og jók forskot sitt jafnt og
þétt upp frá því.
Vegna kuldans hlupu flestir
keppendur mikið dúðaðir, en
samt sem áður verður að telja
tfma hlauparanna með ágætum,
FYRSTUR
en vegalengdin var um 10
kflómetrar. Sérstaklega athyglis-
verður er árangur Lilju Guð-
mundsdóttur en hún var skammt
á eftir fremstu hlaupurunum. Sig-
fús Jónsson IR sem sérstaklega
hafði beðið um hlaup til að geta
keppt við þá hlaupara sem hér
heima eru, treysti sér ekki til að
keppa vegna kuldans, en aðspurð-
ir sögðu hlaupararnir að hann
hefði ekki átt möguleika gegn
þeim, en Sigfús hafði verið siakur
á æfingum f jólafrfi sfnu hér
heima, að þeirra sögn.
Ekki verður annað sagt n að
þetta nýjabrum iR-inga hafi tek-
ist með ágætum, og vonandi er að
hlaup þetta verði árlegur viðburð-
ur, en að sögn hlauparanna fá
þeir alltof fá tækifæri til að
minna sig á harða keppni og
reyna sig að vetrinum.
Urslit hlaupsins urðu annars
þessi:
Mln.
1. Ágúst Ásgeirsson, !R 32:41.0
2. Gunnar P. Jóakimsson, |R 33:16.0
3. Hafsteinn Óskarsson, iR 34:51.0
4. Árni Kristjánsson, Á 37:21.0
5. Lilja Guðmundsdóttir, tR 38:52.0
6. Magnús Haraldsson, FH 44:13.0
7. Sigurður Haraidsson, FH 44:20.0
8. Guðmundur Valdemarsson, IR 46:08.0
9. Guðmundur Marfasson, KR 52:03.0