Morgunblaðið - 01.02.1977, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1977
3
Walter Mondale við komuna til Islands:
„Veðriðeinsog
íMinnesota nema
heldur hlýrra”
„ÉG ER mjög ánægður með að vera hérna með forsætisráðherra, Geir
Hallgrímssyni, og ég var einmitt að þakka honum fyrir að hafa veður, sem
er eins og heima. Þetta er alveg eins og í Minnesota, nema jafnvel heldur
hlýrra." Þetta sagði Walter F. Mondale, varaforseti Bandaríkjanna og
fyrrverandi þingmaður Minnesota, þegar hann ræddi við íslenzka blaða-
menn á Keflavíkurflugvelli á laugardagskvöldið, en við komu hans var
nístandi kuldi, 10 stiga frost og norðan stormur.
Mondale hafði hér viðkomu á leið
sinni frá París til Tokyo, en hann
hefur ferðast um helztu bandalags-
lönd Bandaríkjanna og gert leiðtog-
um þeirra grein fyrir stefnu Carters
forseta í málum, sem þessi ríki
varða Flugvél varaforsetans, Air
Force Two, lenti klukkan 19.10 og
tók Geir Hallgrímsson forsætisráð-
herra á móti honum Gengu þeir
strax til fundar, ásamt aðstoðar-
mönnum sínum á efri hæð flug-
stöðvarbyggingarinnar.
Annað fólk úr föruneyti Mon-
dales, en þar á meðal voru nokkrir
aðstoðarráðherrar, embættismenn
og fréttamenn þágu veitingar í veit-
ingasal flugstöðvarinnar Virtist
þeim kærkomið að fá að koma við á
íslandi og notuðu margir tækifærið
til að kaupa íslenzkar ullar- og
skinnavörur í íslenzkum markaði.
Þeir Geir og Mondale ræddust
lengur við en gert hafði verið ráð
Mondale og Geir Hallgrímsson að loknum fundi þeirra.
Mondale ræðir við íslenzka fréttamenn.
fyrir Upphaflega áttu samræður
þeirra ekki að taka nema um 20
mínútur en þær urðu 45 Að fundin-
um loknum svaraði varaforsetinn
spurningum Morgunblaðsins og
sagði að mörg mál hefði borið á
góma. sambandið á milli íslands og
Bandaríkjanna, Atlantsafsbandalag-
ið og aðstaða Nato á íslandi og
samkomulagið um varnir íslands frá
1974. Þá skýrði Mondale Geir frá
efnahagsstefnu Carters, sem miðar
að því að auka þenslu og sem mun
væntanlega hafa hvetjandi áhrif á
efnahagslífið í heiminum Þeir töl-
uðu einnig um 200 milna fiskveiði-
lögsögu, en hún gengur í gildi i
Bandarikjunum í marz.
„Ég færði Geir Hallgrimssyni og
islenzku þjóðinni persónulegar
kveðjur Carters Bandarikjaforseta,
en síðan töku samræðurnar að snú-
ast um alla íslendingana, sem búa i
Minnesota Þeir eru margir og má
nefna Valdemar Björnsson sem ég
þekki vel, og marga aðra Margir
íslendingar hafa verið þekktir í
Minnesota fyrir afskipti þeirra af
opinberum málum og Minnesotabú-
ar minnast framlags Vestur-
íslendinga til fylkisins með hlýhug
og virðingu.
Góður vinur minn, sem útnefndi
mig til öldungadeildarinnar, Karl
Rolvaag, var sendiherra lands míns
á íslandi. Við töluðum um Karl og
forsætisráðherrann bað mig fyrir
kveðjur til hans
Annars voru viðræður okkar mjög
gagnlegar og persónulegar og ég
sagði forsætisráðherra að ég vildi
geta komist aftur til íslands til að
heimsækja bæ Snorra Sturlusonar.
Ég er kominn fram í miðja bók, sem
hann skrifaði og ég hef heyrt um
faugina hans, sem á að vera eilíflega
heit. Ertu viss um að það sé rétt,
Geir," sagði Mondale og speri sér
að forsætisráðherra, sem fullvissaði
hann um að svo væri jafnvel I vetrar-
hörkunni.
„Við gætum þá kannski skroppið
þangað í kvöld og hitað' svaraði
Mondale
Geðþekkur
maður
„Viðkynnin við Mondale voru
ákaflega skemmtileg og ánægju-
leg," sagði Geir Hallgrímsson í sam-
tali við Morgunblaðið. eftir brottför
varaforsetans. „Þetta er mjög geð-
þekkur maður og ánægjulegt að
eiga viðræður við hann að öllu leyti
Hann er mjög vel kunnugur ýmsu
hér á landi og þekkir ýmsa landa
okkar vestanhafs og ég kom hvergi
að tómum kofanum hjá honum Ég
tel það mjög mikilvægt og mikils
Framhald á bls. 33
Ekki talið rétt að
kvenfólk ætti sæti
í sóknarnefndinni
NÝVERIÐ var kjörin sóknar-
nefnd I nýjum söfnuði f Hafnar-
firði, Vfðistaðasókn. Morgunblað-
inu er kunnugt um, að fyrir fund,
sem sóknarnefndin var kjörin á,
hafði verið óskað eftir þvf við
tvær konur að þær gæfu kost á sér
til setu f sóknarnefndinni, önnur
sem aðalmaður og hin til vara.
Skömmu fyrir fundinn var hins
vegar haft samband við þær og
þeim tjáð að ekki væri tatið rétt
að kvenfólk ætti sæti f sókna.-
nefndinni, þar sem nægilegt
framboð væri á karimönnum til
þeirra starfa.
— Ég get staðfest að þetta er
rétt, sagði Sofffa Stefánsdóttir,
önnur þeirra tveggja kvenna, sem
óskað hafði verið eftir að tækju
sæti f sóknarnefndinni, í samtali
við Morgunblaðið í gær. Sagði
Sofffa, að þeir aðilar, sem unnið
hefðu að undirbúningi stofnunar
sóknarinnar og kjöri sóknar-
nefndar hefðu rætt við sig og aðra
konu og óskað eftir þvf við þær,
að þær gæfu kost á sér til setu í
sóknarnefndinni. — Við féllumst
á að verða við þessum óskum en
nokkrum klukkustundum fyrir
fundinn var haft samband við
okkur af þeim sömu aðilum og
höfðu borið fram fyrrnefnda ósk
við okkur. Var okkur þá tjáð að
óskir um að við gæfum kost á
okkur væru afturkallaðar á þeirri
forsendu að ekki væri talið rétt að
kvenfólk sæti i sóknarnefndinni,
þar sem nægilega margir karl-
menn væru tilbúnir til að gefa
kost á sér til setu I sóknarnefnd-
inni, sagði Soffía.
Sagði Soffía að konum í sókn-
inni þættu þetta ill tíðindi og ekki
I anda þeirrar jafnréttishug-
sjónar, sem sett hefði svip sinn á
þjóðlifið siðustu misseri. —
Víðast hvar eiga konur sæti I
sóknarnefndum. Þannig eiga
konur sæti i 12 af 16
sóknarnefndum i Reykjavikur-
prófastdæmis og I sumum eru
þær tvær af fimm nefndar-
mönnum. I Kjalarnesprófast-
dæmi eiga konur sæti í 12 sóknar-
nefndum af 17 í prófastsdæminu.
(Jt um land eiga konur víða sæti 1
sóknarnefndum. Við teljum því
að þarna hafi verið gengið fram-
hjá konum I sókninni á ómakleg-
an hátt, því þó kvenfélög geti
gegnt mikilvægu hlutverki I
safnaðarstarfi, þá eiga konur að
hafa sama rétt og karlmenn til
setu I sóknarnefnd, sagði Soffía
að lokum.
í sóknarnefnd Viðistaðasóknar,
sem nýverið var kjörin eiga sæti
fimm karlmenn og fimm karl-
menn til vara. Björn Ölafsson,
formaður sóknarnefndarinnar,
sagði I gær, að það væri rétt að
Framhaid á bls. 33
Ferðir til-1
»ö77
illions
THE SCANDINAVIAN BUIIXHNG EXHIBTTION
buildi
\GEN 1
bil
COPENHAGEN
International
Frankfurt Fair
272.-3.3.1977
Kaupmanviahdfii
Vegna mikillar eftirspurnar,
bjóðum við nú aukaferð á bygg-
ingavörusýnmguna „Byggeri for
milliarder ', 20. febrúar — 26.
febrúar. Siðustu forvöð að tryggja
sér far í þéssa hagkvæmu ferð.
Frankfurt
Alþjóðlega vörusýmngin í Frank-
furt er sýning, sem á erindi til
flestra innflytjenda. Notfærið
ykkur reynslu okkar i vöru-
sýningum Takmarkað gistirými.
1!
Feróamióstöóin hf.
Aöalstræti 9 Reykjavil<
sími 11255