Morgunblaðið - 01.02.1977, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRUAR 1977
Stjórnmála-
flokkar
Það er gömal saga og
ný, að stjórnmálaflokkar
rúma breytilegar skoðanir
á ýmsum sviðum, þó að
flokksbundið fólk sé yfir-
leitt sammála um viss
grundvallaratriði, er bin d-
ur það flokksböndum.
Þannig hefur frjálshyggju-
fólk, sem aðhyllist borg-
aralegt lýðræði, borið
gæfu til að varðveita
styrk sinn og áhrif í einum
flokki, Sjálfstæðisflokkn
um, þrátt fyrir það, að af-
siaða þess falli ekki í einn
farveg i öllum málum.
Hins vegar hefur vinstri
sinnað fólk, sem aðhyllist
sósialisma, verið marg-
klofið i fleiri flokkum og
flokksbrotum.
Þannig klufu kommún-
istar sig út úr Alþýðu-
flokknum fyrir mörgum
áratugum og stofnuðu
hreinræktaðan kommún-
istaflokk árið 1930, fyrst
og fremst fyrir þá sök, að
þeir höfðu ekki trú á lýð-
ræðislegum sósialisma.
Þeir ráku sig þó fljótlega á
þá staðreynd, að komm-
únismi, sem kom ógrímu-
klæddur til dyra, var ekki
liklegur til fjöldafylgis. Þá
var söðlað yfir i sýndar-
mennsku og stofnaður
Sameiningarflokkur al
þýðu, Sósialistaflokkur-
inn. Þessi sýndarmennska
gaf nokkuð góða raun. Og
þá var enn haldið áfram á
þeirri brautinni og stofnað
svokallað Alþýðubanda-
lag. Allar götur gegnum
þessa sýndarmennsku og
nafnabreytingar hélt þó
gamli kommakjarninn
töglum og högldum í
flokknum og gerir enn.
Enda heltust lýðræðis
sinnaðir sósíalistar og
verkalýðsleiðtogar fljótt
úr lestinni. Nægir þar að
nefna menn eins og Héðin
heitinn Valdimarsson,
Hannibal Valdimarsson,
fyrrverandi forseta ASÍ,
og Björn Jónsson. núver-
andi forseti ASÍ, og fjöldi
annarra fylgdi í fótspor
þeirra, þó ekki verði hér
nefndir. Svokallaður
,,verkalýðsarmur" Al-
þýðubandalagsins má
sæta margs konar niður-
lægingu, bæði innan
flokksins og á siðum Þjóð-
viljans, samanber skipu-
lagði greinaherferð á
hendur Guðmundi J. Guð-
mundssyni varaformanni
Dagsbrúnar undanfarna
daga, vegna sérstjónar-
miða hans um heilsuspill-
andi húsnæði i höfuðborg-
Auðvald
og verkalýðs-
barátta”
Alþýðubandalagið i
Reykjavik auglýsti fyrir
helgina umræðufundi um
„Auðvald og verkalýðs-
baráttu" Það hefur vakið
verðskuldaða athygli, að
engir frummælendur á
þessum umræðufundum
eru úr svokölluðum
,, verkalýðsarmi" Alþýðu-
bandalagsins Þar koma
ekki fram menn eins og
Eðvarð Sigurðsson, Guð-
mundur J. Guðmundsson,
Jón Snorri Þorleifsson,
Snorri Jónsson eða Bene-
dikt Daviðsson, svo nokk-
ur nöfn séu nefnd. Hins
vegar er þar teflt fram
hagfræðingum, sagnfræð-
ingum, lögfræðingum og
jafnvel verðandi guðfræð-
ingum, auk pólitiskra
flokksleiðtoga. Sýnt þykir
að ,,ménntamannaklík-
an" umhverfis Þjóðvilj-
ann eigi að leiða ,,sauð-
svartan almúgann" i allan
sannleikann um verka-
lýðsbaráttuna. Þeir, sem
hafa staðið í þessari bar-
áttu um áratugi — innan
samtaka launafólks —
skuli skipa hinn óæðri
bekk. Enn er það gamli
kommakjarninn, sem
heldur um stýrið, deilir og
drottnar, eins og kannski
vera ber i stjórnmálaflokki
af þessu tagi.
Hugmyndafræði, sem
gjarnan er kennd við árið
1930, er Kommúnista-
flokkur íslands var stofn-
aður, skipar enn öndvegið
svo ekki verður um villzt.
Skoðanaleg stöðnun, sem |
enga lærdóma hefur dreg-
ið af gangi mála — og
staðreyndum dagsins i
dag — i rikjum kommún-
ismans í A-Evrópu, er það
sem bliva skal. Ef að lík- |
um lætur verður ekki
reynt að skilgreina verka- I
lýðsbaráttu, sem nú fer
fram i rikjum eins og Pól- I
landi og Tékkóslóvakiu, *
þar sem frumstæðustu I
mannréttindi eru fótum '
troðin. Þvert á móti verð- I
ur þvi þjóðskipulagi sung- I
ið lof og pris. sem fætt I
hefur af sér þá hryggðar I
mynd þjóðfélags, sem i
ekki rúmar frjálsa skoð- I
anamyndun almennings. |
Kommúnistar hafa
gjarnan afsakað þreng- I
ingu mannréttinda með
þvi, að hún hafi verið I
nauðsynleg til að tryggja '
efnahagslega velmegun I
almennings. Engu að síð- *
ur er það staðreynd sem I
engan veginn er hægt að •
horfa fram hjá, að komm- I
únistaríkin bjóða hvergi I
nærri sambærileg almenn i
lifskjör og velmegunar- I
þjóðfélög hins vestræna i
heims. Tæknivæðingin |
hefur að sjálfsögðu bætt •
almannakjör frá þvi sem |
þau vóru fyrir áratugum, .
hvert sem þjóðskipulagið |
er. En þjóðfélög hins vest-
ræna lýðræðis eru langt á |
undan rikjum sósialism-
ans i þvi að búa þegnum
sinum sómasamlega af-
komu, félagslegt öryggi, |
menntunaraðstöðu og al-
menn mannréttindi, þrátt |
fyrir ýmsa vankanta
þeirra, sem smám saman
eru að slípast af þeim,
eftir leikreglum lýðræðis-
Wjölskyldu
Sparilán Landsbankans fela í sér tvöfalda mögu-
leika; — innistæðu ásamt vöxtum, og sparilán til
viðbótar.
Fjölskyldan, sem temur sér reglubundinn sparnað
eftir Sparilánakerfinu, getur þannig búið í haginn
fyrir væntanleg útgjöld á þægilegan hátt.
Einn eða fleiri meðlimir fjölskyldunnar geta notfært
sér Sparilán Landsbankans eins og taflan sýnir:
SPARIFJÁRSÖFNUN TENGD RÉTTI TIL LÁNTÖKU
Sparnaður Mánaðarleg Sparnaður í Landsbankinn Ráðstöfunarfé Mánaðarleg Þérendurgr.
yðar eftir innborgun lok tímabils lánar yður yðar 1) endurgreiðsla Landsbankanum
5.000 60.000 60.000 123.000 5.472
12 mánuði 6 500 78.000 78.000 161.000 7.114 á 12 mánuðum
8.000 96.000 96.000 198.000 8.756
5.000 90.000 135.000 233.000 6.052
18 mánuði 6.500 117.000 176.000 303.000 7.890 á 27 mánuðum
8.000 144.000 216.000 373.000 9.683
5.000 120 000 240.000 374 000 6.925
24 mánuði 6.5Ö0 156.000 312.000 486.000 9.003 á 48mánuðum
8.000 192.000 384 000 598.000 11.080
1) í fjárhæðum þessum er reiknpð með 13% vöxtum af innlögðu fé, svo og kostnaði
vegna lántöku. Tölur þessar geta breytst miðað við hvenær sparnaður hefst. Vaxtakjör sparnaðar og láns eru háð vaxtaákvörðun Seðlabanka íslands á hverjum
tima.
LANDSBANKINN
Sparilán til vidbótar
SMURT BRAUÐ
meö: Roast beef, rækjum. skinku, hangikjðti, reyktum laxi,
eggjum og sild.
Cocteilpinnar Kr. 75 —
Kaffisnittur Kr. 95,-
1 /2 brauösneiðar Kr 330 —
Heilar brauðsneiðar Kr. 530 —
Brauðtertur, 12 manna Kr. KALT BORÐ 3.800 —
með:
Lambasteik Rækjum i hlaupi Remolaðisósu
Roast beef Ávaxtasalati Ostabakka
Grísasteik (tölsku salati Sildarfötum, 2 teg
Kjúklingum Rækjusalati Kexi
Skinku Kartöflusalati Avaxtakörfu
Hangikjöti Hrásalati Brauði
Laxi í maiones Cocteilsósu Smjöri
Fyrir 25 manns Kr. 2.200 —
Fyrir 30 manns Kr. 2.100 —
Fyrir 40 manns Kr. 2.000.—
Suðurveri Stigahlíð 45 símar: 38890—52449
kynning
maximat V13 Helstu upplýsingar:
Hæð miðpunkts: 165 mm. Bil milli odda: 650/850/1000 mm.
Centrum kló: 160 mm. Sjálfstæð kló: 200 mm. Gat gegnum kló:
36 mm. Mótor: 3-fasa 220/380 V. 3 hestöfl eins eða tveggja
hraSa.
Hraðar: 30 — 2500 snún/ mln.
Verð m/
söluskatti:
Maximat 13,
850 mm
m / borði
kr. 930.000.
Verið velkomin
á sýninguna okkar
Einkaumboðsmenn.
verkfœri & járnvörur h.f.
DALSHRAUNI 5. HAFNARFIROI. SIMI 53332