Morgunblaðið - 01.02.1977, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRUAR 1977
Verksmióiu ^
útsaía
Alafoss
Opió þriójudaga 14-19
fimmtudaga 1 I — ltf
á útsöíunm:
Vtfnaðarbútar
Bílateppabútar
Teppabútar
Teppamottur
Flækjulopi
Hespulopi
Flækjuband
Endaband
Prjónaband
3 ÁLAFOSS HF
Wmosfellssveit
StofflrtaoiuigHuiir
Vesturgötu 1 6,
sími 1 3280.
Góð
ryðvörn
tryggir endingu
og endursölu
BIL ARYOVORN”.
5k cifunni I7
o 81390
HLUSTAVERND
HEYRNASKJÓL
Xr I
SöyfllMUigjMir
<J§xn)©©®!n) <®t ©s>
Vesturgotu 16,
sími 13280.
Snurpuvír
fyrirliggjandi. Nótaskipin „Sigurður" „Guð-
mundur" „Jón Finnsson" og fjöldi annarra
skipa nota snurpuvír frá okkur.
Jónsson og Jú/íusson
Ægisgötu 10 — Sími 25430.
Rafstöðvar
Utvegum með stuttum fyrirvara rafstöðvár í
stærðum 2 til 7000 kw, frá mörgum framleið-
endum, fleiri en einn verðflokkur á hverri stærð
eftir fyrirhugaðri notkun t.d..
a. grunnafl: þungbyggðar, slitsterkar
b. varaafl: léttbyggðar (ódýrar)
c. flytjanlegar: yfirbyggðar á sleða eða vagni.
Greiðsluskilmálar
Vélasalan h.f.
Garðastræti 6
s. 15401 — 16341
Frumvarp Alþýðuflokks:
Lágmarkskaup
verði lögbundið
Fordæmi , sem getur verið
hættulegt.
Karvel Pálmason (SFV) tjaði
sig samþykkan þeirri nauðsyn,
sem væri á hækkun lágmarks-
launa , er réttlættist af rýrnandi
kaupmætti í landinu. Hins vegar
áréttaði hann það meginsjónar-
mið, að aðilar vinnumarkaðar
semdu um kaup og 'kjör, án
beinna aðgerða af hálfu ríkis-
valdsins, og lét í ljós ótta um, að
slíkt gæti orðið fordæmi, sem
„óvinveitt" rikisvald nýtti síðar,
jafnvel til kauplækkana. Slikt for-
dæmi gæti orðið „verkalýðshreyf-
ingu örðugt í skauti“.
Tilgangurinn að vekja
athygli á nauðsynjamáli
Eðvarð Sigurðsson (Abl) sagði
m.a. að launþegasamtökin hefðu i
engu breytt afstöðu sinni til
frjálsra kjarasamninga aðila
vinnumarkaðarins. Hann liti á
þetta frumvarp fyrst og fremst
sem tilraun til ao »skja athygli á
óviðunandi kaupmætti, sem full
ástæða væri til að gera, enda laun
hér allt að helmingi lægri en i
nágrannaiöndum. Láglaunafólk
væri illa sett, „þó spurning sé,
hvað eigi að kalla láglaunafólk og
hvað ekki“. Hann sagði vafamál
að frumvarpið væri flutt til þess
að verða að lögum, eins og styrk-
leikahlutföll væru á Alþingi, enda
þyrfti þá að skoða efnisgreinar
þess betur, til að forðast viss
vandamál, sem hann gerði ekki
frekar grein fyrir.
Frumvarpið sem slíkt styddi
kjarabaráttu launþegasamtak-
anna engu að síður. Island væri
orðið láglaunaland. Og það, sem
ekki bætti úr skák fyrir fólki,
væri, að yfirvinna, sem gert hefði
fólki kleift að kljúfa afkomuvand-
ann, væri nú að dragast saman,
a.m.k. í vissum atvinnugreinum.
Umræðunni lauk og frumvarp-
inu var vísað til nefndar.
Vafasamt fordæmi, segir Karvel
Lágmarkslaun.
Benedikt Grönddal, formaður
Alþýðuflokksins, mælti í gær, I
neðri deild Alþingis, fyrir frum-
varpi til laga, um lágmarkslaun,
sem m.a. felur það i sér, að þau
skuli ekki vera lægri en kr.
100.000.00 á mánuði, miðað við
dagvinnu og 40 stunda vinnuviku.
Sagði Benedikt frumvarp þetta í
samræmi við samþykkt ASÍ-
þings, þess efnis, að lægstu laun
verði ekki lægri en frumvarpið
gerir ráð fyrir, og að öll önnur
laun hækki til samræmis við það,
þann veg, að launamismunur sá,
er nú tfðkast, haldist í krónutölu.
Sú meginstefna ætti áfram að
ríkja, að aðilar vinnumarkaðar
semdu um kaup og kjör, þó hér
væri lagt til að grípa inn í mynd-
ina í neyðartilfelli, unz nýir kjara-
samningar næðust á vinnu-
markaðinum.
Benedikt
Gröndal.
Eðvarð
Sigu rðsson.
Karvel
Pálmason.
Breyting á mjólkurdreifingu:
Rætt um atvmnuvanda
afgreiðslukvenna...
SVAVA Jakobsdóttir (Abl)
spurðist fyrir um, utan dagskrár á
Alþingi I gær, hvað liði meðferð
þess frumvarps, sem hún, Magnús
T. Ólafsson (SFV) og Eyjólfur
Sigurðsson (A) hefðu flutt í des-
ember sl„ þess efnis, að Mjólkur-
samsölunni yrði gert skylt að reka
áfram, til næstu 5 ára, a.m.k. 10
mjólkurbúðir á sölusvæði hennar.
Formaður landbúnaðarnefndar,
Stefán Valgeirsson (F), hefði lof-
að skjótri athugun I nefnd, en
ekki bólaði enn á nefndaráliti.
Hins vegar yrðu um 50 starfs-
stúlkur mjólkurbúðanna atvinnu-
lausar frá og með morgundegin-
um, þ.e. 1. febrúar 1977.
Staða mjðlkurbúða-
málsins og atvinnu-
möguleikar
Stefán Valgeirsson (F) sagði að
frumvarp þetta hefði fyrst komið
fram 6. desember, verið afgreitt
til nefndar 9. desember og þá
þegar verið tekið til meðferðar í
landbúnaðarnefnd. Stefán sagði
það persónulegt álit sitt að vafa-
samt væri, hvort hægt væri með
lögum að skylda bændasamtökin
til að halda uppi sölustarfsemi af
þessu tagi, ekki slzt eins og þessi
mál hefðu þróast I seinni tfð. Þeg-
ar á liðnu ári hefði Mjólkursam-
salan og Kaupmannasamtökin
Svava Stefán
Jakobsdóttir. Valgeirsson.
samið um, að almennar verzlanir i
Reykjavík skyldu annast mjólkur-
dreifingu I borginni. Hann hefði
verið andvlgur þessari þróun, en
orðið að beygja sig fyrir stað-
reyndum málsins.
Stefán sagði að í október hefðu
153 mjólkurstúlkur verið starf-
andi hjá MS. Þar af hefðu 96
stúlkur þegar verið ráðnar til
annarra starfa. Af þeim 57, sem
þá væru eftir, hefðu 27 stúlkur
atvinnumöguleika i matvörubúð-
um. Eftir væru þá 30 stúlkur. Af
áðurnefndum 57 stúlkum væru 28
yngri en 60 ára en 29 á aldurs-
skeiðinu 60 til 70 ára.
Stefán sagði MS hafa ákveðið
að greiða stúlkum, eldri en 65 ára,
lífeyri, þar til þær kæmust á
venjulegar lifeyrisgreiðslur, frá
30 tii 60% af viðmiðunarlaunum
(þ.e. launum búðarstúlkna í dag
með fyllstu aldurshækkunum
sem breytast í samræmi við þau).
Stefán sagði að nefndin hefði
rætt við fulltrúa kaupmannasam-
takanna um vanda þeirra kvenna,
er nú misstu atvinnu sfna, sér-
staklega hinna eldri. Þau mál
væru að vísu ekki fullleyst, þvi
miður, en viðmælendur hefðu
fullan skilning á vandamálinu, og
vilja til að leysa það, eftir getu,
„enda væru hinar eldri stúlkur i
mörgum tilfellum eftirsóttur
starfskraftur.“
Auk framangreindra tóku til
máls Friðjón Þórðarson (S) og
Eðvarð Sigurðsson (Abl).
Frumvarp ad
Lögréttulögum
ÓLAFUR Jóhannesson dómsmálaráðherra mælti í gær fyrir
stjórnarfrumvarpi um Lögréttur, ásamt tveimur hliðarfrumvörp-
um um meðferð einkamála í héraði. Frumvörpin eru samin af
réttarfarsnefnd. Efnisleg grein hefur verið gerð fyrir þessum
frumvörpum hér á þingsíðu blaðsins. Meginatriðið er, að dómstig
verði þrjú (í stað tveggja). Lögréttur verði tvær: á Akureyri og i
Reykjavík, og starfi m.a. sem áfrýjunardómstólar, þann veg, að
mál, sem áfrýjað er til þeirra, fara ekki til Hæstaréttar nema í
undantekningartilfellum. Þetta fyrirkomulag myndi því létta
miklu starfsálagi af Hæstarétti.
Þá mælti dómsmálaráðherra fyrir stjórnarfrumvörpum um
áhrif olíuverðhækkana á hitunarkostnað (olíustyrkur) og um
framlag íslands til alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Matthías Bjarnason,
heilbrigðisráðherra, mælti fyrir stjórnarfrumvarpi um Fávita-
st< 'nanir, sem m.a. fjallar um rekstur Þroskaþjálfaskólans, en
vegur hans er gerður meiri en var í frumvarpinu.
I neðri deild var til umræðu frumvarp þingmanna Alþýðu-
flokksins um lágmarkslaun (sjá efnisatriði umræðna hér á þing-
síðu) og þingsályktunartillaga um rannsóknarnefnd til að rann-
saka innkaupsverö á vörum o.fl. (framhaldsumræða).