Morgunblaðið - 01.02.1977, Page 29

Morgunblaðið - 01.02.1977, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRUAR 1977 29 Átta skip með yfir 4000 lestir: Grindvíkmgiir haest- ur með 4806 lestir HEILDARLOÐNUAFLINN var orðinn 104.133 lestir s.l. laugar- dagskvöld, en á sama tlma I fyrra var aflinn orðinn 54.809 lestir. Nú hefur 61 skip fengið afla, og höfðu jafn mörg skip fengið veiði á sama tíma f fyrra. Þrátt fyrir vonsku veður sfðustu viku, varð heildaraflinn samtals 28.288 lestir. Að þvf er segir f skýrslu Fiskifélags tslands eru átta skip nú komin með 400 lesta afla eða meira og er Grindvfkingur GK 606 hæstur með 4806 lestir, skip- stjðri Björgvin Gunnarsson, f öðru sæti er Guðmundur RE 29 með 4686 lestir, skipstjóri Hrðlf- ur Gunnarsson, og þriðja skipið f röðinni er Sigurður RE 4 með 4593 lestir, skipstjðri Haraldur Agústsson. I vikulokin hafði loðnu verið landað á 14 stöðum á landinu, og hefur mestu verið landað á Seyðisfirði eða 18.875 lestum, á Siglufirði var búið að landa 17.420 lestum, i Neskaupstað 13.750 lestum, á Raufarhöfn er búið að landa 13.716 lestum og á Vopnafirði 13.271 lest. Á öðrum stöðum var aflinn undir 10.000 lestum. Menn kynni sér fiskveiðimörkin MORGUNBLAÐINU barst I gær fréttatilkynning frá sjávarútvegs- ráðuneytinu, þar sem vakin er athygli á þvf, að fiskveiðiland- helgi Grænlands og Færeyja hef- ur verið færð út i 200 mílur. Segir í fréttatilkynningunni, að þar sem fjarlægð sé minni en 400 sjómilur milli íslands og áðurgreindra landa, ráði miðlína merkjum. Siðan segir, að þar sem íslenzk fiskiskip njóti ekki fiskveiðirétt- inda i fiskveiðilandhelgi Færeyja og Grænlands, séu skipstjórnar- menn hvattir til þess að kynna sér fiskveiðimörkin milli íslands og áðurgreindra landa. Sjómælingar Islands geti látið i té kort og veitt upplýsingar um fiskveiðimörkin. Hlutu styrk úr Sjóði Stefaníu Guðmundsdóttur VIÐ leiksýningu Þjóðleikhússins á Nótt ástmeyjanna var tilkynnt um að leikkonurnar Þóra Frið- riksdóttir og Kristin Anna Arn- grimsdóttir hefðu hlotið styrk úr Sjóði frú Stefaníu Guðmunds- dóttur leikkonu, og fékk hvor um sig 250 þúsund krónur. Eftirtalin skip voru búin að fá einhvern loðnuafla s.l. laugar- dagskvöld: GrindvlkingurGK 606 4806 Guðmundur RE 29 4686 Sigurður RE4 4593 BörkurNK 122 4539 EldborgGK 13 4390 Pétur Jónsson RE 69 4305 Glsli Arni RE 375 4243 Hiimir SU 171 4016 Súlan EA 300 3667 Skardsvlk SH 205 3176 örn KE 13 3112 Albert GK 31 2984 FlfillGK 54 2914 H &kon ÞH 250 2671 Asberg RE 22 2612 Rauðsey AK 14 2606 Arni Sigurður AK370 2406 Hrafn GK 12 2385 Helga II RE 373 2330 Huginn VE 55 2159 Sœbjörg VE 56 2159 Jðn Finnsson GK 506 2079 Þðrður Jðnasson EA 350 1964 Óskar Halldðrsson RE 157 1961 HelgaGuðmundsdöttirBA 77 1747 LofturBaldvinsson EA 24 1721 Kap II VE 4 1680 Freyja RE 38 1530 Hrafn Svelnbjarnarson GK 255 1506 Bjarni Ólafsson AK 70 1457 Magnús NK 72 1387 Gullberg VE 292 1293 Hunaröst AR 150 1278 Arsæll KE 77 1225 Svanur RE 45 932 Dagfari ÞH 70 915 Keflvfkingur KE 100 884 Helga RE 49 833 Gunnar Jónsson VE 555 797 Vörður ÞH 4 784 Guðmundur Jónsson GK475 675 Bylgja VE 75 656 Hilmir KE 7 570 Vfkurberg GK 1 562 Arnarnes HF 52 544 Flosi IS 15 443 Vonin KE 2 436 Faxi GK 44 408 Karl Sólmundarson RE 102 384 Snæfugl SU 20 378 Skógey SF 53 377 Sæberg SU 9 366 Ársæll Sigurðsson GK 320 283 Andvari VE 100 239 ólafur Magnússon EA 250 227 Nftttfari ÞH 60 221 Sigurbjörg OF 1 205 Bjarnarey VE 501 182 Sölvi Bjarnason BA 65 129 ReykjanesGK50 72 Geir Goði GK 220 46 Svæðið á Stranda- grunni opnað á ný A MIÐNÆTTI s.l. féll úr gildi bann við togveiðum á norðan- verðu Strandagrunni, en þessu svæði var lokað fyrir nokkru vegna mikils smáfisks, sem togar- ar fengu þar. Svæðið afmarkaðist af Cloranlfnum: 62400—62550 og 46880—47100. í fréttatilkynningu, sem sjávar- útvegsráðuneytið sendi frá sér í gær, segir, að hins vegar verði áfram í gildi bann við öllum veið- um á friðunarsvæðinu norður af Kögri, sem afmarkist af línum dregnum milli tilgreindra punkta með hliðsjón af C loranlinum: 62400—62550 og 46600—46880. Forstjóraskipti að Forstjðraskipti hafa nú orðið hjá Vinnuheimilinu að Reykja- lundi. Árni Einarsson, sem verið hef- ur forstjóri Vinnuheimilisins að Reykjalundi, lætur nú af störfum hjá fyrirtækinu eftir hartnær 30 ára farsælt starf, en Árni varð 70 ára fyrir skömmu. Vinnuheimilið að Reykjalundi hefur starfað frá strfðslokum og gegnum árin hefur þvf vaxið fisk- ur um hrygg, þannig að nú telst þetta með merkustu stofnunum þessa lands. Við starfi Arna tekur Björn Ástmundsson, sem verið hefur skrifstofustjóri og aðstoðarfram- kvæmdastjóri undanfarin ár. Björn er 31 árs að aldri og lög- fræðingur að mennt. Kona hans er Guðmunda Arnórsdóttir og eiga þau 3 börn. Reykjalundi Björn Ástmundsson SIGURJÓNI Ólafssyni myndhöggvara hefur verið falið að gera minn- ispeninga fyrir öll Norð- urlöndin sjö (Færeyjar og Grænland meðtalin) f hinni Norrænu listpen- ingaútgáfu fyrir næsta ár, sem danska fyrirtæk- ið Anders Nyborg stend- ur fyrir. f ár voru það sjö finnskir myndlistar- menn sem önnuðust gerð peninganna. í samtali við Morgun- blaðið í gær sagði Sigur- jón að hann hefði þegar lokið þessu verkefni, og væri hann þegar búinn að senda myndir sínar af peningunum utan. Pen- ingarnir væru gerðir í Finnlandi, og væri mikið vandaverk að vinna þá, svo að það þyrfti allt að árs fyrirvara fyrir hverja útgáfu. Sigurjón sagði, að af hálfu fyrirtækisins hefði þess verið farið á leit við hann að hafa eitt- hvað einkennandi fyrir hvert land á framhlið hvers penings en hins vegar hefði hann haft frjálsar hendur með bak- hlið peninganna. Þannig kvaðst Sigurjón hafa minnst þess á íslenzka peningnum að ein öld er liðin frá þvi að elztu vit- arnir voru reistir hér og á sama hátt einkenndi Sigurjón gerir næstur norrænu listsláttuna hann Færeyjapeninginn með kind og lambi. Varðandi fyrri peninga í þessari útgáfu kvaðst Sigurjón hafa veitt því eftirtekt að þeir væru margir hverjir of malerískir og hann hefði þvi sjálfur lagt áherzlu á að draga fram skúlptúr- formið i eins ríkum mæli og unnt hefði verið, en hins vegar væri þetta við- fangsefni á margan hátt mjög bindandi, bæði vegna lögunar pening- anna og eins af tæknileg- um ástæðum. Katla: Má búast við tíðindum í næstu jarðskjálftahrinu — segir Einar á Skammadalshóli — ÞESSI sfðasta hrina er alveg að fjara út og ég tel afar óllklegt að eldgos verði f Kötlu að þessu sinni. En það er áberandi hve orkan f jarðumbrotunum hefur aukizt ár frá ári allt frá 1970 og það kæmi mér ekki á óvart að til tfðinda drægi i næstu hrinu, kannski á þessu ári, sagði Einar Einarsson bóndi og náttúrufræð- ingur á Skammadalshóli f V- Skaftafellssýslu f samtali við Morgunblaðið f gær. Einar hefur um árabil fylgst með umbrotum f Kötlu og hann gætir jarðskjálftamælanna, sem mæla skjálfta á þessum slóðum. Einar sagði I samtalinu við Mbl. i © INNLENT gær, að smám saman hefði dregið úr skjálftunum á KÖtlusvæðinu, en þeir voru í hámarki fyrir jól. Kvaðst Einar hafa einmitt i fyrra- dag tekið auðan borða út úr mæl- inum eftir sólarhringinn, en slikt hefði ekki gerst i háa herrans tíð. — Siðasta hrina var svo skörp, að varla er að búast við gosi í þessari lotu fyrst eldurinn brauzt ekki út þegar umbrotin voru mest. En það má búast við tíðind- um í næstu hrinu ef þróunin verð- ur sú sama og verið hefur frá þvi árið 1970, og orkan í jarðumbrot- unum heldur áfram að aukast, sagði Einar að lokum. Hvammstangi: Vel heppnaðar hitaveituboranir Hvammstanga — 31. janúar SKORTUR hefur verið á heitu vatni á Hvammstanga og Lauga- bakka allt frá byrjun árs 1976, bæði vegna aukinnar upphitunar- þarfa og aukins húsnæðis, svo og einnig af þeirri ástæðu að vatn sem fékkst við borun fyrir nokkr- um árum hefur minnkað smám saman. Leiddi þetta til þess, að sl. haust var keypt dæla til að dæla vatni upp úr hitaveituholunum og fengust þá um 22 sek/lftrar, en hafa verður f huga að rekstur þessara dæla er töluvert kostnað- arsamur. Upp úr miðjum janúar var haf- izt handa um borun á hitaveitu- svæðinu og lauk þeim um síðustu helgi. Var þar boruð 10 tommu við hola í 240 metra dýpi og feng- ust um 20 sek/ lítrar sjálfrenn- andi af 98 gráða heitu vatni. Telja jarðborunarmenn að dæla megi úr holunni allt að 50 sek/ lítrum, svo að hitaveitumálum hér um slóðir ætti að vera borgið um næstu framtíð. — Karl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.