Morgunblaðið - 07.04.1977, Side 1
112 SÍÐUR
79. tbl. 64. árg. FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Sonur Maós
í baráttuna
Tokyo 6. apríl — AP.
STÆRSTA dagfilað Kína,
Dagblað alþýðunnar, dró í
dag son Maós Tse-tungs
inn í baráttuna gegn fjór-
um leiðtogum róttækra,
þar á meðal ekkju Maós,
sem sakaðir eru um að
hafa reynt að hrifsa til sín
völdin í iandinu.
Talið er að þetta sé í
fyrsta sinn, sem kínverskt
blað minnist á eitthvert
barna Maós. Dagblað alþýð-
unnar birti grein eftir son
Maós, Maó An-ching, og
tengdadóttur hans, Shao
Hua, þar sem þau lýsa því
yfir, að „þorpararnir fjórir
hafi svívirt marga bylt-
ingarsinnaða öreiga af
eldri kynslóðinni, sem
fylgdu Maó í byltingunni".
Voru fjórmenningarnir
kallaðir „nytsamir sakleys-
ingjar kapitalismans“.
Opinbera fréttastofan
Hsinhua, sem sagði frá
greininni, gaf engar nánari
upplýsingar um Maó An-
ching.
Indversk blöd
fá aftur frelsi
Nýju Deihí, 6. aprii. ap. Þetta er fyrsta meiriháttar
NEÐRI deild indverska frumvarp hinnar nýju stjórnar
þingsins samþykkti f dag
að fella úr gildi lög sem
takmörkuðu frelsi blaða og
hófst þar með handa um að
snúa við þeirri einræðis-
þróun sem hófst í stjórnar-
tíð frú Indiru Gandhi, fyrr-
verandi forsætisráðherra.
Frumvarp sem þetta var sam-
þykkt einróma. Lögin um tak-
markanir á frelsi blaðanna voru
sett fyrir 15 mánuðum þegar
Kongressflokkurinn hafði tvo
þriðju atkvæða á þingi. Nú studdi
Kongressflokkurinn frumvarpið
um niðurfellingu laganna og þar
með er vist, að það verður sam-
þykkt i efri deildinni þar sem
flokkurinn er enn í meirihluta.
112 síðna
páskablað
MORGUNBLAÐIÐ í dag er
þrjú blöð, samtals 112 síður, og
er þetta stærsta útgáfa blaðsins
til þessa. í dag eru borin út
páskablöð I og III, en blað II
var borið út á þriðjudaginn. Þá
kom út 24 siðna páskalesbók á
pálmasunnudag.
Frá efni páskablaðs II var
skýrt á forsiðu þriðjudags-
blaðsins, en meðal efnis blaða I
og III má nefna grein eftir
Herdisi Þorgeirsdóttur um
komu itölsku flugkappanna
1933, Þórleifur Ólafsson
skrifar um manninn, sem reisti
fyrsta íshúsið hér á landi,
Magnús Finnsson skrifar um
Goðafossslysið 1944, Sigtryggur
Sigtryggsson um sements-
ferjuna sem áður var innrás-
arprammi í Normandy. og
Tryggvi Gunnarsson skrifar
grein um þá frægu á Herdfsar-
vfkur-Surtlu. Áslaug Ragnars
Morarji Desais forsætisráðherra
og samþykkt þess er táknræn
fyrir þá miklu breytingu sem
hefur orðið siðan Kongressflokk-
urinn tapaði þingkosningunum
fyrir þremur vikum.
Samkvæmt lögunum, sem nú
verða felld úr gildi, var bannað
birta efni sem vekti hatur og
fyrirlitningu á stjórninni eða
óánægju með hana. Bannað var að
birta efni sem væri talið niðrandi
fyrir forsetann, varaforsetann,
forsætisráherrann eða þingfor-
setann. Lögin kváðu á um að
menn yrðu fangelsaðir i allt að
eitt ár, að hald væri lagt á prent-
vélar og fjandsamleg rit og að
greidd yrði trygging til að sporna
við endurteknum brotum.
jfHorðWtbla&tþ
skrifar grein um sænska
málarann Carl Larsson og
Freysteinn Jóhannsson viðtal
við danska skáldið og vist-
fræðinginn Thorkild Björnvig.
Þá má nefna þrjár sfður af
efni fyrir börnin, kynningu á
dagskrám útvarps og sjónvarps
um páskana, messur og
fermingar, og minnisblað
lesenda, sem er á bls 3.
Þess skal getið að efni sumra
páskagreina blaðamanna
Morgunblaðsins er sótt i liðna
atburði.
Sfmamynd AP.
Bundnir fangar sýndir almenningi I Wuhan I Kfna. Spjöld með áietruðum nöfnum og afbrotum
fangana eru fest framan á þá. Myndin er tekin af ferðamanni I Wuhan.
Judd ráðherra með
Gundelach til íslands
—enn engin tilmæli frá EBE um viðræður
SAMKVÆMT heimildum
Morgunblaðsins í Bretlandi hefur
verið ákveðið að Frank Judd
aðstoðarutanrfkisráðherra í
brezku stjórninni verði í fylgd
með Finn Olav Gundelach í fyrir-
hugaðri Islandsför, sem farin
verður að frumkvæði Efnahags-
bandalagsins á næstunni.
Frank Judd sagði f gær að
bandalagið yrði að freista þess að
ná samningum við tslendinga um
fiskveiðar, vegna þeirra alvarlegu
afleiðinga sem ástandið s.l. fióra
Fiskleysi
í Bretlandi
Hull. 6. aprll. AP.
Fiskleysi er svo mikið I brezku
hafnarbæjunum að til vandræða
horfir vegna mikillar eftirspurn-
ar fyrir páska.
Aðeins nokkur hundruð lestir
hafa borizt á land og fiskverð
hefur aldrei verið hærra á þessu
ári vegna eftirspurnarinnar.
Aðeins einn togari er f Hull og
hann landar aðeins 140 tonnum
sem er hvergi nærri nóg til að
mæta eftirspurn.
í Grimsby lönduðu fimm skip,
en aðeins um 280 tonnum. í gær
iönduðu togararnir Benella og
Westella og fengu aðeins 7.800
pund og 18.000 pund fyrir aflann
en þurftu að fá 30.000 pund svo að
veiðiferðin borgaði sig.
í hafnarbæjunum binda menn
vonir við nýja tilraun Finns Olovs
Gundelachs, fiskimálafulltrúa
EBE, til þess að koma af stað
viðræðum við íslendinga.
mánuði hefði haft fyrir fiskveiði-
þjóðir innan bandalagsins, og
væri þar ekki um Breta eina að
ræða.
Þegar Morgunblaðið innti
Matthías Bjarnason sjávarútvegs-
ráðherra eftir þvi i gær, hvort
borizt hefðu tilmæli um viðræður
frá Efnahagsbandalaginu um
fiskveiðimál, sagði hann að svo
væri ekki. Á hinn bóginn kvaðst
hann fastlega búast við þvi að
íslenzk stjórnvöld yrðu við slíkri
ósk, þegar og ef hún kæmi fram
af hálfu bandalagsins.
Frá Hull berast þær fregnir, að
dymbilvikan í ár hafi verið ljós-
asta dæmið um hallæri í brezkum
sjávarútvegi i manna minnum. 1
dymbilviku er venjulega mjög
mikið um landanir í fiskveiði-
bæjunum, en á föstudaginn langa
er viðtekin venja að fiskur sé á
boróum á flestum heimilum. Mest
hefur jafnan verið um landanir á
Falsaðir doll-
ara seðlar
Pagham, 6. aprfl. Reuter.
BREZKIR lögreglumenn og
bandariskir leyniþjónustu-
starfsmenn hafa komið upp um
mestu peningafölsun i Bret-
landi og handtekið menn úr
glæpahring sem talið er að hafi
teygt anga sina til Frakklands,
Þýzkalands, Hollands og
Bandarfkjanna.
Fölsuðu peningunum var
dreift á ferðamannamarkað f
löndunum sem glæpahringur-
inn starfar i.
miðvikudag fyrir páska, en í gær
landaði aðeins einn togari i Hull.
í fyrra lönduðu fjórir togarar á
sama degi og tiu fyrir tveimur
árUm.
Afli hefur verið mjög tregur á
þeim fjarlægu miðum, sem Bretar
hafa enn aðgang að, og fyrir
skömmu lagði útgerðarfyrirtækið
MARR tveimur síðustu togurum
sinum, og var áhöfnum þeirra —
sextiu mönnum — sagt upp í
fyrradag.
Fiskleysið á markaði í Bret-
landi hefur haft þau áhrif að fisk-
verð hækkar stöðugt og úr
togaranum, ,sem landaði i gær,
seldist 70 kg aflaeining á 47
sterlingspund, sem er helmingi
hærra en meðalverðið fyrir
nokkrum mánuðum.
Otakmörkud
mannréttindi
handa sumum
Prag 6. aprfl — NTB.
tbúar Tekkóslóvakíu hafa
ótakmörkuð mannréttindi, svo
fremi sem þeir vinna ekki
gegn samfélaginu, sagði for-
seti hæstaréttar Tekkó-
slóvakfu, Jan Fedes, f ræðu f
gær. Þessari yfirlýsingu hans
var auðsjáanlega beint til
þeirra, sem undirritað hafa
mennréttingayfirlýsingu ’77
og staðið hafa i mannréttinda-
baráttunni i landinu að undan-
förnu.
„Yfirvöld ábyrgjast ekki
réttindi þeirra, sem halda
uppi andsósialfskum áróðri og
standa fyrir starfsemi gegn
ríkinu.” sagði Fedes.