Morgunblaðið - 07.04.1977, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 07.04.1977, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRtL rt77 Umsjón: Rúna Gfsladóttir og Þórir S. Guðbergsson. Barna- og fjölskyldusíða Morgunblaðsins Paskar— Sigurhátíð FLESTIR þekkja söguna um pinu og dauða Jesú, samt gleymist hún svo oft i erli og önnum. Sgaan um sigurinn mikla, þegar Jesús reis upp frá dauðum hljómar í landi okkar ár eftir ár, samt er harla lítið rætt um hann manna á meðal. Er hann sannleikur eða lygi, raun- veruleiki eða uppspuni! Trúi ég eða trúi ekki? Þannig spyrja menn enn á okkar dögum nákvæmlega eins og á dögum Jesú — og þannig munu menn halda áfram að spyrja, því að hér er fyrst og fremst um trú að ræða og traust til þess, sem maður les, heyrir og reynir sjálfur. Lærisveinarnir forðum voru menn eins og við, með mannlegar tilfinningar og viðbrögð eins og við sjáum i frásögn Nýja testamentisins. Þegar Jesús var handtekinn og krossfestur tvístruðust lærisveinarnir. Skömmu áð- ur hafði Júdas svikið vini, sina og leiðtoga sinn. Pétur afneitaði Jesú i hallargarðin- um og þóttist ekka þekkja hann. Og flestir þeirra fóru huldu höfði Þeir þorðu ekki að láta sjá sig á almanna færi. Þeir voru sorgmæddir og sárir. Þeir höfðu orðið fyrir miklum vonbrigðum. Þeir voru í sannleika hrædd- ir og óöruggtr. Þeir vissu ekki hvað beið þeirra. Óviss- an nagaði hjörtu þeirra. En vorið var komið. Nátt- úran hafði lifnað af dvala. Trén voru að laufgast og blómin að spnnga út. Eftir erfiða og langa daga biðu þeirra ný og óvænt gleðitið- indi. „ María Magdalena varð fyrst út að gröfinni. Hún kom döpur og sorgmædd, en flýtti sér þaðan með fargnaðartíðindm. Pétur og Jóhannes hlupu út að gröf- inni og sannfærðust á sama hátt. Tveir af lærisveinunum voru á leið til Emmaus, þeg- ar þeir mættu hinum kross- festa og upprisna og sama dag birtist hann fleiri læri- sveinum, stóð mitt á meðal þeirra og sagði: Friður sé með yður; Jesús var upprisinn. Hann hafði sigrað dauðann. Verk- ið var fullnað. Sigurinn var unninn. Gröfin var tóm; Hann var þar ekki lengur. Jesús var risinn upp frá dauðum; Og páskarnir urðu hinum kristnu sannkölluð gleðihátíð Mynd frá Anneki Hitzler, 7 ára, Hlíðaskóla, Reykjavík. Hún kallar þessa mynd sína: ÆR MEÐ VORLÖMB. Börnin í kirkiunni MIKIL alvara hvíldi yfir öllum á kristniboðsstöð einni I Afrfku. Kristniboðinn var veik- ur, og tvísýnt var um líf hans. Hann hafði háan hita, sem stöð- ugt jókst, og kvalirnar urðu sffellt meiri og meiri. Og engan lækni var hægt að fá til hjálpar. Negrabörnin, sem bjuggu hjá kristniboða-hjónunum á stöð- inni og I nálægum kofum, engu um fyrir utan húsið, hljóð og hrædd. Við og við komu þau f dyragættina á herberginu þar sem kristniboðinn lá, til að fá að frétta, hvernig „pabba“ liði. Allt f einu var barið varlega að dyrum aftur. Kona kristni- boðans opnaði, og svart, hrokk- ið höfuð birtist f gættinni. „Mamma, viltu gjöra svo vel að lána okkur lykilinn að kirkjunni?“ „Hvað ætlið þið að gera við hann?“ spurði hún og leit yfir allan barnahópinn, sem stóð f ganginum fyrir framan. „Við verðum að fá hann,“ svöruðu þau. Þau báðu svo vel og voru öll alvarleg á svip, svo að hún hafði ekki brjóst f sér til að neita þeim um þetta. En hana langaði mikið til að vita, hvað þau hygðust fyrir. Stundarkorni sfðar fór hún sjálf út f krikjuna til þess að gæta að börnunum. Hún opnaði dyrnar hljóðlega og leit inn fyr- ir. Þarna inni lágu öll börnin á hnjánum og báðu heitt og inni- lega til Guðs um að hann tæki ekki frá þeim „pabba“, sem þeim þætti öllum svo vænt um, heldur leyfðu honum að verða heilbrigðum aftur. Hún lét hurðina falla hljóð- lega að stöfum aftur, til þess að trufla ekki. En þegar hitinn lækkaði sfðar sama dag, var hún þess fullviss, að Guð hefði bænheyrt börnin. Og frá þess- um degi kom batinn furðu fljótt, og bráðlega var „pabbi" kominn á fætur og gat verið með börnunum eins og áður. Sj£ X'h Páska- mynd frá Þóru Sif 7 ára Vestur- bergi 26, R. Páskar TIL hvers — hvers vegna — síðan hvenær höldum við páska? Margar spurningar kunna að vakna hjá börnum jafnt sem fullorðnum í kring- um slíkar stórhátíóir, en allt of fáir koma þeim á framfæri. Ekki væri úr vegi t.d., að ein- hver úr fjölskyldunni tæki fram alfræðiorðabók og fletti upp á þessu orði -páskar-. Síðan gæti gefist tækifæri til þess að ræða um þessa miklu hátíð kristinna manna um heim allan og/eða ýmsa siði, sem myndast hafa um þetta leyti árs í hinum ýmsu löndum, m.a. íslandi. — Það er oft erfitt að svara börn- um í sambandi við trúmál og kristindóm. Bæði kristnum og ekki kristnum getur reynst og fjölskyldan erfitt að útskýra dauða og upp- risu Jesú, en þó sennilega mun erfiðar þeim síðarnefndu. Reynum umfram allt að bregð- ast ekki trausti barna okkar. Þeim býr alvara í brjósti og æskja þess að við svörum í sömu mynt. Kristnum mönnum er styrkur í trúnni, og þetta er sigurhátíð kristinnar kirkju. Einnig er gott að rifja upp með börnunum, hvernig haldið var upp á páska hér-áður fyrr. Síðan er unnt að ræða um hvað á að gera, hvert á að fara og hvenær. Á að fara í kirkju, í heimsókn, í ferðalag o.s.frv. Hvenær á að fara og hvernig á að undirbúa það? Ef fara á í ferðalag þarf að ganga vel frá öllum útbúnaði, kynna sér að- stæður og veðurútlit o.s.frv. og gæta allra varúðarráðstafana, sem þörf er á. Möguleikarnir eru margir og af miklu er að taka.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.