Morgunblaðið - 07.04.1977, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 07.04.1977, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRIL 1377 Framhald af bls. 14 skýrði hann svo frá, að þá er keilubúðarhúðlendingar heyrðu dyninn af flugvélum fasista yfir höfði sér, urðu þeir gagnteknir slíkum fögnuði og hrifningu, að bláókunnugir menn ruku hver að öðrum á strætum og gatnamótum höfuðstaðarins og kystust grát- andi.“ t , ■ ^ Balbo tiugmarskaikur gengurá land Balbo talar við blaðamenn. Einstæður viðburður í sögu landsins A fslandi biðu menn i ofvæni eftir komu flotans. Hingað var sendur verkfræðingur til þess að sjá um afgreiðslu á bensfni og smurningsolíu. Jes Zimsen konsúll og forstjóri hins islenzka Steinolíufélags, sá um geymslu birgðanna, sem voru 83 smálestir af bezta fáanlega bensíni á mark- aðinum og 4 smálestir af smurningsoliu og höfðu Italirnir leigt hér þrjátíu vélbáta til að flytja bensínið og olíuna um borð i vélarnar inni'á Kleppsvík. Tveir enskir togarar, sem staddir voru í Reykjavík skyldu vera itölsku flugvélunum til aðstoðar ef á þyrfti að halda á leiðinni milli Færeyja og tslands. Til marks um spennuna, sem ríkti i Reykjavík fyrir komu flugsveitarinnar er nóg að fletta upp í Morgun- blaðinu, 2. júlí 1933, en þar segir m.a.: „Sjálfsagt er að Reykvíking- ar fagni svo vel sem kostur er á svo einstakri og merkilegri heim- sókn sem flug ftalanna er. Koma þeirra er einstæður viðburður I sögu landsins og getur haft sér- stæða þýðingu um það, hvort ein af aðalflugleiðum heimsins á að liggja um Island.“ Síðan hvatti blaðið bæjarbúa til að draga fána að hún á öllum fánastöngum bæjarins og að almenningur byði þá velkomna með því að veifa til þeirra fagnaðarkveðjum, þegar þeir flygju yfir borgina. Og óhætt er víst að segja að ekki þurfti að endurtaka þá hvatningu. Allur fuglinn flúði... „Eftir sex stunda flug lentu þær allar, 24 talsins, heilu og höldnu I sundunum innan við Reykjavík," segir í undirfyrir- sögn Morgunblaðsins við komu itölsku flugsveitarinnar. Einn blaðamaður Morgunblaðsins, Árni Óla, hafði komið sér fyrir uppi á þaki simahússins og skim- aði til lofts ásamt hundruðum annarra. Um hádegi daginn áður, eða hinn 5. júli, kom skeyti þess efnis að flugmennirnir væru Iagð- ir af stað frá Londonderry á Irlandi í flug sitt til Reykjavikur. Veðurútlitið var vægast sagt slæmt, stormur og dimmviðri yfir hafinu. Um leið og þessar fregnir bárust vildi almenningur i Reykjavík ólmur fylgjast með feiðum flugsveitarinnar og var símað stanslaust til Morgunblaðs- ins til að leita upplýsinga. Klukk- an fjögur síðdegis fóru fyrstu níu flugvélarnar fram hjá Vest- mannaeyjum, tíu mínútum síðar fóru sjö þær næstu og klukkan 4.30 þær síðustu. Fólk hafði hópast upp á öll hús- þök, sem kleif voru og þar sem nokkur von var að sjá til flugvél- anna. Öll skip í höfninni voru skreytt viðhafnarfánum og fánar dregnir að hún víðast hvar um bæinn. Inn í Vatnagarða, þar sem vélarriar skyldu lenda, streymdu þúsundir manna. „Þegar hinar tuttugu og fjórar ítölsku vélar loks renndu yfir sundin klukkan fimm siðdegis, norður yfir Vatnagarða flúði allur fuglinn úr Engey og Viðey i skelf- ingu að því er virtist undan þess- um ógnþrunga loftþrýsingi og glamri," sagði Árni Óla, þegar hann var spurður um þetta atvik. „Annars er orðið svo langt um liðið, sfðan Balbo og flugsveitin hans komu hingað og ég fylgdist með á þaki símahússins. Maður var bara stráklingur þá.“ Hvað gamall?" „Ja, ætli maður hafi ekki verið rétt um fimmtugt." Gorgeirinn í ítölum óþolandi Klukkan 7 kom Balbo loks að bryggjunni. Bátur sá, er sótti hann út i flugskipið, var fánum Frá Þingvallaför Balbo og flugmannanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.