Morgunblaðið - 07.04.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ hefur að venju leitað upplýsinga,
sem handhægt getur verið fyrir lesendur þess að grfpa
til um páskahátfðina og bænadagana.
SLYSADEILD Borgarspftalans er opin allan sólar-
hringinn, sími 81212.
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík, simi 11100, í Hafnar-
firði sími 51100.
LÖGREGLAN i Reykjavík, sími 11166, upplýsingasími
11110, i Kópavogi sími 41200 og í Hafnarfirði sími
51166.
SJÚKRABIFREIÐ í Reykjavik simi 11100, i Hafnar-
firði sími 51100.
LÆKNAVARZLA — Nætur- og helgidagavakt er
fram til klukkan 08 á þriðjudagsmorgun, 12. apríl í
síma 21230.
(t%t3
TANNLÆKNAVARZLA — Neyðarvakt verður i Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg alla bæna- og helgidagana frá klukkan 14 til 15, nema á laugardag fyrir páska, þá er vakt frá klukkan 17 til 18.
QQ 0 ð'i
LYFJAVARZLA — A skírdag verður opið i Borgar- apóteki, en föstudaginn langa og alla hátiðisdagana verður opið í Holts Apóteki. Laugavegsapótek verður einnig opið á laugardag fyrir páska til klukkan 22. MESSUR, sjá messutilkynningar á öðrum stað í blað- inu. UTVARP — SJÓNVARP, dagskráin er birt á öðrum stað í blaðinu.
cf I 0 ( tifs* 0 j V^Tj /nrm~
BILANIR á hitaveitu og vatnsveitu skal tilkynna til
Vélamiðstöðvar Reykjavikurborgar, en þar verður
vakt alla hátfðardagana í síma 27311. Simabilanir
tilkynnist i sima 05.
SÖLUTURNAR verða opnir eins og venjulega á skír-
dag, laugardag fyrir páska og á annan i páskum. Hins
vegar eru þeir lokaðir á föstudaginn langa og á
páskadag.
VERZLANIR verða lokaðar frá og með skírdegi til og
mað annars í páskum. Þó verður opið frá 09 til 12 á
laugardegi. Þá verður mjólkurbúð Mjólkursamsölunn-
ar á Laugavegi í Mjólkurstöðinni opin á skírdag frá 09
til 12, laugardag fyrir páska á sama tima og eins á
annan í páskum frá klukkan 09 til 12. Ennfremur
verða nokkur brauðgerðahús, sem selja einnig mjólk,
opin að einhverju leyti yfir hátiðarnar.
BENZÍNAFGREIÐSLUR verða opnar á skirdag frá
klukkan 09.30 til klukkan 11.30 og frá klukkan 13 til
18. Á föstudaginn langa er lokað, en á laugardag fyrir
páska er opið eins og venjulega frá klukkan 07.30 til
21.15. Stöðvarnar eru lokaðar á páskadag, en opnar á
annan í páskum frá klukkan 09.30 til 11.30 og frá
klukkan 13 til 18.
STRÆTISVAGNAR Reykjavíkur verða i förum á skir-
dag eins og um sunnudag væri að ræða. Á föstudaginn
langa hefst akstur klukkan 13 og er ekið eftir það
samkvæmt tímatöflu sunnudaga. Á laugardag hefst
akstur á venjulegum tíma og er ekið allan daginn
samkvæmt venjulegri tímatöflu laugardaga. Á páska-
dag hefst akstur klukkan 13 og er ekið eftir það
samkvæmt timatöflu sunnudaga. Akstri á annan í
páskum er háttað sem um sunnudag væri að ræða.
STRÆTISVAGNAR Kópavogs — Á skírdag og á ann-
an í páskum hefst akstur vagnanna um klukkan 10 og
er ekið samkvæmt tímaáætlun helgidaga í leiðabók
vagnanna. A laugardag fyrir páska er ekið sem á
venjulegum laugardegi, en á föstudaginn langa og á
páskadag hefst akstur vagnanna klukkan 14 og er þá
ekið samkvæmt timaáætlun helgidaga í leiðabók vagn-
anna.
REYKJAVlK — HAFNARFJÖRÐUR, Landleiðir hf :
Akstri vagnanna verður hagað á laugardag fyrir páska
sem um venjulegan laugardag væri að ræða. Hina
dagana verður akstur eins og á sunnudegi. Hefst hann
klukkan 10 á skírdag og á annan í páskum, en klukkan
14 á föstudaginn langa og á páskadag.
Allar upplýsingar
HÓPFERÐIR1977
um Útsýnarferðir
1977 eruí
Ú tsýnarblaðinu
sem fylgdi
Mor gunblaðinu ^ ^
Ferðaskrifstofan
fJTSÝH.
Austurstræti 17,
símar 20100 — 26611