Morgunblaðið - 07.04.1977, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 07.04.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1977 5 Úr myndinni, Óttinn etur sálina Föstudaginn langa kl. 20.35: það fyrsta í þessum dúr, en fyrir það fékk hún verð- laun í Cannes, 1974. Sá sem leikur Marokkóbúann, E1 Hedi Salem, er Arabi og las ég einhvers staðar að hann hefði lært að lesa og skrifa af sjálfum sér. Leikstjór- inn er einnig frægur, Reiner Werner Fassbind- er. Veturliði sagði einnig að kvikmyndagerð Þjóðverja og Frakka hefði farið nokk- uð fram á siðustu árum og bjóst hann e.t.v. við að fleiri myndir frá þessum löndum yrðu teknar til sýn- inga í sjónvarpinu á næstu misserum. Ágætlega gerð kvikmynd ÓTTINN etur sálina nefn- ist þýzk kvikmynd, sem er á dagskrá á föstudaginn langa kl. 20:35 og er hún frá árinu 1974, Angst essen Seele auf, eins og hún heit- ir á þýzkunni. Veturliði Guðnason, yfirþýðandi sjónvarpsins, hefur þýtt myndina og sagði hann að það væri alveg óhætt að mæla með henni. Hún var sýnd sem mánudagsmynd í Háskólabiói fyrir nokkru og fjallar hún um roskna ekkju, sem á uppkomin börn. Hún giftist aftur ungum verkamanni frá Marokkó, þrátt fyrir and- stöðu barna sinna og vina. — Þetta er ekki leiðin- legt, sagði Veturliði, sú gamla gæti alveg eins verið til hér hjá okkur og að því leyti stendur þessi mynd ekki svo fjarri okkur. Myndin sneiðir að vanda- máli, sem stendur okkur jafn nálægt og þjóðverjum, fólk er fordómafullt hvar sem er. Sú sem leikur gömlu konuna, Birgitte Mira, var gamanleikkona á árum áður og er þetta hennar fyrsta hlutverk eft- ir nokkurt hlé og jafnframt Sjá umsagnir um dagskrá útvarps og sjónvarp's — bls. 26 og 27 Leikrit vikunnar: Tuttugu mínútur með engli KLUKKAN 20:05 á skifdagskvöld hefst flutningur leikritsins „Tuttugu mfnútur með engli“, eftir Alexander Vapilof ug Árni Bergmann hefur þýtt. Mun hann jafnframt flytja nokkur inn- gangsorð. Leikstjóri er Gfsli Halldórsson og með hlutverkin fara: Guðmundur Pálsson, Jón Hjartarson, Kjartan Ragnarsson, Steindór Hjörleifsson, Sigurður Karlsson, Ragnheiður Stein- grfmsdóttir og Sigrfður Ilagalfn. Umsögn leiklistardeildar út- varpsins um höfundinn og leikrit- ið fer hér á eftir: „Tveir hressir náungar, annar bilstjóri, hinn sölustjóri, eru á ferð úti á landi og gista á litlu hóteli. Drykkjarföng þrýtur, en þeim finnst þeir ekki geta án þess verið að fá sér a.m.k. eina flösku af vodka. Vandinn er bara sá, að þeir eiga ekki fyrir henni. Þeir velta fyrir sér, hvernig þeir eigi að ná i peninga og reyna ýmis ráð. Ekkert dugar, fyrr en grunsam- legur náungi birtist á sjónarsvið- inu og býðst til að lána þeim. Þetta leikrit Vampilofs er úr syrpu sem nefnist „Skritlur úr dreifbýlinu". Það er gamansamt og ekki laust við ádeilu á það sem miður fer i þjóðfélaginu. Höfund- urinn var einn þeirra manna, sem enginn tekur eftir fyrr en þeir eru allt i einu farnir að skrifa einhver ósköp, sem fólki finnst gaman að. En ferill hans varð skemmri en vænta mátti. líann drukknaði í stöðuvatni í Síberiu fyrir um það bil tveimur árum.“ Fjóri r beztu í H i — Fi.. E 3 ENWOOD sksoss* TEAC. KENWOOD magnarar með eða . án útvarps, 1 5 gerðir verðfrá kr. 42.950. « 'H i * i\ 'i> uit ' f ■? TEAC „Dolby" kassettu- segulbandstæki, 7 gerðir, verð frá kr. 85.700. KENWOOD plötuspilarar, 5 gerðir verð frá kr. 44.500. AR hátalarar, 7 gerðir, verð frá kr. 24.510 KOSS heyrnartæki, 2/4 rása, 23 gerðir, verðfrá kr. 10.070 KENWOOD „Dolby" kassettu- segulbandstæki, 3 gerðir, verð frá kr. 95.000 TEACK segulbandstæki með eða án dbx eða „Dolby”, 7 gerðir, verð frá kr. 191.600. KENWOOD hátalarar, 6 gerðir, verð frá kr. 26.140. FALKIN N Suðurlandsbraut 8, sími 84670.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.