Morgunblaðið - 07.04.1977, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRlL 1977
9
Asgeir
stolid úr
fólksbíl
RANNSÓKNARLÖGREGLUNNI
f Hafnarfirði barst nýlega til-
kynning um það að öilu innvulsi
fðlksbifreiðar hefði verið stolið,
þar sem bifreiðin stóð á Hval-
eyrarholti eftir árekstur.
Þetta er græn Saab-
fólksbifreið, árgerð 1966. Hafði
hún verið skilin eftir á afleggjara
að fiskhjöllum, en þegar átti að
vitja hennar gripu menn nánast í
tómt. Ekkert var eftir nema
,,beinagrindin“, búið var að stela
vélinni, gírkassa, sætum, hjólum,
mælum, klæðningum o.s.frv. Það
sást til manna vera að rífa bílinn í
sundur og eru þeir beðnir að gefa
sig strax fram við lögregluna svo
og vitni að atburðinum, og þeir
aðrir, sem upplýsingar geta veitt í
málinu.
Sýning í Háhóli
Akureyri 6. apríl.
Ragnheiður Jónsdóttir, listmál-
ari, opnar grafíksýningu í Gallerí
Háhól klukkan 21 i kvöld. Þar
sýnir hún 46 verk.
Sýningin verður opin páskadag-
ana, klukkan 15 til 22, og virka
daga klukkan 18 til 22. Sýning-
unni lýkur 15. april.
Sv.P.
Fimmta umferðin var tefld i
fyrrakvöld og urðu úrslit þau, að
Jón L. Árnason vann Gunnar
Gunnarsson, Margeir Pétursson
vann Þröst Bergmann og Ásgeir
Þ. Arnason vann Björn Þorsteins-
son. Skák Ómars Jónssonar og
Gunnars P’innlaugssonar fór í bið
en skákum Helga Ólafssonar og
Þóris Ólafssonar, Júlíusar Frið-
jónssonar og Hilmars Karlssonar
var frestað. Ætlar Helgi að halda
áfram þátttöku í mótinu þrátt fyr-
ir slæmt ökklabrot, sem hann
hlaut í fjallgöngu i fyrradag.
í gærkvöldi átti að tefla 6. um-
ferð í landsliðs- og áskorenda-
flokki. Sjöunda umferðin verður
tefld í dag klukkan 13.30, áttunda
umferðin á morgun, föstudaginn
langa, klukkan 13.30 og níunda
umferðin á laugardag klukkan
13.30. Biðskákir verða tefldar á
páskadag en tíunda umferð á ann-
an páskadag klukkan 13.30 og ell-
efta og siðasta umferðin þriðju-
dag eftir páska, og hefst hún
klukkan 19.30.
Pólýfónkórinn á sfingu — i litlu myndunum, sem felldar eru Inn f þi stóru, eru einsöngvararnir,
Ann-Marie Connors og Keith Lewis. Ljðsm. rax.
Fyrstu hljómleikar
Pólýfónkórsins í dag
Klukkan 14 í dag verða
fyrstu hátíðarhljómleikar
Pólyfónkórsins í Háskóla-
bíói. og verða flutt verk
eftir Vivaldi, Bach og
Poulena.
í gærmorgun voru brezku ein-
söngvararnir á æfingu með kórn-
Nær 1500
lendis og á
íslendingar er-
fjórda hundr-
að í ferðum innanlands
EFTIR því sem Morgunblaðið
kemst næst mun láta nærri að um
1500 íslendingar verði erlendis á
páskunum 1 hópferðum sem
helztu ferðaskrifstofurnar
gangast fyrir. Lang fjölmennasti
hópurinn dvelst á Kanaríeyjum
eða um 1000 manns, um 250 til
300 á Spáni, 100 f London, 70 á
Norðurlöndum og um 40 ls-
lendingar eru I hópferð 1 Grikk-
landi. Þá munu á fjórða hundrað
manns vera þátttakendur 1
ferðum ferðaskrifstofa og ferða-
félaga hér innanlands um pásk-
ana.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk hjá Ferða-
skrifstofunni Útsýn eru á hennar
vegum um 130 manns á Costa del
Sol um páskana, um 60 manns á
Kanaríeyjum, 70 manns í hóp-
ferðum til Norðurlanda, um
40—50 manna hópur verður i
London en hérinnan lands munu
um 70 manns dveljast á Húsavík á
vegum Útsýnar um páskana við
skiðaiðkanir og fleiri
skemmtanir.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk hjá Ferða-
skrifstofunni Úrval þá munu
nálægt því um 500 manns dveljast
á Kanaríeyjum á vegum fjögurra
aðila — Úrvals, Útsýnar, Land-
sýnar og Flugleiða — og þar af
Kabarett-bingó
KVENNADEILD styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra heldur sitt
árlega kabarett-bingó f Sigtúni f
kvöld klukkan 20. Stjórnandi
verður Svavar Gests. Húsið verð-
ur opnað klukkan 19 og er þvf
vissara fyrir fólk að koma tíman-
lega, þvf að undanfarin ár hefur
fólk þurft frá að hverfa.
Verðmæti vinninga er 800 þús-
und krónur, en þar á meðal eru
þrjár utanlandsferðir, dvöl í
skíðaskálanum í Kerlingar-
fjöllum, fjöldi málverka, veiði-
leyfi, vöruúttektir, rafmagns-
vörur o.fl. Skemmtiatriði verða
þau að Ömar Ragnarsson skemmt-
ir við undirleik Magnúsar Ingi-
marssonar og ennfremur kemur
fram sönglagatríóið Bónus, sem
Ingveldur .Ólafsdóttir, Jóhanna
Linnet og Gunnar Friðþjófsson
skipa. Spilaðar verða 18 umferðir
og er engin undir 20 þúsund krón-
um að verðmæti.
Kvennadeildin treystir á fólk að
það komi og sýni málefninu
stuðning.
INNLENT
væru beinlfnis um 200 manns þar
á vegum Úrvals. Þá verða um 60
manns á Mallorka og 50 manna
hópur í London en hér innan-
lands munu 60 manns verða á
skíðahótelinu í Hlíðarfjalli um
páskana.
Á vegum Sunnu verða milli 50
og 60 manns á Mallorka, 40
manna hópur í Grikklandi og
milli 200 og 300 manns verða á
Kanaríeyjum. Á vegum Sam-
vinnuferða verða síðan um 130
manns á Kanaríeyjum.
' Hér innanlands gangast bæði
Ferðafélag íslands og Utivist
fyrir hópferðum. Á vegum Ferða-
félagsins eru 2 fimm daga ferðir
auk dagsferða alla frídaga pásk-
anna. önnur fimm daga ferðin er
í Þórsmörk og er gert ráð fyrir um
100 þátttakendum þar en hin
ferðin er i öræfasveit en óljósara
var um fjölda þátttakenda i
henni. Um 100 manns verður lika
í 5 daga ferð Útivistar um
Snæfellsnes en einnig verða
stuttar gönguferðir alla hátíðar-
dagana.
um og hljómsveitinni, þau Ann-
Marie Connors og Keith Lewis.
Ann-Marie Connors er frá Bret-
landi, 25 ára sópransöngkona, og
hefur hún stundað reglubundið
söngnám frá 13 ára aldri. Nítján
ára hlaut hún styrk til náms i
Royal College of Music, þar sem
henni voru veitt gullverðlaun sem
bezta nemanda skólans, og hefur
hún siðan unnið til fjölda verð-
launa. Keith Lewis er tenór frá
Nýja-Sjálandi, en hann hefur far-
ið með sigur af hólmi i mörgum
söngkeppnum. Hann hefur komið
fram á sjálfstæðum tónleikum á
Nýja-Sjálandi og Bretlandi og
sem einsöngvari í óratóríum og
óperum. Að sögn Ingólfs
Guðbrandssonar, sem stjórnar
þessum 200 manna hópi lista-
manna, hefur miðasalan gengið
vel og er alveg uppselt á tónleik-
ana á föstudaginn langa og svo til
uppselt á hina tvo, en hægt verð-
ur að fá miða við innganginn, í
dag og á laugardag.
Hitaveitu-
stjóri Akur-
eyrar ráðinn
Akureyti 6. aprfl.
Bæjarstjórn Akureyrar kaus
hitaveitustjóra fyrir Hitaveitu
Akureyrar á fundi sínum i gær,
Var kosinn Gunnar Sverrisson
verkfræðingur með 10 samhljóða
atkvæðum, en áður hafði hita-
veitunefnd orðið sammála um að
mæla með honum i stöðuna. Um-
sækjendur voru 16. SvP-
Bræðrafélag Dómkirkju:
Fjórir dómkirkjuprestar
koma fram á kirkjukvöldi
FJÓRIR dómkirkjuprestar munu
taka þátt 1 hinu árlega kirkju-
kvöldi bræðrafélags dómkirkj-
unnar, sem haldið verður á skír-
dagskvöld og hefst kl. 8.30.
Á efnisskránni er m.a. Kveðju-
stund, sem sr. Hjalti Guðmunds-
son, dómkirkjuprestur, flytur, í
einrúmi á skírdagskvöld — sr.
Óskar Þorláksson fyrrverandi
dómprófastur fiytur, sr. Jón Auð-
uns, fyrrv. dómprófastur, ræðir
um Ofbeldi og sr. Þórir Steph-
ensen, dómkirkjuprestur, flytur
erindi, sem hann nefnir Hið nána
samfélag innan frumkristninnar.
Þá verður bænastund, Ragnar
Björnsson leikur á orgelið og
Dómkirkjukórinn syngur. Allir
eru velkomnir á þetta kirkju-
kvöld, segir í fréttatilkynningu
frá bræðrafélaginu.
Brædur efstir
á Skákþinginu
Jón L. Árnason hefur nú
örugga forystu á Skákþingi
íslands að fimm umferðum
loknum, hefur unnið alla
sina andstæðinga og hlotið
fimm vinninga. Jón er
aðeins 16 ára gamall. I öóru
sæti er bróðir hans, Ásgeir
Þ. Árnason, með 3lA vinn-
ing, Helgi Ólafsson hefur 3
vinninga og tvær frestaðar
skákir og Gunnar Gunnars-
son hefur 2'A vinning og
biðskák.
Þegar Ijósmyndari MorgunblaSsins rakst niður I kjallara KjarvalsstaSa á
dögunum uppgötvaSi hann að þar var veriS a8 vinna að leikbrúSugerS og
sviðsmynd fyrir brúðuleikhús. í Ijós kom aS leikverkiö er eftir Nlnu Björk
Árnadóttur og er eitt fjögurra sllkra verka sem verSa á brúSuleikhúsmóti, er
haldiS verSur á KjarvalsstöSum dagana 16. — 24. aprll n.k. LeikbrúSur og
sviSsmynd I verki Nfnu Bjarkar eru unnar af þremur myndlistarkennurum,
þeim Eddu Jónsdóttur. Margráti Kolka og ValgerSi Bergsdóttur. og sjást tv»r
þeirra — Margrét og Edda — hér viS leikbrúSugerSina.
Om ar
HJaltl
Guómundsson
• á
Jón
Auóuns
Oskar
I. Þorláksson
Þórir
Stephensen