Morgunblaðið - 07.04.1977, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRlL 1977
7
MEÐ sorgina að bakgrunni
verður gleðin björtust. Að
vetrarbaki er vorið dásamleg-
ast Með Golgata i baksýn
verður fagnaðarfylling páska-
morguns mest Þegar langa-
fjárdegi lauk vorci lærisveinar
Jesú hugfallnir menn og fóru
huldu höfði. Draumursvo
fagur að enginn hafði annan
eins séð, var dáinn Svo hel-
þung sorg lamaði þessa
menn, aðenginn vonarneisti
smaug inn i það myrkur.
En í Ijósflóði páskanna, við
undursem þá hafði ekki órað
fyrir að gætu gerzt og þeim
ætlaði að verða um megn að
trúa í byrjun, varðá þessum
mönnum ótrúleg breyting:
Nýir menn höfðu fæðzt, nýir
og þó sömu mennirnir, sem
leynzt höfðu, lamaðir, von-
lausiri rökkrinyfrá Golgata
síðla föstudags, ægilegasta
dags, sem þeir höfðu lifað.
Hvað hafði gerzt? Þeir
höfðu uppgötvað nýja ver-
öld, nýjan heim. Hér gengu
fram menn, sem sigrandi
sterkir höfðu gengið úr
dimmu þröngu dalverpi upp
á háan tind, þar sem við
þeim blasti undursamleg út-
sýn yfir veröld víða og mikla,
sem þá hafði áðuraðeins
órað fyrir með óljósum grun.
Meistari þeirra hafði áðurfátt
eitt við þá rætt um það sem
þeir sáu nú, sáu og heyrðu,
en hann hafði geymt
vitt vald hans nær um þær
veraldir, vitum við ekki. Vera
má að þau órafjarlægu sól-
kerfi eigi sína lausnara, sín
guðmenni. Vegir Guðs eru
fleiri en þeir, sem mannleg
hyggja spannar. Vera má, að
Kristur birtist þar i einhverri
annarri mynd en við sjáum
hann og tignum, mynd, sem
okkur er ókleift að greina. En
okkur er hann það, sem þeir
er sáu hann lifa, deyja og risa
upp, sögðu um hann: „Ljómi
dýrðar Guðs og imynd veru
hans".
Hver er sá viði heimur,
sem páskar Ijúka upp fyrir
þér?
Heimur Krists og heimur
þeirra annarra, sem langa-
frjádagsþrautinni luku og
gengu inn í undur uppris-
unnar. Þar átt þú sjálfur að
eiga hlutdeild með þeim og
nýja möguleika til að binda i
heild brotin þín gömlu. Þar
fer sá góðmálmur, sem í þér
kann að leynast, gegn um
nýja og nýja deiglu, unz allur
sori er brunninn og gullið í
þér skín i Ijóma, sem Guð
sjálfur sá i árdaga tiiveru
þinnar en enginn hefur enn-
þá séð, — enginn annar en
Guð. Yfir þeim örlögum þín-
um vakirsjálfur Kristur.
Hann verður með þér á veg-
inum þótt þú þekkir hann
ekki ævinlega þar fremur en
hér, eða fremur en læri-
sveinarnir sem hann fylgdist
upprisinn meðá rökkurgöng-
unni til Ammaus forðum.
Gömul fræði segja að
maðurinn sé „kóróna
sköpunarverksins". Mun
svo? Vísindi herma og færa
sín rök fyrir því, að maðurinn
hafi nú þegar lifað hér á
jörðu líklega i milljónir ára,
en er hann samt ekki ennþá í
bernsku eftiralla þessa löngu
leið? Horfðu á upprisinn Krist
ummyndaðan til dýrðar, sem
dauðleg sjón þolir ekki að lita
og sér þú þá ekki, að leiðin er
löng frá þértil hans, óralöng?
Hvort munu ekki margar
himnaþjóðir vera æðri þér?
Ert þú kórónan, eins og
kennt hefur verið?
Leiðin er mörkuð þeirri
miskun og speki, sem Ijómar
af ásjónu Krists. Horfðu á
hann, sem gekk veg hins
dimma dauða inn í dýrðlega
morgunsól. Leyfðu honum
að leiða þig úr dalverpinu
þinu upp á tindinn háa, þar
sem við þér blasir viðsýnið
mikla. Og þegar þú stendur
þar við hlið hans i skini
páskasólarinnar fær gleði þín
og gamlar sorgir, sigrar þínir
og ósigrar nýja merkingu, og
stjarna nýrrar vonar skín yfir
ófullkomleika þínum öllum
og hrösunum á veginum,
sem að baki þér liggur. Og
þá opnast þér sýn til að sjá,
að þrátt fyrir allt sem öndvert
sýndist og þér óx í augum,
allt sem þér var erfitt og sárt,
er lifið sigur og guðleg náð.
Gleðilega páskahátíð!
Páskar
þeim það, sem máttugra var
en ummæli og orðræður,
hann geymdi þeim svo stór-
kostlegt fagnaðarefni, að þeir
ætluðu ekki að geta trúað
þegar þeir sáu fyrstu upp-
risuundrin i Jerúsalem.
Hvort hefur þú gengið úr
skuggalegum dal upp á háan
tind eða heiðarbrún, þegar
morgunsólin var að rísa?
Manstu þá dýrð, sem við þér
blasti? Hafir þú lifað slíkan
morgun á þig að renna grun í
það, sem upprisuvottarnir,
konur og karlar, fengu að
reyna páskadaginn og
marga, marga daga síðar.
Nú blasti við þeim Guðs
viða veröld i fyllingu, sem
þeir höfðu aldrei litið áður.
Nú laukst upp fyrir þeim sá
sannleikur, að jörðin er dal-
verpi eitt á óravíðu, miklu
meginlandi. Nú sannfærðust
þeir um það, að lausnari
þeirra var enn í sama landi
og þeir og gat stigið niður í
dalverpiðtil þeirra, þegar
þeim reið mest á. Nýir menn
voru þeir, höfðu uppgötvað
nýjan heim, nýja, mikla, víða
veröld.
Svo var um þá, en hvað er
um þig á þessum páskum?
Ert þú enn að öllu bundinn
dalverpinu þrönga og
dimma, eða ert þú kominn
upp á tindinn þar sem útsýn-
ið er svo stórkostlegt, að við
þér blasa veraldir baðaðar
Ijósi eilífðarinnar sjálfrar?
Hvað geyma þessar ver-
aldir, hinn nýi heimur?
Hann er heimur hins lif-
andi Krists. Konungur engl-
anna er hann,konungur hins
mikla hvíta bræðralags.
Sjáðu hann þarsem „heims-
ins Ijós", ekki aðeins þess
þrönga dalverpis, sem við lif-
um í, þú og ég, heldur „Ijós
heimsins" í langtum víðari
merkingu Hve vítt vald hans
nær um sólkerfi þau, sem
stjarnvísindin þekkja eitt-
hvert brot af og gefa hugboð
jafnframt um ómælisgeima,
sem enginn maður sér, hve
POLYFONKORINN
20 ára
Hátíðaliljómleikar
Efnisskrá. A. Vivaldi: Gloria
J. Bach: Magnificat
F. Poulenc: Gloria
Flytjendur: Pólýfónkórinn — Sinfóníuhljómsveit
Einsöngvarar: Ann-Marie Connors, sópran, Elísabet
Erlingsdóttir, sópran, Sigrfður E.
Magnúsdóttir, alto, Keith Lewis, tenór,
Hjálmar Kjartansson bassi.
Alls 200 flytjendur.
Stjórnandi: Ingólfur Guðbrandsson
Háskólabló á skírdag, föstud lartga og laugard 7 . 8 og 9 apríl
Aðgöngumiðasalan hafin hjá FERÐASKRIFSTOFUNNI ÚTSÝN, BÓKA
VERZLUN SIGFÚSAR EYMUNDSSONAR og HLJÓÐFÆRAHÚSI
REYKJAVÍKUR, Lauqav 96
MISSIÐ EKKI AF ÞESSUM TÓNLISTARVIÐBURÐI.
Opið um hátíðarnar
sem hér segir:
Skírdag, föstudaginn langa og 2. í páskum frá
kl. 9 að morgni til kl. 20.
Lokað á páskadag.
Sæla-Café
Brautarholti 22.
í staðsetningu lóða.
Sýnið okkur svæðið
— við skipuleggjum og vinnum verkið.
Gerum verðtilboð.
Helluleggjum, hlöðum veggi, jöfnum lóðir
og þekjum.
SKRÚÐGARÐADEILD.
EFÞAÐERFRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Al GLYSINGA-
SÍMINN F,R:
22480