Morgunblaðið - 07.04.1977, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1977
11
Sýning
Svavars
Það er ekki á hverjum degi,
að Svavar Guðnason sýnir verk
sín hér í borg. Nú hafa þau
gleðitíðindi gerst, að hann hef-
ur efnt til sýningar i Bogasal
Þjóðminjasafnsins á vatnslita-
og krítarmyndum. Ekki eru
þetta allt ný verk hjá Svavari,
heldur hefur hann valið úr
margra ára vinnu og sýnir 30
verk, sem spanna langt árabil.
Svavar Guðnason er einn
þekktasti listamaður á sínu
sviði með þessari þjóð og virtur
víða um lönd fyrir þátttöku
sina I því að gerfireyta myndlist
Evrópu á sínum tima. COBRA
hópurinn svonefndi var það afl,
sem gæddi veröldina nýjum
sjónarmiðum í myndlist og
endurnýjaði hið lúna form, er
gengið hafði sér til húðar meðal
menningarþjóða. Svavar
Guðnason var einn þeirra, er
stóðu að þessum hópi og var um
langt árabil mikilvirkur i þeim
félagsskap. Það er annars
óþarfi að kynna Svavar fyrir
þeim, er eitthvað vita um
islenska myndlist, þvi að hann
hefur sannarlega haslað sér
völl hér heima ekki siður en
erlendis. Það eru orðin nokkuð
mörg árin, siðan Svavar sýndi
hér seinast, og þvi er það fagn-
aðarefni fyrir alla þá, er unna
myndlist, að þessi sýning hans
skuli nú standa á páskum i
Bogasalnum.
Það er ekki gott að gera upp á
milli þeirra verka, er Svavar
hefur valið á þessa sýningu.
Hér eru hlutirnir yfirleitt svo
samstæðir og um leið það ger-
ólíkir, að varla verður greint
þar á milli. Vatnslitir og krit
hafa jafnan leikið í höndum
Svavars, og honum hefur tekist
að gæða þessi verk lífi og þrótti,
sem þeim einum er unnt, sem
valdið hefur og reynsluna á
þessu sviði. Hér dansa formin
og liturinn glóir. I fáum hrein-
um línum tekst Svavafi að tjá
skaphita sinn og viðkvæmni. Á
stundum tekur hann magnaða
spretti og svo i annan stað getur
hann verið undur fágaður og
nærfærinn. Það er mektugur
tónn i þessari sýningu, sem er
einkennandi fyrir persónuleika
Myndllst
eftir VALTY
PÉTURSSON
Svavars Guðnasonar. Hann lifir
og andar í islenskri náttúru það
sterkt, að ekki verður skjátlast
um uppruna listamannsins. Það
mætti ef til vill helst likja þess-
um abströktu verkum við
islenskt veðurfar, þar sem
brugðið getur til beggja vona á
skammri stundu. Þannig má
lesa hinn þunga undirtón út úr
þessum verkum, sem orðið hafa
til af sterkum sveiflum hugar
og handar. Þetta er í eðli sinu
miklu léttari og meira leikandi
list en oft vill verða i oliumál-
verkum Svavars. Hér er ekki
um frummyndir fyrir stærri
verk að ræða. Þetta eru sjálf-
stæð listaverk og ég held, að
listamaðurinn sjálfur hafi ein-
mitt tekið þetta fram í viðtali
við fjölmiðla í tilefni þessarar
sýningar.
Ég hafði óskipta ánægju af að
sjá þessi verk Svavars Guðna-
sonar. Þau komu mér ekki á
óvart, því að það er langt síðan
ég vissi um vatnslitamyndir og
kritareikningar Svavars. Slikar
myndir hafa hangið á veggjum
heimilis okkar hjóna um langan
aldur, og mig langar til að enda
þessar línur með fullyrðingu
um þá miklu ánægju, sem við
höfum haft af þeim myndum.
Hafi Svavar Guðnason þakkir
fyrir að hafa komið þessari nú-
verandi sýningu i Bogasal á
laggir. Páskar verða öðruvísi en
áður fyrir bragðið.
|6S (CS |C3|
82744
82744
82744
82744
82744
HRAUNBÆR 55 FM
2ja herbergja kjallaraíbúð (lítið
niðurgrafin). Ný eldhúsinn-
rétting, góð teppi og parkett,
flísalagt bað, laus fljótlega. Verð
5,5 millj., útb. 4.2 millj.
HRINGBRAUT 55 FM
2ja herbergja ibúð á 2. hæð.
Verð 5.5 millj.. útb. 4 millj.
GAUKSHÓLAR 80 FM
3ja herbergja íbúð á 6. hæð.
íbúðin er að hluta ófrágengin.
Verð 7.5 millj., útb. 5 til 5.5
millj.
MARÍUBAKKI 87 FM
3ja herbergja ibúð á 1. hæð i 3ja
hæða blokk. íbúðin er að hluta
ófrágengin. Verð 7 millj.. útb. 5
millj.
MIKLABRAUT 90 FM
Skemmtileg 3ja herbergja
kjallaraibúð. Góðar innréttingar,
nýjar hurðir. Rýa teppi, snyrtileg
sameign. Verð 7 millj., útb. 5
millj.
RAUÐARÁR
STÍGUR 85* FM
Björt og skemmtileg 3ja
herbergja íbúð á 2. hæð. Nýleg
eldhúsinnrétting. Gæti losnað
fljótlega, Verð 7.8 millj., útb. 5
millj.
IAUFÁS
VESTURBERG 85 FM
3ja herbergja íbúð á 3. hæð.
Þvottaherbergi á hæðinni. íbúð-
in er að hluta ófrágengin. Verð 7
millj. útb. 5.5 millj.
SAFAMÝRI 98 FM
4ra herbergja jarðhæðaríbúð.
Sér hiti, sér inngangur, góð lóð.
Verð 9 millj., ÚU>. 6 millj.
KRÍUHÓLAR 130 FM
4ra —5 herbergja endaíbúð á 5.
hæð. Sér þvottahús í ibúðinni,
mikið útsýni. Verð 10 millj., útb.
7 millj.
KARFAVOGUR 100FM
Mjög notaleg 4ra herbergja kjall-
araibúð (litið niðurgrafin), sér
þvottaherbergi, sér hiti, sér
inngangur. Verð 9 millj., útb 6
millj.
HOLTSGATA 100 FM
Hugguleg 4ra herbergja íbúð á
3. hæð. íbúðin skiptist i 2 stofur
og tvö svefnherbergi, rúmgott
eldhús og flisalagt bað. Góð
teppi alls staðar. Verð 10 milllj.,
útb. 7 millj.
HRAFNHÓLAR 100 FM
4ra herbergja iúð á 7. hæð.
Rúmgott eldhús með borðkrók.
Verð 9 millj., útb. 6 millj.
VESTURBERG 100FM
4ra herbergja ibúð á 2. hæð.
Gott eldhús, flisalagt bað. Verð
10.5 millj.. útb. 7 millj.
LAUFÁS
Opið
ídag
frá 1—4
Athugið
Erum fluttir í nýtt
húsnæði í alfaraleið á
horni Miklubrautar og
Grensásvegar (Lita-
vershúsið). Lítið við
(næg bílastæði) eða
hringið. Vantar fleiri
eignir á skrá.
Ný söluskrá
eftir páska.
Góð þjónusta.
Örugg þjónusta.
LAUFÁS
FRAMNESVEGUR
115 FM
4ra—5 herbergja hæð og ris í
tvíbýlishúsi. Nýstandsett íbúð.
sér hiti, sér inngangur. Verð 7.5
millj., útb. 5 millj.
DÚFNAHÓLAR 113 FM
4ra herbergja endaíbúð á 5.
hæð. Góðar innréttingar. ullar-
teppi. Verð 11 millj., útb. 8
millj.
ÁLFHEIMAR 100 FM
4ra herbergja endaíbúð á 3.
hæð. Ný teppi. Verð 10.5 miHj.,
útb. 7 millj.
DÚFNAHÓLAR 130 FM
5 herbergja íbúð á 3. hæð. 30
fm. stofa, 4 svefnherbergi, rúm-
gott eldhús, tengt fyrir þvottavél
á baði. Verð 12.5 millj. útb. 8.5
millj.
SUÐURVANGUR
118 FM
4ra—5 herbergja endaíbúð á 2.
hæð. Þvottaherbergi og búr inn
af eldhúsi. Mikið útsýni. Verð 1 1
millj., útb. 7.5 millj.
ÆSUFELL 130FM
6 herbergja endaibúð á 2. hæð.
Bílskúr. Skipti á 3ja herbergja
íbúð æskileg. Verð 1 2 millj. útb.
8 millj.
NÖNNUGATA 70 FM
3aj—4ra herbergja hæð og ris.
Verð 9.8 millj. útb. 7 millj.
LAUFÁS
BJARKARGATA
Snyrtileg og vel með farin 3ja
herbergja sér hæð í þríbýlishúsi.
60 fm. bílskúr, einangraður og
með 3ja fasa rafmagm, WC og
tvöfalt gler. Upplýsingar á skrif-
stofunni.
GRENIGRUND 133 FM
6 herbergja efri hæð í tvibýlis-
húsi. Góðar innréttingar, bil-
skúrsréttur. Möguleg skipti á 2ja
herbergja ibúð. Verð 15 millj.,
útb. 10 millj.
LYNGHAGI 90 FM
Skemmtileg 3ja herbergja
jarðhæð í þribýlishúsi. Sér inn-
gangur, sér hiti. Verð 9 millj.,
útb. 6—6.5 millj.
MELABRAUT 110FM
4ra herbergja efri hæð i tvibýlis-
húsi (forskalað timbur). Sér
inngangur, sér hiti. Stór eignar-
lóð. Bílskúrsréttur Verð 8.5
millj., útb. 5.5 millj.
MELABRAUT 120FM
Mjög falleg 5 herbergja jarðhæð
(ekki niðurgrafin). Nýstandsett
íbúð. Ný teppi, sér inngangur.
sér hiti, útsýni. Verð 12 millj.,
útb. 8 millj.
SUÐURGATA 11 7 FM
4ra—5 herbergja íbúð á 1.
hæð. Góðar innréttingar. Þvotta-
herbergi og búr inn af eldhúsi.
Skipti á 2ja herbergja ibúð. Verð
1 1 millj., útb. 8 millj.
LAUFÁS
GRENSÁSVEGI22-24
(LITAVERSHÚSINU 3.HÆÐ)
SÍMI 82744
KVÖLDSÍMAR SÖLUMANNA
GUNNAR ÞORSTEINSSON I87I0
ÖRN HELGASON 8I560
BENEOfKT ÓLAfSSON LOGFR
GRENSÁSVEGI22-24
(LITAVERSHÚSINU 3.HÆÐ)
SÍMI 82744
KVÖLDSÍMAR SÖLUMANNA
GUNNAR ÞORSTEINSSON I87I0
ÖRN HELGASON 8I560
BENEDfKT ÓLAFSSON LOGFR
GRENSÁSVEGI22-24
(LITAVERSHÚSINU 3.HÆÐ)
SÍMI 82744
KVÖLDSÍMAR SÖLUMANNA
GUNNAR ÞORSTEINSSON 18710
ÖRN HELGASON 81560
GRENSÁSVEGI22-24
(LITAVERSHÚSINU 3.HÆD)
SÍMI 82744
KVÖLDSÍMAR SÖLUMANNA
GUNNAR ÞORSTEINSSON 18710
ÖRN HELGASON 81560
BENEDIKT ÓLAFSSON LOGFR
GRENSASVEGI22-24
(LITAVERSHÚSINU 3.HÆÐ)
SÍMI 82744
KVÖLDSÍMAR SÖLUMANNA
GUNNAR ÞORSTEINSSON 18710