Morgunblaðið - 07.04.1977, Side 18

Morgunblaðið - 07.04.1977, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL r977 Konráð Hjálmars son Konráð Hjálmarsson, á gamals aldri. Myndin er tekin árið 1939, árið sem hann lézt. Maðurinn sem byggjS fyreta íshús á Islandi Lánaði Alliance eitt sinn 90.000 kr, danskar Konráð fæddist á Reykjum í Mjóafirði í maí mánuði 1858 og 14 ára gamall fluttist hann úr föður- , húsum til Carls D. Tuliniusar kaupmanns á Eskifirði. í bréfi sem Konráð ritar siðasta árið, sem hann lifði, árið 1939, segir hann: ,,Ég vann í 4 ár sem verzlunar- Jærlingur, sem þá var siðvenja, og kauplaust. Þar á eftir fór ég til Kaupmannahafnar og var þar í eitt og hálft ár á verzlunarskóla. Eftir þann tíma fékk ég atvinnu hj Jakobsen kaupmanni á Seyðis- firði, við verzlun sem kölluð var „Liverpool". Á hverju sumri í góða þrjá mánuði, lét hann mig fara í svokallaða „spekulants- túra“, á skipi, sem var innréttað sem sölubúð, með allskonar kaup- mannsvörur. Þessa atvinnu hafði ég í 4 ár, en fór þá frá Jakobsen vegna þess að hann hætti þá, sak- ir aldurs, að reka verzlun. Byrjaði ég þá sjálfstæða atvinnu, sem í nokkur ár var aðallega fólgin í sjávarútvegi, og gerði ég út ára- báta frá Mjóafirði." Talið er, að Konráð hafi byrjað starfsemi og búskap sinn inn við Stóruurð í Mjóafirði, en þar var aðstaða norskra síldveiðimanna þar. Hús Norðmanna reif hann og endurbyggði. Þetta hús var fyrst kallað Brekkusandur og síðar Sandhús og heitir enn. Mjög fljót- lega byggði Konráð svo íbúðar- og verzlunarhús, sem brann síðla árs 1896. Var þá annað byggt og mun glæsilegra og fluttist hann í það árið eftir. Þurftu að sækja síldina landveg En sjálfur segir Konráð: „Árið i 1888 stofnsetti ég verzlun í Mjóa- i firði, en hélt þó jafnframt áfram útgerðinni, sem oft var erfið sök- um beituskorts, þar sem ómögulegt var að geyma síldina óskemmda lengur en tvo daga, þurftum við þá oft að sækja hana landveg til Seyðisfjarðar, ef hún veiddist þar en ekki í Mjóafirði.“ Og nú verður skyndilega mikil breyting á högum Hjálmars. Það var frosthúsið eða frystihúsið eins og slfk hús eru kölluð nú. Matthías Þórðarson frá Móum, segir svo í Síldarsögu íslands: „A árunum kringum 1887, þegar út- flutningur fólks af Austfjörðum il Ameríku var sem mestur, var maður að nafni fsak Jónsson, ætt- aður þaðan úr fjörðum, einn með- al þeirra manna, er vildu yfirgefa landið fyrir fullt og allt, og tók sér því far til Ameríku. Eftir komu sína til Ameríku starfaði hann við hitt og þetta, og árið 1894 var hann, ásamt fleiri mönnum, feng- inn til þess að smíða íshús í Sel- kirk í Kanada. Isak var hinn mesti dugnaðarmaður, og hafði stundað sjóróðra á sumrin í mörg ár, áður en hann fór til Ameríku, hafði þá komist að raun um, hví- lík vandræði það voru, að geta ekki geymt síld í nokkra daga ef þess þurfti með, og standa þannig uppi beitulaus ef síld ekki fékkst daglega, eða ef ógæftrr voru. Hann komst brátt í skilning um það, hvílíkt þjóðráð það mætti vera, að hafa hús af sams konar gerð til beitugeymslu á fslandi, eins og það sem hann starfaði að byggingu á hjá Ameríkumönnum. Hann skrifaði um þetta mál til frænda sinna á Austfjörðum og einnig til Tryggva Gunnarssonar, sem hann þekkti, og þá var banka- stjóri við Landsbankann í Reykja- vík, og eggjar þá á, í bréfi þessu, að gjöra tilraunir með byggingu sams konar húsa á Islandi. Arang- urinn af þessu varð sá, að Tryggva Gunnarssyni leist vel á uppástunguna og skrifaði Isak aftur, og hvetur hann til þess að koma heim til Íslands, og taka annan mann með sér, sem sé kunnugur byggingu ishúsa, og hann beri fullt traust til, og lofar honum jafnframt í bréfinu, að hann skuli styrkja hann til þess að gjöra tilraunir með byggingu á íshúsi á íslandi. Isak brást skjótt við og tók í fylgd með sér íslenzk- an mann, Jóhannes Norðdal að nafni og fóru þeir báðir til Is- lands. Móttökurnar betri í Mjóafirði Þegar þeir komu til Reykjavík- ur, var þar aðeins þörf fyrir ann- an manninn, og varð það að samn- ingum milli hiutaðeigenda, að Jó- hannes Norðdal staðnæmdist í Reykjavík, en isak færi austur til frænda sinna og vina á Austfjörð- um, til þess að vinna að því, að íshús yrðu byggð þar. Þegar Isak kom austur, tók Konráð Hjálmarsson á Mjóafirði og þeir frændur Isaks á móti hon- um tveim höndum, og byrjaði hann strax á ís- og frystihúsbygg- ingu fyrir Konráð, og er það hið fyrsta íshús, sem byggt hefur ver- ið á íslandi." Reynslan af íshús- inu í Mjóafirði varð strax svo góð að á næstu árum voru byggð mörg íshús um allt land. Frásögn Matthíasar Þórðarson- ar er þannig, að allt virðist hafa gengið átakalaust fyrir sig er Konráð byggði íshúsið í Mjóafirði, en svo var ekki og látum Konráð sjálfan segja frá: „Haustið 1895 sendir hamingj- an okkur til Islands tvo menn frá Ameríku, sem kynnst höfðu frost- húsum þar og vissu um leið hvað tsland vantaði.. . Báðir þessir menn komu til Reykjavíkur, en menn voru ekki fljótir að taka nýungunni, svo þeim var ekki vel tekið. Samt fór svo, að Reykvík- ingar mynduðu félag til að byggja frosthús undir stjórn annars mannsins, Jóhannesar Nordal (ath. hann er ýmist skrifaður Norðdal eða Nordal í bökum). Hinn maðurinn ísak Jónsson, sem ættaður var héðan að austan, fór til Austfjarða og hitti mig fyrstan að máli. Ég var fjöðrum fenginn út af þessari nýung og kölluðum við saman á fund í Mjóafirði alla sem vettlingi gátu valdið, •— voru þrír fundir haldnir með stuttu millibili, en þar var mótþróinn mikill, því menn höfðu ekki trú á þessari nýung. T.d. lést einn fund- armanna reikna það út, að til reksturs frosthúss að stærð 5x6 álnir, lofthæð 5 álnir, þyrfti tvær' skonnortur af salti árlega, hvora upp á 150 smálestir. Annar, sem talsverð peningaráð hafði, ásamt Súlan, eitt frægasta skip íslenzkra fiskiskipaflotans, en Konráð lét smíða Súluna í Noregi skömmu eftiraldamót. Jónas frá Hriflu kallaði hann kónginn og sagði að hann hefði einn fárra íslendinga peningavit. Hann byggði fyrsta frosthús á Íslandi og hann keypti fyrsta gufuknúna fiskibát Konráð var borinn til hinztu hvílu í Mjóafirði og er hann þar í grafhýsi. Myndin var tekin við útför Konráðs. Islendinpa fyrir síðustu aldamót, hann átti einnig eitt af þrem skipum Islendinga, sem fyrst drógu íslenzkan fána að húniá erlendri höfn hinn 1. desember 1918. Hann gat lánað stóru fyrirtæki á Islandi 90 þúsund kr. danskar í fyrri heimsstyrjöld- inni miðri, og þá hafði hann skömmu áður keypt 11 vélbáta á einu ári. Hver var þessi maður. Maðurinn hét Konráð Hjálmarsson fyrst kaupmaður í Mjóafirði og síðar á Norðfirði. Vegur hans byrjaði nokkru fyrir síðustu aldamót, en eins og rnargir aðrir lenti hann illa út úr kreppunni á milli 1930 og 1940 er skuldunautar hans gátu ekki borgað, — en hann hélt sínu striki til dauðadags og er einn af fáum íslendingum, sem hvílir í grafhýsi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.