Morgunblaðið - 07.04.1977, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL r977
Fjrir börnin
í siónvarpinu
STUNDIN okkar er á dag-
skrá á páskadag kl. 18.00 og
þar verður sýnd fyrsta
myndin í nýjum tékknesk-
um myndaflokki, sem nefn-
ist Litlu svölurnar. Einnig
verður atriði úr Dýrunum í
Hálsaskógi og sýnt verður
úr mynd Óskars Gíslasonar
um Reykjavíkurævintýri
B:kkabræðra, og ýmislegt
fleira. Annan dag páska er
síðan mynd, Þyrnirósa, hið
þekkta ævintýri. Er það
finnsk bíómynd frá árinu
1949 og hefst sýning henn-
ar kl. 18.00.
Svona rétt til að mmna á gamla kunningja er hér birt
mynd af þeim Iæknum á ferð og flugi, en þeir verða á
skjánum á laugardagskvöldið kl. 20.25. Þátturinn er
sendur út í lit og þýðandi er Stefán Jökulsson.
Guðsþjónustur
útvarps og sjón-
varps um páskana
AÐ venju verður nokkrum
guðsþjónustum útvarpað
um páskana og á skírdag
verður útvarpað messu úr
Dómkirkjunni, kl. 11.
Prestur er séra Hjalti
Guðmundsson og organ-
leikari Ragnar Björnsson.
Á föstudaginn langa er út-
varpað messu frá
Kópavogskirkju kl. 11 þar
sem séra Þorbergur
Kristjánsson messar og
organleikari er Guðmund-
ur Gilsson. Tveim
guðsþjónustum er útvarp-
að á páskadag, hinni fyrri
kl. 8:00 úr Bústaðakirkju.
Séra Ólafur Skúlason dóm-
prófastur messar, organ-
Á föstudaginn langa verður útvarp frá hátfðarhljómleikum Pólýfónkórsins.
TIL AÐ fræðast örlítið um
hvað útvarpið býður upp á
uf forvitnilegri tónlist
þessa daga var haft sam-
band við Þorstein Hannes-
son og hann spurður um
hvað helzt væri merkilegt
að gerast á því sviði. Þor-
steinn benti á að á skir-
dagskvöld verða tveir ís-
lenzkir listamenn í dag-
skránni, Elísabet Erlings-
dóttir syngur einsöng í út-
varpssal kl. 20:50, lög eftir
Beethoven, Brahms og
Schubert við undirleik
Guðrúnar A. Kristinsdótt-
leikari er Birgir Ás
Guðmundsson og hin síðari
er úr Hallgrímskirkju, þar
sem prestur er séra Karl
Sigurbjörnsson og organ-
leikari Páll Halldórsson.
Annan dag páska er út-
varpað messu frá safnaðar-
heimili Grensássóknar.
Prestur er séra Halldór S.
Gröndal og organleikari
Jón G. Þórarinsson.
í sjónvarpi verður páska-
messa kl. 17 á páskadag. Er
hún frá Aðventkirkjunni I
Reykjavík og er prestur
Sigurður Bjarnason,
organleikari Regína Torfa-
dóttir. Einnig syngur
kvartett.
ur.Þá leikur Gunnar Kvar-
an sellóleikari einleiks-
svítu nr. 2 í d-moll eftir
Bach og hefst leikur hans
kl. 21.30.
Á föstudaginn langa
verður flutt dagskrá með
Pólýfónkórnum og hljóm-
sveit. Kl. 14:00 verður út-
varpað fyrri hluta hátíðar-
hljómleika kórsins undir
stjórn Ingólfs Guðbrands-
sonar. Flutt verða verkin
Gloría í D-dúr eftir
Antonio Vivaldi og
Magnificat I D-dúr eftir
J.S. Bach og kl. 22:45 flutt
verkið Gloria eftir Francic
Puolenc. Flytjendur eru
Ann-Marie Connors, sópr-
an, Elisabet Erlingsdóttir,
sópran, Sigríður Ella
Magnúsdóttir, alt, Keith
Lewis, tenór, Hjálmar
Kjartansson, bassi, Pólý-
fónkórinn, Kammersveit
og Sinfóníuhljómsveit
Reykjavíkur. Konsert-
meistari er Rut Ingólfs-
dóttir og stjórnandi Ingólf-
ur Guðbrandsson. Jón Múli
Árnason mun kynna þessa
hljómleika.
Klukkan 20:50 á föstu-
daginn langa er þáttur úr
óratóríunni Friði á jörðu
eftir Björgvin Guðmunds-
son, Paradís. Þorsteinn
Elfsabet Erlingsdóttir
söngkona.
Hannesson sagði að of lítið
væri gert af því að flytja
verk Björgvins, og þyrfti
að ráðast I að gera verkum
hans þau skil, sem hann
ætti skilið enda hefði hann
verið eitt af mestu tón-
skáldum landsins.
Um tónleikana á laugar-
dagskvöldið fyrir páska-
dag, sagði Þorsteinn að það
væri „ákaflega gott laugar-
dagskvöld, við gerum það
yfirleitt kvöldið fyrir
páska að hafa tónleika í
þessum dúr, okkur finnst
Sjaldan hlýst
gott af gestum
ÞÁTTURINN með ofan-
greindu heiti veröur sýnd-
ur á laugardag fyrir páska
og er það Helgi Pétursson,
sem hefur umsjón hans á
hendi. Hann sagðist fá
ýmsa gesti til að spjalla við
sig, íþróttamenn og lista-
menn, en vildi ekki gefa
upp hverjir það yrðu. Á að
fá gestina til að draga sér
málshátt úr stóru páska-
eggi, sem Helgi verður með
við höndina og á síðan að
ræða um málshættina, eða
„spá í þá“, eins og Helgi
sagði er Mbl. ræddi við
hann. Sem sagt, laugardag
kl. 20.55 ýmsir góðir gestir
með létt hjal um heima og
geima.
Hátíðartónlist
af ýmsu tagi
Guðmundur Jóns-
son — Minning
F. 4. ágúst 1905
D. 13. marz 1977.
Aðfararnótt sunnudagsins 13.
marz sl. andaðist í Borgarspitalan-
um frændi minn og vinur,
Guðmundur Jónsson, eftir erfið
veikindi. Var útför hans gerð frá
Fossvogskirkju 23. marz sl.
Guðmundur var fæddur 4.
ágúst 1905 að Arnarnesi í Keldu-
hverfi, Norður-Þingeyjarsýslu,
sonur þeirra Ólafar Guðmunds-
dóttur og Jóns Sigurgeirssonar.
Fóðurætt Guðmundar er mér ekki
kunn en Ólöf var frá Leifsstöðum
í Öxarfirði. Hann ólst upp með
móður sinni en um fjögurra ára
aldur flytja þau að Valþjófsstöð-
um í öxarfirði og síðan að Skóg-
um í sömu sveit. Um tvítugt flytja
þau mæðginin til Húsavíkur og
halda heimili þar. Tekur
Guðmundur þá að stunda sjósókn
á fiskiskipum. Ölöfu móður sína
missti hann árið 1940.
Kynni okkar Guðmundar urðu
ekki náin fyrr en hann fluttist tíi
Reykjavíkur árið 1942, en þá hóf-
ust líka mikil og góð kynni.
Minnisstæðast er mér þegar hann
réðst til Eimskipafélags Reykja-
víkur, á Hekluna, sem þá var nýtt
skip, með hinum kunna sægarpi
Rafni Sigurðssyni. Sigldi
Guðmundur með honum um 10
ára skeið og gerði víðreist mjög,
enda Heklan víða í förum. Hafði
Guðmundur góðan orðstir af ferð-
um þessum og hélzt lengi kunn-
ingsskapur og vinfengi með hon-
um og skipsfélögum hans á þess-
um árum.
I ársbyrjun 1957 réðst
Guðmundur til Olíufélagsins hf.
Var það happasæl ráðning fyrir
báða aðila, þar naut hann sín vel
og var sýndur mikill trúnaður af
húsbændum sinum, sem hann
mat mikils. Um svipað leyti stofn-
ar hann heimili, er hann gengur
að eiga heitkonu sína, Ingibjörgu
Ólafsdóttur, ættaða úr Stranda-
sýslu. Er það góð kona og með
þeim hið mesta jafnræði, á heim-
ili þeirra var ætið gott að koma.
Einn son áttu þau, Ólaf, fæddan
16. april 1959, sem nú stundar
nám i menntaekóla. Er þar góðar
efnismaður á ferð, svo sem hann á
kyn til.
Ég mun ávallt mínnast
Guðmundar sem góðs manns og
vandaðs í hvivetna. Prúðmennsk-
an var eitt hans megineinkenni,
hann var góður og gætinn í orðum
og talaði aldrei illt orð til nokkurs
manns. Góðvild og hlýja voru
sterkir þættir í skapgerð hans,