Morgunblaðið - 07.04.1977, Side 39

Morgunblaðið - 07.04.1977, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRlL 1977 39 DROTT- INN ER MINN HIRÐIR HINN þekkti danski prestur, Olfert Ricard skrifaði einu sinni: Ég gleymi aldrei atburði ein- um, sem gerðist í sunnudaga- skóla í Stokkhólmi fyrir nokkr- um árum. Kennarinn var liðs- foringi í sænska hernum. Texti þessa dags var einmitt „hirðis- sálmurinn", og liðsforinginn skrifaði þessi fjögur orð á töfl- una: Drottinn er minn hirðir. Því næst spurði hann börnin: „Hvaða orð munduð þið nú vilja strika undir? Hvaða orð teljið þið mikilvægast?" „Drottinn“ svöruðu þau öll. „Finnst ykkur það mikilvæg- ast?“ sagði kannarinn. „Já, það er vissulega gott að eiga hann að sem Drottin og Guð, sem getur stjórnað okkur eftir sínum vilja. Ekki veitir vist af. En ég hefði sennilega valið annað orð sjálf- ur. Getið þið reynt að finna það?“ „Hirðir“ hrópuðu þau. Þau hugsuðu sennilega, að best væri að reyna síðasta orðið, þar sem þau höfðu sjálf varlið það fyrsta. „Eigum við að strika undir það?“ spurði kennarinn aftur. „Allt í lagi, þá gerum við það. Það er gott að eiga hann að sem hirði, sem gætir okkar og gefur okkur fæðu og leiðir okkur heim aftur, þegar við höfum villst af réttri leið. En ég hefði nú strik- að undir annað orð. Getið enn.“ „Er“ hrópuðu þau þá; „Þá strikum við undir „er“, sagði kennarinn og brosti. „Það er rétt hjá ykkur. Hvaða hjálp yrði í því, ef hann hefði einu sinni verið hirðir okkar, en væri það ekki lengur. Ég hefði nú samt sem áður strikað undir annað orð; Og nú skuluð þið hugsa ykkur um . . .“ Þannig lauk liðsforinginn sunnudagaskólatímanum þenn- an dag. Guð gefi, að það gæti orðið persónuleg játning okkar: „Drottinn er minn hk-ðir“. PFWmN Scrvítttu- (qrm^ur fíFífíN Páskaföndur: EGGJAHETTUR EFNI: Filt I litunum gult, rautt. hvltt og svart. Af gulu þarf I tvær hettur um það bil 40x60 cm. nokkru minna hvitt og mjög lítið rautt og svart. Smjörpappir eða annan gagnsæjan pappír, kalki pappir, lím og nál og endi. AÐFERÐ: Taktu mynstrin í gegn á smjörpappir (sniðin eru i réttri stærð) og teiknaðu þau siðan með kalki- pappfr yfir filtið. Athugaðu vel hvaða litir eru á hverju striki. Byrjaðu á gulu eggjahettunni, efri hluta ungans, bæði framstykki og bakstykki. Síðan er neðri hlutinn teiknaður á hvitt filt, en teiknaðu þennan hluta 1 cm hærri en sýnt er (limist undir það gula, þar sem f æturnir eru festir undir). Þá teiknarðu augun, hvit með svörtum augasteini, nefið rautt og fæturnir rauðir. Fæturna þar einnig að að hafa 1 cm lengri, svo að þeir festist vel með liminu undir gula stykkið. Klipptu nú út öll stykkin. Limdu hvitu og gulu stykkin saman, bæði framan og aftan og festu fæturna á um leið. Síðan eru fram- og afturstykkin lögð saman (rang- an snýr inn) og saumuð saman á réttunni, annað hvort i vél eða I höndum (þá með þræðispori, sem er mjög auðvelt fyrir litlar hendur, og jafnt telpur og drengi). Loks limir þú „andlitið" á fuglinn, og ef vill festir þú á nafnmiða. eins og gert hefur verið á myndinni. Miðinn með nafninu er úr kartoni og er aðeins stungið undir vængina. SERVÍETTU HRINGIR: Eggið teiknað á hvitt filt, bæði fram- og afturstykki, en unginn gulur (aðeins 1 stk), nefn rautt. augu hvit með svörtum augasteini. Klippt úr og allt limt saman, nema aftan á egginu er klippt upp i strikin tvö, sem teiknuð eru á sniðinu, og renningi (hólk) 2x18 cm er þrætt i gegn. Honum er siðan fest saman. Lfklega er óþarft að undirstrika, að málsverðurinn á páskadagsmorgunn verður mjög ánægjulegur, ef borðið er skreytt með heimagerðum smá-ungum á borð við þessa. Og vonandi verður ánægjan ekki siðri á meðan unnið er við að útbúa ungana. Þetta er talsverð vinna, en vætanlega hjálpast að bæði yngri og eldri, svo að ánægjan verði MARG-FÖLD.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.