Morgunblaðið - 07.04.1977, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 07.04.1977, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1977 47 ENSKA KNATTSPYRNAN GAMALDAGS OG LEIÐINLEG —SAGÐI HINN FRÆGI ÞJÁLFARI HENNES WEISWEILER 1 VIÐTALI sem nýlega birtist í þýzku dagblaði við hinn kunna knattspyrnuþjálfara Hennes Weisweiler, lýkur hann miklu lofsorði á knattspyrnumenn á Norðurlöndum, og segir að f hópi þeirra sé að finna marga af beztu knattspyrnumönnum heims. Þeir hafi hins vegar yfirleitt ekki eins mikil tæki- færi til þess að stunda fþrótt sfna og knatjspyrnumenn f flestum öðrum Evrópulöndum, og þvf njóti þeir sín aðeins til fulls hjá erlendum liðum. Bendir Weisweiler á það f um- ræddu viðtali að enn sé áhuga- mennskan allsráðandi hjá Norðurlandaþjóðunum, nema helzt hjá Svfum, en eigi að sfður geti landslið þessara þjóða staðið upp f hárinu á hvaða landsliði sem er, og nefnir hann sem dæmi að ts- lendingar hafi t.d. lagt Austur- Þjóðverja að velli og gert jafn- tefli við Frakka árið 1975. Hennes Weisweiler varð frægur maður í knattspyrnu- FH vann Víking í gær fóru fram þrír leikir í 1. deildar keppni íslandsmótsins í hand- knattleik. Tveimur þeirra var lokið þegar Morgunblaðið fór í prent- un. I Hafnarfirði sigraði FH Víking með 34 gegn 30. Staðan í hálfleik var 14—13 fyrir Víking. Og í Laugardalshöll sigraði Þróttur ÍR með 29 gegn 27. Staðan í hálfleik var 14—14. heminum er hann tók að sér þjálfun vestur-þýzka liðsins Borussia Mönchengladbach, en árangur hans með liðið var með ólíkindum og varð m.a. til þess að hann var útnefndur bezti knattspyrnuþjálfari í heimi. Árangur hans með Borussia varð til þess að fjölmörg knatt- spyrnufélög vfða i Evrópu gerðu honum freistandi tilboð og að lokum ákvað Weisweiler að taka tilboði sem honum barst frá spænska félaginu FC Barcelona. Var gerður samningur til tveggja ára og fékk þjálfarinn eina milljón þýzkra marka í sinn hlut fyrir það eitt að undirrita samning- inn. En Weisweiler dvaldi hins vegar ekki í tvö ár á Spáni. Aðeins átta mánuðum eftir að hann tók við þjálfun FC Barcelona hélt hann aftur heimleiðis til Þýzkalands. — Það var nánast ómögulegt að þjálfa þetta lið, segir hann í nefndu viðtali. Spánverjar eru að vísu framúrskarandi knatt- spyrnumenn, en flestir leik- manna liðsins voru illa haldnir af derringi og voru þess full- vissir að þeir væru beztu knatt- spyrnumenn í heimi. Þeir kunnu allt og gátu allt. Töpuðu þeir leik var það dómaranum eða þjálfaranum að kenna. Þrátt fyrir þessi ummæli Weisweiler er það opinbert leyndarmál að hann yfirgaf FC DANIR BREYTA LEIKJARÖÐUN OG LEKSTÖÐUM DANIR hafa nú gert ýmsar breytingar á leikjaniðurröðun í riðli þeim er Islendingar leika í í Heimsmeistarakeppninni í handknattleik næsta ár. Þannig verður leikur íslands og Dan- merkur ekki fyrsti leikurinn í riðlinum, eins og vera átti sam- kvæmt drættinum, sem fram fór í síðasta mánuði. Leika ís- lendingar fyrst við Sovétmenn og stilla Danir þessum liðum greinilega upp fyrst^til að þeir geti séð bæði þessi lið leika. Þá hafa Danir flutt leikina til, þannig að leikið verður á stærri stöðum, sem hafa stærri íþróttahallir. Telja Danir sig með þessu fá fleiri áhorfendur, sem þeir telja eðlilega alla vera á sínu bandi. Fyrsti leikur íslendinga verður í Árósum 27. janúar gegn Sovétmönnum. Degi siðar verður leikið gegn Dönum i Álaborg og þríðji leikurinn í riðlinum verður 29. janúar gegn Spánverjum í Tysted. Tvö lið komast áfram úr þessum riðli. Barcelona vegna ágreinings við hinn fræga leikmann félagsins, Hollendinginn Johan Cruyff. í viðtalinu var Weisweiler spurður um þetta, en hann svaraði þvi einu að Cruyff væri frábær knattspyrnumaur, en bætti síðan við að knattspyrnu- lið byggðist ekki á stjörnum, heldur jöfnum og samvinnu- þýðum mönnum. Eftir að Weisweiler kom til Þýzkaalnds að nýju tók hann við þjálfun FC Köln og þykir knattspyrna félagsins hafa tekið miklum breytingum til batnaðar siðan, þótt liðið sé reyndar ekki í allra fremstu röð í vestur-þýzku 1. deildar keppn- inni að þessu sinni. Að undanförnu hafa verið fréttir á lofti um að Weisweiler hefði fengið tilboð frá enskum knattspyrnufélögum, og stað- festi hann það í umræddu viðtali. Hann vildi hins vegar ekki gefa upp hvaða félög hefðu gert honum tilboð. — Ég ætla mér ekki að taka þessum tilboðum, sagði Weis- weiler. — Ekki af því að ég sé ekki hrifinn af enskri knatt- spyrnu. Þvert á móti tel ég að engir knattspyrnumenn leggi sig eins fram í leikjum og almennt gerist í Englandi. Hins vegar er „stíll“ flestra félaganna i Englandi afskap- lega gamaldags og leiðinlegur. Með honurn er erfitt að ná árangri, og eitt það versta sem gæti komið fyrir þýzka knatt- spyrnu væri að við tækjum hann upp. Ég er hræddur um að þá ^rðu áhorfendapallarnir fljótir að tæmast. i lok umrædds viðtals fjallar Weiseiler nokkuð um knatt- spyrnumenn frá Norður- löndunum, en hann hefur haft allmarga slíka i liðium sínum, einkum þó Dani. Hrósar hann Norðurlandabúum mjög og segir að það þurfi venjulega ekki að segja þeim hvað gera skuli nema einu sinni. Matli með mark í hverjum leik MATTHÍAS Hallgrfmsson lét mjög vel af dvöl sinni í Svfþjóð er Morgunblaðið ræddi við hann í gær. Hefur Ilalmia, lið Matthfasar, leikið sjö æfinga- leiki að undanförnu og ekki tapað neinum þeirra. Hefur lið- ið t.d. gert jafntefli við tvö þeirra liða, sem talin eru hvað sterkust f 1. deildinni sænsku, „allsvenskan". Hefur Matthías skorað eitt márk f hverjum þessara leikja. — Það er mikill hugur f leik- mönnum Halmia og það eina sem við erum hræddir við er að menn slaki á eftir velgengnina að undanförnu, sagði Matthfas Ilallgrfmsson. Fyrsti leikur liðsins f 2. deildinni verður á mánudaginn, en þá leika saman Norrby og Ilalmia. Verður leik- ið f Borás, á heimavelfi Norrby, liðsins, sem Vilhjálmur Kjart- ansson ætlar að leika með í VÖLSUNGUR sigr iði fyrir nokkru f keppninni f 2. deild f blaki og leikur félagið þ’ < f 1. deild á næsta ári f fyrsta skipti. Er þessi sigur vegleg afmælisgjöf blakmanna félagsins til Völsungs á 50 ára afmælinu. Fremri röð frá vinstri: Gfsli Haraldsson fyrirliði, Asvald- ur Þormóðsson, Sveinn Pálsson og Gunnar Jóhannsson. Aftari röð: Hjörtur Einarsson, Hannes Karlsson, Haraldur Þórarinsson, Helgi Helgason, Sigurður Gunnarsson, Guðmundur Héðinsson og Gunnar Arnason liðsstjóri. (Ljósm. Börkur Arnviðarson). Völsungur 50 ára um þessar mundir Félagar ekki en 16 ára í upphafi og engar stúlkur Húsavik 5. april ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Völsung- ur minnist 50 ára afmælis fé- lagsins um þessar mundir, en það var stofnað 12. april 1927 af 23 Húsavikurdrengjum. Aóal- hvatamenn að stofnun félags- ins voru bræðurnir Jakob og Jóhann Hafstein og skipuðu þeir fyrstu stjórn félagsins ásamt Ásbirni heitnum Bene- diktssyni. Segja má að vagga félagsins hafði fyrstu árin verið á heimili foreldra Hafsteins- bræðra, sýslumannshjónanna á Húsavík. Fyrstu lög félagsins voru einföld og í þeim er ekki getið um nafn félagsins. Fyrsta grein þeirra hljóðaði svo: „Fé- lagar mega ekki vera yngri en 10 ára og ekki eldri en 16 ára.“ Með uppvexti þessara ungu drengja færðist aldurstakmark- ið eðlilega upp. Fyrst i stað kom þeim ekki annað til hugar en að hafa eingöngu drengi i félag- inu. Sex árum frá stofnun fé- lagsins, 1933, biðluðu þeir þó til stúlkna á Húsavík og gengu þá 27 ungar meyjar í félagið. Þess er getið í fundargerð að dansað hafi verið að loknum fundar- störfum á inntökufundinum. Saga Völsunga verður ekki rakin hér, en er á margan hátt merk og skipar sinn virðulega sess i sögu Húsavíkur. Einnig eiga Völsungar sinn drjúgá þátt i þróun íþróttahreyfingarinnar úti á landsbyggðinni. Völsungar minnast afmælis- ins með hátiðadagskrá annan dag páska og á afmælisdaginn 12. apríl með íþróttahátíð I iþróttasalnum. — Fréttaritari URVAL - EKKI LANDSLIÐIÐ LIÐ það sem leikur gegn Fredericia f Laugardalshöllinni á mánudaginn verður ekki raunverulegt landslið, heldur verður það valið af Bjarna Jónssyni. Þó það verði að mestu skipað landsliðsmönnum, þá er því ekki teflt fram sem slíku, heldur sem (Jrvalsliði. Fyrsti leikur Fredericia verður gegn Víkingi 1 Laugardalshöllinni í kvöld, annar leikurinn verður gegn FH í Hafnarfirði á laugar- daginn klukkan 15 og þriðji leikurinn gegn úrvalinu í Höll- inni á mánudaginn klukkan 16. KR og Haukar lögðu stórveldin í kvenna- handknattleiknum STÓRVELDIN 1 fslenzkum kvennahandknattleik undan- farin ár, Valur og Fram, eru bæði fallin úr bikarkeppninni f handknattleik. Tapaði Valur f fyrrakvöld fyrir KR-ingum nteð 12 mörkum gegn 13. Var það fyrst og fremst mikil barátta KR-stúlknanna, sem færði þeim sigur í þessum leik, en Valur hafði tvö mörk yfir f byrjun seinni hálfleiksins. En með seiglunni og mikilli baráttu höfðu KR-stúIkurnar það og var sigur þeirra eftir atvikum sanngjarn. F'ramstúlkurnar töpuðu fyrir nokkru fyrir Haukjum úr Hafnarfirði með miklum mun, eða 10 mörkum gegn 15. Er lið Haukastúlknanna mjög efni- legt og eru allar likur á að liðið leiki i 1. deildinni á næsta ári. Sigruðu Haukar í sfnum riðli nokkuð örugglega og eiga að leika úrslitaleik f deildinni gegn Grindavfk. Veðja flestir á lið Hauka í þeirri viðureign, en að Grindavík muni hins vegar fá tækifæri til að ná sæti í 1. deildinni með þvi að leika gegn Vikingi, næstneðsta liðinu í 1. deildinni. Breiðabik er hins vegar fallið niður i 2. deild kvenna. sumar. Þrír leikir í litla bikarnum ÞRtR leikir verða f litlu bikar- keppninni f knattspyrnu yfir páskahelgina. 1 dag mætast Breiðablik og FH á Vallar- gerðisvellinum f Kópavogi klukkan 14 og á sama tfma leika lA og Haukar á Akranesi. A laugardaginn klukkan 14 mætast svo á Káplakrika „fjendurnir úr Firðinum" FII og Haukar. Urðu Haukar sigur- vegarar f litla bikarnum f fyrra og lögðu þá m.a. FH-inga. í þ rótta viö bu rð i r um páskahelgina SKÍRDAGUR: SIGLUFJÖRÐUR: Stórsvig og 3x10 km. boðganga. LAUGARDALSHÖLL: Vikingur— Fredericia kl. 20. LAUGARDALSHÖLL: Ármann — Haukar klukkan 18, bikarkeppni kvenna. KÓPAVOGUR: BreiSablik — FH kl. 14. litli bikarinn. AKRANES ÍA— Haukar kl. 14, litli bikarinn. FÖSTUDAGURINN LANGI: SIGLUFJÖROUR: SklSaþing LAUGARDAGURINN 9. APRÍL: HAFNARFJÖRÐUR: Haukar — FH kl. 14, litli bikarinn. LAUGARDALSHÖLL: MeistaramótiS I badminton kl. 10. HAFNARFJÖRÐUR: FH — Fredericia kl. 15. SIGLUFJÖRÐUR: Svig karla og kvenna. PÁSKADAGUR: LAUGARDALSHÖLL: Úrslitaleikir I badminton meistaramótinu kl. 15. SIGLUFJÖRÐUR: Flokkasvig, 30 km. ganga fullorSinna, 15 km. ganga unglinga, verSlaunaafhending og mótsslit um kvöldiS. ANNAR í PÁSKUM: LAUGARDALSHÖLL: Úrval— Fredericia kl. 16.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.