Morgunblaðið - 07.04.1977, Page 48

Morgunblaðið - 07.04.1977, Page 48
AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 JílíreunbXaíiiÖ (Haukar í Stapa II í páskum. FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1977 Samkvæmt upplýs- ingum Veðurstofunn- ar er útlit fyrir þokka- legt veður um pásk- ana. Horfur eru á að áttin verði suðvestlæg eða vestlæg og gott veður verði austan til á landinu en nokkur væta sunnan- og vestanlands en alls staðar milt veður. Færð á vegum er i samræmi við veðurfarið. Fært er vestanlands allt i Reykhólasveit og sæmileg færð er allt vestur i Kollaförð. Úr Vatnsfirði er fært til Patreks- fjarðar og þaðan áfram til Bildu- dals. Þá er fært milli Ísafjarðar og Þingeyrar og um Botnsheiði til Suðureyrar og siðan inn í Djúp. Greiðfært er einnig norður í land og út frá norðurleiðinni í Bjarnar- fjörð á Ströndum, til Siglufjarðar og Ólafsfjarðar en síðan frá Akur- eyri um Dalsmynni til Húsavíkur og i Mývatnssveit. Verið var í gær að ryðja fyrir Tjörnes og í Keldu- hverfi og ailt til Raufarhafnar en þar fyrir austan er færð lakari. Austanlands er ófærð á Möðru- dalsöræfum, en fært er í Jökuldal allt upp að Gilsá. Fært er einnig inn Fljótsdal en þungfært um Skriðdalinn. Fært er að Móbergi í Hjaltastaðaþinghá en þaðan áfram er ófært. Byrjað var í gær að moka á Fjarðarheiði og var búið að ryðja að norðurbrún til að flýta fyrir sjóbilnum. Þá var einn- ig verið að moka Oddsskarð og Fagradal og miðað við veðurútlit má búast við að þessir fjallvegir verði færir um páskana. Greið- fært er meðfram suðurfjörðun- um, um Lónsheiði og þaðan áfram um Suðurland til Reykjavíkur. Rétt er að geta þess, að ófært er um Gjábakkaveg milli Þingvalla og Laugavatns og einnig er Grafn- ingsvegur ótryggur. Fíkniefnamál; Nýr mað- ur í gæzlu SÍÐDEGIS í gær var 25 ára gam- all Reykvíkingur úrskurðaður f allt að 30 daga gæzluvarðhald vegna rannsóknar á nýju ffkni- efnamáli. Annar maður sat fyrir f gæzluvarðhaldi vegna rannsóknar þessa máls. Rannsóknin er ennþá á frumstigi. Skfpsskrúfunnl af Þór, fyrsta varóskfpf Islendinga, og Vestmannaeyingar áttu, var skipað um borð f Þðr f Reykjavfk f gær, en skrúfan verður sett upp f Vestmannaeyjum sem minnismerki um gamla Þðr. Björgunarfélag Vestmannaeyja, sem keypti Þðr til landsins 1920, á skrúfuna, en henni var bjargað af strandstað Þðrs fyrir nokkrum árum. Þðr fðrst á skerjum undan bænum Ytri-Ey skammt frá Skagaströnd árið 1929. Eftir marga áratugi f sjðnum er skrúfan nokkuð skemmd, en hún verður gerð upp í Eyjum og sett á stall. Sjá grein á bis. 25. r.jósmynd Mbi. rax. Sölusamband ísl. fiskframleidenda: Búið fyrir að selja saltfisk 7500 milljónir kr. á árinu Portúgalir kaupa fyrir 5500 milljónir SÖLÚSAMBAND fsl. fiskfram- leiðenda hefur samið við Portúgali um að selja þeim 16.000 lestir af blautsöltuðum saltfiski Skandinavisku krónurnar gagnvart íslenzkri; Hafa heldur rétt við síðustu tvo daga NOKKÚÐ hefur dregið úr gengis- fellingum skandinavisku mynt- anna. sem breyttust síðastliðinn mánudag, er gjaldeyrismarkaðir voru opnaðir á ný. Danska krónan féll þá um 2.8% hin norska um 1.9% og sænska krónan um 4.1% miðað við gengi íslenzku krón- unnar. I gær hafði svo svolítið saxast á þessa gengisfellingu og var fallið á þessum þremur mynt- um f gær miðað við gengisskrán- ingu fyrir síðustu helgi, ekki nema 2.5% á dönsku krónunni, 1.3% á hinni norsku og 3.8% á hinni sænsku. íslenzka krónan hefur því staðið sig heldur ver gagnvart þessum gjaldmiðlum síðustu daga, enda hefur Bandaríkjadoll- ar hækkað um 0.4% á þessum sama tíma, svo og sterlingspund- ið. Hins vegar hefur finnska markið tekið að síga allmikið og er sig þess frá því fyrir helgi 6.1%. og að auki 1500 lestir af þurrfiski og um 2000 lestir af löngu, keilu og ufsa. Heildarverðmæti þessa samnings mun vera kringum 5500 milljónir króna og frá áramótum er S.Í.F. búið að selja 25—26.000 lestir af saltfiski og er verðmæti afurðanna talið vera um 7.500 miiljónir kr. Á þessari vertfð mun nú vera búið að framleiða kringum 14.000 lestir af söltuðum þorski, auk annarra tegunda. Það voru þeir Tómas Þorvalds- son, stjórnarformaður S.Í.F., Helgi Þórarinsson, framkvæmda- stjóri, og Friðrik Pálsson, skrif- stofustjóri, sem önnuðust þessa samningagerð. í samtali við Morgunblaðið í gær sögðu þeir, að sá fyrirvari væri í samningum við Portúgali, að þeir gætu ráðið því fram í miðjan maí hvort þeir tækju við Vt af þeim fiski, sem samið hefur verið um, og eins gæti S.Í.F. ráðið hvort það ráðstafaði fjórðungnum á annan hátt. Þessi fyrirvari i samningn- um var gerður að beiðni Portúgala, þar sem þeir voru ekki búnir að fá leyfi til kaupa á öllu þessu magni. Afskipanir á saltfiskinum til Portúgals eiga að hefjast í vor, þ.e. á venjulegum tíma, og standa afskipanirnar fram á sumar. Að sögn Tómasar Þorvaldsonar eru Portúgalir orðnir tregari en áður til að taka við fiskinum yfir mitt sumarið, bæði vegna hita og eins þess, að fólk er þá mikið í sumarfrium. Samningurinn, sem gerður var við Portúgali að þessu sinni, er mjög áþekkur samningnum, sem gerður var við þá á s.I. ári og undirritun samningsins fór fram sama dag og þá. Verðið sem nú fæst er hins vegar heldur lægra, eða sama verð og fékkst fyrir salt- fisk, sem seldur var þangað í fyrrahaust. Þeir Tómas, Helgi og Friðrik fóru ennfremur um önnur mark- aðslönd og ræddu við viðskipta- vini þar. Hefur komið i ljós að alls staðar er þungt fyrir fæti, og sagði Tómas, að lítið færi fyrir norskri samvinnu á þessu sviði. Saltfiskverkun væri nú mikil í Noregi, eða mun meiri en undan- farin ár, sem stafaði af meiri fisk- veiði þar en áður. í ferð þeirra félaga fékkst inn- flutningsleyfi fyrir 3500 lestum af saltfiski til Spánar, en gengið var frá þeirri sölu í marzmánuði s.l. Um markaðina í S-Ameríku sagði Tómas Þorvaldsson að útlit- ið væri ekki glæsilegt. Inn- borgunarreglan væri við lýði í Brasilíu og í ofanálag hefðu ís- lendingar orðið fyrir áföllum þar vegna lélegrar vöru. Sérkröfumar ganga þvert á launa- jöfnunarstefnuna, segir VSI Gagnkröfur Vinnuveitendasambands íslands komnar fram MIKIL vinna hefur verið lögð f samningaumleitanir þær, sem nú standa yfir milli aðila vinnu- markaðarins. Sfðustu þrjá daga hefur verið fundað daglega um sérkröfur velflestra landssam- banda verkalýshreyfingarinnar, á miðvikudag f næstu viku munu verða haldnir baknefndafundir af hálfu beggja — vinnuveitenda og verkalýðshreyfingarinnar og sáttasemjari hefur boðað aðal- samninganefndir til fundar á fimmtudag f næstu viku. Þá lögðu vinnuveitendur fram í gær greinargerð sfna um stöðuna í samningunum, eins og hún horf- ir nú við að þeirra mati og eins lagði Vinnuveitendasambandið fram gagnkröfur sínar í samn- ingagerðinni, þ.e. þær breytingar sem vinnuveitendur vilja fá fram á þeim samningum sem i gildi hafa verið til þessa. Morgunblaðið sneri sér í gær til Baldurs Guðlaugssonar, fram- kvæmdastjóra hjá Vinnuveit- endasambandinu, og spurði hann hvort vinnuveitendur væru farnir að átta sig á því hvað raunveru- lega fælist i þeim sérkröfum verkalýðsfélaganna sem fram væru komnar. Baldur kvað svo naumast vera að svo komnu máli. Sérkröfurnar væru mjög margvís- legar og mismunandi, eins og oft áður, og í mörgum tilfellum kvaðst Baldur ekki geta séð betur en þær gengju þvert á yfirlýsing- ar og samþykktir forustumanna verkalýðshreyfingarinnar um aukinn launajöfnuð í þeim samn- ingum sem fyrir dyrum stæðu. Ekki bólar á páskahrotu EINS og mörg hin sfðari ár, hefur enn ekkert bólað á páskahrotunni sem sjómenn f verstöðvum á Suður- og Suð- vesturlandi gátu svo til reitt sig á. Þeir menn, sem Morgun- blaðið ræddi við í gær, sögðu, að menn væru löngu hættir að gera ráð fyrir páskahrotu. Fiskihrotur væru þvf sem næst hættar að koma. Samkvæmt reglugerð sjávar- útvegsráðuneytisins, sem gefin var út fyrir nokkrum árum, ber öllum netabátum að fækka netum í sjó frá skírdag til páskadags. Eru bátar skyldaðir til að taka 30 net úr sjó eða um 2 trossur. Þá er i samningum sjómanna, að bátar rói ekki á föstudaginn langa og á páskadag. Gott veður og góð f ærð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.