Morgunblaðið - 25.06.1977, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 25.06.1977, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JUNI 1977 15 Beitukostnaðurinn er að gera línu- veiðar óstundandi — segir Númi Jóhannsson skipstjóri. „ÉG IIELD að þessi Ifnuútgerð á stærri bátunum sé alveg fallandi, ef ekki verður eitthvað við gert. Beitan er orðin svo dýr og þetta er mikil keyrsla, þannig að ég sé ekki annað en að þessar veiðar verði einungis fyrir smærri bát- ana,“ sagði Númi Jóhannsson, út- gerðarmaður og skipstjóri á Tjaldi, Siglufirði, þegar ég hitti hann á Ilafnarbryggjunni. Þá ætl- aði Númi að láta leysa landfestar og skyldi farið til Ólafsfjarðar og á austurhafnir að sækja grá- sleppuhrogn; samtals 1050 tunn- ur, sem Tjaldur sfðan siglir með til Danmerkur. Tjaldur er 136 tonn. í vetur fengu þeir 451 tonn, sem Númi sagði að væri svipað og undan- farnar vertíðar. Hins vegar sagði Númi þróunina hafa orðið þann- ig, að þeir væru nú eini stærri báturinn, sem enn hefði stundað línu fyrir Norðurlandi. „Við lögðum á Skagagrunni og í Húnaflóa. Þarna var enginn NtJMI JÓHANNSSON ágangur; engir togarar og engin net. En þetta er orðin alltof þung sjósókn. Beitan er orðin svo óstjórnlega dýr og olíukosturinn er mikill, þegar keyrt er i land á hverjum degi, þetta 6—7 tfma stím.“ — Hvað sérð þú þá til ráða? „Mér finnast þessar skyndilok- anir ágætar, en ég tel, að það hafi verið gengið allt of langt í því að útiloka togbáta fyrir Norðurlandi. Við verðum að sæta sömu skil- yrðum og skuttogararnir og í þá hefur Tjaldur auðvitað ekkert að gera. En þeir fyiýr sunnan mega toga á minni bátunum upp i land- steina að kalla." — Viltu þá láta liðka til fyrir togbáta hér fyrir norðan? „Alveg skilyrðislaust. Þó reglu- stika á skrifstofu suður í Reykja- vík geti reynzt þarfaþing þar, þá er hún ekki rétta verkfærið til að stjórna fiskveiðum hér fyrir norð- an.“ — En hvað er hægt að gera fyrir línuna? „Fyrir bát af þessari stærð þýð- ir ekkert að vera í þessu lengur. Við erum tólf í kring um hann, sex á sjó og sex í landi, þannig að útgerðin er of dýr til að þetta geti gengið. Til þess að það gæti orðið er númer eitt að lækka beituverð- ið.“ — Og hvað þá? Niðurgreiða beituna? „Það væri alla vega ein leiðin." — Hvað tekur svo við, þegar frá Danmörku kemur? „Ætli við förum ekki á net. Ég er alla vega að gefast upp á lín- unni og það er ekki fyrirsjáan- legt, að einhver taki á sig rögg og leiðrétti þessa reglustikuvitleysu með togveiðarnar." Og þar með lét Númi Jóhannsson leysa og sigldi út Siglufjörð. „ÉG ÉR nú búinn að stunda þenn- an trilluskap í tuttugu sumur og ég held ég svari þér bez.t með því að segja þér, að um daginn komu til mfn menn og kváðust vilja kaupa trilluna mína. Ég held hara að það hafi stoppað í mér hjartað við tilhugsunina,“ segir Ilelgi Sveinsson kennari á Siglu- firði, þegar ég spvr hann, hvað honum finnist um þa>r raddir, að það eigi að banna „sumarsport- mennina" á trillunum. „Ég veit nú reyndar ekki, hvort það er alfarið rétt að kalla þetta sport hjá okkur,“ segir Helgi. „Ég geri þetta mér til tekjuöflunar og svo auðvitað til útivistar. En við þessir handfærakarlar erúm algjörir smáfuglar í sjó- sókninni." — Einhver sló þvi fram í mín eyru, að ekki væri þaö nú stórfisk- ur, sem þið fengjuð á öngulinn. „Þetta er voðalega viökvæmt veiðarfæri og aflinn er ýmist í ökkla eða eyra. Ég hef til dæmis fengið minnst 36 kíló i róðri og svo mest 600. En þetta með stóran fisk eða litinn. Ég skal bara sýna þér út- komuna hjá mér. Ég náði fimm róðrum í maí og fékk samtals 1486 kíló. Þar af voru 695 kfló stórfisk- ur, 731 kíló millifiskur og smá- fiskur var 60 kíló. Síöan hef ég komizt einn róður í júní og skipt- ingin úr honum varð 82 kíló, 206 kíló og 50 kiló smáfiskur, samtals 338 kíló. Við ger- um ekkert útslag, — á hvorug- an veginn — segir Helgi Sveins- son kennari, sem hef- ur stundað trilluskap í tuttugu sumur. Ég get líka bætt við því, að i nokkur sumur vorum við kennar- ar hér með saltfiskverkun líka og þá fóru þetta 96—98% i fyrsta flokk. Þannig að ég held, að það geti engin vara orðið góð, ef færafi.sk- urtnn er ekki góð vara. Og svo má bæta þvi við, að frá þjóöhagslegu sjónarmiði komum viö með ódýr- asta fiskinm að landi, þött magnið sé auðvitað sama og ekki neitt.“ — En nú segja sumir að þið séuð aö ganga í starf sjómannsins og það eigi ekki að líða, þegar verið er að þrengja sóknina i þorskinn með ýmsum ráðum. „Ég held nú að ef rnenn líta á málið æsingalaust, þá sjái þeir, að við gerum ekkert útslag, á hvor- ugan veginn. En þetta er fastur punktur i minu atvinnulífi og er búið að vera þaö í tuttugu sumur. Svo er ekki hægt að horfa fram hjá því. að enda þótt þetta sé ekki stórt i sniðum, þá eru menn samt búnir aö leggja i nokkurn kostnað til þessarar útgerðar. Nú og um heilsubótina vil ég bara vitna i leikarann Árna Tryggvason, sem hvert sumar stundar trilluna frá Hrísey, en hann á að hafa sagt einu sinni: „Nei. Ég fer ekki til Mallorka. Ég fer til Hrisorka." HELGI SVEINSSON ar við látum hrognin af hendi við þessa menn. Það hafa líka komið upp skuggaleg dæmi um það, hvað þetta öryggisleysi þýðir fyrir okk- ur.“ — Ætlið þið þá að stofna eigin sölusamtök? „Það hefur verið rætt um það. Önnur vitleysan, sem við erum bundnir við, er 6% gjaldið til lagmetisiðnaöarins. Þetta er nú aö visu síðasta árið, sem lögi.i gilda, og ég vona innilega að þessi vitleysa verði ekki framlengd. Ég tel, að okkur sé betur borgið með því að greiða þetta gjald af grásleppunni t sarna og af þorsk- inum.” HENNING HFNRIKSEN BLÓM VIKUNNAR UMSJÓN: ÁB. ® Valmúi—Draum- Papaver Af draumsóleyjum eru til mörg afbrigði, sum einær önnur fjölær — öll falleg. Garðasól (Papaver nudicaule) sem víða er- lendis er nefndur íslensk- ur valmúi er fjölær auð- ræktuð algeng garðjurt ca. 20—40 sm. há með gul, hvít, bleik eða há- rauð blóm. Hún þrífst ágætlega sé þess gætt að hafa hana í magurri frek- ar sendinni mold. Áburð þolir hún bókstaflega ekki. Fallegast en jafn- framt sjaldséðast er hárauða afbrigðið. Garðasólin er mjög blóm- sæl, blómstrar allt sum- arið léttum fögrum blóm- svo hefur mér reynst. Hárautt ofkrýnt afbrigði af risavalmúa er mjög fallegt en hefur sama ágalla og áður er á minnst, blómin bera stilkinn ofurliði. Risaval- múi hefur djúpstæða stólparót og því vont að flytja til stórar plöntur. Grófhærð stilkuð blöð risavalmúans eru falleg á vorin en verða rytjuleg eftir blómgun og þarf þá að klippa ofan af plönt- unni, ef það er ekki gert verður hún til lýta óásjá- leg síðari hluta sumars. Eftir klippingu myndar hún aftur á móti ferskan blaðvöxt og verður falleg á ný. Fyrir þennan Risasól — Papaver orientale um og gefur beði sínu litaskraut alveg frá þvi snemma vors og fram á bláhaust. Ef hún er látin afskiptalaus sáir hún sér sjálf, fræhylki er því best að fjarlægja jafnóðum, þá verða plönturnar líka heilbrigðari og sterkari. Risasól (Papaver orientale og P. bracteatum) — Risaval- múar eru allt að metra- háar blómjurtir sem blómstra snemmsumars rauðum eða bleikum risa- stórum blómum oft með svartblettóttum botni. Því miður nýtur risaval- múinn sín síður en skyldi vegna þess að blómin eru of þung fyrir stilkinn og leggjast út af ef ekkert er að gert. Þó mun afbrigðið P. Orientale var. Goliath vera laust við þennan ágalla og því mjög svo glæsilegt í blómi en erfitt er að fá það afbrigði eða valmúa er mögur mold einnig betri en áborin. Fjallasól (P. alpinum) er 10—20 sm. há með blágrá blöð. Hún er blómsæl og góð í steinbeð. Verður oft aðeins tvíær. Fjöldinn allur er til af einærum valmúategundum. Þær eru yfirleitt blómasælar og fagrar. Best er að sá þeim beint út á vorin, þar sem þær eiga að standa því þær þola illa dreif- plöntun. Fræið er smátt svo gott er að blanda það þurrum sandi áður en því er sáð. Grisja þarf svo að um það bil 20 sm. verði milli plantna.Ur Papaver somniferum er unnið ópium sem bæði má nota til góðs — sem læknislyf — og misnota þannig að illt af hljótist. Sá valmúi er ekki síður skrautlegur í blómi en aðrar tegundir hans. S.Á. I— ........ . ... . I I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.