Morgunblaðið - 25.06.1977, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 25.06.1977, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1977 19 r w ERLENT Skora á Iranskeisara að virða mannréttindi Sameinuðu þjóðunum, 24. júní. AP. ALÞJÓÐLEG samtök, sem berj- ast fyrir auknum mannréttindum hafa látið frá sér fara opið bréf til íranskeisara, þar sem hafið er fram að mannréttindi séu frek- lega fyrir borð borin f landi hans. Er skorað á keisarann að stöðva hina fskyggilegu þróun mannrétt- indamála f landinu. í bréfinu eru ásakanir um að þúsundir manna sitji í fangelsi í íran án þess að þeir hafi nokkru sinni átt kost á því að verja mál- stað sinn fyrir dómstólum, að kerfisbundnar pyntingar eigi sér stað í fangelsum, svo og ofsóknir á hendur þeim, er gagnrýni stefnu stjórnvalda. Þá er því einn- ig haldið fram, að frjáls blaða- mennska fái ekki þrifizt í land- inu, þar eð tjáningarfrelsi sé af skornum skammti og ritskoðun að heita megi viðtekin venja. Þá er skorað á keisarann að afnema lögsögu hersins yfir al- mennum borgurum og sjá til þess að þeir séu látnir koma fyrir borgaralega dómstóla. Bréfið hefur verið sent Cyrus Vance, utanríkisráðherra Banda- rfkjanna, og er Bandaríkjastjórn gagnrýnd fyrir að hafa Iátið sig mannréttindamál f íran litlu skipta. Sé nú talið að pólitískir fangar f íran séu yfir 5 þúsund að tölu, en Bandaríkjastjórn hafi tekið sem góða og gilda vöru, að þeir séu vart fleirí en 150, eins og fram hafi komið í skýrsiu til Bandaríkjaþings í marz s.l. Manila, 24. júní. Reuter. ALÞJÓÐA matvælaráðið sam- þykkti f dag áætlun um að útrýma hungri f heiminum, og er f þvf sambandi stefnt að þvf að safna gffurlegu magni matvæla f sér- stök viðlagaforðabúr og auka mjög aðstoð við lönd, þar sem örbirgð er almenn. Ráðið, sem skipað er fulltrúum frá 36 þjóðum, lét í ljós áhyggjur af því að trúlega héldi ástandið í fæðuöflun ekki áfram :ð batna, eins og verið hefur nú um skeið, og hefur beint því til alþjóða- stofnana og rfkisstjórna um víða veröld, að láta vandamál svelt- andi milljóna vfðs vegar í heimin- um hafa algjöran forgang á næst- unni. Hin nýja áætlun um útrýmingu hungurs verður lögð fyrir næsta allsherjarþing Sameinuðu þjóð- anna. Á fundi með fréttamönnum sögðu forvfgismenn Alþjóða mat- vælaráðsins, að það, sem líklega væri brýnast að svo stöddu væri að auka mjög tæknilega aðstoð við þróunarlöndin þannig að þau yrðu fær um að auka matvælafra- leiðslu. Ráðið vill að stefnt verði að helmingsaukningu matvæla- framleióslunnar í þróunarlöndun- Simamynd AP Ungfrú island, Guðrún Helgadóttir (t.h ), og ungfrú Danmörk, Christa Yvonne Drube, bregða á leik í japönsku borginni Kyoto, en þar voru þær á ferðalagi áður en Miss International fegurðarsamkeppnin hefst þann 1. júlí. EndurskipiilagTiing nauðsynleg - segir John Silkin um fiskveiðimál EBE Lundúnum, 24. júní, AP JOHN SILKIN, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra Breta, sagði f neðri málstofunni f dag, að samningaviðræður Efnahags- bandalagsins um fiskveiðimál yrðu bæði langar og strangar, og lagði á það áherzlu um leið, að brezka stjórnin væri ekki reiðu- búin til að slá af kröfum sfnum, þannig að réttindi og Iffshags- munir brezkra sjómanna yrðu fyrir borð borin. „Það er skoðun okkar, að þvf aðeins fái brezkir sjómenn þann hluta sem þeim ber með réttu, ef hin sameigin- lega fiskveiðistefna bandalagsins verður endurskipulögð að veru- legu leyt“, sagði ráðherrann. John Peyton, málsvari stjórnar- andstöðunnar i fiskveiðimálum, lét þess getið i ræðu sinni, að hingað til hefðu samningaviðræð- ur við ríki utan bandalagsins ekki gefið tilefni til bjartsýni, og átti þar greinilega við íslendinga. Peyton sagði að í nýjum fiskveiði- samningum nægði ekki að setja kvótareglur heldur yrðum vernd- unaraðgerðir jafnfram að miðast við veiðiaðferðir og verndun hrygningarsvæða, sem i sumum tilfellum væri nauðsynlegt að loka. John Silkin benti á að vernd- unarsjónarmið á miðunum innan 200 mílna við Bretland væru atriði sem stefna brezku stjórnar- innar gagnvart EBE mótaðist af um leið og gætt væri hagsmuna sjómanna, en þegar tillit hefði Rússar sínkir á fé verið tekið til þessara grund- vallarmála væri að sjálfsögðu hægt að veita öðrum aðildarrfkj- um EBE og rfkjum til að veiða það sem þá væri aflögu. Robert Hughes, þingmaður Verkamannaflokksins, taldi at- hugandi fyrir Breta að fara að dæmi íra og lýsa einhliða yfir 50 mílna einkalögsögu, og benti á í því sambandi, að enn hefði Efna- hagsbandalagið ekki gripið til gagnráðstafana. „Við getum ekki tryggt það að réttlátir samningar takist nema ið getum sannfært samstarfsmenn okkar í EBE um að með því að lfta á fiskimið sem sameiginlega auðlind séu réttindi Breta gróflega fyrir borð borin,“ sagði Hughes. Brýnast að auka matvælaframleiðslu í þróunarlöndunum Ósló, 24. júnf. NTB. NORSKA blaðið Verdens Gang hefur það eftir þremur Króötum búsettum í Noregi, að júgóslav- neska sendiráðið í Ósló hafi í fyrra reynt að fá norska þegna í lið með sér til að njósna um hagi Króata sem búa í landinu. Segja heimildir blaðsins, aó sendiráðið stundi njósnir um mörg hundruð landa þeirra sem búa i Noregi, en alls munu um 1900 Króatar vera búsettir f Noregi um þessar mundir. Utanríkisráðuneytið f Ósló hefur staðfest að hafa fengið lögregluskýrslu um mál þetta og að þrír starfsmenn sendiráðsins sem legið hafi undir sök í þessu eftifAáfa fáriá ffá Nörégr. til þróunarlandanna JAFNHLIÐA auknum áhuga Vesturlandamanna á málefn- um þróunarlandanna hefur athygli beinzt I auknum mæli að því hve Sovétrlkin og fylgirlki þeirra í Austur-Evrópu leggja Iftið af mörkum til hjálpar vanþróuðum rfkjum. Theo Sommer, aðalritstjóri þýzka blaðsins Die Zeit, ritar grein um þetta mál f nýlegt hefti tfmaritsins Newsweek, þar sem m.a. kemurfram eftirfarandi: Hlutdeild kommúnistalandanna I Þvf en t.d Vestur-Þjóðverjar verja þróunaraðstoð á árinu 1970 var aðeins um 0,3% þjóðartekna 1 2,6% af heildarframlögum iðn- þessu skyni Til samanburðar, segir væddra rlkja. A árinu 1974 var þessi hlutdeild enn minni eða aðeins 2,3% Á árinu 1975 létu vestræn rlki 13,6 milljarða Bandarlkjadala renna til þróunarlandanna, sem var aukning frá fyrra ári um 2,3 milljarða, en á milli áranna 1 974 og 1975 minnkaði heildarframlag kommúnistarlkjanna úr einum milljarði dala I 800 milljónir dala Framlög aðildarrlkja OPEC árið 1 975 urðu hins vegar 2,6 milljarðar Bandarlkjadala árið 1975 Vestur- Þjóðverjar einir leggja fram meira en tvöfalt framlag allra aðildarrlkja Varsjárbandalagsins til aðstoðar við þróunarlöndin. Sameinuðu þjóðirnar settu það mark á stnum tlma að iðnvædd aðildarrlki þeirra skyldu leggja fram 0.7% þjóðartekna árlega til þróun- araðstoðar Mjög fá ríki eru nálægt þvl að ná þessu marki og standa Svlþjóð, Danmörk og Noregur næst Sommer, leggja Sovétrlkin fram um 0.05% sinna þjóðartekna til þróun- arlandanna. Framlag Sovétrlkjanna lækkaði frá árinu 1972 til ársins 1975 úr 650 milljónum I 350 milljónir dala. Framlag Alþýðulýð- veldisins Klna jókst á hinn bóginn á sama tíma úr 250 milljónum dala I 275 milljónir. Sovétrlkin liggja hins vegar ekki á liði slnu við að dreifa hugmynda- fræði sinni og vopnum til landa víðs vegar I þriðja heiminum Hug- myndafræðin fæst vitanlega frín, en vopnin eru seld nálægt heimsmark- aðsverði nema pólitlskar aðstæður þyki réttlæta sérstök vildarkjör. Ein- kenni á þróunaraðstoð Sovétmanna er að hún beinist mjög til örfárra rlkja og njóta sérstaklega nágrannar Sovétrlkjanna góðs af henni, rlki eins og t.d Tyrkland og Afghanist- an Önnur lönd sem fengið hafa fjárhagsaðstoð frá Sovétrlkjunum undanfarna áratugi og ekki eru kommúnistarlki eru t.d Indland, Egyptaland, Pakistan, Alslr, Iran, Indónesia. Sýrland og írak Oftast hefur verið um að ræða svokallaða tvihliða aðstoð. sem byggst hefur á frekara samstarfi landanna við Sovétrlkin á öðrum sviðum og hafi verið um lán að ræða hafa lánskjör að jafnaði verið verri en þau sem vestræn rlki veita. Sommer bendir á I grein sinni að greinilegt sé að sovétleiðtogunum falli ekki vel þegar bent er á hve slælega þeir hafa staðið sig við að aðstoða fátækari riki heims við að koma undir sig fótunum. Þeir bera fram þau rök að Sovétrlkjunum beri engin skylda til að aðstoða fátæku löndin. þar sem þeir hafi aldrei átt Framhald á bls. 22 Njósnað um Króata í Noregi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.