Morgunblaðið - 30.08.1977, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGUST 1977
3
Margs vísari um sérstöðu
íslands eftir ATA-þingið hér
ARSÞINGI ATA var slitið I
Reykjavík um hádegisbilið I
gær, eftir að lokaályktun hafði
verið samþykkt. A fundi með
fréttamönnum eftir að þingslit
höfðu farið fram, lét Karl
Mommer, formaður ATA-
samtakanna I ljós ánægju sfna
með þingstörfin, og sagði með-
al annars að með þvf að hlýða á
erindi Björns Bjarnasonar,
skrifstofustjóra í forsætisráðu-
neytinu, um stöðu islands inn-
an Atlantshafsbandalagsins
hefðu þingfulltrúar orðið
margs vísari um þá sérstöðu
sem óhjákvæmilega væri fyrir
hendi þegar um væri að ræða
fámennt rfki, sem aldrei hefði
haft her.
Umræður um drög að loka-
ályktuninni stóðu í allan gær-
morgun, en Eugene Rostow,
varaformaður ATA, sagði að
enginn ágreiningur hefði rfkt
um grundvallaratriði. Hins veg-
ar færi ekki hjá þvi þar sem
lýðræðissinnar frá 15 þjóðum
sætu á rökstólum að nokkurt
umstang fylgdi þvi að samræma
smáatriði þannig að allir væru
reiðubúnir að ljá lokaályktun-
inni samþykki sitt. „Við verð-
um alltaf sammála að lokum og
lokaályktun hefur alltaf verið
samþykkt einróma á fundum
— sagði dr. Karl Mommer í þinglok
Forvfgismenn ATA-samtakanna á fréttamannafundi f gær, talið frá vinstri: Jean de Madre fram-
kvæmdastjóri ATA, Eugene Rostow varaformaður, dr. Kari Mommer formaður, Nils Örvik, Sir Frank
Roberts varaformaður og Hugh Hanning.
samtakanna, sagði Rostow. „Sá
ágreiningur sem upp kemur er
aldrei um markmiðið sjálft,
heldur leiðirnar að því“, bætti
hann við.
Þeir Rostow og Mommer
skýrðu frá þvi að eitt mikilvæg-
asta málið, sem rætt hefði verið
á þinginu, væri evró-
kommúnisminn svonefndi.
Hefði komið í ljós, að full
ástæða væri til að ræða þaó mál
mun frekar en tími og aðstæður
hefðu leyft á þinginu hér, og
hefði þvi verið ákveðið að efna
til ráðstefnu um evró-
kommúnisma á vegum ATA i
Portúgal í maímánuði n.k.
I ljósi fregnar, sem birtist i
Morgunblaðinu s.l. sunnudag,
um að nú ætti áheyrnarfulltrúi
frá Spáni i fyrsta sinn sæti á
ATA-fundi, kom fram sú spurn-
ing á fundinum hvort forráða-
menn samtakanna vildu leiða
getum að því hvort og hvenær
Spánn gengi i Atlantshafs-
bandalagið. „Nei, við viljum
engu spá um inngöngu Spánar í
Atlantshafsbandalagið," sagði
dr. Karl Mommer, „en við get-
um fullyrt að nú þegar lýð-
ræðisleg stjórn er komin á í
landinu erum við þess fýsandi
að Spánverjar verði ein af
bandalagsþjóðunum."
Giftusamleg
björgun nauð-
staddrar trillu
GIFTUSAMLEGA tókst til um og hálfrar stundar siglingu komu
björgun manns og konu, sem voru við auga á trilluna, sem var á reki
á lítilli trillu í Faxaflóa en vél f storminum og miklum sjógangi.
hennar bilaði einmitt er illviðrió Við renndum fram með stefni
var að skeila á s.l. laugardag. Vél- trillunnar og komunt fljótlega
skipið Arnþór AK var beðið um «dráttartaug um borð í hana. Vor-
að aðstoða trilluna og tókst að um við þá staddir 10 sjómílur
draga hana til Akraness. norðvestur af Akranesi, en trillan
„Þaó var i gærmorgun (laugar- hafði þá rekstefnu norður á mýr-
dag) um tíu leytið, þegar við vor- ar, sem voru þarna skammt und-
um staddir innan við Garðskaga á an. Héldum við siðan á hægri ferð
leiðinni til Akraness að við feng- áleiðis til Akraness í afspyrnu-
um tilkynningu frá Hannesi Haf- roki og komum þangað um kl. 17.“
stein hjá Slysavarnafélagi Islands Að sögn fréttaritara Mbl. voru
um að vélbátur eða trilla væri á tveir menn á trillunni, Steinar
reki með bilaða vél suðvestur af Bragi Norðfjörð og kona hans og
Akranesi og var óskað eftir aðstoð voru þau á leið frá Jökli. Sagði
við hana,“ sagði Birgir Jónsson, Júlíus Þórðarson að telja mætti
skipstjóri á Arnþóri, í viðtali við afrek og einstakt lán að skipverj-
fréttaritara Mbl. á Akranesi, Júlí- um á Arnþóri skyldi takast að
us Þórðarson, á sunnudag. finna hina nauðstöddu trillu svo
„Þá var austan vindur og veður fljótt og koma henni heilli til
fór ört vaxandi," sagði Birgir enn- hafnar i þessum veðurham á sama
fremur, „Við tókum þá stefnuna á tíma og Akraborgin varð að snúa
Þormóðssker og eftir um tveggja frá.
Birgir Jónsson, skipstjóri á Arnþóri AK
Vörusýningar
LEIPZIG
TRADE FAIR
4 —9. 9. 1977
M
Alhliða vörusýning, sem haldin er vor og haust. Meðal
annars verða sýndar efnavörur, plastvörur, vefnaðar-
vörur, skór, pappir, læknavörur o.fl.
BÍLASÝNING
í FRANKFURT
15.-25. 9.
1977
Næstum allir framleiðendur vélknúinna ökutækja, sem
hlotið hafa alþjóðlega viðurkenningu munu sýna fram-
leiðslu sina á IAA. Auk þess munu framleiðendur
húsvagna, verkfæra, varahluta o.fl. taka þátt i þessari
frábæru sýningu.
SPORTVÖRU-
SÝNING
KÖLN
25.-27.9
1977
'/.V
SPOCA
^KOLN
Alþjóðleg sýning á iþróttavörum og viðleguútbúnaði.
Samtimis er sýning sem nefnist „GARTEN ’77“ þar
sem sýnd verða garðhúsgögn og garðáhöld.
ALÞJÓÐLEG
MATVÆLASÝNING,
SEM SKIPTIST ( ÞJÁ HLUTA
KÖLN
u
iýsTenia
io. —15.9 onugo
1977
technica
í fyrsta hluta ANUGA eru sýndar neysluvörur
á svæði, sem er 137.000 m og er fjölbreytnin i
samræmi við það.
í öðrum hluta eru kynntar helstu nýjungar i
tækjabúnaði mötuneyta og veitingahúsa.
í þriðja hluta eru kynntar aðferðir við fram-
leiöslu, geymslu og frágang matvæla.
Sérhæfð vörusýningaþjónusta Ferðamið-
stöðvarinnar býður þér:
1. Ókeypis aðgöngumiða að þeim sýningum,
sem við erum umboðsmenn fyrir, ef
ferðast er á okkar vegum.
2. Leiðbeiningar um hagkvæmasta ferða-
mátann með tilliti til kostnaðar.
3. Alla fyrirgreiðslu erlendis t.d. útvegun
gistingar, bilaleigubila o.fl.
4. Reynslu i skipulagningu viðskiptaferða
og tillit til sérþarfa þinna.
VIÐSKIPTAFERÐIR ERU I EÐLI SINU ERFIÐAR,
EN OKKAR MARKMIÐ ER AÐ GERA ÞÆR ÞÆGILEGRI.
Pi
Feróamióstöóin hf.
Aóalstræti9 sími 11255