Morgunblaðið - 30.08.1977, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 30.08.1977, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. AGUST 1977 39 stjórnun og svo mætti lengi telja. All margir fundir hafa verið haldnir. Eru þeir ýmist skipulagðir á þann hátt, að Landssambandið útvegar utan- aðkomandi leiðbeinendur og fyrirlesara eða að starfsmenn sambandsins sjá um fræðsluna sjálfir. A því sem hér að framan hef- ur verið sagt má sjá, að Lands- samband iðnaðarmanna beinir ekki aðeins spjótum sínum að hinu opinbera, heldur reynir að hafa áhrif á það, sem því þykir að umbóta þurfi við innan fyrirtækjanna. IÐNAÐARSTEFNA OGIÐNÞRÓUN A því Iðnþingi, sem nú er að hefja störf, verða að vanda tek- in fyrir mörg af brýnustu hags- munamálum iðnaðarins, sem ástæða væri til að fjalla um sérstaklega, en til þess gefst ekki timi nú. Ég vil þó taka út úr og gera að umræðuefni eitt það mál, sem fyrir þinginu ligg- ur, en það eru drög að ályktun um iðnaðarstefnu og iðnþróun. Ef til vill væri þó réttara að tala fremur um stefnuna í uppbygg- ingu atvinnulífsins i heild, þvi að er skoðun stjórnar Lands- sambands iðnaðarmanna, að ekki verði svo fjallað um þróun iðnaðar og iðnaðarstefnu, að ekki komi þar inn i myndina þróun annarra atvinnuvega. Og i beinu framhaldi, að ekki verði framkvæmd iðnaðarstefna, sem gerir ráð fyrir að mismuna ein- stökum iðngreinum á grund- velli vafasamra skilgreininga á þvi, hvað sé samkeppnisiðnað- ur og hvað ekki. Hér má segja að komið sé að kjarna málsins að þvíer varðar þá tillögu, sem fyrir þessu þingi liggur, en þar er einmitt lögð áhersla á að leggja beri nýtt mat á mikil- vægi einstakra greina iðnaðar, þar sem tekið sé mið af allri atvinnustarfsemi i landinu. Mönnum er ljóst, að iðnaður- inn verður að gegna vaxandi hlutverki i atvinnuuppbygg- ingu á Islandi, þvi i önnur hús er ekki að venda. Stærsta skref- ið i þá átt var stigið með inn- göngunni í EFTA og með samn- ingum við EBE. Með þvi var i verki viðurkennt að iðnaður ætti miklu hlutverki að gegna á íslandi um ókomna tið. Ég hygg, að yfirgnæfandi fjöldi aðila innan Landssam- bands iðnaðarmanna hafi fagn- að því að þetta skref var stigið. Ég held líka, að flestir séu enn sama sinnis, þó hætt sé við, að sá árangur sem náðst hefur sé mun minni en vænst var við byrjun þessa áratugs, þegar lit- ið var með bjartsýni fram til tíu ára aðlögunartfmans, sem nota átti til að byggja upp og efla íslenskan iðnað. Vel má vera að bjartsýnin hafi verið og mikil, en ég vil á engan hátt telja að hún hafi verið til skaða, né heldur vil ég gera of lítið úr þeim árangri, sem náðst hefur, það hefur óneitanlega talsvert miðað fram á við. Hinu er þó ekki að neita, að talsvert skiptar skoðanir eru um það hvernig vinna beri að eflingu islensks iðnaðar, ég vil jafnvel gerast svo djarfur að segja, að menn virðast ekki sammála um hvað teljist til iðn- aðar og hvað ekki. Ég hef sagt það áður, og mun endurtaka það hér og svo oft sem mér þykir þurfa, að ég tel ógerlegt að byggja upp íslensk- an iðnað á grundvelli mismun- unar í aðstöðumálum á þann hátt, að draga linu njilli þeirra greina, sem lenda í beinni sam- keppni við EFTA vörur og hinna sem þar standa fyrir ut- an. Hvort tveggja er, að þarna er óhægt að greina í milli, þar sem iðngreinarnar eru ekki af- markaðar og sjálfstæðar heild- ir, heldur eru hver annarri háð- ar um viðskipti og þjónustu, en að auki getur það varla hafa verið ætlunin, að inngangan í EFTA og samningar við EBE yrðu þeim greinum einum til gagns, sem þá lentu i beinni samkeppni á erlendum mörkuð- Framhald á bls. 30. Jón Kristófersson Minningarorð Fæddur 21. júnf 1888 Dáinn 19. ágúst 1977 I dag verður Jón Kristófersson kvaddur af ástvinum sinum og öðrum samferðamönnum á lffs- leiðinni, eftir langt og heillaríkt ævistarf. Foreldrar hans voru merkishjónin Margrét Hákonar- dóttir og Kristófer Sturluson, sem bjuggu á Brekkuvelli á Barða- strönd. Þar ólst Jön upp i hópi margra systkina. 1913 lauk hann námi frá Kennaraskólanum, eftir það gerðist hann kennari og skólastjóri á Patreksfirði. 15. október 1920 kvæntist hann Guð- björgu Káradóttur, sem ættuð var úr Arnessýslu. Hún stundaði kennarastörf þar vestra. Hjónin fluttust hingað til Reykjavikur ár- ið 1924. Jón stundaði fyrstu árin hér ýms störf, unz hann réðst á varðskip 26. júní 1929. Eftir það stundaði hann landhelgisgæzlu, þar til hann var kominn hátt á áttræðisaldur. Þau hjónin eignuð- ust 5 börn, fjórar dætur og einn son, hann misstu þau á barns- aldri. Hann hét Kristófer. Dæt- urnar eru: Hanna, gift Hákoni Einarssyni skipasmið, Ragna, gift Theodóri Jóhannessyni, sem vinnur hjá Flugleiðum h.f. Þau eru búsett hér i Reykjavfk. Tengdasynirnir reyndust Jóni og Guðbjörgu ágætlega. Anna og Margrét eru búsettar i Bandaríkj- unum. Systurnar eru vel gefnar, prýðiskonur; þær eiga nú 13 börn og 11 barnabörn. Ég kynntist ekki Guðbjörgu og Jóni fyrr en haustið 1972 eftir að hafa dvalið um tima í Ameríku. Þar hitti ég Önnu dóttur þeirra, kom oft á heimili hennar, hef sfðan notið ástúðar hennar og vin- áttu mér til óblandinnar ham- ingju. Ég fór með kveðju frá enni til foreldra hennar. Þá kom ég fyrst til þeirra á Norðurbrún 1 hér í borg. Þar bjuggu þau sið- ustu æviárin. Mikil ánægja var að sitja hjá þeim i litlu stofunni og tala við þau. Bæði sögðu þau vel frá, enda gáfuð og skemmtileg. Margreynd og þroskuð í löngum skóla lífsbaráttunnar. Guðbjörg andaðist 19. marz 1974. Eftir fráfll hennar bjó Jón einn á Norðurbrún 1. Hann var gæfumaður, stundaði gott og göf- ugt starf i marga áratugi. En mesta hamingja hans var ástrik eiginkona og yndislegar fjórar dætur, sem aldrei brugðust hon- um. Það sást bezt þegar hann þurfti mest á kærleika að halda. Þær tvær sem i Ameríku búa, komu fyrir tæpu ári, þegar hann var veikur. Jón gladdist lengi yfir að hafa fengið að sjá þær allar + Eiginkona mln, móðir okkar og tengdamóðir, MÁLFRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR lést á Landspitalanum að morgni, hinn 29 ágúst Jarðaförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 5 september, kl 1 3 30. Frlmann Jónasson Ragnheiður Frímannsdóttir Ove Krebs Bima Frimannsdóttir Trúmann Kristiansen Jónas Frlmannsson Margrét Loftsdóttir barnabörn og bamabarnabörn fjórar heima hjá sér. Slðustu mánuðina þegar heilsa haas var farin að bila, komu þær tvæ|- syst- urnar, sem hér búa, báðar tíl hans daglega, hvort sem hann var á sjúkrahúsi eða heima. Nú geta þær þrjár, sem kveðja sinn kæra föður í dag í Guðs húsi og sú, sem hugsar til hans úr fjarlægð, glaðst yfir að hafa aldrei brugðist hon- um eða móður sinni, sem áður var kvödd. Þau voru bæði hógvær í sorg og gleði. Guð sé lof fyrir störf Jóns Kristóferssonar, hann vann það, sem honum var trúað fyrir, af skyldurækni og trúmennsku. Hann á góða heimkomu í ríki dýrðarinnar, þar sem sál hans heldur áfram að þroskast og vaxa að vizku. Blessuð sé minning hans. Sesselja Konráðsdóttir. Birting afmælis- og minning- argreina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar + Móðir mín og amma okkar HALLDÓRA JÓNSDÓTTIR Bárugötu 20 andaðisf á Landakotsspitala laugardaginn 27 ágúst Jón Brynjólfsson Jóna Elfa Jónsdóttir Brynjólfur Jónsson + Bróðir okkar, GUÐMUNDUR SIGURÐSSON kaupmaður, Skólavörðustig 28, lést á Landspitalanum 29. ágúst Jarðaförin ákveðin siðar Ósk Sigurðardóttir Jóhann Gunnar Sigurðsson. + Móðir ókkar. tengdamóðir og amma SIGRÍÐUR SIGUROARDÓTTIR NeSri-Þverá I Fljótshllð lést á Landakotsspítala að kvöldi 26 þ m Eltn Guðjónsdóttir Þórunn Guðjónsdóttir Sigurpáll Guðjónsson Sigurður Ingi Guðjónsson Ámi Guðjónsson Magnús Guðjónsson tengdaböm og barnabörn. + Moðir min. KRISTJANA SIGRTYGGSDÓTTIR, frá Húsavfk, andaðist i Landspítalanum sunnudaginn 28 ágúst Sigurlaug Albertsdóttir. + Litli sonur okkar TORFI GEIR andaðist á Barnaspitala Hringsins þ 28 ágúst. Stefanla Magnúsdóttir Guðjón Torfi Guðmundsson Markarflót 22 Garðabæ + Eiginmaður minn, andaðist 26. þ.m. ÁGÚSTÞÓROARSON frá Vestmannaeyjum Viktoría Guðmundsdóttir. verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast f síð- Kona mín, asta lagi fyrir hádegi á mánu- AÐALHEIÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR. dag og hliðstætt með greinar Holtsgötu 18, aðra daga. Greinar tnega ekki YtriNjarðvik, vera f sendibréfsformi eða andaðist aðfaranótt 29 ágúst. bundnu máli. Þær þurfa að Fyrir hönd vandamanna. vera vélritaðar og með góðu línubili. Hafsteinn Axelsson. + Útför eiginmanns míns, GUÐMUNDAR JÓNSSONAR. bllasmiðs. til heimilis að Hrafnistu, fer fram frá Fossvogskirkju á morgun, miðvikudag 31. ágúst kl 10 30 Þeir sem vilja minnast hans láti Hjartavernd njóta þess. Þorbjörg Bjamadóttir, böm. stjúpböm og tengdabörn. + Eiginmaður minn og faðir, GUÐMUNDUR INGIMUNDARSON, húsasmíðameistari, Háaleitisbraut 37, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 31 ágúst kl 3 Jóhanna Þórðardóttir, Sigurður Guðmundsson. + Eiginmaður minn og faðir SIGURÐUR JÓNASSON. + Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför, HRAFNS HALLDÓRSSONAR múrari frá Brú Lindarbraut 6. Seltjarnarnesi, andaðist i Landspitalanum 29 ágúst Sveinbjörg Helgadóttir og böm. Foreldrar og systkini

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.