Morgunblaðið - 30.08.1977, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 30.08.1977, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. AGÚST 1977 37 «8? Mótsvæðið I Skiveren var útbúið skömmu fyrir-mótið en samtök eigenda fslenzka hestsíns [ Danmörku hafa tryggt sér afnotarétt af þvf næstu 4 árin. Sigurður Sæmundsson á Leikni kemur að marki f skeiðinu sem Evrópumeistari í skeiði. járn í 5. sæti, fjórði varð Stokk- hólma-Blesi Reynis Aðalsteins- sonar, þriðji Gammur frá Hofs- stöðum, knapi Christiane Mathie- sen, Þyzkalandi. Gammur er brúnn, fæddur á íslandi 1967 undan Sóma 670 frá Hofsstöðum og á síðasta Evrópumóti var hann i islenzku sveitinni og sat hann Ragnheiður Sigurgrímsdóttir. Sigurvegari varð Fagri-Blakkur, knapi Bernd Vith. Þýzkalandi, én Hrafn og Aðalsteinn i öðru sæti. Dómararnir gáfu Fagra-Blakk mun meira fyrir hægatöltið held- ur en Hrafni en i hraðatöltinu voru þeir jafnir. Fagri-Blakkur er brúnn, fæddur á íslandi 1967, en foreldrar hans eru Gustur 638 frá Kletti og Skessa frá Hvítárbakka. Faðir Gusts 638 er Baldur 449 frá Bóndhól. Ættir hestanna, sem sigruðu i fjórganginum, hafa þegar verið raktar en' sigúrvegari þar var Bernd Vith á Fagra-Blakk, í öðru sæti var Christiane Mathiesen á Gammi og þriðji Heinrieh Jud á Glaumi. I fimmganginum sigraði Walter Feldmann yngri á Eld- járni og í öðru sæti varö Jens Iversen, Danmörku, á Vindskjóna og þriðji var Karl-Heinz Kessler á Sigurboða. í fjórða sæti var Reyn- ir Aðalsteinsson á Stokkhólma- Blesa og í fimmta sæti Aðalsteinn Aðalsteinsson á Hrafni. Vind- skjóni er fæddur á íslandi 1966 undan Rauð frá Alfsnesi og Vind- skjónu frá sama stað. Sigurboði er rauður, fæddur á Reykjum í Vest- ur-Húnavatnssýslu 1967 og undan Roða frá Reykjum. íslendingar í fyrsta og f jórða sæti í stigakeppninni Sigurður Sæmundsson á Leikni varð sem kunnugt er stigahæsti keppandinn á mótinu og Leiknir fékk nafnbótina bezti hesturinn á mótinu. Þessum árangri náði hann með því að sigra í skeiðinu, verða þriðji í hlýðniæfingum A, sjötti i tölti og sjötti í 5-gangi og hlýðniæfingum C, var fimmti í tölti og sjötti í skeiði. Arangur Leiknis í skeiðinu náði að færa honum það mörg stig að sigrar Eldjárns í 5-gangi og hlýðniæfing- um jC dugðu honum ekki til sig- urs. Þriðji varð Bernd With á Eagra-Blakk og það var sannar- lega óvænt ánægja meðal Islend- inganna þegar tilkynnt var að Sigurbjörn Bárðarson á Gými væri fjórði stigahæsti knapi móts- ins. 1 íslenzku tvikeppninni, sem er samanlagður árangur úr tölt- keppninni og skeiðinu, sigraði Walter Feldmann á Eldjárni og annar var Aðalsteinn Aðalsteins- son á Hrafni. Þriðji var Bernd Vith á FagraBlakk og fjórði Reyn- ir Aðalsteinsson. Eldjárn Walters Feldmanns, yngri. hlaut einnig sérstaka viðurkenningu sem bezti stóðhestur mötsins. Viðurkenn- ingu sem bezta hryssan hlaut Nös frá Skaftholti, eigandi Björn Kjersem, Noregi. Nös er rauðnös- ótt fædd á Islandi 1970 en faðir hennar er Silfurtoppur frá Jíeykjadal en móðir Amorella frá V-Garðsauka. Keppt í teymingum hrossa Fjórir reiðmenn sýndu teym- ingar og riðu fyrst eftir fyrirmæl- um frá þuli en sýndu þessu næstu frjálst í eina minútu. Það kann að virðast undarlegt i augum hesta- manna hér heima að teymingar hrossa séu sýndar sem keppnis- grein. En við verðum að muna að fyrsta stig tamningar er að gera hestinn bandvanan og teymingar hrossa má útfæra með ýmsum hætti á sýningu. Viðurkenningu fyrir teymingu hlaut Kim Ritzau, Danmörku, á Glampa frá Ey en i taumi hafði hann tvo testa. í parreið velja knapar sér sam- reiðarmann eða konu. Viðurkenn- ingu í parreiðinni fengu Toi Merx á Gerpi frá Lágafelli og Marjolijn Tiepen á Friðu frá Hraunbæ, bæði frá Hollandi. Þriðja bezta parið var dæmt Jeanette Vring Hollandi á Kópi frá Hólmi og Benedikt Þorbjörnsson á Val. Á mótinu var Sigurði Sæmunds- syni og Aðalsteini Aðalsteinssyni veitt sérstök viðurkenning frá Skeiðmannafélaginu. Sigurði fyrir beztan árangur i skeiói á þessu móti og Aðalsteini fyrir að hafa fyrr í sumar slegið Islands- metið í skeiði á Fannari. Ekki gefst hér tækifæri til að geta um allt það sem fram fór á mótinu en þess má geta að ekki hafa áður á Evrópumóti verið sýndir fjórir hestar undan sama stóðhestinum en þarna voru sam- an komnir fjórir hestar undan Rauð 618 frá Kolkuósi. Þetta voru Stokkhólma-Blesi, Baldur, Valur og Faxi, sem allir er kenndir við Stokkhólma. Þá sýndi íslenzka sveitin gangtegundir íslenzka hestsins með undirleik tónlistar og var þeirri sýningu vel fagnað. Hópur Dana reið um völlinn bú- inn að hætti fornmanna á Islandi I víðavangs- og hindrunarhlaupinu var einni hindruninni komið fyrir i flæðarmálinu og áttu hestarnir að stökkva út í sjóinn og fara þar f gegnum hlið, sem þar hafði verið komið fyrir. Hér fer Eveline Barmettler á Skjóna frá Meierhof f Þýzkalandi yfir en Skjóni er undan Stormi frá Hofsstöðum. og sýndu notkun vopna, sem not- uð vorú fyrr á öldum. Voru bún- ingarnir og vopnin búin til eftir fyrirmynd í danska þjóðminja- safninu en eitt var óbreytt frá fornöld — hestarnir voru óbreytt- ir. Reiðmenn fá tæki- færi til að reyna hæfileika sína Ekki verður annað sagt en ís- lenzka sveitin hafi staðið sig hið bezta á mótinu. Hestarnir héðan voru allt getuhestar í gangi, þó kannski hafi skort í sveitina glæsilega sýningarhesta er hrifið gætu viðstadda með glæsileik og fegurð. Sigurður Sæmundsson varð sigahæstur á mótinu, Reynir Aðalsteinsson á Stokkhólma- Blesa var 4. i tölti, 4. í 5-gangi, 4. í skeiði og sjötti í hlýðniæfingum C, sem voru erfiðustu hlýðniæf- ingar mótsins. Sigurbjörn Bárðar- son á Gými var 1 öðru til þriðja sæti í skeiði, níundi i tölti og sjöundi í 5-gangi. Aðalsteinn Aðalsteinsson á Hrafni var annar í töltkeppninni og fimmti f 5- ganginum. Birgir Gunnarsson á Trítli var sjötti i 4-gangi. Ragnari Hinrikssyni tókst ekki að láta skeiðhestinn Gretti liggja fyrri dag skeiðkeppninnar en á sunnu- dag lá hann og var i 2. til 3. sæti. Sem kunnugt er keppti Benedikt Þorbjörnsson á Val þar sem Valur heltist keppti i hans stað Eyjólfur Isólfsson á Funa f 4-gangi og hlýðniæfingum A en náði ekki umtalsverðum árangri. Valur var þó orðinn óhaltur mótsdagana og kom fram i sýningum með ís- lenzku sveitinni. í heild var þetta mót f alla staði hið ánægjulegasta. Keppni á Evrópumóti gefur reiðmönnum tækifæri til að réyna hæfileika sína og samanburður fæst á gæð- um íslenzkra hesta að heiman og þeirra, sem fyrir eru á erlendri grund. Síðasta ár hefur heldur dregið úr útflutningi hrossa héð- an en vonandi tekst með þessu móti og annarri kynningarstarf- semi að auka þennan útflutning á ný. Við getum deilt um hvernig rétt sé að standa að útflutningi hrossa héðan en það er fjarstæða að halda því fram að útlendingar fari illa með hestana. Það eru til undantekningartilfelli hjá þeim eins og okkur í þeim efnum en þau eiga ekki að verða til þess að við neitum útlendingum að eiga íslenzka hesta. Eldjárn og Walter Feldmann. Sigurbj Aðalsteinn á Hrafni. Birgir á Trftli. Fagri-Blakkur og Bernd Vith. Texti og myndir: Tryggvi Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.